Þjóðviljinn - 09.01.1988, Blaðsíða 11
______________ERLENDAR FRÉTTIR____________
ísrael
Óeirðir halda áfram
Shamir forsœtisráðherra neitar að tala við sendifulltrúa Sam-
einuðu þjóðanna
Igær létust 2 ungir Palestínu-
menn í viðbót af skotsárum frá
ísraelskum hermönnum, og eru
fórnarlömbin þá orðin að
minnsta kosti 27 frá 9. desember
síðastliðnum. Óeirðir héldu
áfram víðsvegar á herteknu
svæðunum í gær, og beitti ísra-
elski herinn táragasi i viðureign
sinni við Palestínumennina, auk
þess sem útgöngubann var sett á
sumar flóttamannabúðirnar.
Handtökur héldu áfram í gær, og
hafa a.m.k. 2000 verið handtekn-
ir síðan í desember, og þar af hafa
að minnsta kosti 30 verið fluttir í
ríkisfangelsi, þar sem þeim verð-
ur haldið í allt að 6 mánuði án
réttarhalda. Palestínumönnum
sem þannig er haldið í varðhaldi
án dóms og laga hefur þannig
fjölgað upp í a.m.k. 80. Samtökin
Amnesty International hafa lýst
þessa meðferð fanga í andstöðu
við mannréttindaákvæði, og hafa
tekið suma fangana að sér sem
„samviskufanga“.
Marrack Golding, sérlegur
sendimaður Sameinuðu þjóð-
anna var væntanlegur til ísraels í
gær til þess að kanna öryggi
þeirra 1,4 miljón Palestínumanna
Sýrlendingar hafa verið helstu
keppinautar Egypta um áhrif í ar-
abaheiminum, og hafa tvær sýr-
lenskar sendinefndir verið á
ferðalagi á milli arabaríkja í
kjölfar ferðalaga Mubaraks, að
því er virðist til þess að koma í veg
fyrir að arabaríkin taki Egypta
fullkomlega í sátt. Sýrlendingar,
Líbýa, Alsír, Líbanon, S-Yemen
og Túnis hafa enn ekki tekið upp
stjórnmálasamband við Egypta á
ný, en fréttaritarar segja að styrk-
ari staða Egypta innan araba-
heimsins nú hafi meðal annars
veitt þeim aðgang að umtals-
verðri fjárhagsaðstoð frá olíur-
íkjunum við Persaflóa, en Egypt-
ar eiga við mikla fjárhagsörðug-
leika að etja og skulda nú um 40
miliarða dollara.
Astandið á herteknu svæðun-
um í ísrael hefur orðið til þess að
spilla sambúð ísraela og Egypta
og bæta um leið sambúð þeirra
við arabaríkin.
Sýrlendingar, sem nú reyna að
miðla málum í Persaflóastríðinu
eins og Egyptar, hafa þótt hallir
undir írana á meðan Egyptar
Yitzhar Shamir.
sem byggja hernumdu svæðin.
Yitzhak Shamir forsætisráðherra
ísraels sagðist neita sendifulltrú-
anum um áheyrn, þar sem
ísraelsstjórn hafnaði gagnrýni
Öryggisráðsins á stjórn hennar á
herteknu svæðunum sem af-
skiptum af innanríkismálum.
Simon Perez utanríkisráðherra
og leiðtogi Verkamannaflokksins
í lsrael sagðist hins vegar ætla að
hitta sendefulltrúann að máli til
þess að „skýra út fyrir honum ást-
æðuna fyrir andstöðu ísraels-
stjórnar við meðferð Öryggis-
ráðsins á málefnum ísraels“.
Erlendir blaðamenn í ísrael
kvörtuðu í gær undan því að her-
inn hefði takmarkað aðgang
þeirra að hernumdu svæðunum
og ekki leyft þeim að koma í ná-
munda við sumar flóttamanna-
búðirnar. Líktu sumir frétta-
menn þessum takmörkunum við
fréttabann S-Afríkustjórnar á
óeirðum í landinu.
