Þjóðviljinn - 23.12.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.12.1987, Blaðsíða 2
rSPURNINGIN-n Ætlarðu að borða skötu í dag? Ólafur Hreiðarsson verkstjóri: Já, það geri ég eins og venjulega á þessum degi. Skatan er af- bragðsmaður, sé hún vel kæst svo manni sortni fyrir augum. Jóhanna Guðmundsdóttir húsmóðir: Nei, að þessu sinni borða ég enga skötu. Mér finnst hún ekki góð þó svo skata hafi verið borð- uð á mínu heimili. En það verður ekki í ár. Auðunn Bragi Sveinsson rithöfundur: Já, það geri ég og hef gert lengi. Mér finnst hún mjög góður matur sé hún vel kæst og bragðsterk. Svanhildur Vilbergsdóttir: nemi: Já, það geri ég tvímælalaust. Hún er svo ógeðslega góð. Sér- staklega þegar hún er vel kæst og lyktandi. Hafsteinn Gunnarssoi. verkstjóri: Nei, trúlega ekki að þessu sinni. Það kemur eingöngu til vegna vinnu minnar. Að öðru leyti finnst mér hún góð og borða hana þeg- iar ég hef færi á. _______________FRÉTTIR_____________ Vörur og þjónusta Miklar verðhækkanir síöustu 12 mánuði Algengustu kjöt- og brauðvörur hafa hœkkað um ogyfir 40% Verð á ýmsum algengum mat- vælum hefur á síðustu 12 mánuðum hækkað að jafnaði um og yfir 30% og sumar vöruteg- undir hafa hækkað hátt í 70% en algengt er að kjöt- og brauðvörur hafi hækkað yfir 40%. Á sama tíma hefur vísitala framfærslu- kostnaðar hækkað um 24,4%, eða frá nóvember 1986 til síðustu mánaðamóta. Yfirlit yfir verðbreytingar á matvörutegundum og ýmiss kon- ar þjónustu á þessu tímabili eru birtar í nýjasta tölublaði Hagtíð- inda sem Hagstofan gefur út. Matvöruverðið sem Hagstofan gefur upp er vegið meðaltal af vöruverði í 14 matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Hamborgar- hryggur 47% dýrari Umtalsverð hækkun hefur orð- ið á kjötvörum á þessum tíma. Þannig hafa lærissneiðar hækkað um 51% hvert kg. eða úr 432,73 kr. í 656,58 kr. Svínalæri hefur hækkað um 46% og kjúklingar um 52%. Svínahamborgarhrygg- ur er 47% dýrari að meðaltali fyrir þessi jól en í fyrra en nauta- hakk hefur hækkað minnst eða um 15%. Hins vegar hafa vínar- pylsur hækkað um rúm 30%. Brauðvörur hafa einnig hækk- að verulega á árinu. Niðursneitt franskbrauð kostar nú 122.79 kr. hvert kg. og hefur hækkað um 42% frá í nóvember í fyrra. Mjólkurkex frá Fróni hefur hækkað um 38% og stórar tví- bökur um 43%. Fiskur hefur hækkað nokkuð mismikið. Ýsuflök eru nú 26% dýrari en í fyrra en niðurskorinn lax var 40% dýrari en í fyrra og harðfiskur hefur hækkað um rúm 37% á þessu ári. Mjólkurvörur hafa að jafnaði hækkað um 20% á árinu og eins hefur verð á græn- meti ekki hækkað umfram al- mennar verðlagshækkanir nema hvað verð á tómötum er nú 40% hærra en í fyrra. Kaffi og haframjöl lœkkað Einstaka vörutegundir hafa lækkað í verði og sumar töluvert eins og kaffi. Verð á kaffi hefur lækkað um 16% frá í fyrra en það ræðst að mestu af uppskeru og heimsmarkaðsverði. í>á hefur verð á haframjöli einnig lækkað örlítið. Smávörur og sælgæti hefur hækkað verulega í verði. Þannig kostar pylsa með öllu nú 90 kr. en kostaði fyrir ári síðan 55 kr. Pyls- an hefur því hækkað um rúm 63%. Svipaða sögu er að segja um Nougatís frá MS