Þjóðviljinn - 20.12.1987, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 20.12.1987, Blaðsíða 18
Gunni Þórðar að binda slaufu. Gunnar Pórðarson: í loftinu Ólafur Haukur Símonarson sér alfarið um textagerð fyrir Gunn- ar á þessari plötu. Ólafur er býsna gott skáld, eins og alþjóð veit, og virðist jafnvígur á prósa, dramatík og misbundið mál. Það þarf því varla að koma á óvart þó textarnir á plötunni í loftinu séu með því besta sem boðið er uppá fyrir þessi jól. Að þessu sinni urðu allir textarnir til á undan lögunum og þeir færðir Gunnari til innpökkunar. t>að er svo ærið misjafnt hvernig sú innpökkun hefur tekist. Pappírinn er hvergi látinn duga, enda þótt oftast sé hann fullboðlegur einn og sér. Allkyns slaufur og borðar, bjöllur, blóm og annað snúllerí prýða nú pakkana og það fer þeim misvel. Reyndar finnst mér Gunnar Hjálmarsson lætur rokkdrauminn rætast, S.H. Draumur með plötu ársins: Goð. lendis, nema ef vera skyldi Sig- tryggur Sykurmoli. Guðjón S. Birgisson fer með hlutverk gítar- leikara í þessari sveit og stendur félögum sínum hvergi að baki. Ég mér óþarfi að gera það með því að draga þau niður á sama plan og fyrrnefnt froðupopp. Það vantar allan kraft í þetta, flest eru þetta kraftmikil og/eða fjörleg voðalega ungur ... Það er alveg sjálfsagt að taka gamla klassikera og hressa uppá þá með nýstár- legum útsetningum en það er hægt án þess að nota holan hljóm lög, en á þessari plötu er búið að draga úr þeim vígtennurnar, klippa klærnar, jafna alla hóla og hæðir og eftir stendur flatneskjan ein. Það er hálfgerð synd, því ein- hvern veginn finnst manni þeir geta betur. Söngurinn sem slíkur er ágætur, hins vegar er einhver misskilningur ráðandi varðandi raddsetningu a.m.k. sumra lag- anna, sbr. Smaladrengurinn, ég minnist þess ekki að hafa heyrt þennan texta fluttan á jafnvæm- inn hátt fyrr, en ég er auðvitað trommuheila og endalausan svuntuþyt. Besta dæmið um það eru útsetningar Ríkarðs Arnar á lögum Ingibjargar Þorbergs, sem fjallað var um hér í síðustu viku. Vandað umslag með góðum upplýsingum er vel til þess fallið að vekja áhuga túrhesta á sumri komanda, en hálf er ég hræddur um að þeir verði fyrir vonbrigð- um með þjóðlegu nóturnar er heim er komið og plötunni er brugðið undir nálina - íslenska náttúran er víðs fjarri. upphafi Jólin koma á fimmtudaginn. Klukkan sex. Þetta gerist á hverju ári og hefur gerst nokkuð lengi ef marka má minni elstu manna og sögubækur nútímans. Og þó ég teljist til hinna trúlausu í þessum heimi, þá er ég samt sem áður eindreginn fylgjandi jóla- halds. Þar kemur margt til, en þyngst vegur þó sú staðreynd að fjandanum nískari menn (og konur) fyllast gjarnan einhverri undarlegri góð- mennsku og örlæti um þettaleyti árs. Það er auðvitað spurning hvað þetta ristir djúpt og endist lengi, en það er þó viðleitni. Og víst er að ekkert er auðveldara en að finna nútímajólum flest til foráttu. Það má segja að þetta sé orðin hátíð kaupmanna fremur en barna, foreldrar, vinir, vandamenn og vandalausir eru á þönum út um allan bæ í leit að einhverju nógu fínu og dýru til að gefa börnum sínum, vinum vandamönnum og vanda- lausum. Allavega verður það að líta út fyrir að vera