Þjóðviljinn - 19.12.1987, Side 2
nSPURNINGIN
Ertu meö nagladekk
undir bílnum?
Jóhannes Kristinsson
byggingamaður:
Nei, tíöin er svo góö aö þeirra er
ekki þörf. Ég á þau samt sem
áður til.
Guðbjörg Árnadóttir
flugfreyja:
Nei, ég er ekki með nagladekk
heldur snjódekk.
Hörður Guðmundsson
málari:
Nei, ég er ekki maö þau, það er
ekki kominn tími á þau.
Ragnheiður Kristjánsdóttir
auglýsingateiknari:
Já, ég er meö nagladekk. Ég set
þau alltaf undir á haustin.
Helga Baldvinsdóttir
nemi:
Já, ég bý nefnilega úti á landi og
set þau alltaf undir á haustin.
FRETTIR
Annríkið á þingi
Misbeiting forsetavalds
Jón Kristjánsson sleit umrœðum um launaskatt áfyrirtœki þráttfyrir að Hjörleifur
Guttormsson hefði kvattsér hljóðs. Hjörleifur fékk svo orðið eftir að hlustað hafði
veriðá upptöku af fundinum
Hjörleifur Guttormsson og
Steingrímur J. Sigfússon mót-
mæltu því harðlega í gær þegar
Jón Kristjánsson, forseti neðri
deildar Alþingis, sleit umræðum
um launaskatt á fyrirtæki, þrátt
fyrir að Hjörleifur hefði kvatt sér
hljóðs áður en umræðu var slitið.
Atvik þetta gerðist um hálfeitt
leytið í gær en ákveðið hafði verið
að fresta fundi deildarinnar til
klukkan tvö. Bæði Hjörleifur og
Steingrímur, sem og Oli Þ. Guð-
bjartsson, höfðu lagt spurningar
fyrir fjármálaráðherra, auk sjáv-
arútvegsráðherra og iðnaðarráð-
herra. Eini ráðherrann sem gerði
sér ómak að svara fyrirspurnum
var Friðrik Sophusson.
í máli Friðriks kom fram að 1 %
launaskattur á útflutningsiðnað-
inn skipti ekki sköpum fyrir af-
komu greina einsog ullariðnaðar-
ins, það sem skipti iðnaðinn
mestu máli væri að jafnræði væri
milli útflutningsgreina einsog
sjávarútvegs og útflutningsiðnað-
ar. Friðrik sagði að vandi ullar-
iðnaðarins væri mikill og ljóst
væri að nokkur fyrirtæki í
greininni hlytu að gefast upp. Þá
sagði hann að ríkisstjórnin myndi
koma saman eftir áramót til að
taka ákvarðanir um ráðstafanir í
efnahagsmálum.
Steingrímur J.Sigfússon spurði
þá hvort iðnaðarráðherra væri að
gefa í skyn að ríkisstjórnin biði
þess að Alþingi gerði hlé á störf-
um sínum til að grípa til gengisfel-
lingar.
Þegar Steingrímur hafði lokið
máli sínu tilkynnti forseti að eng-
inn hefði kvatt sér hljóðs en áður
en honum hafði tekist að slíta
umræðum kvaddi Hjörleifur sér
hljóðs. Forseti gaf honum orðið
utan dagskrár en sagði umræðum
um launaskattsfrumvarpið lokið.
Því mótmælti Hjörleifur og
sömuleiðist Steingrímur. Sagði
Hjörleifur að þetta væri mis-
beiting á forsetavaldi og
Steingrímur sagði að hingað til
hefði skeiðklukkustjórnun ekki
verið tíðkuð á Alþingi.
Forseti lofaði að láta hlusta á
upptöku af fundinum til að kanna
hver hefði á réttu að standa. Það
kom svo í ljós að Hjörleifur hafði
kvatt sér hljóðs áður en forseti
sleit umræðum og þegar fundur
hófst aftur klukkan tvö fékk
Hjörleifur orðið og kallaði enn
einusinni eftir svörum fjármála-
ráðherra. Jón Baldvin Hanni-
balsson gaf þá það svar að 1%
launaskatturinn skipti ekki
sköpum fyrir útflutnings-
greinarnar.
-Sáf
Alþýðubandalagið
Nýtt
frétta-
bréf
Nýtt innanflokksrit á
tveggja mánaðafresti
til allra flokksmanna.
