Þjóðviljinn - 22.10.1987, Page 4
_________________LEtÐARI____________
Samstaða um félagsíbúðir
Þjóöviljinn skýröi í síöustu viku frá vanda Erlu
Þorvaldsdóttur, Sóknarkonu á Landspítalanum.
Erla er undir fimmtugu, á fjögur uppkomin börn
og leigir íbúö fyrir um 18 þúsund krónur á mán-
uöi. Tekjur Sóknarfólks eru ekki af því tæi aö
það geri sér vonir um bjarta framtíð viö endur-
greiðslu lána frá almenna húsnæöiskerfinu, og
Erla sótti því um íbúö hjá Verkamannabústöð-
um í Reykjavík.
Þar fékk hún þau svör aö verkamannabú-
staöir væru svo fáir og byggingarsjóðurinn svo
fjárvana aö ekki væri viðlit aö greiða fyrir fólki
nema þaö væri gamalt, sjúkt, fatlaö eöa byggi
við erfiðarfélagsaðstæður, og kæmust þó miklu
færri aö úr þessum hópum en vildu. Þegar Erla
bar sín mál upp fyrir stjórnvöldum í félagsmála-
ráðuneyti var eina svariö aö hún yröi bara aö fá
sér betri vinnu, en éta ella þaö sem úti frýs.
íbúðarvandi Erlu Þorvaldsdóttur er dæmi-
gerður um þá húsnæðisstefnu sem hér hefur
verið rekin í áratugi, og þó sérstaklega fyrir þá
kreppu sem skapast hefur síðustu misseri. Þeg-
ar húsnæðiskerfiö var stokkað upp í fyrra
gleymdist nefnilega aö gera ráö fyrir félags-
legum íbúöabyggingum. Sjóðir verkamanna-
bústaöa hafa verið sveltir, áhugamönnum í
Búseta um nýjar leiðir haldiö niðri af annar-
legum pólitískum hvötum. Bygging leiguíbúöa á
vegum sveitarfélaga hefur nánast verið aflögö,
enda er uppi sú furðustaða aö lán til leiguíbúða
eru til 30 ára meðan almenn húsnæöislán eru til
40 ára.
Gegn þessari ófremd hefur nú veriö myndaö
öflugt bandalag. Átta félagasamtök hafa sam-
einast um tillögur í frumvarpsformi um endur-
reisn félagslegra kosta f húsnæðismálum og
lagt þær fram sem frumvarpsdrög.
Aöstandendur þessara tiliagna eru Öryrkja-
bandalag íslands, Sjálfsbjörg - landssamband
fatlaðra, Landssamtökin Þroskahjálp, Samtök
aldraöra, Leigjendasamtökin, Búseti - lands-
samband húsnæðissamvinnufélaga, Bandalag
íslenskra sérskólanema og Stúdentaráð Há-
skóla íslands. Félagsmenn eru samtals upp-
undir 40 þúsund.
í vel útfærðum tillögum þessa bandalags er
gert ráö fyrir því aö úr Byggingarsjóði verka-
manna verði til Félagsíbúðasjóður meö miklu
breiðara starfssviö en gamli sjóöurinn. í þennan
nýja sjóð á að renna þriðjungur fjárins sem líf-
eyrissjóöir leggja til húsnæöiskerfisins, og
sjóönum er ætlað aö styöja við bakiö á ýmiss
konar formum félagsíbúöa. Úr sjóönum á aö
renna fé til héfðbundinna verkamannabústaða,
til kaupleiguíbúöa, til leiguíbúða sveitarfélaga
og húsnæðissamvinnufélaga, til hlutareignar-
íbúða og til húsnæöis sem ætlað er náms-
mönnum, fötluðum og öldruöum.
Þessar athyglisverðu og vel unnu tillögur
bandalagsfylkinganna átta veröa eitt meginefni
ráöstefnu á Hótel Sögu á morgun, ráöstefnu
sem hefur aö einkunnaroröum „þak yfir höfuö-
iö“.
Kæmust þessar tillögur í framkvæmd gætu
þær orðiö grunnurinn aö umbyltingu í húsnæö-
ismálum á Islandi, umbyltingu sem einmitt fæl-
ist í því aö landsmenn allir fengju þak yfir höfuö-
iö án þess aö leggja aleiguna undir eöa lífið aö
veði.