Gagnrýnialda hefur dunið á
stjórnvöld í ísrael hvaðanæva úr
heiminum í kjölfar óeirðanna á
herteknu svæðunum. Þannig
sagði Sir Geoffrey Howe, utan-
ríkisráðherra Breta að neitun
Shamirs að tala við sendifulltrúa
Sameinuðu þjóðanna lýsti vel
þeim þvermóðskuanda sem stæði
í vegi fyrir lausn mála í ísrael. Þó
létu ísraelskir fjölmiðlar þess get-
ið í gær, að þrátt fyrir atkvæða-
greiðsluna í Öryggisráðinu, þar
sem Bandaríkin greiddu atkvæði
gegn ísrael í fyrsta skipti síðan
1982, þá hefði George Shultz
utanríkisráðherra lýst því yfir í
gær að böndin sem tengdu
Bandaríkin og ísrael væru „órjú-
fanleg".
Meðal þeirra sem sent hafa ís-
raelsstjórn áköf mótmæli eru Eg-
yptar, en þeir eru eina arabaríkið
sem hefur stjórnmálasamband
við ísrael. Reuter-fréttastofan
hafði það eftir sendiherra Eg-
yptalands í ísrael í gær, að ef á-
standið á herteknu svæðunum
færi versnandi gæti það leitt til
slita á stjórnmálasambandi á milli
landanna.
Reuter/ólg
Miðausturlönd
Egyptar styrkja
stöðu sína
Mubarak í opinberri heimsókn til ríkjanna við
Persaflóa. Sýrlendingar óttast aukin áhrif
Egypta
Mubarak forseti Egyptalands
er nú á ferðalagi um ríkin við
Persaflóa til þess að ræða hugsan-
lega lausn á styrjöldinni á milli
Iran og íraks. Þykir ferðalagið
bera vott um vaxandi áhrif Eg-
ypta í arabaheiminum, þar sem
þeir hafa verið í einangrun allt frá
því að þeir gerðu friðar-
samkomulagið við ísrael (Camp
David) 1979 þar til á síðasta ári,
en þá aflétti leiðtogafundur Ara-
babandalagsins banninu á
stjórnmálasambandi við Egypta-
land.
styðja íraka í stríðinu.
Reuter/ólg
Austurríki
Sækir um aðild að
Evrópubandalaginu
Þjóðarflokkurinn íAusturríki breytir um af-
stöðu en vill þó halda hlutleysi Austurríkis
Þjóðarflokkurinn í Austurríki,
sem er hægrisinnaður flokkur
og myndar stjórn landsins ásamt
með sósíalistum undir stjórn
Franz Vranitzky kanslara, hefur
breytt um stefnu í afstöðu sinni til
Evrópubandalagsins og vill nú
sækja um fulla aðild, þannig að
Austurríki geti orðið fullgildur
aðili að fyrirhuguðum opnum
markaði Evrópuríkja árið 1992.
Aður hafði samsteypustjórn
Vranitskys talað um takmarkaða
aðild að bandalaginu með hugs-
anlega fulla aðild í huga í framtíð-
inni.
Leiðtogi Þjóðarflokksins,
Alois Mock, sem jafnframt er
utanríkisráðherra Austurríkis,
sagði að þeir stefndu að því að
full aðild að Evrópubandalaginu
gæti orðið að veruleika innan 5
ára, en hins vegar myndi
Austurríki halda áfram hlutleysi
sínu.
