Þjóðviljinn - 22.10.1987, Page 3

Þjóðviljinn - 22.10.1987, Page 3
FRÉTTIR Sauðfé Heilasýni úr heima- siátruðu Heimaslátrun felur í sér ýmiss konar hættu ef smitsjúkdómar leynast á viðkomandi stað, segir I erindi sem yfirdýralæknir hefur sent til bænda. Reiknað er með að í haust verði fleira fé slátrað heima en verið hefur síðustu ár, vegna mikils niðurskurðar. Yfirdýralæknir fer fram á að bændur á svæðum þar sem riðu- veiki hefur verið eða hætta er á henni, komi með hausa af heimaslátruðu fé, öðru en lömb- um, til sýnatöku í sláturhúsum eða til dýralækna. Heilasýni eru tekin úr full- orðnu fé til þess að fylgjast með útbreiðslu riðuveiki þar sem hennar hefur orðið vart eða hætta er á að hún sé komin. Þá varar yfirdýralæknir bændur við að versla með fé og hýsingu á heimafé með kindum af öðrum bæjum, jafnvel frá nágrönnum. -lg. Fjármálaráðherra Styöur skattahugmyndir Alþýöubandalags Jón Baldvin styður flestar hugmyndir Alþýðubandalagsins í skattamálum. Halldór Ásgrímsson einnigjákvœður. Svavar Gestsson: Mikilvœgur málefnalegur áfangasigur Jón Baldvin lýsti yflr stuðningi við flestar hugmyndir Alþýðu- bandalagsins í skattamálum á Al- þingi í gær, einkum þær hug- myndir að dregið verði úr frá- dráttarheimildum fyrirtækja, að komið verði í veg fyrir að stjórn- endur fyrirtækja færi persónu- lega eyðslu á reikning fyrirtækja og um meðferð risnufjár. Þetta kom fram í umræðu um frumvarp Svavars Gestssonar og fleiri þingmanna Alþýðubanda- lags um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignaskatt á Al- þingi í gær. Jón Baldvin lýsti sig einnig já- kvæðan varðandi hugmyndina um að árviss rannsókn yrði gerð á fjárhag 100 fyrirtækja, auk þess sem hann útilokaði ekki að ein- staklingar með einföld skatt- framtöl gætu losnað við að telja fram sjálfir. Jón Baldvin sagði hinsvegar að innan ríkisstjórnarinnar væri ekki meirihluti fyrir stigvaxandi stóreignaskatti og hann sagðist ekki viss um að rétt væri að setja á stofn sérstakan skattadómstól. Halldór Asgrímsson sjávarút- vegsráðherra var hinsvegar fylgj- andi hugmyndinni um skatta- dómstól og sagðist styðja ýmsar aðrar af hugmyndum Alþýðu- bandálagsins. Svavar Gestsson sagði að frumvarpið hefði fengið óvenju jákvæðar undirtektir hjá þessum mönnum og sagðist fagna því. Taldi hann að með þessu hefði unnist málefnalegur áfangasigur í skattamálunum. Lýsti hann því yfir að þingmenn Alþýðubanda- lags myndu aðstoða Jón Baldvin við að koma góðum málum í gegnum þingið, hinsvegar hefði fjármálaráðherra byrjað á öfu- gum enda þegar hann ákvað að leggja á matarskattinn í stað þess að taka á fyrirtækjunum. Frá fjármálaráðherra eru væntanleg átta frumvörp um skattamál, en óvíst er hvenær þau verða lögð fram. -Sáf Eymundur Matthíasson, Sri Chinmoy samtökunum; Bryndís Brandsdóttir, Samtökum eölisfræðinga gegn kjarnorkuvá; Steinunn Harðardóttir, MFÍK; Ragnar Ólafsson, Félagi Sameinuðu þjóðanna, og sr. Gunnar Kristjánsson: Þagnarstund hefur verið haldin á degi S.