Þjóðviljinn - 06.12.1987, Qupperneq 10
Forskot
ó hátíðorhöldin
meðon þú bíður
eftir iólunum
VlNNiNL>UR •
571 VINNIHGUR
MÁEKW5KAfA þú
Nýja jólaþrennan kemur þér strax í
hátíðarskap. Hún er skemmtileg í
skóinn, kjörin með jólakortinu og
gerir jólapakkann ennþá meira
spennandi!
Af fyndnum
mönnum
Svo sem frá var skýrt í þess-
um dálkum fyrir nokkru hefur
Sveinn Einarsson tekið að
sér að leikstýra Áramóta-
skaupinu að þessu sinni.
Stjórnandi upptöku er And-
rés Indriðason og mun hann
leggja nokkurn skerf til
skaupsins, sem og Flosi Ól-
afsson. Þá munu þeir félagar
sem þykjast þekkja stílbrögð
Ossurar Skarphéðinssonar
- og jafnvel Árna Berg-
mann!... ■
Egill á Bylgjuna
Egill Helgason sem verið
hefur ritstjórnarfulltrúi á HP
síðustu misseri mun nú flytja
sig yfir á Bylgjuna sem frétta-
maður. Lesendur Sunnu-
dagsblaðsins muna vitaskuld
vel eftir Agli, enda sýndi hann
þekkingu sína vikum saman í
getraun blaðsins... ■
Fleiri Tommar...
Alltaf er það borið upp á fleiri
og fleiri að hafa skrifað bókina
Tungumál fuglanna sem
huldumaðurinn Tómas Dav-
íðsson sendi frá sér á dögun-
um. Svo undarlega vill til að
nýir og gamlir Þjóðviljamenn
eru í meirihluta tilnefndra.
Áður hefur verið sagt frá grun-
semdum í garð Marðar Arna-
sonar og Óskars Guð-
mundssonar, en nú berast
böndin ekki síður að Þráni
Bertelssyni. Þá eru þeir til
sem eitt sinn stýrðu Popp-
korni í sjónvarpinu, Ævar Orn
Jósepsson og Gísli Snær
Erlingsson, leggja sitt af
mörkum til að gera skaupið
sem allra skemmtilegast... ■
_________Stöð 2
með vinninginn
Bókaútgefendur og aðrir þeir
sem hagsmuna eiga að gæta
vegna bóksölu nú fyrir jólin
höfðu talsverðar áhyggjur af
því að fjölmiðlar sýndu bók-
inni ekki eins mikinn áhuga og
í fyrra. Einkum munu sjón-
vörpin hafa þótt minna tilkippi-
leg þetta árið en í fyrra var
sannkölluð bókaveisla á þeim
bæjum. Ríkissjónvarpið hefur
þegar sýnt tvo þætti þar sem
kynntar voru samtals níu
bækur og mun ætlunin að láta
þar við sitja.
Stöð 2 hefur hinsvegar sýnt
bókinni miklu meiri áhuga.
Guðbergur Bergsson er
bókmenntagagnrýnandi
þeirra og varla líður sá þáttur
af 19:19 að ekki sé a.m.k. ein
bók kynnt rækilega. Og það
sem gleðilegra er fyrir bók-
menntaáhugafólk - fram til
jóla má vænta þess að Stöðin
haldi uppteknum hætti og
kynni þannig í allt nokkra tugi
bóka...B
Lestu
aðeins
sfjórnarblöðin?
DJÖÐVIUINN
Höfuðmálgagn
stjómarandstööunnar
Áskriftarsimi (91)68 13 33.
HH REYKJÞNIKURBORG lf I
**«« lM« ** 2 -V ■■
SfíUutr 'I*
Dagvist barna
Staða forstöðumanns
Forstöðumannsstaða á leiksk./dagh. Foldaborg,
Frostafold 33, Grafarvogi, er laus til umsóknar.
Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 18. des.
Upplýsingar gefa framkvæmdastjóri og umsjón-
arfóstrur á skrifstofu Dagvistar barna, sími
27277.
FYRIRVEKIÞUT
STENDUR BEIUR
ISTAÐGREÐSUJ
- ef undirbúningurinn ergóður
ÚTREIKNINGUR STAÐGREÐSLU
Staðgreiðsla er reiknuð af heildarlaunum
jafnóðum og þau eru greidd. Launagreiðandi
reiknar staðgreiðslu út samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem fram koma á skattkorti launa-
manns um skatthlutfall og persónuafslátt. Hafi
launamaður ekki afhent skattkort sitt skal
draga skatthlutfall af launum hans en ekki
tekið tillit til persónuafsláttar. Skatthlutfall er
fastur hundraðshluti og breytist ekki hver svo
sem launafjárhæðin verður.
SKIL Á STAÐGREÐSLU
Launagreiðendum ber að gera skil á stað-
greiðslu mánaðarlega fyrir næsta mánuð á
undan. Þó svo að engin laun hafi verið greidd á
tímabilinu ber að senda inn skilagrein. Mánað-
arlega verða launagreiðendum sendar áritaöar
skilagreinar. Gjalddagi er 1. dagur hvers mán-
aðar og eindagi 14 dögum síðar.
Athugið: Launamaður getur ekki sjálf-
ur skilað staðgreiðslu vegna launa frá
launagreiðanda.
VANSKIL
Strangt eftirlit verður haft með skilum. Skili
launagreiðandi ekki á eindaga verða honum
reiknuðviðurlög.
