Þjóðviljinn - 22.10.1987, Qupperneq 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími’
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVILHN
Fimmtudagur 22. október 1987 235. tölublað 52. órgangur
Þjónusta
íþínaþágu
0
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Undir hamarinn
Uppboðum stórfjölgar
Jónas Gústafsson borgarfógeti: Pað sem afer árinu hefur
svipaður fjöldi eigna verið seldur og allt árið ífyrra
Nauðungaruppboðum á íbúð-
arhúsnæði hefur fjölgað, það
er ekki vafi á því, sagði Jónas
Gústafsson borgarfógeti í samtali
við blaðið í gær, en að undan-
förnu hafa uppboðsdálkarnir
verið fyrirferðarmeiri póstur á
auglýsingasíðum dagblaðanna en
oft áður.
í DV um síðustu helgi dugði
ekki minna en heilsíða undir
auglýsingar borgarfógetaemb-
ættisins í þessa veru, og voru sjö
eignir á nauðungaruppboði í
þriðja og síðasta sinn.
Jónas kvaðst ekki hafa ná-
kvæmar tölur um fjölda uppboða
á vegum embættisins, en taldi að
það sem af væri árinu hefði svip-
aður fjöldi eigna verið seldur og
allt árið í fyrra. Þá fóru 54 eignir
undir hamar borgarfógetaemb-
ættisins í Reykjavík.
- Það er ekki mikil fjölgun
þetta ár, en hún var mikil í fyrra,
sagði Jón Eysteinsson, bæjarfóg-
eti í.Keflavík. Að sögn Jóns voru
Sigurður Sigurðsson ytirdýralæknir mætti á þingpalla í gær til að fylgjast með umræðum um sláturhúsið á Bíldudal. Þar
voru einnig staddir fjölmargir Bílddælingar. Sigurður er fyrir miðri mynd.
Sláturhúsadeilan
Þungur áfellisdómur
Yfirdýralœknir íhugar afsögn efleyft verður að slátra á Bíldudal. Matthías
Bjarnason vill rannsókn á þvíhvernig staðið hefur verið að þessu máli. Jón
Helgason tekur undirþað
Eg hlýt að íhuga hvort ég hef
sinnt mínu starfí ef þetta
frumvarp gengur fram, því það
er þungur áfellisdómur yfir minni
dómgreind,“ sagði Sigurður Sig-
urðsson yfirdýralæknir við Þjóð-
viljann í gær.
Frumvarp Matthíasar Bjarna-
sonar og fleiri þingmanna um að
leyfa Slátufélagi Arnfirðinga á
Bfldudal að slátra í sláturhúsi
sínu kom til fyrstu umræðu í neðri
deild Alþingis í gær. Áður hafði
Guðrún Helgadóttir farið fram á
að frumvarpinu yrði vísað frá
vegna formgalla. Taldi hún að
landbúnaðarráðherra og emb-
ættismenn ríkisins ættu að leysa
málið sín á milli.
Umræður voru fjörugar og
féllu ýms stór orð á þingi vegna
þessa sláturhúsamáls í gær. Matt-
hías Bjarnason sagði það
óheiðarleg vinnubrögð af yfir-
dýralækni að ákveða að þessu
sláturhúsi skyldi slátra og gera
það síðan. Sagðist hann vilj rann-
sókn á því hvernig að þessu hefði
verið staðið.
Sigurður Sigurðsson neitaði
því í samtali við Þjóðviljann að
ákveðið hefði verið að slátra
þessu sláturhúsi. Sagðist hann
hafa reynt að meta þetta eftir
bestu sannfæringu og samkvæmt
þeim upplýsingum sem hann
hefði fengið.
Jón Helgason skýrði frá því að
framleiðsluráð hefði bent á leið
til að leysa vanda Arnfirðinga
með því að bjóða þeim að slátra í
sláturhúsinu á Patreksfirði næstu
daga. Sagði hann að ef þetta
frumvarp yrði að lögum væri ver-
ið að kippa fótunum undan út-
flutningi á lambakjöti. Sagðist
hann sammála Matthíasi um að
rannsókn ætti að fara fram á því
hvernig að þessu hefði verið stað-
ið.
Árni Gunnarsson taldi þetta
mál fyrir neðan virðingu Alþingis
og að það yrði sér til stór-
skammar ef frumvarpið yrði sam-
þykkt, enda gæti það orðið stór-
hættulegt fyrir útflutning okkar.
Kristín Halldórsdóttir sagði að
þingflokkur Kvennalistans væri
andvígur frumvarpinu.
Ætlunin er að keyra málið í
gegn með hraði, en ólíklegt er að
það fái endanlega afgreiðslu fyrr
en í næstu viku.
