Þjóðviljinn - 10.01.1988, Side 12

Þjóðviljinn - 10.01.1988, Side 12
TILBURÐIR HÁTÍÐANNA „Gleðilegt ár“ býr í manni að segja á götum við gangandi vegfarendur nú undir nýrri fjögurra stafa tölu sem tívolí- bomburnar sprengja út á himni sem snöggtum síðar verðuralmyrkvaður, þvíeins og gáfaðir lesendur vita er tíminn aðeins blekking, að- eins mislöng ýluragetta úr tómri flösku. En þessi orð manns frjósa í eyrum viðtakenda þannig að klingir í þeim eins og í fölskum kristal og öllum er ljóst að maður meinar auðvitað ekkert með þessu. „Árið“, þetta er ekkert annað en lúmsk afsökun og ímyndun okkar sem á að gefa öllum séns, séns á einhverri nýrri tilfinningu, leyfa fólki að halda að það sé að byrja á einhverju nýju og fersku, jafnvel „nýju og betra lífi.“ En eins og gáfaðir les- endur vita og skilja er tíminn ekk- ert annað en blekking, ekkert annað en önnur og ögn hærri tala á sömu ávísun í jafn tómum reikningi. Það skiptir smáu þó staðnaðir listamenn kroti ‘88 í stað ‘87 í neðri horn sinna lyktandi verka, ekki öðlast þau líftóru við það, ekki verða þau ferskari við það. Nær væri þeim að setja ‘78 við nafn sitt eða jafnvel ‘58, til þess að verk þeirra væru betri vitnis- burðir síns tíma. Því hvað er tím- inn í raun annað en blekking, eins og ég er í sífellu að koma inn hjá gáfuðum lesendum. Menn skulu ekki halda að þeir sigli nú neitt nær aldamótum og nýrri öld en áður. Því lífið breytist ekki með hraða tímans heldur hraða hugs- unarinnar og sem kunnugt er mun snúningur heilans vera heill mannsaldur gegnt hinum fráa sól- arhring jarðkringlunnar. Heim- urinn breytist því ekki mikið þó á gaddfreðnu gamlárskveldi „árinu breyti breiddin hárs“, eins og segir í þekku húmljóði, lína sem þó seint mun sjást í nýársræðum forseta framtíðarinnar. En svo við hverfum í blekkingu okkar aftur að liðnu ári og hátíð- um þess voru manni margar sortir bakaðar til höfuðs bæði og maga. Það má marga smákökuna naga, menningarlega sem og gyðing- lega, í þessari sannkölluðu kúlt- úrreisu manns út á gamla Garð- skagann. Ættarglögg og júlefrú- kost, rjúpur og randalín, hvell- hettur og kviðfylli. Og inn á milli er skotið endalausum dagskrár- aukum og bókartitlum, maður nartar í saurblöð og sýpur á skaupi, hleypur í leikhús og bíður við bari. Á milli jóla og nýárs tjaldar landinn öllu því sem best hann á, köldu borði bókmennta og að venju hinum sígræna pottrétti sem sjónvarpsleikritin ávallt eru. Frá því ég man sjónvarpslega eftir mér hefur maður ropað úr sér jólunum fyrir framan þetta einkennilega íslenska sérfyrir- bæri sem heitir sjónvarpsleikrit. Ríkisútvarpinu hefur árvisst tek- ist að klekja a.m.k. einu slíku fjárveitingar-hænsni sem goggar síðan á frost-flúraðan skjá þjóð- arinnar um þetta einnig árvissa leyti. Og í ár varð heldur engin und- antekning, tilburðurinn skreið úr eggi óvenju vel undirbúinn, um- talið var að þessu sinni flutt fram fyrir frumsýningartíma og eftir- væntingunni hleypt upp í áhorf- endum. Til öryggis var höfundin- um leyft að tjá sig í viðtali áður en verk hans var sýnt svo hann gæti hagað sér eins og meistari nokkra stund, því að sýningu lokinni væri það skiljanlega honum erfiðara. En þó í þessu viðtali hafi höfu- ndurinn í raun tæmt alla hugsan- lega túlkunarmöguleika verks síns og útlistað nákvæmlega hvert hann væri eiginlega „að fara“ með því, var ekki hættandi á að meiningar myndarinnar og ástæður færu framhjá okkur, svo því var hnýtt framan við hana pottþéttum útlistunum á þvíhvað „tilberi" væri. Þannig vorum við fullkomlega í stakk búin að melta gripinn. Nú er þetta í sjálfri sér ekki algalin hugmynd, þó e.t.v. full banal-leg sé, að tengja nútíma- viðburði við þjóðsögurnar. Hér er allavega um kjötmeira efni að ræða en hin inargþvældu og stór- dramatísku ísskápakaup ungra hjóna í kjallaraíbúð í Þingholtun- um. En þegar gamanið er allt frá manni tekið áður en upphafsstaf- ir verma skerm og restin verður aðeins til þess að velta því fyrir sér hver leiki hvað og hvort hann sé enn þá með þeirri sem sést þarna í atriðinu við barinn þá verður beli manns fljótt fullur af einföldu innihaldsleysi. Nútímamaðurinn handleikur þjóðsöguna eins og hvert annað forrit og sýgur úr henni allt seið- magn með því að sýna manni allt sem hægt er að sýna, svipta hinni töfrandi hulu óvissunnar af öllum atburðum í von um hrylling, sem ekki verður, vegna þess að maður er nýfullur af „semíólógískum táknfræði“-útskýringum. Ekkert er lengur dularfullt og óskiljan- legt. Tilberi - Tilbury - Cadbury - búið. Jafnvel hið erótíska afl sögunnar er eyðilagt með ein- hverjum plast-spena á módel-læri með litað hár. Svo ekki sé farið út í tæknileg smáatriði, þá fjörmiklu hnökra sem alltaf eru eitt það skemmtilegasta við þessi sjón- varpsleikrit; sautján klippingar í kringum mjólkurglas, átján sand- pokar á Arnarhóli og hippahár á stríðsáradansleik, fyrir utan fölan leik og fleira, þá verður varla sagt að eftirtekja þessarar árs-vinnu sé mjög dýr. Vonir leikstjórans um sæti á Drakúla-bekknum verða því ansi hlálegar. En áfram lafir hann þó sjálfsagt á hinum heitmjólkandi Ríkisspena og bíð- ur þess að næst verði kallað „láttu lossa sonur.“ En nú er samt komið árið 1988, bústið og breiðleitt, og maður gengst sæll þeirri sætu blekkingu á hönd að nýtt ár sé nýr tími og nýjum tíma fylgi nýir menn. Listamenn. Reykjavík 5. jan. ‘88 Hallgrímur 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. janúar 1988

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.