Markmiðið betri
upplýsingar, opnari
og lýðrœðislegri um-
rœða
Nýtt Fréttabréf Alþýðubanda-
lagsins fer um þessa helgi í póst til
allra flokksmanna og er ætlunin
að blaðið komi út sex sinnum á
ári. í inngangsorðum segist
flokksformaðurinn Ólafur Ragn-
ar vona að fréttabréfið verði
„vettvangur okkar allra. Þá mun
útgáfa þess festast í sessi og um-
ræðan í flokknum verða lýðræð-
islegri og opnari.
f spjalli við helstu vinnslumenn
blaðsins, þá Kristján Valdimars-
son og Þröst Haraldsson, kom
fram að þótt meginefni fyrsta
tölublaðs sé eðlilega tíðindi og
samþykktir frá landsfundi flokks-
ins í nóvember sé ætlunin að inni-
haldið verði fjölbreytt, auk sam-
þykkta og ályktana frá forystu,
einstökum flokksfélögum og af
þingi eiga þarna að vera fréttir af
flokksstarfinu vítt og breitt um
landið, fundum, skemmtunum
og ferðalögum, tíðindi af málefn-
um byggðarlaga, starfi í sveitar-
stjórnum, samtökum launafólks
og öðrum félagslegum vettvangi,
pistlar og ádrepur um líðandi
stund, - og auk þess er lögð
áhersla á auglýsingar sem snerta
áhugaefni flokksmanna.
Fréttabréfið er gefið út í fram-
haldi af ýmsum ályktunum
flokksfunda síðustu ár og sérstak-
lega starfsháttaályktun lands-
fundarins síðasta. Það er brotið
um í tölvu, keyrt út á geislaprent-
ara og offsetfjölritað í Letri,
fyrsta tölublaðið 28 myndskreytt-
ar síður í a-fjögur broti.
Þjóðviljinn fagnar þessum ný-
fædda frænda sínum meðal blaða
og tímarita og óskar honum
langra lífdaga.
-m
Mál og menning
Tímamóta
prentgripur
Fuglar í náttúru íslands, er ný-
komin út hjá Máli og menningu,
og þykir þar á ferðinni einhver sá
mesti prentgripur sem sést hefur
á íslandi. Og þykir vel við hæfi á
flmmtíu ára afmæli forlagsins að
gefa slíka bók út. Það er Guð-
mundur Ólafsson, sem hefur unn-
ið verkið, hann skrifar allan
texta, teiknar skýringarmyndir,
notar skáldskap og þjóðtrú til að
gefa efninu sem mesta fyllingu og
sjálfur tekur hann allar Ijós-
myndir í bókinni, sem margar eru
listaverk og þá séstaklega vel unn-
ar af hálfu prentsmiðjunnar.
„Það liggur í bókinni margra
ára vinna og það sem þykir mesta
afrekið í þessu tilviki, er að allt
skuli vera eins manns verk,“
sagði Halldór Guðmundsson hjá
Máli og menningu. „Bókin hefur
verið í vinnslu í mörg ár, og Guð-
mundur starfað samfellt hjá okk-
ur undanfarin tvö ár. Mál og
menning vildi gefa út eitthvert
virkilega stórt og vandað verk um
náttúru íslands, á afmælisárinu
og þykir hafa tekist mjög vel.
Prentarar mega vera mjög stoltir
af því verki sem hér hefur verið
unnið, þetta er með því albesta
sem gerist. Fyrsta bókin sem kom
út hjá Máli og menningu var
einnig um náttúru íslands, sést-
aklega um Vatnajökul og prýdd
einstæðum ljósmyndum. En eftir
því sem prentarar hafa sagt mér
er þetta stærsta litmyndaverk
sem hefur verið unnið á íslandi,
hvað varðar brotið, síðufjölda og
ljósmyndir. Fuglabókina er
auðvitað hægt að fá á afborgun-
um. Ég held að hún komi til með
að höfða til mikils fjölda fólks,
vegna þess hvernig hún er upp-
byggð. Bæði vegna ljósmynd-
anna og hvernig tökum Guð-
mundur tekur efnið. Sjálfur hafði
ég takmarkaðan áhuga á fuglum
áður en ég kynntist þessari bók,“
sagði Halldór. ekj
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. desember 1987