sem hefur hækkað um 62%. Pizza með nautahakki hefur hækkað um 30% og lítil kókflaska einnig um 30%. Áfengi og tóbak hœkkað um 40% Áfengir drykkir hafa hækkað töluvert meira en kókið. Vodka hefur hækkað um tæp 40%, whisky og rauðvín um rúm 40%. íslenska brennivínið hækkaði töluvert minna á árinu eða um 19%. Tóbak hefur hækkað svip- að eða um 40% á síðustu 12 mán- uðum. Samkvæmt upplýsingum Hag- tíðinda hefur fatnaður hækkað um rúmlega 20% nema hvað ein- faldur kvenkjöll úr gerviefni hef- ur hækkað um rúm 45%. Fata- hreinsun hefur hins vegar hækk- að töluvert meira en fötin sjálf, - því nú er um 50% dýrara að láta hreinsa fötin sín en fyrir jólin í fyrra. 60% dýrara í leikskólann En það er ekki bara fæði og klæði sem hafa hækkað verulega í verði. Ýmis þjónusta, ekki síst á vegum hins opinbera hefur stór- hækkað. Þannig kostar nú 60% meira að hafa börn á leikskóla í Reykjavík en fyrir ári síðan og dagvistargjöldin hafa hækkað um nær 53%. Fargjöld með Flug- leiðum til Akureyrar hafa hækk- að um 36% og fargjöld með SVR eru 25% dýrari en í fyrra. Einna mest hefur hækkunin hins vegar orðið á bíómiðum. Nú kostar hver miði fyrir fullorðinn 238 kr. og hefur hækkað um hvorki meira né minna en 70% á einu ári. Hins vegar er greinilegt að gjöld á myndböndum hafa hækk- samdráttur hefur orðið hjá að töluvert minna eða um 27%. myndbandaleigunum, því leigu- -lg- Matarreikningur fjölskyldunnar hefur stórlega hækkað á síðustu 12 mánuðum og á oftir að hækka enn frekar þegar matarskatturinn tekur gildi um áramótin. Mynd-Sig. Uppeldi Siðleysi að gefa stríðsleikföng Fjölmörgfélagasamtök skora á Barnaverndarráð að það beiti sérfyrir banni á auglýsingum um stríðsleikföng Við getum seint komið í veg fyrir að börn leiki spennu- leiki, en við teljum það siðlaust að láta eftirlíkingar morðvopna í hendur barna. Það er skylda uppalanda að beina þörf fyrir hasar og spennu í heillavænlegri farveg, til dæmis íþróttir, segja Árný Birna Hiimarsdóttir og Sig- urhanna Sigurjónsdóttir, fóstrur, en fyrr í mánuðinum skoruðu mörg samtök á Barnaverndarráð íslands að beita sér fyrir banni á auglýsingum um striðsleikföng, þar á meðal Fóstrufélag íslands. í yfirlýsingu Barnaverndarráðs af þessu tilefni er því fagnað að hafin sé umræða um áhrif auglýs- inga á börn. Ráðið telur jafn- framt að umfjöllun um stríðsleik- föng sé hluti af stærra máli, og hvetur til þess að umræðan snúist meira um hvernig hægt sé að stuðla að bættum uppvaxtarskil- yrðum og andlegri vellíðan barna. „Það er eindregin skoðun ráðs- ins að ef börn fá þá grundvallar- tilfinningu í uppeldinu að þau séu elskuð og virt og geti treyst öðr- um, hafi þau ekki eins mikla þörf fyrir að fá útrás fyrir neikvæðar tilfinningar og börn sem verða þessa ekki aðnjótandi," segir í yfirlýsingunni. Þær Árný Birna og Sigurhanna segja það skoðun sína að stríðs- leikfangaauglýsingar beri að banna: „Foreldrar sem gefa börnum sínum stríðsleikföng eru um leið að viðurkenna leik sem einkennist af ofbeldi, vald- beitingu og árásum.“ HS 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 23. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.