Þjóðviljinn - 05.12.1987, Síða 16
p
k
I FORLAGIÐ KYNNIR
ff J' C' . -
\ ; ■?
Matthías Viðar Scemundsson
MINNINGAR BARNALÆ.KNIS -
Lífssaga Björns Guðbrandssonar
Björn barnalæknir hefur séð tímana tvenna og
komið víða við. Rifjuð eru upp æskuárin í
Skagafirði þegar örþreyttir sveitalæknar riðu
um héruð og börn hrundu niður úr barna-
sjúkdómum, sagt frá dvöl hans í Þýskalandi og
kynnum af forsprökkum nasista þegar Evrópa
rambaði á barmi heimsstyrjaldar. Björn er í
Saigon á síðustu dögum Víetnamstríðsins og í
Tokyo á dögum Kóreustríðsins og kemst þar í
kynni við mannlegar hörmungar og ógnir
styrjalda.
Björn lýsir af hreinskilni baráttuþreki og
dauðastríði sjúklinga, gleði þeirra og raunum.
Dregnar eru upp minnisstæðar myndir úr
læknisstarfinu, sagt frá stefnumótum við
dauðann - sorgum og sigrum.
Jóhanna Sveinsdóttir - Þuríður Pálsdóttir
Á BESTA ALDRI
Breytingaskeið kvenna - hvenær hefst það,
hvenær lýkur því? Hverjir eru helstu fylgikvill-
arnir? Hvað er beinþynning? Henta hormóna-
gjafir öllum konum?
Hér er spurt spurninga sem varða allar konur
sem komnar eru yfir fertugt. Mikill hluti
kvenna á þessum aldri á langt líf fram undan
sem gæti verið hamingjuríkasta tímabilið í lífi
þeirra ef þær kunna að takast á við vanda breyt-
ingaskeiðsins. Það er skoðun höfundanna að
engin ástæða sé til að óttast breytingaskeiðið ef
konur vita hvað þær eiga í vændum og kunna
að takast á við það af sjálfsöryggi og þekkingu.
Bókin er byggð á reynslu fjölda kvenna og
stuðst er við þekkingu erlendra og innlendra
kvenlækna og annarra sérfræðinga.
KVOSIN
Byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur
Hér segir frá því hvernig höfuðborg íslands
byggðist og fjallað um hús, byggingarlist og
byggingarhefðir í Reykjavík frá upphafi til
okkar daga.
Fjallað er um elstu húsagerð bæjarins, fyrstu
verslunarhúsin og hvernig byggingar breyttust
við afnám verslunarhafta og með tilkomu nýrra
verslunarsambanda. Hér er lýst þeim breyting-
um sem ný byggingarefni höfðu í för með sér,
og hvaða áhrif nýjar stefnur í byggingarlist
höfðu á húsagerð í miðbænum.
í bókinni eru um 500 Ijósmyndir og teikningar.
Nýjar ljósmyndir eru af nánast öllum húsum
miðbæjarins og auk þess úrval gamalla ljós-
mynda úr helstu ljósmyndasöfnum landsins.
U Hf K H AR ALPS
Bertolt Brecht
KVALÐI OG SÖNGVAR
1917-56
Bertolt Brecht er eitt af
mestu ljóðskáldum þess-
arar aldar. Hér gefst ís-
lenskum lesendum tæki-
færi til að kynnast úrvali
ljóða hans í búningi sextán
íslenskra þýðenda.
Þorsteinn Þorsteinsson
annast útgáfuna, þýðir
mikinn hluta ljóðanna og
ritar inngangsorð. Meðal
annarra þýðenda má nefna
Halldór Laxness, Sigfús
Daðason, Þorgeir Þor-
geirsson, Þorstein frá
Hamri og Þórarin Eldjárn.
Auður Haralds
UNG, HÁ, FEIG OG
LJÓSHÆRÐ
Af sinni alkunnu hug-
kvæmni segir Auður
Haralds söguna um ungu
og einföldu sveitastúlkuna,
hvernig hún kynnist hörku
lífsins og neyðist til af láta
að þeim siðferðilegu kröf-
um sem hún gerir til
sjálfrar sín. Þetta er ljúfsár
saga um ástir og vonbrigði,
grimmd og samviskuleysi,
kærleik og kristilegt
hugarfar.
i
Guðbergur Bergsson
TÓMAS JÓNSSON
METSÖLUBÓK
Meistaraverk Guðbergs
Bergssonar kom fyrst út
haustið 1966. Bókin seldist
upp á örskömmum tíma
og hefur síðan verið ófáan-
leg. Menn skiptust í flokka
með eða móti skáldverkinu
og margir sökuðu höfund-
inn um niðurrifsstarfsemi.
Aðrir tóku Tómasi Jóns-
syni afburða vel og spáðu
nýjum tímum í íslenskum
bókmenntum.
Fay Weldon
ALVI OG ÁSTIR
KVENDJÖFULS
Þessi eldfjöruga og ill-
kvittna ádeila kom fyrst út
árið 1985 og hlaut afbragðs
undirtektir. Hvað gerir
heiðarleg húsmóðir þegar
eiginmaðurinn kallar hana
kvendjöful og hleypst á
brott með annarri konu?
Hvað getur hún gert -
ófríðari en amma skrattans
- með undurfagra skáld-
konu að keppinaut? Elísa
Björg Þorsteinsdóttir
þýddi.
FORLAGIÐ
FRAKKASTÍG 6A, S.91-25188