Þjóðviljinn - 09.01.1988, Qupperneq 2
SPURNINGINTI
FRÉTTIR
Finnuröu fyrir matar-
skattinum viö helgarinn-
kaupin? (spurt í Kringl-
unni)
Viðar Scheving,
múrari
Nei, enda er veröskynið alveg út í
hött hjá manni nú orðið.
3irgir Guðmundsson,
birgðastjóri
Ekki get ég nú sagt það. Ég geri
heldur ekki nógu mikið af því að
fylgjast með verðlagningunni.
Olískóngurinn
Skömm að þessum launum
Óli Kr. Sigurðsson væntanlegur Dagsbrúnarfélagi: Hvorki
ég né aðrirlifa af30-40þúsund krónum á mánuði. Neitar ekki
sœti í samninganefnd Dagsbrúnar
Eg tilheyri víst Dagsbrún í dag,
eftir að ég fór úr forstjóra-
stólnum. Ég starfa nú sem bfl-
stjóri og sölumaður hjá fyrirtæk-
inu og samkvæmt lögum þá ber
mér að vera í verkalýðsfélagi. Ég
hef því sótt um aðild að Dagsb-
rún, sagði Óli Kr. Sigurðsson
stærsti hluthafi Olís og fyrrum
forstjóri félagsins.
Óli sagði að hann væri búinn að
ákveða að segja sig úr stjórn Olís
en ætlaði áfram að eiga meiri-
hluta félagsins. - Það er ekkert
sem bannar mönnum að vera í
verkalýðsfélagi þó þeir eigi
hlutabréf í fyrirtækjum. Ég gat
valið á milli VR og Dagsbrúnar
og ákvað að sækja um í Dagsbrún
því starfsfélagar mínir í út-
keyrslunni eru þar flestir.
Launin
alltof lág
Ég kann vel við mig í sölustarf-
inu og útkeyrslunni en það er til
skammar hvað launin hjá verka-
fólki eru lág, líka hérna hjá Olís.
Þetta fólk er alltaf látið sitja eftir.
Maður hefur fylgst vel með
launaskriðinu sem verið hefur
undanfarin misseri en það hefur í
litlu skilað sér til þeirra lægst-
launuðu. Það er skömm að þess-
um launum og það lifir enginn af
30-40 þúsund krónum á mánuði,
hvorki ég né aðrir.
Á hvaða launum ert þú í þessu
starfi?
- Ég hef ekki tekið mér nein
laun, heldur hef mínar tekjur af
arði þeirra fyrirtækja sem ég á
hlut í. Ég ákvað á sínum tíma að
kynna mér sem best starfsemi ekki með því að sitja í glerbúri,
fyrirtækisins og það gerir maður heldur með því að vera úti á með-
Óli Kr. Sigurðsson áður en hann steig upp úr forstjórastóli Olís á nýliðnu ári.
Fyrir ofan hann er málverk af Héðni Valdimarssyni fyrsta forstjóra félagsins og
formanni Dagsbrúnar í rúman áratug. Mynd-E.ÓI.
al fólksins. En ég geri mér betur
grein fyrir því hvernig ástandið er
og að þetta fólk er á allt of lágum
launum, þau eru til skammar.
Ætlar þú ekki þá ekki að beita
þér fyrir því að launin verði
hcekkuð, íþað minnsta íþínufyr-
irtæki?
- Ég fer ekkert ofan af því að
mér finnst til skammar að félagið
borgi lág laun. Ég vil hins vegar
sem minnst skipta mér af því sem
þeir gera sem stjórna félaginu
núna. Ég er að segja mig úr
stjórninni eins og ég sagði, en
hvort það tekst að fá atvinnurek-
endur til að skilja þessi mál, það
veit ég ekki. Ég hef þó komið
mínum skilaboðum á framfæri.
í fótspor
Héðins?
Pú ætlar kannski að taka virkan
þátt í starfsemi Dagsbrúnar og
feta jafnvel í fótspor fyrirrennara
þíns, Héðins Valdimarssonar sem
var fyrsti forstjóri fyrirtœkis þíns
og um leið formaður Dagsbrún-
ar?