Nú reynir á stjórnmálamenn í ríkisstjórn og á
alþingi, einkanlega þá sem kenna sig við fé-
lagshyggju meö ýmsum hætti. Um viðbrögð Al-
þýðubandalagsmanna er auðvelt aö segja fyrir,
vegna þess að tillögur samtakanna átta ganga
um margt í sömu átt og sú húsnæðisstefna sem
flokkurinn mótaði á aðalfundi miðstjórnar í fyrra.
En hvað segir Framsóknarflokkurinn? Hvað
segir Alþýðuflokkurinn? Hver eru viðbrögð Jó-
hönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra við
þessu frumkvæði?
Og það reynir ekki síður á samtök launafólks,
vegna þess að oddvitar þeirra gætu orðið lykil-
menn við þær samfélagsbreytingar sem hús-
næðistillögur hins áttfalda bandalags vísa á.
Samfélagsbreytingar í þágu Erlu Þorvaldsdótt-
ur Sóknarkonu, í þágu ísienskrar alþýðu.
-m
KUPPT OG SKORIÐ
Verðhrunið í Wall Street:
Er ótti manna við
kreppu imdúrótin?
New Vork. ÍUvUr.
Verðhrun
í kauphöllunum
& einu mau ui
fyrirboði raum
eða aðeins ti
manna við hai
SérfræðingarP
ástaeður verðhru0 .
ir kenna umR' Z'
þvf, að henni ' '•V
að hafa her
skiptahalb
þeir þó
Taugaveiklun skýlt
bak við hótfvndni
Dómsdagur
í nánd
Nú er stand á Goddastöðum.
Verðbréfin féllu í verði í Wall
Street um meira en 22 prósent og
nú er myrkur um miðjan dag í
viðskiptaheiminum. Morgun-
blaðið hefur það eftir einum
verðbréfasalanum að nú skuli
menn „gjöra iðrun því dómsdag-
ur er í nánd“ - enda hafi fimm
hundruð miljarðir dollara rokið
út um glugga eins og hendi væri
veifað við verðhrunið mikla. Það
er svo sannarlega mál til þess
komið að vitna í Biblíuna í Guðs
eigin landi.
Eitt leikmannsgerpi, sem hefur
aldrei skilið verðbréf, þótt
skömm sé frá að segja, tekur eftir
einu öðru fremur í viðbrögðum
við fréttum af verðbréfahruninu.
Með öðrum orðum: vanmætti
hagfræðinga. Stundum bera hag-
fræðingar mjög bratt sinn hala,
þeim finnst að þeir sitji uppi með
vísindi sem geri þá nokkrum
dölum dýrari en aðra menn og þá
ekki síst hina óvísindalegu
stjórnmálamenn. Hagfræðingar
komast og einna næst því í hópi
sérfróðra að reyna sig við spá-
mennsku um það sem gerast
muni.
Uppgjöf
hagfræðinnar
En þegar eitthvað bjátar á svo
um munar, þá er eins og allur
vindur sé úr hagfræðingum
skekinn á skammri stund. Þeir
koma fram með margar skýringar
á því sem gerst hefur, en taka það
um leið fram af óvæntri hógværð,
að margt sé ósagt og kannski viti
enginn hvernig á verðbréfa-
kreppunni stendur. Kannski
leggjast þeir út af í uppgjöf og
vísa á sálfræðinga og aðra sá-
lusorgara: Við málefni tak þú
mínu.
Taki menn eftir því að einmitt
slík viðbrögð einkenna leiðara
Morgunblaðsins um verðrhrunið
í gær. Þar segir ekki að markað-
slögmálin muni leysa hnútinn
með því að „leita jafnvægis"
hjálparlaust - menn verða að
hafa „þrek og þolinmæði“ til að
bíða þess. Leiðarahöfundur étur
það eftir sérfróðum að það sé
engin einhlít skýring á því hvers
vegna hlutabréfin hafi fallið jafn
mikið í verði og raun ber vitni og
síðan kemur þessi merka klausa
hér:
„Efnahagslegar forsendur,
vextir og vísitölur, segja síður en
svo alla söguna, sálrænir þættir
og mannleg viðbrögð ráða úrs-
litum. Ef Bandaríkjamenn telja
sér trú um að efnahagur þeirra sé
að versna er öruggt að hann
versnar, er nú sagt“.