dýrt. Á meðan gamlir og nýir popparar syngja um kerti og spil, nýja sokka og flókaskó, auglýsa kaupmenn geislamorðvopn (að vt'su aðeins eftirlíkingu) til jólagjafa á „að- eins“ þrjúþúsund og níuhundruð. Venjulegt launafólk er á hlaupum í margar vikur í eltingaleik sínum við gullkálfa kaupmanna og liggur svo fram á vor og sötrar glóðvolga skulda- súpuna. Og svo við snúum okkur að kirkjunni sem stofnun, þá er það hinn mesti misskilningur að sú tfð sé fyrir bí að ofbeldisverk ýmiss konar séu framin í hennar nafni. Við þurfum ekki að líta lengra en til frænda okkar Ira til að sjá að sú tíð er allt annað en liðin. Maður á bágt með að trúa að margt það sem framið hefur verið í guðs nafni sé honum þóknanlegt ef hann er jafngóður og af er látið. Og ekki held ég þeim feðgum lítist betur á það hvernig við dauðlegir höldum uppá afmæli júníorsins. En ég vona þó að menn haldi því áfram um ók- omna tíð en með þeim formerkjum sem gefin voru í upphafi, þ.e. að jólin verði hátíð ljóss og friðar en ekki kre- ditkorta og kaupmanna ... Amen. S.H. Draumur: Goð Ég veit satt að segja ekki hvað skal segja. Af nógu er svo sem að taka. Orð eins og „frábært", „meiriháttar", „meistarastykki" og önnur svipaðrar merkingar koma strax upp í hugann þegar hlustað er á þessa fyrstu breið- skífu S. H. Draums. En þetta eru jú bara orð og þó orð séu til alls fyrst, þá duga þau varla í þessu tilfelli. Þetta er einfaldlega besta rokkplata sem út hefur komið á klakanum í háa herrans tíö. Ein- hverjum kann að finnast ég taka stórt uppí mig en ég er á því að þessi plata standi fyllilega undir stóru orðunum. Það er nokkuð sama hvar gripið er niður, alls staðar er sami krafturinn fyrir hendi. Og ferskt er það. Ég veit ekki um margar þriggja manna hljómsveitir sem náð hafa jafn mögnuðum hljómi, krafti o.s.frv. Gunnar Hjálmarsson er það sem kalla má aðalsprauta hljóm- sveitarinnar, hann plokkar bass- ann, syngur og semur auk þess öll lög og texta. Birgir Baldursson nefnist sá ungi sveinn sem húð- irnar lemur og ferst honum það vel úr hendi, reyndar svo vel að mér er til efs að hans jafningi finnist á rokkmarkaðnum hér- held ég hætti þessari lofgjörð áður en hún verður leiðinleg, en svona í lokin verð ég bara að ít- reka að hér er um klassagrip að ræða, plötu ársins og ekkert ann- að. Og þó ég hafi ekki haft það fyrir vana að taka einstök lög fyrir þá get ég ekki stillt mig um nefna hér tvö lög sérstaklega, þótt hin tíu séu allt annað en lé- leg. Þetta eru lögin Sýrubælið brennur og Helmút á mótorhjóli, sem ótvírætt teljast til bestu rokk- laga allra tíma hérlendis - að mínu mati, nota bene ... Ríó Tríó: Á þjóðlegum nótum Platan heitir „Á þjóðlegum nótum” og framan á umslagi hennar er mynd af langspili og öðru fornmeti. Hvað þetta langs- pil er að gera þarna er mér hulin ráðgáta, því ekki kemur það neins staðar við sögu annars stað- ar. Það er gamli synþinn sem ræður ferðinni hér, frá upphafi til enda og er það miður. Það er virðingarvert að reyna að hefja þessi gömlu, ágætu lög aftur til vegsemdar nú á tímum froðu- poppsins, en hins vegar finnst Ríó Tríó ásamt stjórnanda svuntuþeysimála. 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.