Þjóðviljinn - 05.12.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.12.1987, Blaðsíða 1
Laugardagur 5. desember 1987 273. tölublað 52. árgangur Matarskattur Torveldar samninga 25% söluskattur á allar neysluvörur. Niðurgreiðslur aukast um 1250 milljónir. Ásmundur Stefánsson: Truflarog torveldar samningaviðræður Rflrisstjórninni tókst á klukku- tíma löngum fundi eftir há- degi í gær að ná samkomulagi um tekjuöflun rfldssjóðs, sem feist m.a. í þvi að söluskattsprósentan verður óbreytt, 25%, á allar neysluvörur, en á móti koma auknar niðurgreiðslur á hefð- bundnar landbúnaðarafurðir og kjarnfóðurskattur lækkar. Niðurgreiðslurnar aukast um 1250 milljónir og sögðu þeir Þor- steinn Pálsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson, á fréttamanna- fundi í gær, að með því væri kom- ið í veg fyrir verðbreytingu á þýð- ingarmestu matvörum heimil- anna. Ásmundur Stefánsson sagði í gær að það væri mjög slæmt og óskynsamlegt að ríkisstjórnin skuli ekki hafa tekið tillit til þeirra mótmæla sem frá verka- lýðshreyfingunni hafa komið og sagðist persónulega enga trú hafa á því að niðurgreiðsluaukning af því tagi sem gert er ráð fyrir muni haldast til frambúðar. „Þó litið sé fram hjá því er al- veg ljóst að allar aðrar vörur en mjólk og kjöt hækka sem nemur skattinum. Það eru ekki sömu fjölskyldurnar sem njóta þess að ýmsar aðrar vörur munu lækka og bera það að maturinn hækkar í verði. Skatturinn hlýtur því að leiða til aukinnar misskiptingar. Verkalýðshreyfingin hefur mót- mælt þessu og það er ljóst að þetta hlýtur að trufla þær samn- ingaviðræður sem eru framundan og torvelda þær,“ sagði Ásmund- ur. Ríkisstjórnin hafði boðað að einföldun söluskattsins hefði í för með sér lægri söluskattsprósentu en nú er ljóst að hún mun ekki lækka. „Matarskatturinn kostar þetta,“ sagði Jón Baldvin þegar hann var spurður um þetta atriði í gær. Sagði hann að gert hefði ver- ið ráð fyrir að söluskattsprósent- an lækkaði í 22% en til að afla tekna til að mæta niðurgreiðslun- um hefði verið nauðsynlegt að halda söluskattinum í 25%. Auk söluskattsins fela tekju- áform ríkisstjómarinnar í sér ein- földun og lækkun á tollum og á vörugjaldi. Samverkandi áhrif af öllum þessum breytingum á framfærsluvísitölu eru þau að hún verður óbreytt, byggingar- vísitalan mun hinsvegar lækka um 2,3% og lánskjaravísitalan mun lækka um 0,8%. Áhrif á vöruverð er misjafnt. Sumar vömr munu hækka en aðrar lækka. -Sáf Hluti af nemendahópnum sem fyllti ganga og stiga fjármálaráðuneytisins í gær. Þar var þó fátt um svör. Mynd Sig. Tækniskólinn Kennarar í verkfall Á þriðja tug kennara við Tækniskólann leggja niður vinnu vegna samningsbrots launadeildar. Um 130 nemendur eiga á hœttu að missa af prófum og þar með námslánum Aþriðja tug kennara við frum- greinadeild Tækniskólans lagði niður vinnu klukkan 10 árdegis í gær vegna samnings- brots launadeildar fjármálaráðu- neytisins við Kennarafélagið. Leysist deila þessi ekki skjótt eiga um 130 nemendur á hættu að missa af prófum fyrir árslok og þar með rétt til námslána. Pjóðviljinn Mörður og Ottar taka við Árni Bergmann, Mörður Árnason og Óttar Proppé ritstjórar Pjóðviljans Þeir Mörður Árnason og Óttar Proppé hafa tekið við störfum rit- stjóra á Þjóðviljanum við hlið Árna Bergmanns. Ráðningin var