Þjóðviljinn - 17.11.1987, Page 2
Steina Ragnarsdóttir:
Nei, ekki neitt. Hef engan áhuga.
Bogi Þorsteinsson:
Nei, það hef ég ekki gert, ekki
nema það sem kemur í fréttum.
Ég kann nú mannganginn, en
ekki mikið meira.
—SPURNINGIN»
Fylgist þú meö skákmót-
inu?
(Spurt í Keflavík)
Hildur Hauksdóttir:
Nei, ég hef engan áhuga á því.
Gunnar Stefán Sigurðsson:
Það er lítið. Ég tefli sjálfur en hef
samt lítið fylgst með.
Ragnar Guðmundsson:
Nei. Það hef ég ekki gert, en er
samt mikill skákmaður.
FRÉTTIR
Arnarfjörður
Mokveiði á rækjunni
Rœkjuveiðar hófust íArnarfirði ílok síðustu viku. Kvótinn
500tonn. Stór 3-4 árarœkja, en hrognafull
Rækjuveiðar hófust í Arnar-
firði í lok síðustu viku og hef-
ur verið mokveiði síðan. Sjávar-
útvegsráðuneytið heimilaði bát-
unum 10 sem hafa leyfi til
veiðanna, 5 tonna kvóta yfir vik-
una, en við höfum gert samkomu-
lag við útgerðarmenn þeirra að
minnka hann niður í 4 tonn á viku
til þess að geta annað vinnslunni í
verksmiðjunni. Þar vinna 20
manns tólf tíma á dag, aila virka
daga, sagði Ólafur Egilsson,
framkvæmdastjóri Rækjuvers h/f
á Bfldudal í samtali við Þjóðvilj-
ann.
í ár er rækjukvótinn sem sjáv-
arútvegsráðuneytið heimilaði í
Arnarfirði 500 tonn en var 400
tonn á vertíðinni í fyrra. Rækjan
sem veiðst hefur er 3-4 ára og
stór. Að meðaltali hafa verið um
240-250 stykki í hverju kílói.
Að sögn Ólafs er rækjan um
þessar mundir hrognafull og er
nýtingin á henni í vinnslunni af
þeim sökum frekar léleg. Erfitt er
að pilla hana þar sem skelin er
óvenjuhörð og leiðinleg.
„Við notum sama vatn og not-
að er í hraðfrystihúsinu á staðn-
um, og með klórblöndun er það
vel hæft til vinnslunnar. Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins tók
hér nýverið sýni af vatninu og var
allt í lagi með það,“ sagði Ólafur
Egilsson í Rækjuveri h/f á Bfldu-
dal.
-grh.
Gamla
höfnin
70 ára
í gær voru liðin rétt 70 ár frá
því að hafnaryfirvöld í Reykjavík
tóku formlega við skjólgörðum og
stórskipabryggjum frá danska
verktakafyrirtækinu N.C. Mon-
berg.
Fyrsta bryggjan sem bæjaryfir-
völd stóðu að var Bæjarbryggjan
mikla fram af Pósthússtræti sem
byggð var 1884 og endurbætt
1892 og aftur 1906.
Lægi var slæmt í höfninni og
urðu oft miklir skaðar í vonsku-
veðrum. í árslok 1911 samþykkti
bæjarstjórn viðamikið verkútboð
í hafnargerð eftir tillögum hafn-
arstjórans í Kristjaníu. Fram-
kvæmdir hófust 1913 og var þá
m.a. Iögð járnbraut frá garðinum
út í Örfirisey, að grjótnámi í
Öskjuhlíð og í malarnámu á
Skólavörðuholti. Þessar viða-
miklu hafnarframkvæmdir tóku
fjögur ár en tilboð N.C. Mon-
bergs í verkið hljóðaði uppá
rúma 1.5 miljónir kr. _ig.
Það hafa verið hátíðisdagar hjá Reykjavíkurhöfn undanfarið. í gær var minnst 70 ára afmælis hafnarinnar og i síðustu
viku voru nýjum dráttarbátum hafnarinnar gefin nöfn, en þeir voru skírðir eftir eldri bátunum, Haki og Magni. Þeir er frá
Hollandi og togkrafturinn er yfir 10 tonn í hvorum bát.
íslenska óperan
Wozzeck á
Iwíta tjaldinu
Útgáfa
Bernsku-
minningar
Stefáns
Bókaforiagið Svart á hvítu hf.
hefur sent frá sér bókina „Að
breyta fjalli“ eftir Stefán Jónsson.
Stefán var vinsæll fréttamaður og
dagskrárgerðarmaður á Ríkisút-
varpinu í um það bil aldarfjórð-
ung en á þeim tíma sendi hann frá
sér allmargar bækur. Síðar sat
hann á alþingi íslendinga.
í bókinni „Að breyta fjalli"
rekur Stefán mismunandi sann-
sögulegar minningar frá uppvaxt-
arárum sínum á Austur- og Norð-
urlandi á árunum fyrir síðari
heimsstyrjöld en skírskotar víða
til nútímans. í þessari bók koma
fram bestu eiginleikar Stefáns
sem rithöfundar: húmor og frá-
sagnargleði sem hvorttveggja
helgast af því að honum þykir
einfaldlega svo vænt um þetta
fólk sem útbjó nestið sem hann
lagði upp með og „hrífst ekki
sfður af löstum þess en kostum“..
Þetta eru ekki venjulegar
bernskuminningar, en í inngang-
skafla bókarinnar segir höfundur;
„Ég hef skrifað bernskuminn-
ingar í þetta kver án nokkurra
vilyrða um sannindi, beinlínis í
þeirri mynd sem þær hafa þyrlast
upp úr rykugu hugskoti mínu...
En skáldsaga er þetta ekki, nema
þá að bernska mín hafi verið það
og ég þá að sáralitlu leyti höfund-
ur hennar.“
Söguhetjan er hermaðurinn
Wozzeck, sem er orðinn veill á
geðsmunum, enda hefur hann
mátt þola fátækt og kúgun allt sitt
líf. Hann hefur eignast barn með
stúlkunni Maríu, sem hann grun-
ar um ótryggð. Afbrýðisemin
kvelur hann og leiðir hann að lok-
um til sturlunar og verður hann
Maríu að bana. Efni óperunnar
byggir á sannsögulegum atburð-
um. I verkinu er dregin upp held-
ur dapurleg mynd af eðli mann-
skepnunnar um leið og kemur
fram núkil félagsleg ádeila.
Styrktarfélag íslensku óper-
unnar gengst fyrir sýningu á óper-
unni Wozzeck eftir Alban Berg í
kvöld. Það er kvikmynd þarsem
koma fram söngvarar, kór og
hljómsveit Ríkisóperunnar í
Hamborg. Myndin fékk gullverð-
laun á 15. kvikmyndahátíðinni í
New York og hefur hlotið mikið
lof gagnrýnenda. Wozzeck er ein
af örfáum nútímaóperum, sem
teknar eru reglulega til sýninga í
helstu óperuhúsum heims.
Vínarbúinn Alban Berg er
einn þekktasti lærisveinn Arn-
olds Schönbergs, sem var faðir
tólftónatónlistarinnar. Berg er
talinn eitt fremsta tónskáld
nútímatónlistar. Hann samdi að-
eins tvær óperur. Wozzeck er
byggð á leikriti eftir Georg Buc-
hner, og var óperan frumflutt í
Berlín árið 1925. Hún vakti strax
miklar deilur, bæði vegna efnis
en þó aðallega vegna nýstárlegs
tónlistarforms.
2 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 17. nóvember 1987