LAUNABÓKHALD
STAÐGREÐSLU
Öllum launagreiðendum er skylt að halda
sérstakt launabókhald, þar sem fram komi
launagreiðslur, starfstengdar greiðslur og
hlunnindi. Einnig skal koma fram afdregin stað-
greiðsla, svo og skatthlutfall staðgreiðslu og
persónuafsláttur hvers launamanns.
LAUNASEÐLAR
Á launaseðlum skal auk annars sýna þá
fjárhæð sem haldið er eftir af launum launa-
manns.
Athugið að á launamiðum skal frá og
með 1. janúar nk. tilgreina kennitölu launa-
manns en ekki nafnnúmer.
Staðgreiðsla opinberra gjalda kemur
til framkvæmda 1. janúar 1988. Frá þeim
tíma er launagreiðendum skylt að reikna út
og halda eftir staðgreiðslu af launum
starfsmanna sinna svo og eigin launum og
skila mánaðarlega til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt skilagrein.
Vegna þessa lykilhiutverks launagreið-
enda er mikilvægt að þeir þekki skyldur sín-
ar í staðgreiðslu til hlítar. Launagreiðendur
munu fá sendan sérstakan bækling með
ítarlegum upplýsingum um hlutverk þeirra.
Er þess vænst að þeir kynni sér efni hans
vel. Góð þekking í upphafi kemur fyrirtæk-
inu til góða við framkvæmd staðgreiðslu.
HVERJIRERU
LAUNAGREÐENDUR?
Launagreiðandi telst sá vera sem greiðir
einhverjum laun. Þeir sem eru með sjálfstæðan
rekstur teljast launagreiðendur, hvort sem þeir
greiða öðrum laun eða ekki, og þeim ber að
reikna sér endurgjald af starfseminni.
Allir launagreiðendur eru á launagreið-
endaskrá og nýjum launagreiðendum ber að
tilkynna sig þangað. Þar með er tryggt að þeir
fái sendar upplýsingar sem við koma skyldum
þeirra og auðvelda þeim hlutverk sitt í stað-
greiðslu.
ÖLLLAUNERU
STAÐGREÐSLUSKYLD
Staðgreiðsla er reiknuð af öllum launum
og launatengdum greiðslum, svo og hvers
kyns fríðindum og hlunnindum.
Greiðslur til verktaka eru ekki stað-
greiðsluskyldar.
Af bílapeningum, dagpeningum og ferða-
peningum er ekki dregin staðgreiðsla ef
greiðslumar eru sundurgreindar með færslu
akstursskýrslna, akstursbókaog annarratilskil-
inna gagna, nema um sé að ræða fastar fjár-
hæðir á hverju launatímabili.
Athugið: Staðgreiðsla er dregin af
heildarlaunum að meðtöldu orlofsfé og í
hvert sinn sem laun eru greidd.
SJÁLFSTÆÐUR ATVINNUREKSTUR
Manni sem vinnur við eigin atvinnurekstur
ber að reikna sér endurgjald vegna starfsem-
innar og draga staðgreiðslu af því og skila
mánaðarlega. Sömuleiðis ef maki og börn inn-
an 16 ára aldurs vinna við starfsemina.
Ríkisskattstjóri ákveður lágmark reiknaðs
endurgjalds fyrir upphaf staðgreiðsluárs.
PERSÓNUAFSLÁTRIR
Sérhver launamaður fær áriegan persónu-
afslátt, sem kemur til frádráttar við útreikning
staðgreiðslu hans.
Persónuafslættinum er skipt jafnt á alla
mánuði ársins og á skattkortinu er þessi mán-
aðarlegi persónuafsláttur tiltekinn.
Ef launamaður afhendir launagreiðanda
skattkort maka síns ber launagreiðanda að
taka tillit til 80% þess persónuafsláttar sem
fram kemur á kortinu og draga frá staðgreiðslu.
Athugið: Persónuafslátt má launa-
greiðandi aðeins draga frá staðgreiðslu
hafi hann skattkort launamanns í vörslu
sinni.
Ef laun eru greidd oftar en einu sinni í
mánuði þarf að taka tillit til einhvers hiuta per-
sónuafsláttar í hvert sinn sem greitt er, þó fari
heildarafsláttur mánaðarins aldrei fram úr mán-
aðariegri heimild.
SJÓMANNAAFSLÁ TTUR
Sjómannaafsláttur kemur til frádráttar
staðgreiðslu á sama hátt og persónuafsláttur.
Upphæðin kemur ekki fram á skattkorti. Það er
því á ábyrgð launagreiðanda að sjómanna-
afsláttur komi réttilega til frádráttar.
SKATTKORT
Fyrir upphaf staðgreiðsluárs skal launa-
maður afhenda launagreiðanda skattkort sitt. Á
skattkortinu eru persónubundnar upplýsingar
ásamt skatthlutfalli staðgreiðslu og mánaðar-
legum persónuaíslætti sem kortið veitir.
Hafi launagreiðandi ekki skattkort (eða
aukaskattkort) launamanns undir höndum má
hann ekki draga persónuafsláttfrástaðgreiðslu.
Launamaður greiðir þá fullt skatthlutfall.
Launagreiðandi ber fulla ábyrgð á
skattkortinu meðan það er í hans vörslu.
Launamaður getur afhent launagreið-
anda skattkort (eða aukaskattkort) maka síns
ef makinn nýtir ekki persónuafslátt sinn til fulls.
Þá tekur launagreiðandi tillit til 80% af þeim
persónuafslætti sem fram kemur á kortinu.
HAPPAÞRENNA
HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLA ÍSLANDS
Kynntu þérskyldurþínarí staðgreiðsiu
- það margborgar sig