Þjóðviljinn - 01.11.1987, Side 16
Igl REYKJKMIKURBORG Igl
Jlauátfsi Stödu%
Stöður á dagheimilinu Bakkaborg v/ Blöndu-
bakka:
Staða forstöðumanns er laus til umsóknar.
Fóstrumenntun áskilin. Einnig staða yfirfóstru.
Upplýsingar gef framkvæmdastjóri og umsjón-
arfóstrur á skrifstofu Dagvista barna, sími 27277.
REYKJKJÍKURSORG |g|
JLcuimk Stödcci
Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27.
Starf vaktstjóra er laust til umsóknar, sjúkraliða-
menntun áskilin.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377
alla virka daga.
Igl REYKJKMÍKURBORG Igl
V Jlau&vi StidÁvi
Félagsráðgjafar
Félagsmálastofnun Reykjavíkur auglýsir lausa
stöðu sérfulltrúa við fjölskyldudeiid. Fulltrúinn fer
með ýmis sérverkefni einkum á sviði barna-
verndar, t.d. vistanir barna á vistheimilum, ráð-
gjöf við Mæðraheimilið og fjölskylduheimili.
Askilin er starfsreynsla á sviði barna- og fjöl-
skylduverndar. Upplýsingar gefur yfirmaður fjöl-
skyldudeildar í síma 25500. Umsóknarfrestur til
20. nóvember n.k.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Auglýsing frá
Fisksjúkdómanefnd
1. Fisksjúkdómanefnd hefur á fundi sínum hinn
9. september 1987 ákveðið skv. heimild í 16. gr.
reglugerðar nr. 403/1986 um varnir gegn fisk-
sjúkdómum og heilbrigðiseftirlit með fiskeldis-
stöðvum, að leyfilegt sé á þessari riðtíð, að taka
villta laxfiska til undaneldis.
Undantekning frá þessu leyfi eru eftirtaldar ár, en
úr þeim má ekki taka villta laxfiska til undaneldis
nema með sérstöku leyfi Fiskisjúkdómanefndar:
Elliðaár, Reykjavík
Kiðafellsá, Gullbringu- og Kjósarsýslu
Laxá í Leirársveit, Borgarfjarðarsýslu
Haukadalsá, Dalasýslu
Staðarhólsá, Dalasýslu
Hvolsá, Dalasýslu
Svalbarðsá, Norður-Þingeyjarsýslu
Sogið, Árnessýslu.
2. Fisksjúkdómanefnd hefur ákveðið að skipta
landinu í 7 svæði m.t.t. flutnings á lifandi villtum
laxfiskum vegna varna gegn smitsjúkdómum.
Svæðin afmarkast á eftirfarandi hátt:
Svæði 1. Frá Reykjanestá til Öndverðarness.
Svæði 2. Frá Öndverðarnesi til Horns.
Svæði 3. Frá Horni til Gjögurtáar.
Svæði 4. Frá Gjögurtá til Rifstanga.
Svæði 5. Frá Rifstanga til Eystrahorns.
Svæði 6. Frá Eystrahorni til Reynisfjalls.
Svæði 7. Frá Reynisfjalli til Reykjanestáar.
Ár sem falla til sjávar milkli þessara kennileita
tilheyra sama svæði og inni í landi ráða vatnaskil.
Óheimilt er að flytja lifandi villta laxfiska til undan-
eldis milli þessara svæða nema að fengnu leyfi
Fisksjúkdómanefndar.
Fisksjúkdómanefnd
Áhugamennska
á undanhaldi
Þegar ákveðið var að leika úti-
leikinn gegn Sovétmönnum í
Evrópukeppni landsliða í
knattspyrnu þann 28. október
var ekki gert ráð fyrir að sú
dagsetning væri óhentug.
