Þjóðviljinn - 20.12.1987, Blaðsíða 13
I
Ritstjóri:
Gils Guömundsson.
NÝ
ÍSLENSKIR ATHAFNAMENNI
Fyrsta bindi í þessum glæsilega flokki,
Þeir settu svip á öldina, íslenskir
stjórnmálamenn, hlaut afburðagóðar
viðtökur lesenda og gagnrýnenda en fyrsta
bókin er nú á meira en 10.000 ísienskum
heimilum. Hér er haldið áfram þar sem frá
var horfið og hafið að segja frá íslenskum
athafnamönnum. Ógleymanlegir þættir um
nítján mikilvirka athafnamenn. Sumir brutu
sér leið úrfátækt,aðrir voru bornir til auðs og
metorða. Framlag þeirra til mótunar
íslensks nútímaþjóðfélags er ómælt.
Athafnamennirnir sem sagt er frá í fyrsta
bindi eru Ágúst Helgason, Ásgeir G.
Ásgeirsson, Ásgeir Pétursson, Ásgeir G.
Stefánsson, Einar Guðfinnsson, Hallgrímur
Kristinsson, Hjalti Jónsson, Jóhannes
Nordal, Jón Halldórsson, Knud Zimsen,
Konráð
Hjálmarsson, Magnús Sigurðsson,
Pétur A. Ólafsson, Sigurður Kristjánsson,
Stefán Th. Jónsson, Sveinn Jónsson,
Tryggvi Ófeigsson, Þórarinn B. Egilsson og
Þórarinn E. Tulinius.
Johannes Mario Simmeí
ÖRLAGASAGA
Einstæð og eftirminnileg saga manns sem
leggur allt undir í örvæntingarfullri baráttu
sinni við óvægin örlög, bók sem oft hefur
verið líkt við fræga ævisögu Martins Grey,
Ég lifi, enda vekur hún sömu tilfinningar
hjá lesendum.
Mögnuð og átakanleg lýsing á grimmum
örlögum og mannlegri þjáningu, saga sem
grípur lesandann heljartökum.
Saga manns sem er hrakipn út í ógæfuna
af eigin ástríðum og örvæntingu, sjúkur
á sál og líkama.
Phyllis A. Whitney
ALDREI OF SEINT
Kynngimögnuö og rómantísk saga um
unga konu sem kemur til friðsæls bæjar
við Kyrrahafsströnd til að jafna sig eftir
mestu hörmungar lífs síns, dauða sonar
síns og upplausn hjónabandsins sem
fylgdi í kjölfariö. En fyrr en varir er hún
orðin þátttakandi í hringiðu ýmissa atburða
sem þar hafa átt sér stað. Afdrifaríkir hlutir
gerast, — ástir og óvænt atvik gefa lífinu
tilgang á ný. — Bók sem beðið hefur verið
með eftirvæntingu, lesendum Phyllis A.
Whitney fjöigar stöðugt.
Mary Stewart
ÖRLAGASLÓÐIR
Vanessa fer til Vínarborgar til að reyna að
komast að því hvað eiginmaður hennar,
Lewis, er eiginlega að gera í Austurríki,
þegar hann hafði sjálfur sagst vera aö fara
til Svíþjóðar. Eða var það kannski ekki
hann, sem hún sá bregða fyrir i frétta-
myndinni af fjölleikahússbrunanum? Hana
grunar ekki, að leit hennar að Lewis á eftir
að leiða hana á vit hættulegra
glæpamanna . . . Þetta er rómantisk og
spennandi saga um ástir og afbrot, sem
hvergi gefur fyrri bókum þessa vinsæla
höfundar eftir.
IÐUNN BRÆÐRABORGARSTÍG 16 • SÍMI 28555