Þjóðviljinn - 05.12.1987, Qupperneq 11
SKÁK
20. einvígisskákin
Jafntefli eftir hörkubaráttu
Kasparov bryddaði uppá nýjung en Karpov varðist vel og slapp með skrekkinn
20. einvígisskák þeirra Garrís
Kasparovs heimsmeistara og á-
skoranda hans, Anatólís Karp-
ovs, lauk í kvöld með jafntefli
eftir 37 leiki. Þetta er fjórða jafn-
teflið í röð í einvíginu en síðast
vannst sigur er Karpov jafnaði
metin í sextándu skákinni. Þrátt
fyrir gífurlega taugaspennu
sýndu báðir skáksnillinganna
sínar bestu hliðar í kvöld.
Kasparov mætti til leiks vopn-
aður nýrri hugmynd í drottning-
arbragði sem setti Karpov þegar í
stað í afar óþægilega stöðu. Á-
skorandinn virtist þó ná að jafna
taflið en endataflið sem kom upp
síðar þar sem heimsmeistarinn
hafði drottningu og biskup gegn
drottningu og riddara var allt
annað en auðvelt fyrir Karpov,
ekki síst vegna þess að hann var
afar naumur á tíma. Sennilega
hefur Kasparov sleppt honum úr
erfiðri stöðu með fremur óná-
kvæmum 34. leik en það er hugs-
anlegt að Karpov hafi.verið kom-
inn yfir erfiðasta hjallann með
sterkum leik, 32...f5.
Mikill mannfjöldi fylgdist með
skákinni í gær og meðal áhorf-
enda voru Klara Kasparova,
móðir heimsmeistarans, sem var
um tíma mjög áhyggjufull að sjá,
og Natassja Karpova, eiginkona
áskorandans. Þeirfjandvinirhafa
að undanfömu mætt til leiks í
sömu fötunum enda frámunalega
hjátrúarfullir báðir. Karpov í
gráum jakkafötum en Kasparov í
blazerjakka og gráum buxum.
Það em einkum klæði Karpovs
sem tekin eru að sjúskast og
kannski fer hann í sín frægu
svörtu jakkaföt er hann íklæddist
þegar hann ætlaði að méla Kasp-
arov með núlli í fyrsta einvígi
þeirra. Þá hafði hann íklæðst ein-
um og sömu fötunum í meira en
þrjá mánuði, „og var sannarlega
kominn tími til að hann skipti um
þegar hann loks lét verða af því,“
segir Kasparov í nýútkominni
sjálfsævisögu sinni, „Barn breyt-
inganna.“
Framkoma þeirra er um margt
ólík. Mikið hefur borið á allskyns
grettum og geiflum hjá Kasparov
ásamt með nokkuð svo þótta-
fullri inngöngu í skáksalinn. Á
hinn bóginn talar Karpov í sífellu
við sjálfan sig, eða muldrar öllu
heldur einhverskonar galdraþul-
ur fyrir munni sér, kinkar kolli og
drepur tittlinga milli þess sem
hann sendir Kasparov baneitrað
augnaráð.
Þeir horfa mikið út í skáksal-
inn, jafnan í átt til sætanna þar
sem langmikilvægustu einstak-
lingarnir í lífi þeirra sitja, móðirin
Klara og eiginkonan Natassja.
í blaðamannaherberginu var
líf og fjör og hafði Vassily Smysl-
ov, fyrrum heimsmeistari, sig
mest í frammi en aðrir minni spá-
menn létu einnig ljós sitt skína.
Það vakti nokkra athygli að þegar
Smyslov hélt inní skáksalinn tók
hann sér sæti í þeirri bekkjarröð
sem helstu stuðningsmenn Karp-
ovs hafa lagt undir sig, eiginkon-
an, þjálfarar, sálfræðingar og
fleiri.
Næsta skákin verður tefld á
mánudaginn þótt engum kæmi á
óvart þó að annar keppenda tæki
sér frí frá baráttunni.
20. einvígisskák
Hvítt: Garrí Kasparov-
Svart: Anatólí Karpov
Drottningarbragð
1. c4 e6
2. Rc3 d5
Eiginkona Anatólís Karpovs heitir Natassja og fylgist hún ávallt grannt með
bónda sfnum að tafli sem við og við gjóar augunum f átt til hennar.
Garrí Kasparov og Anatólí Karpov að tafli í Sevillu. Báðir sýndu prýðilega taflmennsku í 20. skákinni.
3. d4 Be7
4. RO Rf6
5. Dc2
(Kasparov hugsaði sig um í dá-
góða stund áður en hann lék þess-
um sjaldgæfa leik. Bretinn Tony
Miles hefur brugðið honum fyrir
sig nokkrum sinnum, meðal ann-
ars gegn þeim er þessar línur ritar
á óiympíuskákmótinu í Dubai í
fyrra.)
