Þjóðviljinn - 10.01.1988, Síða 5
JL li leysist úr álögum
U fyrir tilstilli ástarinnar
og hoppar hærra en allir
aörir
Setum viö ekki bara
skellt okkur svona á
llið? viö erum allavega
alveg æðislegar...
iltu sjenna. lilli, hulla og villa súpa andköf við að sjá jöklu, sveitastúlkuna frá
fjalladal súpa á ballundirbúningi
yfirvaldið á staðnum tilkynnir útgerðaraðlinum að nýir erfingjar skuli erfa
slldarplanið
Islenskur veruleiki
Leitast við að skapa alþýðlegt og nútímalegt leikhús
Þórunn Siguröardóttir, leik-
stjóri, var spurð að því hvernig
hefði gengið að koma þessu öllu
heimog saman:
„Ég las leikritið fyrst í upp-
runalegri gerð og langaði þá strax
til að láta frumsemja alla tónlist,
til að gefa verkinu nýja vídd.
Þannig að það yrði ekki bara
nostalgía, heldur meira leikhús.
Þessi leikgerð hefur verið unnin í
samvinnu við Iðunni og Kristínu
og Valgeir sem hlýtur að teljast
einn af höfundum. Ég var á Spáni
í sumar og Valli sendi mér spólur
þangað; sumu hefur verið hent og
annað stokkað upp. Svo kom Sig-
urjón leikmyndateiknari inní
samvinnuna, en hann er senni-
lega með þeim mönnum, sem
þekkir hvað best til síldaráranna.
Hann er frá Siglufirði, og byrjaði
sem smápjakkur að vinna í síld og
endaði sem sfldarmatsmaður.
Sigurjón hefur kennt okkur réttu
handtökin. Við notum ekki ein-
ustu síld, þannig að það þarf að
nota látbragð. Hreyfingar elta
því efnið og styðja verkið. Hlíf
Svavarsdóttir og Auður Bjarna-
dóttir hafa unnið hreyfingar út og
svo er mikið dansað. Þá eru
slagsmál á ballinu einsog vera
ber, sem þurfti að æfa mjög vel.
En það kom samt ekki í veg fyrir
það að fólk slasaðist og við þurft-
um að panta sjúkrabíl hingað um
daginn. Þá hefur Jóhann G. unn-
ið mikla vinnu við útsetningar.
Hér hefur verið um mikla og
góða samvinnu að ræða. Enda er
þetta mjög góður hópur sem
stendur að baki allri sýningunni
og rjóminn hjá LR, hvað varðar
söng- og leikkrafta, sem hér
leggur hönd á plóginn. Við höf-
um leitast við að skapa alþýðlegt
nútímalegt leikhús. Það er mikiil
sjarmi í þessu verki frá hendi
höfundanna og góður húmor.
Skemman, sem á því miður að
rífa í sumar, hentar líka vel fyrir
Síldina. Hér var unnið í fiski og
sungið ofaní tunnur."
Nú heyrast alltaf þœr raddir að
söngleikir séu léttmeti og óœðra
leikhús. Hvað segir þú um það?
„Mér finnst ekkert sérstaklega
gaman að gamanleikritum. Éftir
æfingar fer ég oft útí bíl og spiia
Beethoven. En mér finnst mjög
gaman að vinna með alla þessa
tónlist og söngleikir eiga rétt á
sér. íslenskir söngleikir verða
heldur ekki til á hverjum degi.
Sfldin er komin, er söngleikur
uppúr íslenskum veruleika, sem
hálf þjóðin þekkir og tími til
kominn að þeir sem hafa ekki
verið í síld fái tækifæri til að kynn-
ast þessu makalausa lífi.“
ekj.
j ^kullinn er að þenjast út... óléttumálin útskýrð á dulmáli I gegnum hringnót-