Þjóðviljinn - 19.12.1987, Blaðsíða 7
MENNING
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Rafeindavirkjanám
Samkvæmt heimild menntamálaráðuneytisins
getur Póst- og símamálastofnunin nú boðið raf-
eindavirkjanemum, sem lokið hafa 4. önn í iðn-
skóla, til náms á 5. önn á fjarskiptasviði í raf-
eindavirkjun. Útskrifast þeir þá með sveinspróf í
rafeindavirkjun hjá Póst- og símaskólanum eftir
7. önn og eftir að hafa lokið starfsþjálfun.
Ennfremur er hægt að bæta við nemum er lokið
hafa 6. önn en þeir munu eftir nám og starfsþjálf-
un útskrifast með sveinspróf í rafeindavirkjun eftir
13 mánuði.
Starfsþjálfun, sem er fólgin í uppsetningu og við-
haldi á mörgum og mismunandi tækjum og kerf-
um, fer fram í ýmsum deildum stofnunarinnar í
Reykjavík og víðsvegar um landið.
Laun eru greidd á námstímanum.
Umsóknir, ásamt prófskírteini eða staðfestu afriti
af því, berist Póst- og símakólanum fyrir 8. janúar
1988.
Gert er ráð fyrir að nám hefjist eigi síðar en 20.
janúar 1988.
Nánari upplýsingar eru veittar í Póst- og síma-
skólanum í síma 91-26000.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í Póst- og sím-
askólanum, hjá dyravörðum Landssímahússins
við Austurvöll og Múlastöðvar við Suðurlands-
braut og ennfremur á póst- og símstöðvum.
Reykjavík, 16.12.1987
Skólastjóri
OA4/
Dregib uor í Jólahappdrætti SRR þ. 5. des. um 10 S0NV
SRF-6 ferba- utuarpstæki. Upp komu eftirtalin númpi;
1144 13959 39787 44163 47552
48710 59856 103064 105376 115665
Þar sem útsending mlba dróst é langinn heíur
stjórn Sflfl ékuebib, ab su regle giidi um þennan fyrsta
drétt, ab dagsetning grefbslu skipti ekki mali. Ef míbi
er greiddur uerbur tæklb afhent.
Dregib uar suo í annab slnn þ.lO.des. um 10 stk. SOnv
D-30 ferbageislaspilara. Upp komu eftirtalin númer.
19155 19581 78812 31263 39424
65772 85089 85659 98833 121327
Dreglb uar i þribja slnn þ.l7.des um 10 stk
rafdrifna leikfangabila. Upp komu eftirtalin numer;
17770 26928 30853 41527 71187
78352 94343 99278 102790 108002
Numet gírósebilsins er happdrættisnúmerib og enn er
eítir ab draga út 10 MITSUBISHI PflJERO jeppa. 5 stutta
og 5 langa, á öbrum degi Jóla, þ.26 des.
Dráttur fer fram í belnnl útsendlngu a STOt) 2
ofantalda daga í þættinum 19:19. Þokkum stubning nú
sem fyrr.
FLUGMÁLASTJÓRN
Ritstjóri orðabókar
Nefnd sem samgönguráðherra hefur skipað til
þess að undirbúa útgáfu nýyrðasafns úr flugmáli
óskar að ráða ritstjóra til að starfa með nefndinni
að þessu verkefni. Gert er ráð fyrir að verkið taki
a.m.k. tvö ár. Ritstjóri verður ráðinn frá 1. febrúar
1988.
Umsækjendur um starfið þurfa að hafa góða há-
skólamenntun í málfræði, vera sérstaklega vel
að sér í íslensku og ensku og hafa reynslu af
orðabókarstörfum og tölvuvinnslu.
Skriflegar umsóknir ásamt greinargerð um
menntun og starfsferil þurfa að berast flugmála-
stjóra fyrir 1. janúar 1988.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Einarsson flug-
málastjóri.
Sverrir Guðjónsson, Sigurður Sigurjónsson og Lilja Þórisdóttir í hlutverkum sínum í brúðkaupsveislunni.
