Þjóðviljinn - 05.12.1987, Page 10
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Unglingaathvarfiö, Tryggvagötu 12, auglýsir eftir
starfsmanni í 46% kvöldstarf. Æskilegt aö um-
sækjendur hafi kennaramenntun eöa háskóla-
menntun í uppeldis-, félags-, og/eöa sálarfræöi.
Umsóknareyðublöð fást hjá Starfsmannahaldi
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9. Umsóknar-
frestur er til 15.12.87. Nánari upplýsingar veitir
forstöðumaöur í síma 20606 eftir hádegi virka
daga.
Örvi, verndaður vinnustað-
ur, Kópavogi
Tilboð óskast í innanhússfrágang í húsinu
Kársnesbraut 110, Kópavogi.
Um er aö ræða 447 m2 af 1. hæð hússins sem nú
er múrhúöuð aö innan; lagt er í gólf og ofnar
komnir. Loft eru einangruð og klædd.
Ganga skal að fullu frá húsrýminu aö innan til-
búnu til notkunar með innréttingum og húsgögn-
um.
Verkinu skal lokið 25. mars 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7, Reykjavík, gegn 10.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 22.
desember 1987 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7, PÓSTHÓLF 1450, 125 REYKJAVÍK.
SJÚKRAHÚSIÐ
PATREKSFIRÐ!
Hjúkrunarfræðingar
sjúkraliðar
Sjúkrahúsið Patreksfirði óskar að ráða hjúkrun-
arfræðinga og sjúkraliða sem fyrst.
SJÚKRAÞJÁLFARAR
Sjúkrahúsið Patreksfirði óskar að ráða sjúkra-
þjálfara frá næstu áramótum eða eftir samkomu-
lagi.
Nánari upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri og
framkvæmdastjóri í síma 94-1110.
Sjúkrahúsið Patreksfirði
ALÞÝÐUBANPAtAGK)
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Morgunkaffi
Elsa Þorgeirsdóttir, fulltrúi í Félagsmálaráöi og Unnur Björnsdóttir, fulltrúi í
Tómstundaráði veröa með heitt á könnunni í Þinghól, Hamraborg 11,
næstkomandi laugardag 5. desember klukkan 10-12 f.h. - Allir velkomnir.
Stjórnin
Guðrún Guðnadóttir
frá Eyjum í Kjós
andaðist á Landspítalanum aðfaranótt 4. desember.
Andrés Ingibergsson
Sigurður Ingi Andrésson Soffia Sigurðardóttir
Gunnar Andrésson Guðbjörg Stefánsdóttir
Einar Andrésson Hólmfríður Gröndal
og barnabörn
Eiginkona mín, og móðir okkar
Ingunn J. Ásgeirsdóttir
Kirkjuteigi 13
lést í Landakotsspítala 3. desember
Jón Egilsson
Sveinn Jónsson
Þorgeir Jónsí >on
Sigríður Jónsdóttir
ERLENDAR FRÉTTIR
Gorbatsjov og Reagan brugðust vonum manna hér í Reykjavík í fyrra. Þeir fá tækifæri til að bæta fyrir þá misgjörð í
Washington í næstu viku.
Risaveldin
Leiðtogafundur
hefst á þriðjudag
Mikhael Gorbatsjov heldur vestur á mánudaginn. Hann mun æja á
Bretlandi og eiga viðrœður við Thatcher áður en hann kemur til
Washington
Frýrnar í Genf. Mikið verður spekúlerað í framkomu og klæðaburði þeirra
Nancyar og Raisu ef að líkum lætur.
eir félagar og fjandvinir Ron-
ald Reagan og Mikhael Gor-
batsjov eiga það sameiginlegt að
vera snjallir fjölmiðlamcnn. Þeir
te|ja sig ennfremur vera kross-
fara gegn því sem miður fer á
heimaslóðum sínum og leiðtoga á
tímamótum í sögu landa sinna.
En að því mæltu er iokið upptaln-
ingu á því sem þeir eiga sameigin-
legt. Aldursmunur er mikiil, 20
ár, og öll viðhorf þeirra stangast á
eins og tveir ólmir hrútar. Af
óskyldum ástæðum eru þeir þó
báðir áfram um að leiðtogafund-
urinn sem hefst í Washington á
mánudaginn takist vel og að sögu-
legur samningur um eyðileggingu
ailra meðaldrægra kjarnflauga
ríkja sinna verði undirritaður
með pompi og prakt.
Þetta verður þriðja stefnumót
þeirra félaga og væntanlega það
síðasta. Hinum 76 ára gamla
gestgjafa er mikið í mun að ailt
fari að óskum því það myndi auka
hróður hans í augum landa sinna
sem margir hverjir hafa dregið þá
ályktun af ýmsum mistökum og
vandræðagangi hans undanfarið
að hann sé af ellisökum ófær um
að sitja við stjórnvölinn þá 14
mánuði sem eftir eru af kjörtíma-
bili hans.
