Þjóðviljinn - 10.01.1988, Side 20

Þjóðviljinn - 10.01.1988, Side 20
SQJl W/V3Q9 Um fúsk og önnur skyld fyrirbœri... Auðvitað er þetta rómt rugl alltsaman. Ég er ekki viss um að nokkur maður trúi þessu. En þó eru til bæði tölur og prð, allt sam- an skjalfest í votta viðurvist, sem sýna okkur, svo ekki verður um villst, að hér er ekkert húmbúkk á 'ferðinni. Ég veit vel að svona lagað hefur oft verið reynt áður með litlum árangri. Og að það voru mun reyndari og fjársterkari aðilar sem að þeim tilraunum stóðu. Það er því ekkert að undra þó mönnum sárni. Ég lái þeim það ekki. Ég trúi ekki að nokkur maður geri það. Auðvitað sárnar atvinnumönnum í faginu, með margra ára reynslu að baki, þegar einhverjir amatörar ryðjast alltíeinu fram og gera þá hluti að því er virðist áreynslulaust, sem þeir voru sjálfir búnir að marg- reyna með ærnum tilkostnaði um áraraðir. Ég meina, eru ekki til einhver lög um svona lagað? Hvað segir stéttarfélagið til dæm- is? Nei, ég bara spyr svona. Lítum á þetta frá sjónarhóli raf- virkjans, til dæmis. Hann hefur gengið í gegnum sitt nám og gert við þúsundir eldavéla og ísskápa í gegnum tíðina. En engum finnst nokkuð til koma. Hann sigrar ekki heiminn með þrjúþúsund eldavélar uppá vasann. Sama hvað hann reynir. Svo kemur ein- hver fúskari í faginu, sem aldrei hefur sett kló á ketilsnúru, hvað þá meira, og er bara hafinn upp til skýja. Þvflíkt og annað eins á auðvitað ekki að geta gerst. Og Húsmóður skrifar „Hann sigrar ekki heiminn með þrjúþúsund eldavélar uppd vasann" gerist auðvitað ekki. Ekki hér heima allavega. Hér þurfa menn að hafa sína ísskápa á hreinu. Það er það sem fólkið vill. Ekki ein- hvern fúskara, sem ekki bara ger- ir hlutina illa, heldur Hrfeykir sér hreint og beint af vankunnáttu sinni. Hver heldurðu að vilji fá rafvirkja til starfa, sem hefur Iýst því yfir opinberlega að hann sé ekki, og verði líklega aldrei góð- ur rafvirki? Nei, ég veit að þetta er kannski ekki alveg sambæri- legt, ég segi nú bara svona. Og það er ekki nóg með að þeim tak- ist að blekkja pöpulinn þarna í Bretlandi. Mér þætti það svo sem ekki fréttnæmt, svona útaf fyrir sig. En þegar þetta lið nær að fífla þeirra helstu sérfræðinga á ein- mitt því sviði, sem þau starf a - j a, starfa, það er nú kannski full- mikið sagt, sem þau stunda sitt fúskerí á, væri nær lagi, já þegar svo er komið, þá er mér nóg boð- ið. Og ég veit að ég er ekki einn um þessa skoðun. Fjölmargir kollegar mínir hafa sagt það sama. Ekki opinberlega, neinei, ég veit það vel, en svona í mín eyru og annarra, sem svipað er innanbrjósts. Og svo á að halda vitleysunni áfram á nýja árinu! Ég segi bara fyrir mig, ég veit ekki hvar þetta endar alltsaman. Fúskarar allra landa sameinist! Það er kannski mottóið hjá þeim þarna í útlöndum. Ég veit það ekki. Kannski maður hætti bara að æfa sig í tvö þrjú ár, skipti um nafn og byrji svo uppá nýtt. Kannski það gangi í liðið. En það er bara hægara sagt en gert. Mað- ur fer nú varla að kasta margra ára æfingu og farsælu starfi fyrir róða, að nú ekki sé minnst á þær hefðir, sem gilda hjá okkur fag- mönnunum, til þess eins að kom- ast í einhver bresk blöð. Ég held ég láti mér nægja þau íslensku, takk fyrir. Hér eru mínar rætur og þessu landi á ég allt að þakka. Það er bölvað vanþakklæti og ekkert annað að vera að rjúka til útlanda með sína þekkingu og list. Ég veit að ég reyndi eitthvað við þetta sjálfur hér í eina tíð, en það var bara barnaskapur og núna veit maður betur að sjálf- sögðu. Látum þau bara flytja sitt fúsk út í friði. Þeim er það varla of gott greyjunum. Auðvitað er þetta engin tónlist þessi ósköp. Ég veit að menn skrifa fallega um þetta, en hvað er að marka þessa stráka á blöðunum hérna. Þeir hafa tildæmis engan skilning á því, sem við félagarnir erum að gera. Það er ekki nema einstaka menn, einsog hann Árni Jo- hnsen, sem raunverulega gera sér grein fyrir gildi verka okkar. Og svo auðvitað almenningur. Við seljum alltaf vel, enda er almenn- ingur á íslandi vel upplýstur og með einfaldan, en vandaðan, taktu eftir því, vandaðan smekk á þessu sviði. Þetta er einsog með rafvirkjann, sem ég talaði um áðan. Reyndar er fólk eitthvað farið að leggja eyrun eftir þessu núna, eftir að þau fóru að koma í blöðin þarna úti, en það er eins og hvert annað tískufyrirbæri, bara bóla sem springur þegjandi og hljóðalaust, fyrr en nokkurn varir. Við blífum hinsvegar áfram, höfum staðið fyrir okkar í tuttugu ár og eigum eftir að endast í bransanum í annan eins tíma. Það er ekki nokkur vafi. Enda hefur það sýnt sig að al- menningur í landinu vill ekkert fúsk, fólk vill vandaða vinnu, þrjúþúsund eldavélar eru kann- ski ekkert nýnæmi, ekkert afrek, en það ber vott um áreiðanleika og vönduð vinnubrögð. Og al- menningur í landinu vill hafa þetta þannig. Ég er svo sem ekk- ert að kvarta, ég segi nú bara svona... Húsmóður Maggi Kjartans yfirflugstjóri og áhöfn hans hafa viðkomu í mörgum bestu dægurlöndum endurminninganna - og þeir Páimi Gunnarsson, Jóhann G. Jóhannsson, Rúnat Júl, Engilbert Jensen, Einar Júlíusson, Anna Vilhjálms, Magnús Þór Sigmundsson og fleiri listamenn skapa stemninguna. SÝNINGIN SEM SLÓ í GEGN Á NÝÁRSDAG! Flugglaðir hf. tilkynna brottförflugs SAG 66 til dægurlanda öll iaugardagskvöld í janúar. Ýmsar helstu stórstjörnur íslenskrar poppsögu síðustu tveggja áratuga verða um borð og bera fram hugljúfar og bráðfjörugar tónlistarkræsingar meðan kokkarnir á Sögu sýna listir sínar. Góður matur, fyrsta flokks skemmtun, danshljómsveit í sérflokki og frábærir gestir gera laugardagskvöldið í Súlnasal að frábærri byrjun á nýja árinu. Verð á þessu öllu er aðeins kr. 2.900. Og munið: Þessi dagskrá verður aðeins í janúar! Tryggið ykkur far í tíma. Flugfarseðlapantanir í síma 29900. Brottförkl. 19:00 GILDIHF

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.