Vesalingarnir
Stórsýning hjá Þjóðleikhúsinu
Fangar höggva grjót þang-
að til hugur þeirra er orðinn að
steini, vændiskonurdingla
einsog skrokkar í sláturhúsi
og selja sig hæstbjóðanda,
lítið barn hamast við að
skrúbba gömul tréborð og
stelst tíl að komast í burtu í
söng. Á kránni safnast fólk úr
ólíkum stéttum og veit ekki
hvert af öðru fyrr en ölið svífur
á það, götubardagar þarsem
barist er uppá líf og dauða:
Um brauðið. Götulíf þarsem
vesalingar sjást ekki inní
margvöfðum skítugum dulum
og betlarar rétta fram afhög-
gna hönd; ungirmenntamenn
úrfínni hverfum gera sérferð
til að stúdera mannlífið, leyni-
fundirelskenda, líkræningjarí
holræsum, ung konadeyrán
þess að vita hvernig ungu
barni reiðir af í þessum heimi;
og efasemdir þess sem eftir
lifði.
Hver mynd geymir heila sögu
og hver persóna er stór í smæð
sinni. Inní umfangsmikla þjóðfé-
lagslýsingu fléttast hugljúf ástar-
saga og sagan um það, að það
þarf að þora, til að vera maður.
Skáldsagan Vesalingarnir,
eftir Victor Hugo hefur verið
færð í búning söngleiks, eða öllu
heldur nútímaóperu. En sagan er
með mest lesnu skáldsagnaverk-
um og margar persónur leiksins
vel þekktar: Afbrotamaðurinn
Jean Valjean, sem er á stöðugum
flótta undan fortíðinni, lögreglu-
maðurinn Javert sem sífellt leitar
hans, hin ólánsama Fantine og
Cosette, dóttir hennar, ungu
uppreisnarmennirnir og hörmu-
leg örlög þeirra. Sagan er í senn
glæpareyfari og víðfeðm þjóðfé-
laglýsing. Höfundum söng-
leiksins, Alain Boubil og Claude-
Michel Scönberg, sem samdi
tónlistina, þykir hafa tekist að
halda aðalatriðum til skila. Og
tóniistin er kapítuli út af fyrir sig.
A annan dagjóla
Pjóðleikhúsið frumsýnir á ann-
an dag jóla, söngleikinn Vesal-
ingana. Böðvar Guðmundsson
gerði íslenska þýðingu. Benedikt
Árnason er leikstjóri, hljóm-
sveitarstjóri er Snæbjörn Jóns-
son, Agnes Löve æfingastjóri
tónlistar og dansahöfundur er
Ingibjörg Björnsdóttir. Karl
Aspelund gerir leikmynd og bún-
inga, lýsing er eftir Pál Ragnars-
son, en hljóðblöndun er verk
eftir Jonathan Dean.
Um þrjátíu leikarar koma fram
í sýningunni og leikur hver um sig
fjölda hlutverka, en með hlut-
verk aðalpersónanna fara Egill
Ólafsson, Jóhann Sigurðarson,
Sverrir Guðjónsson, Sigrún Wa-
age, Edda Heiðrún Backman,
Sigurður Sigurjónsson, Aðal-
steinn Bergdal, Ragnheiður
Steindórsdóttir og Lilja Þóris-
dóttir.
Þá tekur hljomsveit Þjóðleik-
hússins þátt í sýningunni.
Vesalingarnir,
úti um allan heim
Vesalingarnir hafa vakið mikla
athygli bæði í London og New'
York á síðustu misserum og sýn-
ast líklegir tilað slá öll fyrri að-
sóknarmet, að Músagildrunni
ignheiður Steindórsdóttir er fremst á myndinni, en í bakgrunni eru m.a. Tinna
innlaugsdóttir, Lilja Þórisdóttir og Helga Jónsdóttir.
Qr mundirr>or arn Eal/nor A oafinm i KAinriir Qin
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. desember 1987
Söngurinn um Kráarhaldarann. Það er kona hans sem syngur, leikin af Lilju Þórisdóttur. Aðrir á myndinni eru m.a. Tinna
Gunnlaugsdóttir, Pálmi Gestsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Valgeir Skagfjörð, Guðrún Bjarnadóttir, Hákon Waage,
Helga Jónsdóttir, Ása Svavarsdóttir og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir.
hugsanlega frátalinni, sem enn
gengur í London, orðin fertug.
