Þjóðviljinn - 19.12.1987, Síða 1

Þjóðviljinn - 19.12.1987, Síða 1
Laugardagur 19. desember 1987 285. tölublað 52. órgangur Alþingi Heimsskákin Kasparov sigur- stranglegri Lokaskákin í heimsmeistara- einvíginu í skák fór í bið í gær- kvöldi eftir 41 leik. Skákskýrend- ur eru sammála um að heimsmeistarinn Kasparov standi betur að vígi í taflinu. í skákinni í Sevillu á Spáni í gær stýrði Kasparov hvítu mönnun- um. Heimsmeistaranum nægir jafntefli í skákinni til að halda heimsmeistaratitlinum. Karpov, - áskorandinn, þarf hins vegar að vinna taflið ef hann á að hefna fyrri ófara sinna gegn Kasparov og endurheimta titilinn. Biðskákinni verður framhaldið laust eftir hádegi í dag. -rk Sjá skákskýringu Helga Ólafssonar á síðu 14 Preiitvillupúkinn í stjómarandstöðu! Húsnœðisfrumvarpið aftur til neðri deildar vegna prentvillupúkans. „eða“ eða „og eða“? Allt leggst á eitt gegn blessaðri ríkisstjórninni og í gær bættist stjórnarandstöðunni óvæntur liðsmaður. Sjálfur prentvillupúkinn lék aðalhlut- verkið í umræðu um þingsköp í upphafl fundar neðri deildar og bendir nú allt til þess að húsnæð- isfrumvarpinu verði að vísa aftur til neðri deildar vegna viliu í þingskjali. Húsnæðisfrumvarpið hafði far- ið í gegnum þrjár umræður í neðri deild og var komið tii efri deildar þegar Hjörleifur Guttormsson uppgötvaði missögn í tveimur þingskjölum. Annarsvegar er um að ræða breytingartillögur meiri hluta félagsmálanefndar, sem samþykktar voru í neðri deild og hinsvegar frumvarpið einsog það kemur frá deildinni. Hér er ekki um mikið misræmi að ræða, í meirihluta álitið vantar samtenginguna „og/“. Hér er um að ræða breytingu á 12. grein lag- anna sem fjallar um úthlutun lána en samkvæmt meirihlutaáliti hljóðaði málsgreinin svo „...og skulu fyrrnefnd lán afgreidd í sömu röð og umsóknir berast eða íbúðir verða veðhæfar.“ í frumvarpinu með breytingum frá neðrideild hefur þessi máls- grein hinsvegar breyst og hljóðar svo „...og skulu fyrrnefnd lán af- greidd í sömu röð og umsóknir berast og/eða íbúðir verða veð- hæfar.“ En oft veltir lítil þúfa þungu hlassi og Sverrir Hermannsson sagði við umræðuna að ekki væri nema um tvennt að ræða, annar- svegar að samþykkja frumvarpið einsog það var samþykkt í neðri deild, án samtengingarinnar og, eða vísa því aftur til neðri deildar. Töluverður titringur er í stjórnar- búðunum vegna þessa því merk- ingarmunur er á milli álitsins og frumvarpsins og gæti hann kostað töluvert málþóf. Forseti deildarinnar sagði að málið yrði kannað. -Sáf Matarskattur Aðför að heimilunum Launafólk með útifund gegn matarskattinum á Lœkjartorgi á mánudag Fjölmargir launþegahópar hafa boðað til útifundar á Lækj- artorgi á mánudaginn kl. 17.00 þar sem mótmælt verður fyrir- huguðum matarskatti ríkis- stjórnarinnar sem á að taka gildi um áramótin. - Kjarasamningar allflestra launþegasamtaka eru lausir um áramótin og á sama tíma og 30% álögur skella á heimilin, telur ríkisstjórnin svigrúm til að hækka laun um 7% á árinu. Við blasir hrikaleg aðför að heimilum landsmanna, segir í tilkynningu frá undirbúningshóp mótmæla- fundarins. Að sögn Guðrúnar K. Ólafs- dóttur verða á fundinum lesnar upp ályktanir og samþykktir fé- laga og samtaka launafólks gegn matarskatti ríkisstjórnarinnar. - Ég vil hvetja fólk til að fjöl- menna á Lækjartorg á mánudag og sýna samstöðu gegn þessari aðför að heimilunum, sagði Guð- rún. -lg- Stjórnarbylting í Þjóöleikhúsinu. Vesalingarnir, söngleikur eftir samnefndri sögu Victors Hugo, verður jólaleikrit Þjóðleikhússins í ár. Þar segir frá miklum þjóðfélagsandstæðum, fátækt og ríkidæmi, baráttu fólksins á göt- unni við yfirvöld, og inní fléttast hugljúf ástarsaga. Það eru margir skrautlegir persónuleikar sem koma við sögu. Með þessari sýningu Þjóöleikhússins er ráðist í mikið stórvirki, um 30 leikarar taka þátt í sýningunni og hljómsveit. Egill Ólafsson, Sverrir Guðjónsson, Jóhann Sigurðarscn, Sigrún Waage, Edda Heiðrún Backman, Lilja Þórisdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Aðalsteinn Berg- dal fara með aðalhlutverkin. Mynd Sig. _., . , _ 1 * Sja bls. 6-7 Lánsfjárlög Hækka um 369 miljónir Erlendar lántökur hins opin- bera verða 469 miljónum króna hærri en ráð var fyrir gert í frumvarpi fjármálaráðherra til lánsfjárlaga. Innlendar lántökur lækka hinsvegar um 100 miljónir króna þannig að heildarlánsijár- ráðstöfunin hækkar um 369 milj- ónir króna, samkvæmt meiri- hluta áliti fjárhags- og viðskipta- nefndar. Samkvæmt meirihlutaálitinu hækkar lántökuheimild til sveitarfélaga og fyrirtækja á þeirra vegum um 44 miljónir en erlendar lántökur um 144 miljón- ir þar sem frumvarpið gerði ráð fyrir að hundrað miljóna væri aflað innanlands. Stærsti nýi pósturinn hjá sveitarfélögunum er Hitaveita Suðurnesja með lántökuheimild upp á 150 miljón- ir. Liðurinn Aðrar lántökur lækkar hinsvegar úr 212 miljón- um í 30 miljónir króna. Lántökuheimildir til Byggða- stofnunar hækka um 200 miljón- ir, úr 350 miljónum í 550 miljón- ir. Þá hefur flóabátnum Baldri verið bætt inn á lánsfjárlög með heimild upp á 100 miljónir. 25 miljóna króna lántökuheimild hefur einnig verið bætt við fyrir Iðnlánasjóð. Framlag ríkissjóðs til jarðabóta hækkar úr 100 milj- ónum í 141 miljón og 9 miljónir mun ríkið greiða vegna búfjárr- æktarstyrkja en áður hafði verið ákveðið að fella þann lið niður. Skerðingarákvæði vegna vega- mála er fellt burt, en samkvæmt því átti framlag ríkissjóðs vegna vegamála ekki að vera meira en 2,8 miljarðar króna á næsta ári. Framlög í Jöfnunarsjóð sveitarfé- laga hækka um 100 miljónir. Inn í frumvarpið eru teknar heimildagreinar sem gera Lands- virkjun og Framkvæmdasjóði fs- lands heimilt að nýta sér hagstæð lánakjör á erlendum lánamörk- uðum, til að skuldbreyta lánum. Bætt er inn í frumvarpið heim- ild fyrir ríkissjóð til að hafa milli- göngu um 160 miljóna króna er- lent lán fyrir Rafmagnsveitur ríkisins. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.