5. ... 0-0
(Skarpara svar er 5....c5.)
6. Bg5 c5
(Það er ekki eins auðvelt að
komast útí Tartakoverafbrigðið
nú, til dæmis 6...h6 7.Bxf6 Rxf6
8.e4 með flókinni stöðu. Ég lék
6...Rbd7 í áðurnefndri skák við
Miles.)
7. dxc5 dxc4
8. e4 Da5
9. e5 Rd5
10. Bxc4
abcdefgh
(Nýjungin er Kasparov hafði
undirbúið fyrir þessa skák. Hug-
myndin kemur í ljós þegar í 11.
leik. Áður hefur verið leikið
10.Bxe7 Rxe7 ll.Bxc4 Dxc5
12.Bd3 Rg6 með umþaðbil jafnri
stöðu.)
10. ... Rxc3
11. 0-0! DxcS
12. Dxc3
(Kasparov notaði aðeins 10
mínútur á upphafsleiki sína en
Karpov var þegar langt á eftir á
klukkunni. Þessi munur átti þó
eftir að jafnast er líða tók á
skákina.)
12. ... Rc6
(12....b6 er tæpast gott vegna
13. a3 og ef nú 13....Ba6 14.Bxa6
Rxa6 15.Dxc5 Bxc5 16.b4 og
hvítur vinnur lið.)
13. Bxe7 Dxe7
14. a3
(Áætlunin 14.Hadl ásamt
-Hd6 og -Hfdl kom einnig til
greina.)
14. ...Bd7
15. Hacl Ilfd8
16. b4
(Að áliti flestra slakur leikur,
þar á meðal hinnar alltumlykj-
andi sovésku sendinefndar. Vas-
sily Smyslov benti á leikinn
16—b5! 17. Bxb5 Rxb4! 18.Bxd7
Rd5 og svartur hefur að minnsta
kosti jafnt tafl. Eftir 17.Be2 a5
hefur svartur einnig jafnað taflið.
Kannski var Karpov að tefla
uppá flækjurnar í framhaldinu.
Það er að minnsta kosti ósenni-
legt að honum hafi sést yfir þetta
framhald.)
16. ...a6
17. De3 Be8
(Hér var búist við 17...Ra7.)
18. Bd3 Ra7
19. Bbl
(19.De4 má svara með 19...g6
eða jafnvel 19...Hxd3 20.Dxd3
Bb5 og staðan sem kemur upp er
athyglisverð: 21.Dd6 Dxd6
22.exd6 Bxfl 23.Kxfl Rc6 24.a4
og svo framvegis.)
19. ...Bc6
20. Rg5 h6
21. Re4 Rb5
22. Hc4
(Og hótar 23.RÍ6+ með vinn-
ingssókn. Karpov verður því að
láta biskupinn af hendi.)
22. ...Bxe4
23. Bxe4 Hac8
24. Hxc8! Hxc8
25. Hcl
(Það var hald margra að Kasp-
arov væri að tefla til jafnteflis en
staðreyndin er sú að hann heldur
litlu en þægilegu frumkvæði í
stöðunni sem nú kemur upp.)
25. ...Hxcl
26. Dxcl Dd7
27. g3 b6
28. Kg2 Dd8
29. h4 a5
30. bxa5 bxa5
31. Dc5 Rd4
32. h5!
Frá Helga Ólafssyni,
frétt aritara Þjóðviljans
íSevillu:
(Afar óþægilegur leikur sem
setur Karpov í mikinn vanda.
Hættan er nefnilega sú að riddar-
inn lokist úti á d4. Þá getur hvítur
í mörgum tilvikum stormað fram
með peðin á kóngsvæng. Karpov
verður að Jjregðast hart við þess-
um vanda.)
32. ...f5!
33. Bb7 (tími:2,18) Kf7 (2,22)
34. Kh2 Db8! (2,27)
(Frábær leikur en tók sinn
tíma. Karpov var sloppinn úr
mestri hættu en tími hans var
naumur og af augnagotum hans
útí sal mátti ráða að hann var
ekkert sérstaklega ánægður með
nokkra hávaðaseggi aftast í saln-
um.)
35. Dxd4
(Ekki 35.Bg2 Db2! og svo
framvegis.)
35. ...Dxb7
36. g4 Df3
37. Dd7+ Kf8
Jafntefli samið að frumkvæði
Kasparovs. Geysilega hörð bar-
áttuskák þar sem báðir sýndu
sínar bestu hliðar. Sennilega
sleppti Kasparov andstæðingi
sínum úr erfiðri stöðu með
34.Kh2. Skákin sýnir að mínu
mati að báðir keppenda eru enn í
toppformi en þessi erfiða skák
nlýtur að hafa reynt mikið á
taugarnar.
Tími:
Hvítur: 2,25
Svartur: 2,28
Staðan:
Kasparov 10- Karpov 10.
Laugardagur 5. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11