Þjóðviljinn - 05.12.1987, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 05.12.1987, Qupperneq 4
LEIÐARI Lýðræðislegar hefðir þverbrotnar Af fréttum að dæma virðist samstarf í ríkis- stjórninni komið í óefni. Þar rekur hver uppá- koman aðra líkt og í fjölleikahúsi þar sem áheyrendur þurfa aldrei að láta sér leiðast því að alltaf er eitthvert nýtt atriði í gangi. í gær var allt vitlaust út af stefnunni í fiskveiðimálum, í dag eru stjórnarflokkarnir farnir að rífast út af fyrir- huguðum aðgerðum eða aðgerðaleysi í land- búnaðarmálum og á morgun er boðað heiftar- legt rifrildi vegna fjárlagafrumvarpsins. Á hlið- arleiksviði má svo líta minni háttar átök þar sem meginþráðurinn er vangaveltur og fullyrðingar um það hver hafi nú bakkað í þetta og þetta skiptið og þurft að éta ofan í sig stóru orðin. Almenningur er ekki alls óvanur pólitískum brestum og braki á þessum árstíma en sjaldan hefur hávaðinn og púðurreykurinn jafnast á við það sem nú er boðið upp á. í huga flestra íslendinga er desembermánuð- ur sérstakur. Það eru ekki aðeins jólin sem setja mark sitt á hann, þar kemur margt fleira til. Bókaflóðið fossar inn á heimilin og margir eru þeir sem taka sér góðan tíma til að skoða það sem með því berst á fjörur. Á síðari tímum hefur íslensk hljómplötuútgáfa runnið eftir keimlíkum farvegi og sá hópur, sem tekur sér tíma í des- ember til að hlusta á nýjar plötur, fer stöðugt vaxandi. Skólanemendur fá frí og eru meira heima við en ella og sumir, sem eru við nám fjarri sínu heimili, fá nú langþráð tækifæri til að koma heim. í raun hafa íslendingarfrátekiðdes- embermánuð til að sinna fjölskyldu og menn- ingarlífi. Það er einmitt í desembermánuði sem alþingi er nú að taka stórpólitískar ákvarðanir sem snerta líf og afkomu þjóðarinnar. Af sjálfu leiðir að fjárlög eru til umræðu á þessum tíma. En nú er óvenju mikið af viðkvæmum málum inni í sjálfu fjárlagafrumvarpinu þannig að t.d. er ver- ið að segja fyrir um framtíð rannsókna á sviði landbúnaðar og ákveða hvort tónlistarskólar skuli settir á guð og gaddinn, þegar tekin er afstaða til boðaðra fjárlaga. En það eru ekki fjárlögin ein sem þarf að afgreiða fyrir áramót. Búið hefur verið þannig um hnútana að alþingi þarf á aðeins tveimur vikum að taka til umræðu og afgreiða fjölda mála og er hvert eitt það mikilvægt að eðlileg umræða með tilheyrandi kynningu í fjölmiðlum hefði þurft langan tíma. Þetta eru engin tilfall- andi mál. Lengi hefur t.d. verið Ijóst að setja þyrfti lög um staðgreiðslu skatta og fiskveiði- stefnu fyrir áramótin. Hvers vegna eru þing og þjóð látin bíða fram í desember eftir að ráðherr- um þóknist að koma fram með hugmyndir sínar? Þingmenn hafa ekki nógan tíma til að kynna sér málin, hvað þá alþýða manna. Nú má vera að einhvejir telji það litlu skipta hvort almenning- ur fylgist með ráðabruggi stjórnarherra og telji alla umræðu óheppilega og til þess fallna að flækja mál. Slíkar skoðanir voru algengar hjá ráðherrum einvaldskonunga á fyrri tíð en vekja nú undrun og jafnvel reiði. Nútíma lýðræði getur ekki byggt á því einu að kosnir séu á fjögurra ára fresti 63 þingmenn sem afsala sér völdum til 11 ráðherra, og að þess á milli komi lýðnum ekki við hvað gerist í landsstjórninni. Alvöru lýðræði krefstalmennrar umræðu þannig að sem flestum sé gefið tæki- færi til að átta sig á því um hvað mál snúast og að þeir, sem vilja, geti tekið þátt í umræðu um markmið og leiðir, í einkasamtölum, á prenti eða í Ijósvakafjölmiðlum. Sú aðferð ríkisstjórn- arinnar að draga fram á síðustu stundu að leggja fram mál og stilla mönnum svo upp við vegg og krefjast afgreiðslu strax, sú aðferð er í andstöðu við lýðræðislegar hefðir. Þegarstjórn- in bíður langt fram í desembermánuð með að kynna hugmyndir sínar í veigamiklum málum, en einmitt þá er vitað almenningur er illa í stakk búinn til að gefa sér tíma til að gaumgæfa yfir- gripsmikil mál, þá er hætt við að vísvitandi sé verið að koma í veg fyrir lýðræðislega umræðu. Eða er kannski hugsanlegt að störf ríkis- stjórnarinnar einkennist af slíku fumi og ráðleysi að enginn viti hvert á að stefna? óp Mynd: Sigurður Mar LJOSOPIÐ þlÓÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Rltstjórar: Ámi Bergmann, Mörður Árnason, OttarProppé. Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Elísabet K. Jökulsdóttir, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjömsson, Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir) MagnúsH. Gíslason, Ólafur Gíslason, Ragnar Karisson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Vilborg Davíðsdóttir. Handrita- og prófarkaleatur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir. Ljósmyndarar: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlitatelknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason, Margrét Magnúsdóttir. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Skrlfatofustjórl: Jóhannes Harðarson. Skrlfatofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýalngastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Unnur Ágústsdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Krist- insdóttir. Símavarala: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Bflstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu-og afgreiðslustjóri: HörðurOddfríðarson. Útbreiðsla: G. MargrétÓskarsdóttir. Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, HrefnaMagnúsdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Pjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 55 kr. Helgarblöð:65 kr. Áskrlttarverð á mánuði: 600 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.