Þjóðviljinn - 14.01.1988, Page 10
Laus staða
Dósentsstaða í lyfjafræði náttúruefna við námsbraut í lyfja-
fræði lyfsala í læknadeild Háskóla íslands er laus til um-
sóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf, rann-
sóknir og ritsmíðar, svo og námsferill og störf skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir
15. febrúar nk.
Menntamáiaráðuneytið
11. janúar 1988
Rannsóknastyrkir EMBO
í sameindalíffræði
Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European Molecular Bio-
logy Organization, EMBO), styrkja vísindamenn sem starfa í
Evrópu og ísrael til skemmri eða lengri dvalar við erlendar
rannsóknastofnanir á sviði sameindalíffræði. Nánari upplýs-
ingar fást um styrkina í menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6,150 Reykjavík, og þar eru einnig fyrir hendi skrár um
fyrirhuguð námskeið og málstofur á ýmsum sviðum samein-
dallffræði sem EMBO efnirtil á árinu 1988. Umsóknareyðu-
blöð fást hjá dr. J. Tooze, Executive Secretary, European
Molecular Biology Organization, 69 Heidelberg 1, Postfach
1022 40, Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Límmiði með
nafni og póstfangi sendanda skal fylgja fyrirspurnum. Um-
sóknarfrestur um langdvalarstyrki er til 16. febrúar og til 15.
ágúst en um skammtímastyrki má senda umsókn hvenær
sem er.
Menntamálaráðuneytið
11. janúar 1988
Styrkur til náms í Noregi
Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram styrk handa
íslenskum stúdent eða kandidat til háskólanáms í Noregi
háskólaárið 1988-89. Styrktímabilið er níu mánuðir frá 1.
september 1988 að telja. Til greina kemur að skipta styrkn-
um ef henta þykir. Styrkurinn nemur um 4.100 n.kr. á mán-
uði. Umsækjendur skilu vera yngri en 35 ára og hafa stund-
að nám a.m.k. tvö ár við háskóla utan Noregs.
Umsóknum skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverf-
isgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 12. febrúar nk. á sérstökum
eyðublöðum sem þarfást, og fylgi staðfest afrit prófskírteina
ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytið
11.janúar1988
Námsvist í Sovétríkjunum
Sovésk stjórnvöld munu væntanlega veita einum íslendingi
skólavist og styrk til háskólanáms í Sovétríkjunum háskóla-
árið 1988-89. Umsóknum skal komið til menntamálaráðu-
neytisins, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 12. febrúarnk.
og fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum. Um-
sóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
11. janúar 1988
^RARIK
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftir-
farandi:
RARIK 88002 raflinuvír 101 km.
Opnunardagur: þriðjudagur 16. febrúar 1988 kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyriropn-
unartíma og verða þau opnuð á sama stað að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík.'frá
og með fimmtudeginum 14. janúar 1988 og kosta
kr. 300.00 hvert eintak.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 Reykjavík
Fræðsluskrifstofa
Reykjavíkurumdæmis
og Sálfræðideild skóla hafa flutt frá Tjarnargötu
20 að Austurstræti 14. Fræðsluskrifstofan er á
5. hæð og Sálfræðideildin á 4. hæð. Símanúmer
er óbreytt 621550.
ALÞÝÐUBANDALAGK)
Alþýðubandalagið Kópavogi
Morgunkaffi ABK
Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi og Pétur Már Ólafsson fulltrúi í Tóm-
stundaráði verða með heitt á könnunni í Þinghóli, Hamraborg 11, laugar-
daginn 16. janúar frá kl. 10-12.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Kópavogi
Þorrablót ABK
Hið margrómaða Þorrablót verður haldið 30. janúar n.k. í Þinghóli, Hamra-
borg 11. Merkið við á dagatalinu. Nánar auglýst síðar.
Stjórnln
Alþýðubandalagið á Siglufirði
Kaffifundur alla miðvikudaga
Hinir vinsælu kaffifundir verða í Suðurgötu 10 á miðvikudögum
frá klukkan 17-19 e.h. - Stjórnln.
Alþýðubandalagið Garðabæ
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í Hofsstaðaskóla, Garðabæ,
mánudaginn 18. janúar kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Val fulltrúa í Skólanefnd.
2) Val varafulltrúa í Félagsmálaráð.
3) Breyting á framkvæmdastjórn félagsins.
4) Fjármál félagsins. ,
5) önnur mál. Stjórnin
Alþýðubandalagið
Stjórnmálafundir
á Austurlandi
í þinghléi efna þingmenn Alþýðu-
bandalagsins til funda víða um
land. Hjörleifur Guttormsson verður
á ferð um kjördæmið næstu tvær
vikur og Svavar Gestsson kemur
með honum á tvo almenna fundi. I
næstu viku eru ráðgerðir fundir sem
hér segir:
Seyðisfjörður, opinn fundur
með Hjörleifi Guttormssyni og Sva-
vari Gestssyni, mánudaginn 18.
janúar kl. 20.30.