Þótt Gorbatsjov hafi á dögun-
um átt í einhverjum útistöðum
við íhaldssama flokksbræður sína
og þurft að fórna dyggum stuðn-
ingsmanni í valdataflinu, Boris
Jeltsín fyrrum leiðtoga Moskvu-
deildar flokksins, þá kemur hann
í sína fyrstu heimsókn til Banda-
ríkjanna traustur í leiðtogasessi
og vafalítið einráður um mótun
utanríkisstefnu Sovétríkjanna.
Allmiklar vonir eru bundnar
við leiðtogafundinn og telst það
vart til tíðinda því svo var einnig
um fyrri mót þeirra félaga, eink-
um Reykjarvíkurfundinn sællar
minningar. Sumir fréttaskýrenda
hafa á orði að Reagan og Gorbat-
sjov eigi að þessu sinni góða
möguleika á að færa öll samskipti
risaveldanna í gott horf en það
hvarflaði að engum fyrir fjórtán
mánuðum þegar þeir stigu út úr
Höfða þungir á brún.
En síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar og á þriðjudegi
fyrir tæpum hálfum mánuði náðu
utanrfkisráðherrar stórveldanna
að ganga frá lokadrögum að
samningi um að eyðileggja allar
kjarnflaugar þeirra sem dregið
geta 500-5000 kflómetra leið.
í Genf sömdu þeir Georg
Shultz og Eduard Shevardnadze
um eftirlitsreglur sem skömmu
áður virtist óhugsandi að aðilar
gætu orðið einhuga um. f þeim er
meðal annars kveðið á um að
bandarískir erindrekar geti hve-
nær sólarhrings sem er farið í
skyndiheimsóknir að flauga-
verksmiðjum Sovétmanna við
Úralfjöll til að kanna hvað þar sé
á seyði. Samur verður réttur
sovéskra eftirlitsmanna, þeir
munu mega á öllum stundum sól-
arhringsins gera sig heimakomna
í bandarísku flaugafabrikkunum í
Magna í Utahfylki.
Og þar sem allt er nú klappað
og klárt munu þeir Reagan og
Gorbatsjof taka sér penna í hönd
síðla þriðjudags og setja nafn sitt
undir samninginn sem þar með
gengur í gildi.
Láti þeir þar við sitja verður
leiðtogafundurinn í raun ekkert
annað en formlegur afgreiðslu-
fundur. En fjöldamargir austan
hafs og vestan telja verulegar lík-
ur á að skriður komist á viðræður
risaveldanna um helmingsfækk-
un langdrægra kjarnskeyta sinna.
Þau vopn voru til umræðu hér í
Reykjavík á sínum tíma ekki
síður en meðaidrægu flaugarnar
en þá strandaði allt samninga-
makk á sama skerinu, stjörnu-
stríðsáætlun Bandaríkjamanna.
Nú er öldin önnur. Gorbatsjov
hefur látið í veðri vaka að áætlun
sú sé ekki lengur sá þrándur í
götu sem hún var fyrrum enda má
honum vera ljóst sem öðrum að
hún hefur orðið fyrir verulegum
skakkaföllum, bæði vegna gífur-
legs kostnaðar og tæknilegra ör-
ðugleika. Þess í stað er talið að
hann muni leggja áherslu á að
styrkja Gagnflaugasamninginn
(ABM) frá 1972 og láta gott heita
ef Reaganstjórnin fellst á að
halda stjörnustríðstilraunum sín-
um innan marka er sá samningur
setur.
Áður en Gorbatsjov kemur til
Washington mun hann eiga stutt-
an fund með Margréti Thatcher á
Bretlandi. Stjórnmálaskýrendur
velta því fyrir sér hvað vaki fyrir
aðalritaranum með því að æja á
Bretlandi áður en hann heldur til
fundar við Reagan. Ýmsir gera
því skóna að hann hyggist freista
þess að fá Breta til þátttöku í við-
ræðum um frekari kjarnafvopn-
un eftir að samningurinn um
eyðileggingu meðaldrægra flauga
stórveldanna hefur gengið í gildi.
Gorbatsjov ferðast vitaskuld
vestur með fríðu föruneyti og
fríðust í þeim hópi er án efa
eiginkonan Raisa. Þær Nancy
Reagan munu hafa ofanaf hvor
fyrir annarri meðan bændurnir
ræða heimsmálin og verður vafa-
lítið mikið um að vera hjá fjöi-
miðlafólki að elta þær uppi og
gera samanburð á, limaburði
þeirra og fatasmekk.
-ks.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. desember 1987