Þjóðviljinn - 20.12.1987, Qupperneq 23

Þjóðviljinn - 20.12.1987, Qupperneq 23
BÆKUR List og lífsskoðun Út er kominn 2. flokkur í heildarútgáfu AB á ritverkum Sigurðar Nordals. Nefnist hann List og lífsskoðun. Þessi flokkur er í þremur bindum eins og fyrsti flokkurinn, Mannlýsingar, sem kom út 1986. List og lífsskoðun er í raun mjög fjölbreytt safn, en í aðalat- riðum má segja að flokkurinn hafi að geyma skáldskap hans. Ennfremur margvíslegar ritgerð- ir frá ýmsum tímum, sem tengjast þessum efnum og bera kafla- heitin Skiptar skoðanir (ritdeila við Einar H. Kvaran), Hug- leiðingar, Háskóli og fræði, List- ir, Heilbrigði og útivist, Endur- minningar. í skáldskaparkaflanum er að finna kvæði Sigurðar Nordals frá ýmsum tímum, leikrit hans svo sem Uppstigningu, þýðingu á kvæði Frödings um Atlantis, smásögur eins og Lognöldur og Síðasta fullið. En hæst ber vafa- laust ljóðaflokkinn Hel, sem er bæði tímamótaverk í íslenskum bókmenntum og sígildur skáld- skapur. Heimspeki Sigurðar Nordals, sem með jöfnum rétti má kalla lífsspeki, birtist hér fyrst og fremst í fyrirlestrasöfnunum Ein- lyndi og marglyndi og Líf og dauði. Þorsteinn Gylfason hefur í ritgerð með Einlyndi og marg- lyndi 1986 kallað hana „manneðl- isfræði“, tilgangur hennar er sið- ferðileg lífernislist. Og hún er skáldleg heimspeki fremur en vís- indaleg. Ný unglingabók Komin er út hjá löunni ný ung- lingabók eftir Helgu Ágústs- dóttur og nefnist hún OG HVAÐ MEÐ ÞAÐ? Þetta er þriðja bók höfundar. Um efni þessarar nýju bókar segir: „Unglingarnir lenda í ýmsu og það er ekki víst að þeir full- orðnu viti alltaf málavöxtu. Þeir halda að þetta sé allt vitleysa eða bamaskapur. Þeir ættu bara að vita í hverju maður getur lent! Og pælingarnar, þeir vita nú minnst um þær... Og svo á maður bara að vera stilltur og góður og læra vei heima! Það þarf nú líka að sinna öðru, sem er að minnsta kosti jafn áríðandi... Óvenjuleg bók þar sem söguhetjan neyðist til að horfast í augu við fleira en hún vill. Það þurfa lesendur líka við óvænt sögulok.“ Bók sem er leikfang Furöuferð geimskipsins H-20 eftir Richard Fowler, heitir bók sem Skjaldborg gefur út. Hér er á ferðinni sérstök bók sem er í senn bók og leikfang. Geimskipið H-20 fær skeyti frá yfirmanni Geimstöðvar H-2000 um að fara í hættuför þar sem ógurleg sprenging hefur orðið út í geimnum. Fimm geimför hafa þegar verið send en þau öll horf- ið. Bókin er öll í litum og geim- skipið fylgir með bókinni, þannig að áður en ferðin hefst stillir les- andinn geimskipinu á skotpallinn og flýgur skipinu í gegnum bók- ina um leið og hann lendir í mörg- um ævintýrum á leiðinni með áhöfninni á geimskipinu H-20. ÁSGCIR JAKOBSSON 0 r*ai ILlBXAIt .