samþykkt samhljóða á fundi f stjórn Þjóðviljans sfðdegis f gær. Mörður og Óttar hefja rit- stjórastörf strax. Þeir taka við af Össuri Skarphéðinssyni, sem sagði upp störfum í vikunni, og Þráni Bertelssyni, sem hætti fyrir skömmu. Þjóðviljinn væntir sér góðs af hinum nýju ritstjórum og býður þá velkomna til starfa. Sjá bls. 3. Óttar Proppé Mörður Árnason Ólafur Jens Pétursson, deildarstjóri frumgreinadeildar, sagði við Þjóðviljann í gær að deilan snerist um það að launa- deildin bryti samkomulag sem hefði verið gert við fjármálaráðu- neytið 27. október sl. Áður hafði verið gerður samningur við menntamálaráðuneytið um að öll kennsla yrði metin til vinnu- stunda en launadeildin gat ekki fallist á það samkomulag. Kenn- arar slógu þá af kröfum sínum og var slakað á kennslumatinu um 10% tii 1. september á næsta ári. Nú er 10% skerðingin hinsvegar látin ganga yfir allt, en samkvæmt samkomulaginu átti skerðingin bara að ná til vinnustunda. „ Við getum ekki sætt okkur við þetta,“ sagði Ólafur Jens. Það al- varlegasta við þessa deilu er að ef hún leysist ekki strax þá er hætta á að próf verði ekki haldin, en þau byrja í lok næstu viku, og þá missa nemendur af námslánum. Þrátt fyrir það standa nemend- ur heilshugar með kennurum í þessu réttindamáli og fjölmenntu í fjármálaráðuneytið í gær til að mótmæla vinnubrögðum launa- deildar. Varð þar fátt um svör, sagt að málið væri í athugun. „Þeir töluðu um fund með okk- ur eftir helgi, en þetta mál verður að leysast strax,“ sagði Ólafur Jens að lokum. -Sáf ÁTVR Lítil og hógvær ríki Útsala í miðbœ Hafnarfjarðar innan tíð- ar Áform hafa verið uppi um stóra áfengisútsölu i Hafnarfirði sem þjónaði íbúum grannbyggð- anna, Garðabæ og Kópavogi, auk heimamanna. Líkur benda nú til að ríkin verði fleiri og smærri, eða eitt á hverjum stað. - Það stefnir allt í það að við munum reyna að fá inni í miðbæ Hafnarfjarðar ef einhverjir vilja gefa okkur kost á húsnæði, sagði Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, er hann var spurður hvað liði áformum um áfengisútsölu í Firðinum. Höskuldur hefur átt í við- ræðum við forvígismenn bæjar- félagsins, og segist eiga von á því að málið skýrist á næstu vikum. Hann sagði í gær að fyrirhugað Hafnarfjarðarríki yrði ekki stærra en svo að það dygði bæjar- búum. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans er talið líklegt að Kaupfé- lag Hafnfirðinga við Strandgöt- una skjóti skjólshúsi yfir útsö- luna. Þá sagði Höskuldur að útsala yrði opnuð í Neskaupstað um miðjan febrúar að öllu forfalla- lausu. „Við erum búnir að skoða þá staði sem þar buðust og teljum málið leysanlegt. Hitt er svo ann- að mál hvort samningar takast,“ sagði hann. HS A Iþýðubandalagið Ný fisk- veiðistefna Á fundi miðstjórnar Alþýðu- bandalagsins í dag og á morgun verður m.a. mörkuð stefna í fisk- veiðimálum en þingflokkur AB lagði fram drög að nýrri stefnu á ráðstefnu um sjávarútvegsmál sem haldin var í gær. Sjá bls. 2 Skák Jafnteffli í höricuskák Heimsmeistarinn Garrí Kasp- arov hristi nýjung fram úr erm- inni í 20. skák þeirra Anatólís Karpovs áskoranda. Viðureignin var spennandi en eftir japl og jaml og fuður og 32 leiki skiptu þeir vinningnum með sér. Sjá skýringu Helga Ólafssonar á bls. 11.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.