Þjóðviljinn - 20.12.1987, Blaðsíða 20
Gunnar Hersveinn
Jóla-
tré
astin
mín ef þú
skreytir þetta jólatré
vcrður það
fallegra en nokkurt annað og á
jólunum klæðist þú
bláum kjól og hefur síða ljósa hárið
þitt slegið og eftir jólagæsina
opnar þú pakkana og frá mér færð þú citthvað
óvænt og frá þér fæ ég kannski
leynipakka cn hvað það verður veit nú enginn og
um nóttina elskumst við í dúnmjúku
englahári alveg fram á morgun ef þú skrcytir þetta jólatré
leggst ég undir það vafmn inní rauðan pappír einsog jólagjöf til
þín
og bíð
eftir að
þú opnir mig
Kristín Bjarnadóttir
fró hafi
stundum cr eyjan
eins og ísjaki á reki
milli drauma
meðan ég sarga í kaldan klakann
tel ég mér trú um
að hann sé strönd veruleikans
svo kaldur
svo takmarkaður
svo hulinn sæ
Kristín Bjarnadóttir
af fiöllum
úr sólarlandaferðinni
kom ég með fjall í farangrinum
þú sást það ekki
en með haustinu
gekkstu í gegnum það
Sigfús Daðason
Spekingarnir gömlu
Krlstfn Bjarnadóttir
úr þoku
ég sé drenginn í þokunni
sem ég fæ aldrei séð í gegnum
því þokan er eins og amma manns
sagði drengurinn löngu fyrr
og hann
alltaf í nýju ljósi
og þokan
alltaf á sínum stað
bak við augu mín
Steinunn Sigurðardóttir
Tímaskekkjur
Mínúturnar á gömlu klukkunni
eru hættar að tölta áfram réttsælis.
Nú hoppa þær og dansa
aftur og fram um skífuna
flírulegar einsog mongólítar.
Áðan sá ég eina
stökkvandi afturábak
svo fram tvö skref.
Missýn
segir blindinginn sem knýr vísana.
Ljóðiö er úr bókinni Kartöfluprinsessan
sem út kom hjá Iðunni fyrir skömmu.
Spekingarnir gömlu og slitnu sem ég þekkti
þegar ég var ungur
þeir komu stundum langa leið heiman frá sér
til að létta mér lífið
og telja í mig kjark
með óágengri vizku sinni
hljóðlátu tali.
Nú koma þeir ekki lengur.
Heimurinn fer batnandi
hann verður sléttari
og beinni.
Bráðum kunna allir allt
bæði þarft og óþarft
og enginn mun nauðsynlega þurfa
að hugsa með sjálfum sér.
Spekingarnir kurteisu eru hættir að koma.
Lítið var pund þeirra.
Sífellt þurftu þeir að vera að brjóta heilann!
Umluðu hæglætislega.
Engir tilviljunarkenndir lærdómar úr spjaldskrá
voru þeim tiltækir
og ekki neinar siðfræðikenningar
upp úr skáldsögu eða prótokolli...
Ég veit að sönnu
að þarfleysa er um slíkt að yrkja.
Merkingin er tæp.
Framlenging út í Söguna getur engin orðið.
Borgirnar og ríkin
sokkin og ósokkin
eru utan sjónarhrings.
Og verðgildin
þau réttu og stöðugu
látin lönd og leið.
Þetta Ijóð er úr bók Sigfúsar,
Útlínur bakvið minnið, sem kom út hjá Iðunni fyrir skömmu.
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. desember 1987