46 eignir boðnar upp í fyrra í um-
dæminu, en það nær yfir Kefla-
vík, Njarðvík, Grindavík og
Gullbringusýslu. í hittifyrra voru
nauðungaruppboðin hinsvegar
nálægt því að vera 25 talsins.
Þá sagði Jón að uppboðin á ár-
unum þar áður hefðu yfirleitt ver-
ið á bilinu tíu til fjórtán á ári.
HS
Jóhann á toppnum
Short lagður
í 49. leik
Jóhann Hjartarson gerði sér
lítið fyrir og lagði enska skák-
meistarann Nigel Short að velli í
gær, á stórmótinu í Belgrad í
Júgóslavíu. Þar með er Jóhann í
efsta sæti á mótinu, með þrjá
vinninga eftir fjórar umferðir.
Jóhann hafði erfiða stöðu
framanaf skákinni, en undir fert-
ugasta leik vann hann skiptamun
og gaf Short taflið eftir 49 leiki.
Næstir Jóhanni í metastiganum
á mótinu eru þeir Timman og
Popovic með tvo og hálfan vinn-
ing og Beljavsky með tvo vinn-
inga. Fimmta umferð verður
tefld á föstudag. -rk
Barnavernd
Gamalt baráttu-
mál í gegn
Bakvöktum vegna útkalla í
barnaverndarmálum komið á.
Gunnar Sandholt:
Vel tekið af tilvísunaraðilum
Borgarráð samþykkti nýlega
að Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar annist að
bakvaktaþjónustu vegna útkalla í
barnaverndarmálum. Starfsem-
inni verður haldið úti í þrjá mán-
uði til reynslu, eða til áramóta.
Að sögn Gunnars Sandholt, yf-
irmanns fjölskyldudeildar Fé-
lagsmálastofnunar, er félagsráð-
gjafi á vakt yfir helgi, eða frá kl.
4.15 á föstudegi til kl. 8.20 á mán-
udagsmorgni, og svarar í síma.
Upplýsingar um það símanúmer
fást hjá Félagsmálastofnun, og
eins nokkrum tilvísunaraðilum,
en meðal þeirra eru Lögreglan í
Reykjavík, Kvennaathvarfið,
læknavaktin, barnadeildir spítal-
anna, Rauðakrosshúsið og Slysa-
varðstofan.
Framtakið verður metið að
reynslutímanum liðnum, en að
sögn Gunnars hefur þegar komið
í ljós að þessi þjónusta er notuð.
„Tilvísunaraðilarnir hafa tekið
bakvaktaþjónustunni mjög vel,
enda hafa þeir margir hverjir ósk-
að eftir því í mörg ár að henni yrði
komið á,“ sagði hann.
Bakvaktir starfsmanna barna-
verndarnefndar voru lagðar nið-
ur um áramótin 1972 til 1973
vegna launadeilu, en þeim hafði
verið komið á árið 1970. Síðan
hefur þetta mál verið til meðferð-
ar í Barnaverndarnefnd og Fé-
lagsmálaráði árlega, og hafa báð-
ar þessar nefndir knúið á um að
vöktunum yrði komið á að nýju.
Tillaga hér að lútandi var lögð
fram í Félagsmálaráði 18. júní
síðastliðinn - flutningsmenn
Kristín Á. Ólafsdóttir og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir - og
samþykkt um mánaðamótin ág-
úst september.
HS
Grandi hf.
Matar-
skatturínn í
mötuneytið
Megn óánœgja meðal
starfsfólksins
„Þrátt fyrir þessa hækkun á
fiskmáltíðum um 30 krónur og á
kjötmáltíðum um 40 krónur, þá
nægir hækkunin ekki til að
standa undir hráefniskostnaði.
Inn í hækkunina kemur einnig
söluskattshækkun um 10-15%,
því ríkið vill jú sitt,” segir Jórt
Rúnar Kristjónsson fjármálastjóri
Granda hf. í Reykjavík í samtali
við Þjóðviljann.
Mikillar óánægju gætir þessa
dagana meðal starfsfólksins hjá
Granda hf. vegna hækkunar á
máltíðum í inötuneyti fyrirtækis-
ins. Fiskurinn hækkaði úr 130
krónum í 160 krónur og kjötið úr
160 krónum í 200 krónur. Segja
starfsmenn að svona hækkanir
séu ekki verjandi þegar kaupið í
fiskvinnslunni er ekki hærra en
það er. Telja þeir að hækkanirnar
verði til þess að fólk verði ekki
auðfengið til að vinna hjá fyrir-
tækinu.
Að sögn Jóns Rúnars fjármála-
stjóra hækkaði verð á máltíðum í
mötuneytinu síðast 1. júní í ár.
-grh