Þjóðviljinn - 09.01.1988, Qupperneq 10
Tillögur
Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaöarráös um
stjórn og aðra trúnaðarmenn verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar fyrir áriö 1988 liggja frammi á
skrifstofu félagsins frá og meö 8. janúar 1988.
öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Dags-
brúnar fyrir kl. 17 fimmtudaginn 14. janúar 1988.
Kjörstjórn Dagsbrúnar
Frá Heimspekiskólanum
Ný námskeið fyrir börn fædd 1976-78 hefjast 18.
janúar í Gerðubergi og gamla Verzlunarskólan-
um. Kennari verður dr. Hreinn Pálsson. Nánari
upplýsingar og innritun í síma 688083, frá kl.
9-19.
TONUS14RSKOU
KÓPNslOGS
Námskeið í tónlist
Nýtt námskeið fyrir áhugafólk um tónlist hefst 20.
janúar. Á námskeiðinu verður fjallað um undir-
stöðuatriði tónlistar og gefið yfirlit yfir helstu tíma-
bil tónlistarsögunnar. Námskeiðið er í fyrirlestra-
formi. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans,
Hamraborg 11, sími 41066.
Skólastjóri
Innritun í almenna flokka
Eftirtaldar greinar eru í boði á vorönn 1988 ef
þátttaka leyfir:
TUNGUMÁL: íslensk málfræði og stafsetning.
íslenska fyrir útlendinga. Danska 1.-4. fl. Norska
1 .-4. fl. Sænska 1 .-4. fl. Þýska 1 .-4. fl. Enska 1 .-5.
fl. ítalska 1 .-4. fl. ítalskar bókmenntir. Spænska
1.-4. fl. Latína. Franska 1.-4. fl. Portúgalska.
Gríska. Hebreska. Tékkneska.
VERSLUNARGREINAR: Vélritun. Bókfærsla.
Tölvunámskeið. Stærðfræði (grunnskólastig/
framhaldsskólastig).
VERKLEGAR GREINAR: Fatasaumur. Mynd-
bandagerð (video). Skrautskrift. Postulínsmálun.
Eftirfarandi námskeið hefjast í febrúar: Leður-
smíði. Myndmótun. Bókband. Að gera upp hús-
gögn. Ferðamannaþjónusta.
Einnig verður boðið upp á kennslu í dönsku,
sænsku og norsku fyrir börn 7-10 ára, til að
viðhalda kunnáttu þeirra barna sem kunna
eitthvað fyrir í málunum. Kennsla í þessum mál-
um hefst einnig í febrúar.
í almennum flokkum er kennt einu sinni eða
tvisvar í viku, ýmist 2, 3, eða 4 kennslustundir í
senn í 11 vikur.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla, Lauga-
lækjarskóla, Gerðubergi og Árbæjarskóla.
Námsgjald fer eftir kennslustundafjölda og
greiðist við innritun.
INNRITUN fer fram 11., 12. og 13. jan. kl. 17-20 í
Miðbæjarskóla.
KENNSLA hefst 21. janúar næstkomandi.
Námsflokkar Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1
IKfl REYKJKMIKURBORG IMI
JlauMt Stödíír T
Byggingadeild
borgarverkfræðings
óskar að ráða skrifstofumann.
Starfið felst ítölvuskráningu reikninga, ritvinnslu,
móttöku skilaboða, skjalavörslu og fleira.
Um heilsdagsstarf er að ræða.
Upplýsingar gefur skrifstofustjóri Bygginga-
deildar, Skúlatúni 2, sími 18000.
s g | Félagsmálastofnun
" | f Reykjavíkurborgar
Unglingaathvarf
Tryggvagötu 12
Auglýst er eftir starfskrafti í 46% kvöldstarf. Hér
er um að ræða mjög fjölbreytt og gefandi starf
með unglingum á aldrinum 13-16 ára. Lítill og
samheldinn starfshópur, þar sem góður starfs-
andi ríkir.
Æskilegt er að umsækjendur hafi kennara- eða
háskólamenntun í uppeldis-, félags-, og/eða
sálarfræði.
Umsóknareyðublöð fást á staðnum eða hjá
Starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar, Pósthús-
stræti 9.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
20606 eftir hádegi virka daga.
Innritun í
prófadeildir
AÐFARANÁM: Jafngilt námi í 7. og 8. bekk
grunnskóla (1. og 2. bekk gagnfræðaskóla). Ætl-
að þeim sem ekki hafa lokið ofangreindum eða
vilja rifja upp og hafa fengið E (1-3) á grunn-
skólaprófi.
FORNÁM: Jafngilt grunnskólaprófi og foráfanga
áframhaldsskólastigi ætlað fullorðnum, sem ekki
hafa lokið gagnfræðaprófi og unglingum sem
ekki hafa náð tilskildum árangri á grunnskólaprófi
(fengið eink. D).
FORSKÓLI SJÚKRALIÐA eða HEILSU-
GÆSLUBRAUT, undirbúningur fyrir Sjúkraliða-
skóla íslands.