Þetta er blátt áfram dásamlegt.
Bandarískt efnahagslíf er ekki í
klemmu vegna vaxtastefnu eða
óhagstæðra utanríkisviðskipta
heldur vegna þess að Bandaríkja-
menn eru sjálfir ekki nógu bjart-
sýnir. Og er þá næst að álykta, að
ef Kanar væru nógu pós, eins og
táningarnir segja, þá snerist
dæmið við. Enda dregur leiðar-
ahöfundur einmitt þá ályktun af
öllu saman. Hann eins og ávítar
Bandaríkjamenn fyrir að trúa
ekki þeim skýrslum sem banda-
rísk stjórnvöld senda frá sér:
„Allar efnahagslegar vísbending-
ar gefa til kynna að bandarískur
efnahagur sé góður og svigrúm sé
til hagvaxtar þar og annars stað-
ar. Við íslendiugar eigum ekki
síður mikið undir því en aðrar
þjóðir, að það sé nýtt en
svartsýnin nái ekki undirtökum í
þj óðarbúskapnum. “
Þetta er mjög skemmtilegt.
Kannski verður það notadrýgst í
efnahagslegum þrengingum að
senda hina fjölmennu stétt
bandarískra hlutafjáreigenda í
allsherjar sálrænt bjartsýnishóp-
efli? Ef menn segja nógu oft við
sjálfa sig: ástandið er gott, þá
verður það gott.
Oss vegnar vel
Því miður hefur þetta verið
reynt áður. Þegar kreppan mikla
skall yfir heiminn árið 1929 og
annarhver maður fór á hausinn,
þá datt einum smákaupmanni í
Danmörku í hug að stofna
bjartsýnisfélag. Hann lét gera
merki stór og falleg til að menn
bæru í barmi sér og storkuðu
þannig atvinnuleysi, gjaldþrotum
og öðrum hrellingum. Á merkinu
stóð: Her gaar det godt.
Morgunblaðið langar bersýni-
lega mikið að fara í fótspor hins
danska smákaupmanns. En þó er
eins og einhversstaðar í sálartetr-
inu leynist grunur um að það sé
ekki nóg. Það er líka mjög athygl-
isvert þegar skoðuð eru viðbrögð
markaðstrúarmanna við verðfal-
linu, að þeir eru að hugga sig við
það, að nú ríki ekki sama ástand
og 1929. Nú sé skjól að finna. Nú
grípi meira að segja hið hlédræga
bandaríska lágmarksríki inn í
gang peningamálanna til að
koma í veg fyrir að hið sálræna í
markaðslögmálunum klussi efna-
hagslífi heimsins til andskotans.
Semsagt: það er skriðið undir
pilsfald ríkisins rétt eina ferðina
enn eins og alltaf þegar riddarar
einkagróðans hafa dottið af baki.
Enn eitt: Það gerðist spaugi-
legt slys í Morgunblaðinu í gær.
Við hliðina á leiðaranum um
verðhrunið er grein eftir efna-
hagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar
þar sem stjórnin er lofuð sérstak-
lega fyrir að hafa opnað fyrir það
að íslendingar steypi sér á kaf í
viðskipti með erlend verðbréf.
Það væri gaman að vita hve miklu
íslensk fyrirtæki og lífeyrissjóðir
hefðu tapað í krakkinu mikla á
mánudaginn, ef að þessi ákvörð-
un hefði verið tekin fyrir drjúgum
tíma og braskið komið á fulla
ferð. áb
þJOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamonn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, IngunnÁsdísardóttir,.
Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson
(íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGislason,
Ragnar Karlsson, Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Ásgrimsson, Vil-
borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Utlltstelknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Margrét Magnúsdóttir
Framkvæmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrif stof ustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjórl: Siaríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Unnur Ágústsdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Krist-
insdóttir.
Símvarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Utbrelöslu- og afgreiðslustjóri: HörðurOddfríðarson.
Afgrelðsla: Bára Sigurðardóttir, HrefnaMagnúsdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Olafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgrelðsla, ritstjórn:
Síðumula 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglý8ingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljanshf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasöiu: 55 kr.
Helgarblöð: 65 kr.
Askriftarverð á mánuði: 600 kr.
.4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. október 1987