Reiknað var með að íslenska
landsliðið yrði að mestu leyti
skipað atvinnumönnum sem
væru komnir á fullan skrið
með sínum félögum á þess-
um tíma, og því gerði ekki
mikið til þótt leikmenn ís-
lensku liðanna hefðu ekki
leikið deildaleik í tæpa tvo
mánuði.
En reyndin varð önnur.
Atvinnumennirnir heltust úr lest-
inni einn af öðrum og þegar til
kom voru í 16 manna hópnum tíu
áhugamenn frá íslandi og tveir
frá Noregi sem höfðu einnig lokið
sfnu leiktímabili þótt skemmra
væri síðan. Tveir atvinnumann-
anna hafa ekki verið í náðinni og
setið á varamannabekk síðustu
vikurnar, einn kom frá liði í neðri
hluta 2. deildarinnar í Sviss og sá
fjórði frá liði sem er að hluta til
skipað áhugamönnum þótt það
eigi sæti í belgísku 1. deildinni.
Sem sagt, sextán manna hópur
sem virtist engar forsendur hafa
til að geta veitt hinu snjalla sov-
éska landsliði, einu því besta í
heiminum, markverða keppni.
Margir óttuðust stóran skell, enn
verri en gegn Austur-
Þjóðverjunum í vor, og almennt
var talið að allt undir 5-0 ósigri
yrði vel viðunandi.
Þessar forsendur hefðu getað
dugað til að draga úr íslensku
leikmönnunum allan kjark. Þeir
efldust hinsvegar við mótlætið og
náðu betri úrslitum í Svartahafs-
borginni Simferopol en lið sem
hafa verið hærra skrifuð. Það get-
ur verið grátbroslegt að tala um
sigur í tapleik en tveggja marka
tapið var vel undir þeim mörkum
sem sett voru hér heima við þol-
anleg úrslit.
ísland hafnaði í fjórða sætinu í
sínum riðli og eins og áður hefur
verið bent á kann það að reynast
mikilvægt. Þann 12. desember
nk. verður dregið í riðla fyrir
heimsmeistarakeppnina og þá
lendir ísland í fjórða styrkleika-
flokki Evrópu, ekki þeim fimmta
og síðasta eins og oftast áður. Það
gefur möguleika á hagstæðari
andstæðingum en oft áður, en úr
flestum riðlanna í Evrópu komast
tvö lið áfram í lokakeppnina á
Ítalíu árið 1990. ísland gæti hugs-
anlega blandað sér í baráttuna
um þann fjarlæga möguleika. Sá
kjarni sem byggður hefur verið
upp á markvissan hátt síðustu
misserin í 21-árs landsliðinu og
síðan í ólympíuliðinu hefur staðið
sig af mikilli prýði og gefur fyrir-
heit um að breiddin í íslenskri
knattspyrnu sé sífellt að aukast.
í handknattleiknum voru
landslið líka í sviðsljósinu um síð-
ustu helgi. Piltalandsliðið, undir
21 árs, skyggði að þessu sinni á
A-landsliðið með glæsilegum
sigri á alþjóðlegu móti í Vestur-
Þýskalandi. Mótherjar þar voru
Norðmenn, sem eru geysisterkir í
þessum aldursflokki og slógu t.d.
íslenska liðið útúr heimsmeist-
arakeppninni sl. vor, og stór-
þjóðirnar Tékkar og Vestur-
Þjóðverjar. í 21-árs liðinu er
sterkur hópur leikmanna sem er
kominn með ótrúlega mikla
reynslu og á að geta tekið við af
þeim sem nú skipa okkar ágæta
A-landslið í fyliingu tímans.
