Þjóðviljinn - 20.12.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 20.12.1987, Blaðsíða 15
farinn veg - kafli úr minningabókÁstu Erlingsdóttur grasalœknis Meðal þeirra bóka er Örn og Örlygur gefa út fyrir þessi jól eru minningarÁstu Erlings- dóttur „Ásta grasalæknir- líf hennarog lækningarogdul- rænreynsla“,sem Atli Magnússon hefurskráð. Hér segir Ásta frá föður sínum og formæðrum sem um aldabil hafa stundað lækningar með grösum á íslandi og langri reynslu sjálfrar sín á þessu sviði. Þrettán einstaklingar bera vitni í bókinni um reynslu sína af hjálp þeirri er hún hefur veitt þeim og Ásta segirfrá ýmsum jurtategundum sem almenningur getur fyrirhafn- arlítið notað sér, eins og í kafl- anumerhérferáeftir-„Líf- grösviðfarinnveg": „t>að þarf langa reynslu til þess að geta þekkt þær jurtir sem yfir lækningamætti búa og eiginleika hverrar þeirra. Og ekki er nóg að vita að jurtin hafi áhrif gegn til- teknum sjúkdómi, það þarf líka að kunna að tilreiða hana í rétt- um hlutföllum ásamt öðrum jurt- um. Einnig eru til hættulegar jurtir. Ég veit um jurt sem fram- kaliað getur fósturlát og aðra þekki ég sem banað gæti full- frískri manneskju á skömmum tíma, þótt notuð í takmörkuðum mæli hafi hún einstæða lækninga- eiginleika. Því hef ég veigrað mér við að gefa fólki miklar upplýs- ingar um þetta. En það eru samt ýmsar jurtir sem hver og einn get- ur tekið af og notað og haft gott af á margan hátt. Ég skal gjarnan nefna hér nokkrar þeirra, eink- um þær sem henta til drykkjar- gerðar. Einhver verður kannske hissa ef ég nefni fífilinn, en úr rótum hans má búa til nokkurs konar kaffi. Þá eru ræturnar bakaðar og muldar og svo hellt upp á með vanalegum hætti. Þetta er þó nokkuð rammt. Blöð fífilsins eru líka gott meðal við alls konar of- næmi. Með þessu er gott að hafa birki. Úr birki er mjög gott að gera te. Þá skal taka blöðin af ungum birkisprotum, meðan þau enn eru dálítið límkennd og sjóða þau, gjarnan ásamt baldursbrá eða valhumli, Maríustakk eða mjaðarjurt sem er styrkjandi. Slíkt te er mjög róandi. Éinnig má taka börk og mosafléttur sem á birkinu vaxa og nota þetta á sama hátt, en það er nokkuð barkandi. Birki er alltaf gott fyrir slímhúðina. Það er vallhumall einnig, auk þess sem hann er bólgueyðandi. Te má gjarna gera úr valhumlinum líka og er þá rétt að sjóða með honum aðalblá- berjalyng. Blóðbergið er líklega einna þekktast af þeim jurtum sem not- aðar hafa verið til tegerðar hér á landi í aldanna rás. Það hefur Ásta Erlingsdóttir. Myndin er tekin er hún opnaði sýningu í Gerðubergi á eigin vatnslitamyndum, máluðum með litum er hún sjált hefur unnið úr íslenskum jurtum. mjög góð áhrif á húðina, en getur verið varasamt sé fólk með ein- hverja magakvilla. Þá er ráðlegt að drekka aðeins lítið af því. Enn má nefna beitilyng, sem er prýði- lega fallið til þess að laga úr því te og á þá helst að hafa mjaðarjurt og blágresi með. En það er með beitilyngið eins og blóðbergið að magaveikir mega gæta sín á því, því það eykur sýrumyndun í mag- anum. Sama á við um sortulyng, eini og rjúpnalauf. Rætur og lyng eru samandragandi, en móti því verka þessar opnandi jurtir, sem ég hef nefnt að sjóða skuli með - Maríustakkur, mjaðarjurt og baldursbrá. An þeirra yrði teið líka of barkandi og sterkt. Þó ræð ég krabbameinssjúklingum alltaf frá því að drekka opnandi jurtir. Dálítið nota ég af sjávarjurt- um, þó ekki sé það mikið. Oft ráðlegg ég krabbameinssjúk- lingum þaratöflur og söl til inn- töku ásamt grasalyfi sem ég sjálf læt í té. Líka nota ég silfurmuru með ýmsu öðru, ekki þó fyrir krabbameinssjúklinga, heldur hjartasjúklinga. Hún er sögð góð fyrir hjartað, þótt mótsögn virð- ist vera í því fólgin að hún er talin þykkja blóðið. Gulmuru má einnig nota. Hvönnin er gömul lækninga- jurt og ég man að faðir minn hafði á henni mikla trú. Hann hafði alltaf hvannastóð við svefn- herbergisgluggann sinn og við útidyrnar. Hvönnina má vel nota við kvefi og ber þá að sjóða hana í vatni, uns af verður sterkur lögur, og anda að sér heitri guf- unni. Um leið er ágætt að taka inn eins og eina matskeið af legin- um, en varla meira. Af sveppum tek ég