Þjóðviljinn - 23.12.1987, Side 5
Saga L.H.
í 35 ár
eftir Steinþór á Hæli
Landssamband hestamanna
var stofnað 18. des. 1949. Fyrir
tveimur árum var þess farið á leit
við Steinþór Gestsson á Hæli,
einn af stofnendum sambands-
ins, að hann tæki að sér að skrá
sögu þess fyrstu 35 árin. Varð
Steinþór við þeim tilmælum og
nú er bókin komin út: „í morgun-
Ijómann...", saga L.H. í 35 ár.
Tilgangurinn með samningu
bókarinnar var öðru fremur sá,
að forða frá gleymsku aðdrag-
andanum að stofnun þessara
merku samtaka, en segja má með
sannindum, að þau hafi valdið
tímamótum í sögu íslenska
hestsins. Fer þeim nú óðum
fækkandi, sem muna þetta upp-
haf en aldrei er ráð nema í tíma sé
tekið. í bókinni er aðdragandi og
saga Landssambandsins rakin vel
og ítarlega og er þetta verk
Seinþórs allt hið ágætasta. Þar
eru fjölmargar myndir frá lands-
mótum og af forystumönnum
Sambandsins fyrr og síðar. Er í
engu ofmælt þótt sagt sé, að með
þessu verki sé varðveittur snar
þáttur í menningarsögu þjóðar-
innar þar sem er samlífið við hest-
inn. „í mörgunljómann" er
ómissandi hverjum þeim, sem
ann íslenska hestinum og okkar
þjóðlegu menningu.
Ritnefnd bókarinnar skipuðu,
auk höfundar, þeir Kristján Guð-
mundsson bæjarstjóri og Kári
Arnórsson skólastjóri.
-mhg
Saga
Jarðabók um
Eyjafjörð
Næstsíðasta bindi
Jarðabókar Árna og Páls
Komið er út hjá Sögufélaginu
og Hinu íslenska fræðafélagi í
Kaupmannahöfn tíunda bindið af
liósprentaðri útgáfu Jarðabókar
Arna Magnússonarog Páls Vída-
líns, um Eyjafjörð eða Vöðluþing,
og er þá aðeins ár í að útgáfunni
sé lokið með ellefta bindinu. Jak-
ob Benediktsson sá um upphaf-
lega útgáfu Eyjafjarðarbókarinn-
ar árið 1943, þá sem nú er Ijós-
prentuð.
Jarðabókin er samin snemma á
átjándu öld og er merk heimild
um hagsögu og búhætti þeirra
tíma, og að auki mikil náma um
sögu og staðhætti í byggðunum.
Eftir ellefta bindið á næsta ári á
að koma út eitt bindi enn með
ýmsu efni sem snertir jarðabók-
arverkið, þar á meðal atriðis-
orðaskrá fyrir öll bindin, og er
það lokabindi í höndum Gunnars
F. Guðmundssonar sagnfræð-
ings.
Flugið
er mest
heillandi
Vitneskja um þjóðtrú og skáldskap
er lykill að því að njóta íslenskrar
natturu
„Þaöerflugið. Flugiöer
langmest heillandi viö fugl-
ana. Og ótal margt annaö.
Fuglar hafa hæfileika á mörg-
um sviðum, t.d. þessa maka-
lausu ratvísi sem er bæði
meöfædd og lærð. Þáeru
samskipti innan tegunda og út
á viö mjög áhugaverð og
stundum svo mikið skyld
mannskepnunni, þó við
eigum erfitt með að skilja það.
Söngur fuglanna er kapituli út
affyrirsig. Ég hef skrifaðupp
hljóðin, svo fólkgeti æftsig
heima í stofu,“ segir Guð-
mundur Ólafsson og flettir
bóksinni, Fuglarínáttúru ís-
lands, sem nýkomin er út hjá
Máli og menningu sem sér-
legt afmælisrit á 50 ára afmæ-
linu. En bókin þykireinhver
mesti prentgripur á íslandi.
Bókin er hlaðin ítarlegum upp-
lýsingum um lífsmátaog
eiainleikaallrafuglategunda
á íslandi; og til að gefa efninu
nýjavídd hefurGuðmundur
safnað ótrúlegum fróðleik af
þjóðtrú og þjóðsögum í sam-
bandi við fugla og gefur efninu
enn meiri fyllingu með því að
kynna fuglakveðskap sem
fléttað er saman við. Hann
hefur sjálfur teiknað skýringa-
myndir í bókina og tekið allar
Ijósmyndirsem margareru
firnagóð listaverk.
- Hvernig byrjaðiþetta alltsam-
an?
„Það er erfitt að setja einhver
tímamörk á það. Ég er lengi bú-
inn að hafa námsefni þessu skylt í
huga. Ég tók hugmyndir mínar
saman fyrir þremur árum og
steypti þeim í ritsafn. Og ef af
þessu yrði fannst mér að fyrsta
bókin yrði að vera um fugia.