- Það var ekki hugmyndin. Ég
hef ekki ennþá fengið svar frá
Dagsbrún varðandi inntöku en
get ekki séð annað en ég sé þar í
fullum rétti. Ég reikna ekki með
því að verða til langtíma í þessu
starfi, það er að ýmsu örðu að
huga. Éf hins vegar Guðmundur
Jaki bæði mig um að sitja í samn-
inganefnd þá myndi ég ekki fær-
ast undan því. Þá vildi ég að sjálf-
sögðu að Olís semdi beint við
Dagsbrún á meðan við lokuðum
á hin olíufélögin, sagði Óli Kr. og
hló við. - Ig.
Ágúst Pétursson,
kennari
Ja, maður finnur verulega fyrir
því hvað allt hefur hækkað.
Margrét Þóroddsdóttir,
húsmóðir
Ég hef nú ekki tekið eftir því sér-
staklega, en mér finnst allt vera
að hækka.
Sigríður Vilhjálmsdóttir,
hótelstarfsmaður
Já, heldur betur. Miðað við
kaupið er þetta ekki hægt.
Patreksfjörður
Vogur
Mjög slænrt atvinnuástand
Verkalýðsfélagið: 34 á atvinnuleysisskrá. Hraðfrystihúsið lokað
vegna skulda. Tveir bátar í höfn vegna samningsbrota útgerðar
I' gær voru 34 á atvinnuleysisskrá
og er það upp til hópa skipverj-
ar á Patreki og Vestra BA, ásamt
lausráðnu starfsfólki hraðfrysti-
hússins, sem er lokað vegna van-
skila við Orkubú Vestfjarða. Ef
ekki rætist úr því ófremdar-
ástandi má búast við að fast-
ráðnir starfsmenn þess bætist við
á atvinnuleysisskrá eftir næstu
mánaðamót sem eru nokkrir
tugir manna,“ segir Hjörleifur
Guömundsson, formaður Verka-
lýðsfélags Patreksfjarðar i sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
Mjög siæmt atvinnuástand er
um þessar mundir á Patreksfirði
og hafa bátarnir Patrekur og
Vestri BA ekki haldið til veiða
síðan fyrir jól vegna launadeilu
við útgerðina. Aðeins togarinn
Sigurey er á veiðum, en óvíst er
hvar hann mun landa þar sem
hraðfrystihúsið er lokað.
Að sögn Hjörleifs snýst deila
skipverja á Patreki og Vestra BA
við útgerð skipanna um uppgjör
hennar við skipverja, sem þeir
halda fram að hafi ekki verið rétt
vegna þess að þeim hafi ekki ver-
ið greidd kassauppbót með fisk-
verðinu. En samkvæmt samning-
um ber útgerðinni að sjálfsögðu
að gera það. Hjörleifur sagði að
menn þar á bæ væru að vinna að
samkomulagi við útgerðina dag
og nótt, en það væri erfiðleikum
bundið þar sem forsvarsmenn út-
gerðarinnar væru ekki í bænum.
Þá hefði það ekki liðkað fyrir
lausn deilunnar að útgerðin hefði
neitað skipverjum um tímana
vegna atvinnuleysisbótanna og
heldur hún því fram að þeir hafi
verið reknir frá borið þar sem
þeir hefðu neitað að mæta til
skips, og hefði þessi leikur út-
gerðarinnar virkað eins og olía á
eldinn.
„Nógu slæmt var atvinnu-
ástandið fyrir og máttum við alls
ekki við illvígum deilum í hér-
aði,“ sagði Hjörleifur Guð-
mundsson.
- grh
Bikarinn
í botn
„Það hefur verið mikil aðsókn
eftir sjúkraplássi á sjúkrastöð
SÁÁ af nýju fólki sem ekki hefur
komið hingað áður, eftir hátíð-
arnar, og við höfum virkilega
fundið fyrir því að fólk hefur
drukkið bikarinn í botn yfir jólin
og áramótin,“ segir Óttar Guð-
mundsson, yfirlæknir á Vogi.
Að sögn Óttars bíða nú 80-90
manns eftir plássi en sjúkrarúm
er fyrir 60 manns í einu á Vogi.
Hann sagði að ekkert lát væri á
straumi fólks í sjúkrastöðina og
virtist sem fólk hefði drukkið
mjög mikið í góðærinu margum-
talaða á síðasta ári, og þó sérstak-
lega á seinni hluta ársins sem væri
sá árstími sem fólk drykki al-
mennt mjög mikið af áfengi.
- grh
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN