Þjóðviljinn - 19.12.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.12.1987, Blaðsíða 3
Ríkisútvarp Bönnuðu auglýsingu HPfékk ekki að auglýsa bandarískar skýrslur um StefánJóhann. Formann útvarpsráðs og ritstjóra HPgreinir á Afundi útvarpsráðs í gær var rætt hvort leyfa ætti svohljóð- andi auglýsingu frá Helgarpóstin- um: „Vildi reka kommana! HP birtir leyniskýrslur um ráðabrugg Stefáns Jóhanns og bandaríska sendiráðsins." Að sögn Ingu Jónu Þórðar- dóttur, formanns útvarpsráðs, var ákveðið að neita að birta þessa auglýsingu og var sú ákvörðun byggð á reglum Ríkis- útvarpsins um efni auglýsinga. Þær reglur, sem settar voru 1983 samkvæmt útvarpslögum, voru samdar af útvarpsstjóra og sam- þykktar af útvarpsráði. Bannið sagði hún að hefði einkum verið byggt á tveimur greinum í reglunum: Annars veg- ar banni við að í auglýsingum komi fram menguð ádeila eða hlutsöm frásögn um stofnanir eða félagsheildir, hins vegar ákvæði um að efni tímarita, blaða og bóka skuli vera með öllu laust við áróður. Halldór Halldórsson, ritstjóri Helgarpóstsins, sagði í samtali við Þjóðviljann í gærkvöld að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem auglýsing frá Helgarpóstinum væri bönnuð í Ríkisútvarpinu. Hann sagði að tekið hefði verið við auglýsingunni á auglýsinga- deild útvarpsins í fyrradag. Skömmu síðar hefði verið upp- lýst að hún yrði ekki birt. HP hefði þá boðist til að þurrka út setninguna „Vildu reka komm- ana!“ en það hefði ekki dugað til. Ekki kannaðist Inga Jóna við að HP hefði viljað breyta auglýs- ingunni. Hún hafði eftir útvarps- stjóra að lagt hefði verið að HP að breyta auglýsingunni en stjórnendur hans hefðu ekki vilj- að það. Þarna stendurstaðhæfing gegn staðhæfingu. Halldór á HP gat þess að aug- lýsingin hefði birst í ríkissjón- varpinu fyrir fréttir, að vísu ein og yfirgefin á eftir kyrrum skjá- auglýsingum, en engu að síður hefði hún birst óskert. ÓP Helgarveðrið Svipaður hiti Hjá Veðurstofunni fengust þær upplýsingar að helgarveðrið verði svipað veðrinu að undan- förnu, þ.e. hiti víðast hvar á landinu. Að vísu verður austanstrekk- ingur sunnanlands og jafnvel slydda fyrir norðan, en hiti verð- ur á bilinu 5-7 stig, altént sunnan- og vestanlands. Líkast til mun enginn landshluti sleppa við ein- hverja vætu. -ns. Gullbringa Þórarinn allur Bókaforlagið Gullbringa hefur nú leyst til sín allar bækur Þórar- ins Eldjárns utan eina; Ijóðabók- ina Ydd. Fæst sú bók enn hjá For- laginu, en upplagið mun senn á þrotum. Upplag annarra bóka Þórarins fer og ört minnkandi hjá bóksöl- um og eru flestar orðnar illfáan- legar. HS Reiðir hafnarverkamenn niðri við Sundahöfn sem hunsuðu árlegt jólaboð urðsson, Sigurður Rúnar Magnússon, Pétur Duffield, Hannes Jónsson og stjórnar Vöruafgreiðslu Eimskips. Frá vinstri Hilmar Sveinsson, Olafur Sig- Kristján Bernódusson. (Mynd: Sig.). Hafnarverkamenn Hunsuðu áriegt jólaboð Stjórn Vöruafgreiðslu Eimskips telur ekki ástœðu til að greiða þeim jólabónus í ár. Sigurður Magnússon, trúnaðarmaður: FengumlO þúsund krónur í fyrra. Pessar aðgerðir okkar upphafið að því sem koma skal Hátt í tvö hundruð hafnar- verkamenn sem vinna hjá Eimskip niðri við Sundahöfn hunsuðu jólaboð sem stjórn Vöruafgreiðslunnar hélt starfs- mönnum félagsins í hádeginu í gær í Glæsibæ. Þetta gerðu verkamennirnir í mótmælaskyni við þá ákvörðun stjórnarinnar að greiða þeim ekki jólabónus í ár eins og gert var í fyrra en þá fékk hver maður 10 þúsund krónur. Að sögn Sigurðar Rúnars Magnússonar, aðaltrúnaðar- manns Dagsbrúnar í Sundahöfn, er mikill urgur í hafnarverka- mönnum út af þessari framkomu stjórnarinnar í garð verkamann- anna, þrátt fyrir að jólabónusinn sé ekki í samningum. Ennfremur sýður í verkamönnunum vegna þess að þeir starfsmenn sem fengu kuldagalla eftir 1. sept- ember í ár, hafa fengið rukkun upp á tvö þúsund krónur fyrir gal- lann í þessum mánuði. Telja verkamennirnir það sýna best lít- ilsvirðingu stjórnarinnar að rukka gallagjaldið inn núna, ein- mitt þegar verkamennirnir þurfa hvað mest á sínum aurum að halda í jólamánuðinum sem er út- gjaldafrekastur allra mánaða á árinu. „Við höfum alltaf gengið út frá því að félagið sjái sóma sinn í því að gera vel við okkur í lok ársins eftir vel unnin og giftusamleg störf á árinu. En það er heldur betur annað uppi á teningnum í ár. í fyrra voru rúturnar kjaftfull- Vaxtaokrið Skuldimar tvöfaldast Háir vextir leggjast við skuldir þeirra sem ekki geta greittþœr niður. Höfuðstóllinn tvöfaldast á fáum árum Algengt er að fólk, sem er að byggja eða kaupa íbúð, taki verðtryggð bankalán. Þau bera nú 9,5% vexti. Lánstími er sjald- naast lengri en 2 ár en ekki er fátítt að fólk taki ný lán til að greiða þau gömlu. Geti menn ekkert lækkað höfuðstól skulda sinna á sjö og hálfu ári þá hafa lagst ofan á höfuðstól og verðbæt- ur vextir sem nema verðgildi allrar skuldarinnar. Með öðrum orðum: Á innan við 8 árum er búið að greiða jafnvirði skuldarinnar í vexti eða tvöfalda hana að verðgildi sé ekk- ert greitt niður af láninu. Stöðugt hækka vextir og þá líka vextir á lán eftir að búið er reikna ofan á þau verðbætur mið- að við vísitölu. Vextir á verð- tryggð lán eiga þó að vera óháðir verðbólgu. Samkvæmt hagfræðikenning- um eiga háir vextir að leiða til minnkandi sóknar í lánsfé. En þrátt fyrir háa vexti vilja íslend- ingar stöðugt ný lán. Margir mega til; fengju þeir ekki peninga færu þeir yfir um og misstu eignir sínar á uppboð. Vextir hærri en 9,5% eru ekki óalgengir. T.d. bjóða verðbréfa- salar 14% ávöxtun eða meir og hljóta því að lána út fé á enn hærri vöxtum. Hafi menn tekið verð- tryggt lán á 14% vöxtum og greiði það 5 árum og 3 mánuðum síðar lánsupphæðina miðað við fast þá þurfa þeir að greiða tvöfalda verðlag. ÓP Gullplata í Hallgrímskirkjuturni. Forsvarsmenn Grammsins afhentu í gær tvöfalda gullplötu uppi í turni Hallgrímskirkju og viðtakandi var Loftmyndarstjarnan Megas, en plata hans hefur nú selst í 6000 eintökum. Tuminn þótti við hæfi af ýmsum ástæðum, vegna plötunafnsins, til að tákna sérstöðu Megasar í heimi dægurlaga og vegna þess að Hallgrímuf Pétursson og kirkja hans hefur haldið vöku fyrir Megasi og aðdáendum með ýmsum hætt. Er þess skemmst að minnast að í einni smásögu meistarans tekur turninn á rás niður Skólavörðuholtið ... (Mynd: KGA) Laugardagur 19. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 ar af starfsmönnum á leið í þetta árlega jólaboð, en nú voru þær tómar, ef undanskildir eru fáeinir skólastrákar sem skilja það ekki að verkamenn þurfa að sýna sam- stöðu ef þeir eiga einhverja að hafa von um að ná fram sínum kröfum," sagði Sigurður Rúnar. Sigurður sagði þessar aðgerðir hafnarverkamanna aðeins vera upphafið að enn meiri átökum sem framundan væru í kjarabar- áttunni. - grh Strœtisvagnar Góð reynsla af miðbæjar- vögnunum Miðbæjarvagnarnir svoköll- uðu, þ.e. strætisvagnarnir scm ganga niður Laugaveginn um miðjan daginn fólki að kostnað- arlausu, hafa verið mjög vinsælir að sögn Harðar Gíslasonar skrif- stofustjóra Strætisvagna Reykja- víkur. í byrjun var aðeins um tilraun að ræða og var áætlað að vagn- arnir gengju ganga til áramóta, en núna er óljóst hvort það verð- ur eða hvort vagnarnir verða not- aðir áfram. Þeir hafa létt mjög undir með hinum vögnunum sem ganga niður Laugaveginn, því oft er þvílíkt umferðaröngþveiti að aksturstími vagnanna hefur margfaldast. Að sögn Harðar eykst kostn- aður Strætisvagna Reykjavíkur nokkuð við þetta, en öryggis eykst að sama skapi, þ.e. vagn- arnir gera hinum kleift að stand- ast tímaáætlanir. -ns. Verslanir Opið til 22 íkvöld Sennilega er dagurinn í dag og Þorláksmessa mestu annadagar í verslun fyrir jólin. Verslanir verða opnar til kl. 22 í kvöld, á mánudag og þriðjudag verður venjulegur opnunartími, eða til kl. 18 og á Þorláksmessu verður opið til kl. 23. Þá verður hægt að versla til hádegis á aðfangadag. -ns.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.