Þ. síðan 1984, en ekki áður hér á landi. Mynd: Sig. Dagur Sameinuðu þjóðanna Þögn og klukknahljómur Tíu samtök minna áfriðarhugsjón Sameinuðu þjóðanna á degi samtakanna. Þagnarstund við Höfða Hróarskelda íslenskur tölvuprófessor Edda Sveinsdóttir var fyrir nokkru skipuð prófessor í tölvu- fræðum við háskólann í Hróars- keldu í Danmörku. Edda er stærðfræðingur að mennt og hefur starfað sem fram- kvæmdastjóri tölvustofnunar í Kaupmannahöfn. Edda er íslensk í aðra ætt, dótt- ir Sveins Bergsveinssonar mál- fræðings, sem lengst af hefur kennt í Berlín. Þess má geta að Sveinn verður áttræður á morg- un, 23. október. Laus staða Staða sérfræðings í innkirtlafræði húsdýra við Til- raunastöð Háskólans í meinafræði að Keldum er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíð- ar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf. Með umsókninni skulu send eintök af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækjenda, þrentuðum og óprentuð- um. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. desember n.k. Menntamálaráðuneytið, 19. október 1987 ögnin er einfalt og sterkt form til að fá fólk tii að hugsa um frið og afvopnun, sérstaklega á Hafnarfjörður Einar Matt hættur Einar Mathiesen, efsti maður á lista Frjáls framboðs við síðustu bæjarstjórnarkosningar, sagði af sér sem bæjarfulltrúi á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í fyrrakvöld. Ástæðan fyrir afsögninni er sú að Einar hefur flust búferlum út á Álftanes og ætlar að flytja lög- heimili sitt þangað. f bréfi til fors- eta bæjarstjórnar óskaði Einar eftir því að varamaður sinn Ólafur Proppé tæki sæti sitt í bæj- arstjórn. -Ig- þessum stað; Höfði er orðinn dó- lítið vonartákn í afvopnunarmál- unum, ekki bara venjulegt hús,“ sagði sr. Gunnar Kristjánsson á blaðamannafundi í gær, er nokkrir forvígismcnn friðarsam- taka og hreyfínga kynntu aðgerð- ir sem í bígerð eru á laugardag- inn, degi Sameinuðu þjóðanna. Klukkan fimm síðdegis verður þagnarstund í sjö mínútur, en slík þagnarstund verður haldin á sama tíma í fjölmörgum löndum heims. Safnast verður saman við Höfða kortér fyrir fimm og mun sr. Gunnar Kristjánsson á Reyni- völlum ávarpa viðstadda. í ráði er að þátttakendur taki höndum saman og myndi friðar- merkið framan við Höfða meðan á athöfninni stendur. Að beiðni friðarsamtakanna hefur kirkjuráð skrifað próföst- um landsins bréf, þess efnis að þeir hlutist til um að kirkjuklukk- um verði hringt í 5 mínútur kl. tólf á hádegi í prófastsdæmi þeirra. Þetta er liður í alþjóðlegri aðgerð, Friðarbylgjunni, sem hefst í Hírósíma og Nagasaki og gengur í vesturátt yfir hnöttinn og endar þar sem hófst. Þátttaka í Friðarbylgjunni verður með ýmsu móti eftir löndum; Finnar og Pólverjar verða samstíga okkur í klukkna- hringingum. Danir munu veifa stærsta Sameinuðuþjóðafána sem gerður hefur verið, og þann- ig mætti áfram telja. Samtökin tíu sem standa að þessum aðgerðum eru Friðar- hópur listamanna, Félag Samein- uðu þjóðanna, Samtök eðlisfræð- inga gegn kjarnorkuvá, Samtök um kjarnorkuvopnalaust ísland, Friðarhópur fóstra, Sarritök her- stöðvaandstæðinga, Sri Chinmoy friðarsamtökin, íslenska friða- rnefndin, Menningar- og friðar- samtök íslenskra kvenna og Frið- arhreyfing íslenskra kvenna. HS Verkfræðingur Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða raforkuverkfræðing til starfa í innlagnadeild fyrir- tækisins. Starfið felst í rannsókn á orkunotkun og við skipu- lagsverkefni. Þekking á dreifikerfum og reynsla í forritun æskileg. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og m.a. að- gang að stóru tölvukerfi til notkunar. Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri og yfirverkfræðingur innlagnadeildar í síma 686222. Umsóknarfrestur er til 2. nóvember n.k. RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR Fimmtudagur 22. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.