Þjóðviljinn - 01.11.1987, Side 4
Uppnám í listheimum:
Falsaði Goya verk
eflir Rembrandt
og fleiri meistara?
Kanadískur listfræðingur,
Rolph Medgessy, telursig
hafa komist að því eftirtuttugu
ára rannsóknir að ýms
heimskunn verk sem talin
hafa verið eftir Rembrandt,
Michelangelo, Leonardoda
Vinci, Velazquez og fleiri séu í
rauninni eftir Francico Goya-
sem hafi reyndarskilið eftirá
myndunum fangamark sitt
svo lítið bæri á. Söfnin sem
eiga myndirnar mótmæla
harðlega þessum kenning-
um.
Það er starfsbróðir Medgessys,
franski listfræðingurinn Didier
Pouech, sem hefur komið niður-
stöðum hans á framfæri og er
sjálfur sannfærður um að Goya
hafi gert listfræðingum meirihátt-
ar grikk.
Öngvir smákarlar
Það er ekki nýtt að menn deili
um það hvort til dæmis myndir
þær sem Rembrandt er skrifaður
fyrir séu í raun eftir aðra menn.
En þá hafa menn yfirleitt læri-
sveina hans og samverkamenn
grunaða og oft eru spurningar um
réttan höfund myndar flæktar í
einatt óljósa verkaskiptingu á
vinnustofum málara hér áður
fyrr.
En það er nýtt að mynd eins og
t.d. „Maðurinn með gullna
hjálminn" sem hangir á safni í
Berlín, sé talin eftir annan stór-
meistara málaralistar, nánar til-
tekið Goya. En þeir Medgessy og
Pouech halda því fram að svo sé
og telja það sannað með því að í
göfugum feldi þeirrar myndar séu
„lýs“ faldar - nánar tiltekið nafn
Goya letrað örsmáum stöfum og
haglega falið, en megi þó finna
það undir stækkunargleri. Didier
Pouech telur og að það geti vel
komið heim og saman við æviferil
Goya og skapgerð að hann sýndi
af sér þennan prakkaraskap.
Rolph Medgessy er frægur
fyrir smámunasemi og því hafa
fáir af því vitað til þessa að hann
hefur um tuttugu ára skeið verið
að safna gögnum um falsanir
Goya á söfnum heimsins: hann
vildi vera viss í sinni sök. Og li-
Hendrickje sefur. British Museum hefur lengi verið stolt af þessari fögru teikningu Rembrandts - nú er sagt að Goya hafi signerað hana eins og örvarnar benda á.
stinn sem hann kemur með er
ekki ómerkilegur. Hann segir að
„Venus fyrir framan spegil" eftir
Velazquez (National Gallery í
London), „Mærin á klettinum"
(Louvre í París) og allmargar
teikningar eftir Leonardo da
Vinci og „Höfuð æpandi manns“
eftir Michelangelo (Uffizisafnið í
Flórens) séu meðal þeirra verka
sem Goya hefur gert.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Sunnudagur 1. nóvember 1987
Þokkagyðjurnar
þrjór
Þennan lista má lengja með
Rubens, Cortona, Andrea del
Sarto, listamennirnir sem Goya á
að hafa hermt eftir eru alls um
þrjátíu. Ein þessara mynda er
Þokkagyðjurnar þrjár, sem menn
hafa talið vera eftir Rafael. Sú
mynd hefur jafnan þótt dularfull.
Hún á sér nefnilega mjög ná-
kæma samsvörun í veggmynd
sem fannst í húsi einu í rústum
Pompei. Og þá spyrja menn:
hvernig gat Rafael, sem lést árið
1520, vitað af því málverki, sem
enginn hafði þá séð - uppgröftur í
Pompei byrjaði ekki fyrr en
1748?
Það var þetta sem kom Me-
dgessy á sporið. Hann
rannsakaði mjög grannt hina for-
nu frummynd og mynd Rafaels
og þá kom hann auga á hinar ör-
smáu merkingar Goya. Það er
líka vitað af kópíu af myndinni
fornu sem talið er að Goya hafi
gert.
Til alls vís
Goya dvaldi á Ítalíu á árunum