A-landsliðið lék á sama tíma á
móti í Sviss og náði ekki umtals-
verðum árangri. Tveggja marka
tap í jöfnum leik gegn Austur-
Þjóðverjum sýndi reyndar enn og
aftur að leikir okkar við hæst
skrifuðu handknattleiksþjóðir
heims eru nú orðið undantekn-
ingarlítið jafnir og tvísýnir og
geta endað á hvorn veginn sem
er. Gestgjafarnir Svisslendingar
voru sigraðir með einu marki -
ísland á að sigra þá í fjórum
leikjum af hverjum fimm miðað
við styrkleika. Fjögurra marka
sigur á Austurríki er ekki til að
hrópa húrra fyrir, kröfurnar til
íslenska landsliðsins eru orðnar
það miklar að leikir gegn þjóðum
í þeim styrkleikaflokki eiga að
vinnast með meiri mun. En þetta
var byrjunin á þessum vetri hjá
liðinu og eðlilegt að á ýmsu
gangi. Undirbúningurinn sem
framundan er miðast við að liðið
verði í toppformi í heimsbikar-
keppninni sem haldin verður í
Svíþjóð snemma í janúar.
Eins og staðan er í 1. deildinni
stefnir allt í að hið kornunga lið
FH stingi af og verði íslands-
meistari í vetur. Svo mikið er víst
að Hafnfirðingarnir verða að fara
að tapa stigum til þess að aðrir
eigi möguleika. Meistarar Vík-
ings eru bæði búnir að tapa fyrir
Breiðabliki og Stjörnunni og eiga
þungan róður fyrir höndum til að
vinna þann mun upp. Valsmenn
eru í augnablikinu líklegustu
keppinautar FH-inga, þeir virð-
ast loksins vera komnir með það
jafnvægi í sitt lið sem þarf til þess
að ná langt. Víkingana má alls
ekki afskrifa samkvæmt fenginni
reynslu og það verður spennandi
að fylgjast með leikjum þessara
þriggja í vetur.
Víkingur og Stjarnan halda
uppi heiðri Islands í Evrópu-
keppninni nú um helgina. Gegn
Norðurlandaliðunum Kolding og
Urædd ætti styrkur 1. deildarinn-
ar að koma nokkurn veginn í ljós.
Þó Danir séu öflugri handknatt-
leiksþjóð en Norðmenn má búast
við að Stjarnan eigi erfiðari leiki
fyrir höndum gegn Urædd.
Norska liðið er sjóað í Evrópuk-
eppninni og hefur oft náð góðum
úrslitum þar. Sló t.d. Val út í
fyrra og komst alla leið í fjögurra
liða úrslit. Stuðningur áhorfenda
getur skipt sköpum í Evrópu-
leikjum og Víkingar og Stjarnan
þurfa á öllum mögulegum liðss-
tyrk að halda til að ná nægjanlegu
forskoti fyrir útileikina.
Aðeins aftur að knattspyrn-
unni í lokin. Stjarnan sem leikur í
3. deild skaut 1. deildarfélögun-
um á höfuðborgarsvæðinu ref
fyrir rass í vikunni með því að
krækja í Skagamanninn snjalla,
Sveinbjörn Hákonarson, fyrir
næsta tímabil. Þetta sýnir að það
er ekki lengur aðeins í 1.
deildinni sem bolmagn er fyrir
hendi til að koma til móts við vax-
andi kröfur okkar bestu knatt-
spyrnumanna. Fleiri góðir eiga
eftir að skipta um félög á dramat-
ískan hátt á næstu dögum og vik-
um - hér hefur snjóbolta verið
velt af stað undan brekku, hann á
eftir að hlaða enn frekar utaná sig
og verður ekki stöðvaður svo
auðveldlega. Knattspyrnan erí æ
ríkara mæli farin að snúast um
peninga hérlendis eins og í öðrum
löndum - meiri peningar gera
kröfur um betri árangur og það er
sennilega farsælast fyrir alla að
gera sér grein fyrir því að áhuga-
mennskan í íslenskri knattspyrnu
er á hröðu undanhaldi - hvort
sem mönnum líkar betur eða
verr.
Víkingar eiga erfiðan Evrópuleik fyrir höndum um helgina, og Stjarnan sömu-
leiðis.
ÍÞRÓTTASPEGILL
VIÐIR
SIGURÐSSON
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. nóvember 1987