Þjóðviljinn - 19.12.1987, Blaðsíða 8
Helga Einarsdóttir skrifar um barnabækur
Spenna með boðskap
Iðunn Steinsdóttir
Olla og Pési
Búi Kristjánsson gerði myndir
Rv., AB, 1987
Sagan segir frá Ollu, sem er
yfirgefin af móður sinni og alin
upp hjá þrem feðgum, og Pésa
vini hennar. Hann er blakkur
kjörsonur efnaðra, menntaðra og
„meðvitaðra“ hjóna. Einnig
koma fjölskyldur þeirra beggja
við sögu, svo og fleira fólk.
Við fylgjumst með Ollu,
leikjum hennar innan túngirðing-
ar á býli „afa“ síns, fyrsta skóla-
degi, kynnum við hrekkjusvín og
þorpara o.s.frv. Ævintýrin gerast
allsvakaleg er á líður, en allt
endar vel.
Bókin er skrifuð í einhverskon-
ar ýkjustíl. Persónur og atburðir í
bókinni eru stórkostlegir í meira
lagi. Margar persónur bókarinn-
ar eru fáránlega ljótar, eða „týp-
ur“ án persónueinkenna, nema
hvort tveggja sé. Sem dæmi má
nefna Bessa skúffukjaft, Skálda,
trúuðu konuna með hreinlætis-
æðið og bófana. Jafnaðarmerki
er þó alis ekki sett milli þess að
vera ljótur og vera vondur og
sumir þeir slæmu eru það e.t.v.
fyrst og fremst vegna erfiðra að-
stæðna í bernsku og geta jafnvel
átt til skárri hliðar.
Mér finnst dálítið erfitt að átta
mig á þessari. Hún er ekki öll þar
sem hún er séð. Við fyrstu sýn
fannst mér hún vera spennusaga
fyrir krakka með hálf groddalegri
fyndni og mannlýsingum. Við
nánari athugun leynist þó sitth-
vað annað í henni. Höfundur hef-
ur ákveðinn boðskap að flytja.
Borgarlíf og meðvitaðar
menntakonur (sbr. mamma Pésa
og vinkonur hennar) eiga ekki
upp á pallborðið hjá höfundi.
Hið einfalda gamaldags sveitalíf
þar sem menn lifðu af því sem
landið gaf í nánum tengslum við
náttúruna er höf. að skapi. Meira
að segja hinn forni klæðnaður,
þæfð lopapeysa og vaðmálsbux-
ur, er tekinn góður og gildur, þótt
það sé nú á flestra vitorði að hann
er ákaflega óhentugur í íslenskri
veðráttu. Og m.a. kemur það vel
fram í sögunni að góð móðir þarf
ekki endilega að vera kvenkyns,
og að dálítill sóðaskapur og drasl
er ekkert lakara en hreinlæti, röð
og regla.
Bókin um Ollu og Pésa er mjög
spennandi og lífleg, og áreiðan-
lega finnst börnum hún fyndin.
Höfundur kemur líka ýmsum
góðum boðskap til skila. Mér
finnst þó stundum skotið yfir
markið, og lýsingar og frásagnir
verða einum of grófgerðar og
yfirborðskenndar. Hvers vegna
þarf t.d. konan sem fer til Amer-
íku endilega að skrifa svona vit-
lausa starfsetningu? Og því er
bófinn með svona ógurlega grófa
rödd?
Myndir Búa Kristjánssonar
eru svo sem ekki grófari en text-
inn gefur til kynna. Það er að vísu
enginn fallegur nema hesturinn.
En mikið skelfing leiðist mér
hvernig augu hann teiknar í fólk.
Það færi betur á að hann setti
hestsaugu í mannfólkið og hætti
að hafa mannsaugun eins og í
hundinum sem var með augu eins
stór og Sívaliturn (H. C Ander-
sen).
Pappír, prent og prófarkalest-
ur eru í besta lagi.
Bókin er fyrir um það bil sex til
ellefu ára.
ÞRJU URVALS UTSJONVORP FRA SAMSUNG
A SERSTOKU JOLAVERÐI SEM GILDIR
w jr
AÐEINS TIL ARAMOTA
CB-528 20 TOMMU
MEÐ ÞRÁÐLAUSRI
FJARSTÝRINGU
Monitor útlit.
Tvöfalt hátalarakerfi
Sjálfvirkur stöðvarleitari.
Heyrnartólsútgangur.
Bein videotenging (monitor
eiginleikar).
Og margt fleira.
29.850,- stgr.
CB-38916 TOMMU
MEÐ ÞRÁÐLAUSRI
FJARSTÝRINGU
in-line myndlampi
Rafeindastýrður sjálfleitari.
Snertitakkar.
Heyrnartólsútgangur.
Þráðlaus fjarstýring.
24.980,-stgr.
JAPIS8
BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SlMI 27133
CB-347 14 TOMMU
in-line myndlampi
Monitor útlit.
Bein video-/tölvutenging
Heyrnartólsútgangur.
Sjálfvirk fínstilling.
19.900,-stgr.
■c
•2,