Fuglaljósmyndun er mjög erfið.
Ég hef fengist við ljósmyndun í
mörg ár, en aldrei komist í kast
við annað eins. Mál og menning
sýndi svo hugmynd minni áhuga,
en mér fannst ég ekki tilbúinn til
að fara að vinna að útgáfunni,
þannig að ég skellti mér á listahá-
skóla í eitt ár til Bandaríkjanna.
Þar lærði ég allt annað en ljós-
myndun. Ég lærði vatnslitameð-
ferð, grafík, tækni í teikningum,
olíulitameðferð og fleira. Þegar
ég kom til baka fyrir tveimur
árum keypti ég mér tölvu og lærði
á hana og eftir þetta fannst mér
ég loks vera í stakk búinn til að
gera efninu skil.“
- Nú notar þú þjóðtrú og skúld-
skap í bókinni.
„Áhugi minn á þjóðsögum
vaknaði fyrir alvöru þegar ég
vann náttúruminjaskrá fyrir
Vestfirði fyrir nokkrum árum. Ég
safnaði þá alhliða upplýsingum
um náttúruna. Um tíma taldi ég
mig mesta draugasérfræðing á
Vestfjörðum. Síðan hefur mér
fundist þetta tilheyra íslenskri
náttúru og lykill til að njóta nátt-
úrunnar er að kunna einhver skil
á þjóðsögum, þjóðtrú og skáld-
skap. Þetta er álíka mikilvægt og
vísindaleg þekking."
- Þú hlýtur að vera hrifinn af
fuglum.
„Eftir þetta verkefni hef ég
fengið ofurást á fuglum. Uppá-
haldsfuglinn minn er lundinn og
ég held ég fari ekkert að breyta
því. Ránfuglarnir eru líka stór-
kostlegir. Fálki, smyrill og örn.“
Guðmundur Ól-
afsson í viðtali
vegna nýútkom-
innar bókar um
íslenska fugla, sem
þykir marka tíma-
mót í bókagerð
- En hvernig gekk að safna
öllum þessum upplýsingum?
„Það var eiginlega erfiðara að
vinsa úr og taka það út sem þóttu
ekki öruggar heimildir. Það er oft
erfitt að greina þar á milli. Fugla-
bókmenntir eru yfirfullar af alls
konar túlkunum. Það er til mikið
af kveðskap um fugla sem hefur
aldrei verið gefinn út. Nútíma-
skáld gera þó lítið af því. Það er
helst Þorsteinn frá Hamri.
Nú svo vissi ég eitt og annað
áður en ég hóf verkið. Og heppni
kemur inn í þetta eins og annaö.
Það var maður sem ég hitti sem
sagði mér þjóðsöguna um svörtu
svanina í Ástralíu. Ég hef eytt
mestum tíma í að leita að einum
höfundi skarfaljóðs, en fann
ekki. En til þess eyddi ég heilum
degi uppi á Árnasafni."
- Hvað einkennir fuglaríki ís-
lands?
„Hér er ein mesta sjófugla-
byggð á norðuhveli jarðar.
Landið er því ríkt af sjófuglum en
minna um varpfugla og spör-
fuglafánan fábreytt. Þar ræður
lega landsins og veðurfar. Hér er
skóglaust og skordýralíf því fá-
breytt.“
- N ú er þessi bók ákqflega vel
unnin af hálfu prentsmiðjunnar.
Hafðir þú eitthvert samstarf við
hana?
„Já, ég fylgdi bókinni alveg
fram í prentun og vann við um-
brot og setningu, sem er mjög
óvenjulegt að höfundur geri. Ég
fékk að vera þar nótt og nýtan
dag, annars hefði bókin ekki
komið út á þessu ári. En þetta var
einstakt samstarf.“
- Þekkirfólk fuglana í kringum
sig?
„Ég veitti því eftirtekt á ferð-
um mínum kringum landið hvað
fólk hefur mikinn áhuga á fuglum
og veit mikið um þá, ekki síst
börn og unglingar. En fólk gerir
ekki nóg til að njóta fugla lands-
ins. Það þarf að vera úti í náttúr-
unni. Fara þangað sem þeir eru.
Við strendur og v n og í görð-
um. Það er víða “gt að leita
fugla.“
- Hvað er svo fraittundan?
„Það varð nú hálfgert spennu-
fall hjá mér þegar þessi vinna var
búin. En ég er byrjaður á nýrri
bók. Hún verður um fjöruna og
lífríki hennar og sennilega svipuð
fuglabókinni að einhverju leyti.“
Eins og áður segir er þessi bók
hinn eigulegasti prentgripur og
prentsmiðjunni Odda til mikils
sóma. ekj.
-m
Miðvikudagur 23. desember 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 5