Þetta þykir einhver besti söng-
leikur sem fram hefur komið í
langan tíma. Annars er ekki rétt
að tala um söngleik í þessu sam-
bandi, en óperu þarsem, allt er
sungið og auk þess nýtist höfund-
um verksins hið klassíska óperu-
form og allur hefðbundinn tón-
listargaldur þess forms til að
skapa margslungna og áhrifa-
mikla sýningu. Það gerir Vesal-
ingana að óvenjulegum söngleik,
ásamt kraftmikilli tónlist og heil-
landi sögur og þykir ástæðan fyrir
gífurvinsældum verksins.
Þessi söngleikur kom fyrst
fram í París 1980 og var sýndur
þar í íþróttahöll og áhorfendur
urðu um hálf milljón. 1985 var
verkið svo frumsýnt af The Royal
Shakespeare Company í
Barbican-leikhúsinu í London í
nýrri og breyttri gerð. Sú útgáfa
er að koma á dagskrá leikhúsa Egill Ólafsson og Ragnheiður Steindórsdóttir í hlutverkum Jean Valjean og
um allan heim. eKÍ Faúne.
Byltingin í fullum gangi
Benedikt Árnason er leik-
stjóri Vesalinganna. En hann
er að góðu kunnur, bæði fyrir
leikog leikstjórn. Benediktvar
tekinn örspjalii. „Þaðergam-
an að stjórna svona stórri sýn-
ingu. En kostar þolinmæði og
andvökunætur. Þetta hefur
verið ómæld vinna, hjá öllum,
sem koma við sögu, og kost-
að angistarfulla daga og næt-
ur. En nú þegar sýningin er
næstum í höfn, held ég að öll
þessi vinna hafi margborgað
sig. Það eru ótrúlega margir
þræðir sem þarf að hnýta
saman; í söngleik hvílir geysi-
mikið á músíkinni og hjálpartil
með túlkun. Agnes Löve hefur
undirbúið það í hendurnar á
hljómsveitarstjóra. Lýsing,
leiktjöld, búningar, hljóðsetn-
ing, leikur; allt þarf að bera að
samabrunni."
Erþessi uppfœrsla hin sama og í
London og New York?
„Nei, við förum okkar eigin
leiðir, þó hún sé um margt svip-
uð. í upphafi áttum við að hafa
„pakkadíl", einsog ekki er óal-
gengt þegar um svona stykki er
að ræða, en við losnuðum undan
ákveðnum kvöðum. En tónlist-
inni fylgja útsetningar á lögum og
hljóðmaður sem starfar við sýn-
inguna, fylgir með. Ég vil líka
vekja athygli á þýðingu Böðvars
Guðmundssonar, sem er meistar-
avel gerð. Og hefur náð anda
verksins, sem einkennist af róm-
antík, baráttugleði og húmor."
Viltu segja eitthvað umpersónu-
legar áherslur í leikstjórn?
„Ég reyni að vera upphaflega
höfundi trúr og koma sögunni til
skila á sem skilmerkilegastan
hátt. Reyni að draga fram skil
milli skugga og birtu. Ég skoðaði
mikið af málverkum frá þessum
tíma, til að fá andann yfir mig.“
Hvaða erindi eiga Vesalingarnir
til okkar?
„Það stórkostlega er, að þessi
franska bylting er í fullum gangi
enn, þó hún sé mýkri. Meirihluti
heimsins býr við sult og seyru og
misrétti afskaplega víða. Það hef-
ur ekki svo mikið breyst þegar á
allt er litið. Og rómantíkin og
aðrar grundvallartilfinningar
mannlegs lífs eru alltaf samar við
sig og höfða til fólks. Þetta verk
vekur okkur til margra hugsana,
bæði þeirra sem liggja nálægt
okkur og þeirra sem eru yfir-
gripsmeiri. Lífið er stöðug bar-
átta. Menn eru enn dæmdir fyrir
jafn lítinn hlut og að stela brauði.
Og þeir eru margir sem hleypa
ekki að einum einasta efa um að
þeirra hugsun sé þeirra eina
rétta.“
ekj.