ÍAItUXX IJVHÍSS.11,,1 HHNill.VSmiR S K J) G G S J \ HAFNARFJARÐARJARLINN Einars saga Þorgilssonar Ásgeir Jakobsson Bókin er ævisaga Einars Þor- gilssonar um leið og hún er 100 ára útgerðarsaga hans og fyrirtækis hans. Einar hóf út- gerð sína 1886 og var því út- gerðin aldargömul á síðasta ári og er elzta starfandi út- gerðarfyrirtæki landsins. Þá er og verzíun Einars Þorgilssonar einnig elzta starfandi verzlun landsins, stofnuð 1901. Einar Þorgilsson var einn af „feðrum Hafnaríjarðar/' bæði sem atvinnurekandi og bæjar- fulitrúi og alþingismaður. Þá er þessi bók jafnframt almenn sjávarútvegssaga í 100 ár og um það saltfisklíf, sem þjóðin lifði á sama tíma. FANGINN OG DÓMARINN Þáttur af Sigurði skurði og Skúla sýslumanni Ásgeir Jakobsson Svonefnd Skurðsmál hófust með því, að 22. des. 1891 fannst lík manns á skafli á Klofningsdal í Önundarfirði. Mönnum þótti ekki einleikið um dauða mannsins og féll grunur á Sigurð Jóhannsson, sem kallaður var skurður, en hann hafði verið á ferð með þeim látna daginn áður á Klofningsheiði. Skúla sýslu- manni fórst rannsókn málsins með þeim hætti, að afhlauzt 5 ára rimma, svo nefnd Skúla- mál, og Sigurður skurður, sak- laus, hefur verið talinn morð- ingi í nær 100 ár. Skurðsmál hafa aldrei verið rannsökuð sérstaklega eftir frumgögnum og aðstæðum á vettvangi fyrr en hér. BÆR í BYRJUN ALDAR HAFNARFJÖRÐUR Magnús Jónsson Bær í byrjun aldar — Hafnar- fjörður, sem Magnús Jónsson minjavörður tók saman, er yfirlit yfir íbúaog hús í Hafn- arfirði árið 1902. Getið er hvar húsin voru staðsett í bænum, hvort þau standa enn o.s.frv. Síðan er getið íbúanna. Og þar er gífurlega mikill fróðleikur samanlcominn. Ljósmyndir eru af fjölda fólks í bókinni. Allur aðaltexti bókarinnar er handskrifaður af Magnúsi, en aftast í bókinni er nafnaskrá yfir þá sem í bókinni eru nefndir, alls 1355 nöfn. MEÐ MORGU FOLKI Auðunn Bragi Sveinsson Auðunn Bragi Sveinsson, fyrr- verandi kennari og skólastjóri, hefur ritað margt sem birst hefur í blöðum og tímaritum í gegnum árin í ljóðum og lausu máli, og einnig hefur hann ritstýrt nokkrum bók- um. Bók sú sem hér birtist fjallar fyrst og fremst um fólk við ólík skilyrði og í mismun- andi umhverfi, — frá afdal til Austurstrætis, ef svo má að orði komast. Með mörgu fólki er heitið, sem höfundur hefur valið þessu greinasafni sínu. Mun það vera réttnefni. OSPIN OG ÝLUSTRÁIÐ Haraldur Magnússon Haraldur Magnússon fæddist á Árskógsströnd við Eyjafjörð 1931. Hann ólst upp íEyja- firði og Skagafirði fram að tvítugsaldri. Nú býr hann í Hafnarfirði. Þetta smásagna- safn er fyrsta bók Haraldar, en þessar sögur og fleiri til hefur hann skrifað í frístundum sín- um undanfarin ár. Sögurnar eru að ýmsu.leyti óvenjulegar og flestar fela þær í sér boð- skap. Þetta eru myndrænar og hugmyndaauðugar sögur, sem höfða til allra aldurshópa. SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF Þú boigar alltaf sama gjaldið, hvort sem þú ert einn eða með fleirum í bílnum! Hrevfill býður sætaferðir til Keflavíkur Ef þú ert á leið til útlanda er þægilegt að fara fyrsta spölinn í Heyfilsbíl. Hringdu í okkur með góðum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtíma. Við vekjum þig með hressilegri símhringingu, óskir þú þess. HREVFILL 68 55 22

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.