Hlutleysi Austurríkis er skráð í
stjórnarskrá þess allt síðan her-
sveitir bandamanna yfirgáfu
landið 1955. Hlutleysisyfirlýsing-
in hefur í raun verið meginhindr-
unin í vegi fyrir fullri aðild að
Evrópubandalaginu og hafa
sumir haldið því fram að hlutleysi
og full aðild geti ekki farið sam-
an. Til dæmis hafi stuðningur
bandalagsins við Breta í Falk-
landseyjastríðinu verið hlutdræg-
ur, en leiðtogi Þjóðarflokksins
segir að allt verði gert til þess að
tryggja hlutleysi Austurríkis, og
vitnar í því sambandi í þau orð
Jacques Delors, fráfarandi fors-
eta ráðherranefndar bandalags-
ins, að hernaðar- og öryggismál
ætti að fjalla um utan vettvangs
Evrópubandalagsins. Hlutleysis-
yfirlýsing Austurríkis væri fyrst
og fremst skuldbinding um að
ganga ekki í hernaðarbandalag.
Austurríki á nú aðild að Frí-
verslunarbandalaginu EFTA
ásamt me6' Sviss, Svíþjóð, Nor-
egi, íslandi og fleiri ríkjum. Frí-
verslunarbandalagið stendur nú
mjög veikt gagnvart Evrópu-
bandalaginu, og hafa raddir um
inngöngu í Evrópubandalagið
meðal annars orðið áberandi í
Noregi á síðustu mánuðum.
Reuter/ólg.
PÓST- OG
Sí M AMÁLASTOFNUNIM
óskar aö ráöa
bréfbera
í hin ýmsu hverfi borgarinnar.
Um hálfsdagsvinnu er aö ræöa.
Upplýsingar eru veittar hjá skrifstofu
póstmeistara, Ármúla 25 og póstúti-
búum.
Vilt þú verða skiptinemi
í sumar?
AFS býöur ungu fólki í ca. 2 mán. sumardvöl og
málanám 1988 í:
Danmörku, Finnlandi, Spáni, Sviss, Frakklandi,
Þýskalandi, Portúgal: 15-18 ára.
Bretlandi, írlandi, sjálfboöaliðavinna: 16-21 árs.
Noregi, sveitastörf: 15-19 ára.
Hollandi, menningar- og listadagskrá: 16-22 ára.
Bandaríkjunum, enskunám: 15-30 ára.
Umsóknartíminn er f rá 11. janúar til 15. febrú-
ar.
Skrifstofan er opin 14-17 virka daga.
á íslandi
Skúlagata 61, P.O. Box 753 - 121 Reykjavík, sími
91-25450.
Dagvistarheimili
Kópavogs
Lausar stöður
Leikskólinn Fögrubrekku
Staöa fóstru eða starfsmanns meö aðra uppeld-
ismenntun er laus til umsóknar. Um er aö ræða
50% starf eftir hádegi. Upplýsingar veitir for-
stöðumaður í síma 42560.
Dagvistarheimilið Grænatún
Staða fóstru eöa starfsmanns meö aöra uppeld-
ismenntun er laus til umsóknar. Um er aö ræða
50% starf fyrir hádegi. Upplýsingar veitir for-
stöðumaður í síma 46580.
Dagvistarheimilið Efstahjalia
Staöa fóstru eöa starfsmanns meö aðra uppeld-
ismenntun er laus til umsóknar. Upplýsingar
veitir forstöðumaður í síma 46150.
Dagvistarheimilið Kópasel
Staða fóstru eða starfsmanns með aðra uppeld-
ismenntun er laus til umsóknar. Opnunartími er
frá kl. 7.30 til 15.00. Upplýsingar veKir forstöðu-
kona í síma 84285.
Dagvistarheimilið Furugrund
Staða fóstru eða starfsmanns með aðra uppeld-
ismenntun er laus til umsóknar. Hlutastarf kemur
til greina. Upplýsingarveitirforstöðumaðurísíma
41124.
Auk þess vantar starfsfólk til afleysinga á heimil-
unum. Hafið samband og kynnið ykkur aðstæð-
ur. Einnig veitir dagvistarfulltrúi upplýsingar um
störfin í síma 45700. Umsóknum skal skilað á þar
til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi á Fé-
lagsmálastofnun, Digranesvegi 12.
Félagsmálastofnun Kópavogs
Laugardagur 9. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11