ekki, þótt sagt hafi verið að þeir hafi verið „pensilín" síns tíma og þá rifjast upp fyrir mér sú saga af Stefaníu ömmu minni að hún hafi skafið myglusveppi af sláturtunnu, hit- að þá yfir eldi og látið þá sjúkl- inga sem þjáðust af lungnakvefi og hósta anda að sér gufunni. Þetta mun hún hafa gert með góðum árangri. Víst má slíkt þykja merkilegt, því þá vissi eng- inn um fúkkalyfin enn. Þetta eru fáein dæmi, meir til gamans en að ég vilji með þessu þykjast vera að gefa fólki upp- skriftir. En þeir geta reynt þetta sem áhuga hafa á og ég held að þeir verði ekki fyrir vonbrigðum. Ég nefndi áðan birkite og gat um heilnæm og róandi áhrif þess. En ég get vel getið þess að birkið er líka gott við mjög algengum kvilla sem sækja vill á karlmenn, en það er blöðruhálskirtilsbólga. Þar sem öllum ætti að vera innan handar að útvega sér þær jurtir sem þarf í góða inntöku við þessu skal ég gefa hér ráð um gerð hennar. Islíka inntöku er rétt að hafa helminginn klóelftingu en afganginn að jöfnum hlutum birki, blágresi og valhumall. Þetta er látið í pott eða ketil með álíka vatnsmagni og notað er í vanalegt te og hitað við suðu- mark í svo sem fimmtán mínútur. Þetta er svo drukkið í staðinn fyrir kaffi eða te, tveir til þrír bollar á dag, og batamerkin munu skjótt koma í ljós. Þetta er ekki eins kröftugt og þær inn- tökur sem ég sjálf bý til, þegar ég útvega fólki við þessu. Ég sýð inntökuna miklu lengur, kannske tvo eða þrjá klukkutíma, svo hún verður megnari og sterkari og þá er auðvitað ekki lengur um te að ræða. Þá er ekki ráðlegt að drekka nema svo sem hálfan bolla á degi hverjum. Þeir sem vilja fylgja þessu ráði ættu þó að temja sér að drekka þetta í all langan tíma, til þess að áhrifin verði varanleg og mín reynsla er sú að fólki fer að finnast þetta mjög gott, líkaminn fer smám saman að biðja um þetta. Hliðar- áhrifin eru þau að húðin verður ákaflega slétt og falleg og það svo að stundum er til þess tekið. Fjallagrös eru líka heilnæm fyrir húðina, eins og blóðbergið, sem ég áður minntist á. En konur geta líka notað sér þessa uppskrift, þær sem þjást af móðurlífsbólgum eða þá blöðru- bólgu. Eini munurinn er sá að þá er rétt að bæta blágresi í að einum tíunda hluta og nokkru af mosa- fléttum. Þetta gefur þá mjög góða raun. Allar þær jurtir sem til þarf er auðvelt að útvega sér og geyma. Aðeins verður að gæta þess að geyma jurtirnar hverja út af fyrir sig og láta þær ekki liggja saman.“ Kassandra nefnist skáldsaga eftir Christu Wolf sem bókaforlag Máls og menningar hefur sent frá sér. Kassandra er persóna úr forn- grískum sögum sem heillað hefur sagnaskáld og harmleikjahöf- unda síðan á dögum Hómers. Hún var dóttir Príamosar kon- ungs í Tróju og guðirnir höfðu gefið henni spádómsgáfu, en jafnframt lagt á hana að enginn skyldi trúa spásögnum hennar. Það gekk eftir. Hún sagði fyrir um herför Grikkja og eyðingu Tróju en enginn lagði trúnað á orð hennar. Trója féll og Agam- emnon, foringi Grikkja, flutti Kassöndru með sér í herfanginu til heimaslóða. Sú för varð báð- um afdrifarík. Christa Wolf fer með þetta efni á frumlegan hátt. Hún segir sög- una frá sjónarhóli Kassöndru sjálfrar og tekst um leið að færa hinn forna heim nær nútíma les- endum. Wolf er fædd í Austur- Þýskalandi árið 1929 og sendi frá sér sína fyrstu bók árið 1963. Síð- an hefur hún hlotið fjölda viður- kenninga m.a. Heinrich Mann verðlaunin 1963, Fontane- verðlaunin 1972 og Schiller- verðlaunin 1983. Kassandra er þýdd af Jórunni Sigurðardóttur sem einnig ritar eftirmála. Bókin er 154 bls. að stærð, prentuð í Prentstofu G. Benediktssonar. Sigurborg Stef- ánsdóttir sá um hönnun kápu. Ást í meinum ísafold hefur sent frá sér bók- ina María og Margrét eftir frönsku skáldkonuna Régine Deforges í þýðingu Sigurðar Pálssonar skálds. Sjö gömul póstkort, fundin hjá fornbókasala í byrjun aldarinnar í smábæ í Suður-Frakklandi, gáfu Régine Deforges hugmyndina að skáldsögunni María og Margrét. Bókin fjallar um ástríðufullt samband tveggja kvenna, VÖRULOFTIÐ Pab gæti borgað sig að líta inn SKIPHOLTl 33 SÍMI 689440 HnTnnni]

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.