VIÐSKIPTABRAUT/HAGNÝT VERSLUNAR-
OG SKRIFSTOFUSTÖRF, framhaldsskólastig.
Nám í prófadeild er allt frá 1 önn í 4 annir, hver
önn er 13 vikur og er kennt 4 kvöld í viku.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og Lauga-
lækjarskóla.
Kennslugjald fer eftir fjölda námsgreina sem
nemandi stundar. Hver mánuður greiðist fyrir-
fram.
Kennsla hefst 18. janúar á viðskiptabraut og 21.
janúar í öðrum prófadeildum.
INNRITUN fer fram í Miðbæjarskólanum, Frí-
kirkjuvegi 1,11., 12. og 13. janúar 1988 kl. 17-20.
Sími 14106 og 12992.
Námsflokkar Reykjavíkur
^■"■ÖRFRÉTTIR™"
Líbanon
Verkalýössamband Líbanon
skýröi frá því í fyrradag að verð-
bólgan í landinu á liðnu ári hefði
numið 730% og slegið öll fyrri
met.
Árið 1986 var líka metár hvað
verðbólgu varðaði, en þá var hún
ekki nema 104%. Líbanska
pundið féll jafnframt um 80%
gagnvart dollar á árinu. Borgara-
styrjöldin í Líbanon hefur nú
geisað í nærri 13 ár, og hafa
stjórnvöld misst öll tök á stjórnun
efnahagslífsins af þeim sökum.
Tyrkland
Tyrkneska stjórnin hefur
ákveðið að undirrita Evrópusátt-
málann gegn pyntingum og illri
meðferð á föngum.
Tyrknesk yfirvöld hafa oft verið
ásökuð af mannréttindasam-
tökum fyrir að beita fanga pynt-
ingum og illri meðferð, en utan-
ríkisráðherra landsins sagði ný-
verið að undirritun sáttmálans
þýddi fastan ásetning stjórnvalda
að standa vörð um og auka
mannréttindi í landinu.
Stjórnmálaskýrendur telja að
ein meginástæðan fyrir þessari
ákvörðun tyrknesku stjórnarinn-
ar hafi verið að ryðja hindrunum
úr vegi fyrir inngöngu Tyrklands í
Evrópubandalagið, en Tyrkland
hefur haft aukaaðild að banda-
laginu frá 1963. Samkvæmt
mannréttindasáttmálanum á að
minnsta kosti tveggja manna
nefnd að hafa heimild til að
kanna réttmæti allra ásakana um
pyntingar, og nefndin hefur jafn-
framt rétt til að krefjast miskabóta
fyrir fórnarlömb pyntinga, verði
þær sannaðar.
Moskva
Franc Carlucci, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna kom til
Moskvu í gær til þess að
heimsækja sovéska tilrauna-
svæðið fyrir kjarnorkuvopnatil-
raunir í Semipalatinsk í Kazak-
hstan í Mið-Asíu. í fylgd með ráð-
herranum eru sérfræðingar á
sviði kjarnorkuvopnatilrauna, og
er heimsóknin liður í undirbúningi
sameiginlegra kjarnorkuvopna-
tilrauna Bandaríkjanna og So-
vétríkjanna í því skyni að finna út
sem öruggasta leið til þess að
fylgjast með að hugsanlegu
banni við kjarnorkuvopnatilraun-
um verði framfylgt. Sovésk
sendinefnd mun heimsækja til-
raunasvæði Bandaríkjamanna í
Nevada-eyðimörkinni í sama
skyni í lok mánaðarins.
Samkomulag um þetta sam-
starf var gert á fundi Reagans og
Gorbatsjovs í desember, en
framtíðarmarkmið er að ná
samkomulagi um bann við kjarn-
orkuvopnatilraunum, en slíkt
bann er mikilvæg og nauðsynleg
forsenda þess að vígbúnaðark-
apphlaupið verði stöðvað.
Moskva
I Sovétríkjunum hafa verið sett
ný lög um meðferð geðsjúkra,
sem talin eru geta markað enda-
lok þeirrar misbeitingar á geð-
lækningum, sem viðgengist hef-
ur gagnvart pólitískum föngum í
landinu.
Samkvæmt hinum nýju lögum
verður sjúklingum eða aðstand-
endum þeirra gert kleift að áfrýja
sjúkdómsgreiningu til dómstóla,
auk þess sem geðsjúkrahús sem
notuð hafa verið til þess að
geyma andófsmenn verða nú
sett beint undir stjórn ráðuneytis
heilbrigðismála.
Bandaríska blaðið The New
Vork Times sagði í gær að það
væri undir framkvæmd laganna
komið, hvort þau yrðu
mannréttindum til framdráttar, en
ýmislegt benti nú til stefnu-
breytingar í þeim efnum. Meðal
annars hefðu 64 fangar verið
látnir lausir úr geðsjúkrahúsum á
síðasta ári og ekki hefðu verið
nein dæmi um langtímavistun
pólitískra fanga á geðsjúkrahús-
um. Gildi laganna mun sýna sig
þegar á þau reynir með máls-
höfðun, segir The New York Tim-
es- ólg/Reuter.