Fellabær, Samkvæmispáfinn,
opinn fundur með Hjörleifi Gutt-
ormssyni og Svavari Gestssyni,
þriðjudaginn 19. janúar kl. 20.30.
Neskaupstaður, Egilsbraut 11,
fólagsfundur ABN, miðvikudaginn
20. janúar kl. 20.30.
/
Hjörleifur Svavar
Vopnafjörður, opinn fundur
með Hjörleifi Guttormssyni,
fimmtudaginn 21. janúar kl. 20.30.
Bakkafjörður, opinn fundur með
Hjörleifi Guttormssyni, föstudaginn
22. janúar kl. 13.30.
Eskifjörður, félagsfundur ABE,
föstudaginn 23. janúar kl. 20.30.
Fleiri fundir auglýstir síðar.
Alþýðubandalagið -
kjördæmisráð
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði boðar til félagsfundar
i Skálanum, Strandgötu 41, mánudagskvöldið 18.
janúar kl. 20.30.
Magnús Jón Árnason bæjarfulltrúi kynnir tillögur
meirihlutans að fjárhagsáætlun fyrir Hafnarfjörð
1988.
Félagar og stuðningsfólk er hvatt til að mæta stund-
víslega. Stjórnin
Magnús Jón.
Tilkynning til launa-
skattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina nóvember
og desember er 15. janúar nk.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Tilkynning til söluskatts-
greiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi söluskatts fyrir desembermánuð er 15.
janúar. Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Jóhannes Páll páfi.
Trúarbrögð
Deilt um
danskan
dyrling
„Guðlast að gera
dauðlega menn
helga, “ segja danskir
mótmœlendur
Sú ákvörðun hans heilagleika,
Jóhannesar Páls II páfa, að
taka danskan vísindamann og
biskup sem iifði á 17. öld í tölu
blessaðra manna hefur valdið
deilum meðal yfirmanna lúth-
ersku kirkjunnar i Danmörku.
Hinn umdeildi dýrlingur vís-
indamaðurinn og biskupinn Niels
Steensen, sem dó í fátækt árið
1685, en páfinn hefur ákveðið að
taka hann í tölu blessaðra manna
við hátíðlega athöfn í Vatíkaninu
í október á þessu ári. Blessun er
undanfari þess að helgir menn
eru teknir í tölu dýrlinga, eða
kanóníseraðir, og líður jafnan
alllangur tími á milli þessara
tveggja stiga heilagleika sam-
kvæmt kaþólskum sið. Steensen
verður fyrsti Daninn, sem tekinn
er í tölu blessaðra í 400 ár.
Biskupinn í Kaupmannahöfn
hefur neitað að segja álit sitt á
útnefningunni, en fréttaritarar
hafa það eftir heittrúuðum
mótmælendum meðal danskra
presta að þessi útnefning páfa sé
óguðleg í hæsta máta, og að það
sé siðleysi að gera dauðlegan
mann að dvrlingi.
Kennari í trúarbragðafélags-
fræði við Kaupmannahafnarhá-
skóla segir hins vegar að þótt
þessi ákvörðun páfans hafi valdið
reiði og hneykslun á meðal
heittrúaðra mótmælenda, þá hafi
meirihluti kristinna Dana fagnað
útnefningunni sem kærkomnu
tækifæri til þess að öðlast nýjan
skilning á kaþólsku kirkjunni og
íhuga tengslin á milli kaþólsku og
lútherstrúar.
í Danmörku eru aðeins um
30.000 kaþólikkar, eða innan við
1% þjóðarinnar.
Niels Steensen, sem þekktari
er undir latneska nafninu Nico-
laus Steno, gerði merkar vísinda-
rannsóknir á sviði líffærafræði,
lífeðlisfræði og steingervinga-
fræði. Hann kannaði starfsemi
hjartans og uppgötvaði meðal
annars munnvatnskirtlana sem
staðsettir eru við eyra mannsins
og tengjast munnholinu. Eru
kirtlar þessir kenndir við hann.
Steensen fæddist í Kaup-
mannahöfn fyrir 350 árum, en
dvaldi lengst af ævi sinnar utan
Danmerkur, meðal annars í Hol-
landi, þar sem hann tók kaþólska
trú þegar hann var 39 ára. í Hol-
landi kynntist hann heimspek-
ingnum Spinoza, og voru þeir
nánir vinir. Steensen átti einnig í
bréfaskriftum við heimspeking-
ana Rene Descartes og Gottfried
Wilhelm Leibniz, en Steensen
starfaði sem kaþólskur biskup í
fjórum þýskum borgum: Hano-
ver, Munster, Hamborg og
Schwerin. Steensen verður 8.
Daninn sem tekinn er í heilagra
manna tölu, og mun blessunarat-
höfnin fara fram um það bil 8
mánuðum áður en Jóhannes Páll
II kemur í fyrirhugaða heimsókn
til Norðurlandanna. Reuter/ólg