Þjóðviljinn - 22.01.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 22.01.1988, Blaðsíða 2
r^SPURNINGItm Ætlar þú að blóta Þorrann? Þorvaldur Jónsson, gangavöröur Hvaö heldur þú? Auðvitað eins og vant er. Ég borða allan þorra- mat og kaupi hann alltaf tilbúinn. Elínborg Bjarnadóttir, húsmóðir Ég hugsa það. Venjulega er mér boðið í þorrablót. Sigtryggur Árni Ólafsson, bílstjóri Nei, ég blóta ekkert sérstak- lega mikið. Mér finnst allur súr- matur vondur. Hákarlinn og hangikjötið er gott og brennivínið ómissandi. Jóna Sæmundsdóttir, meinatæknir Já, íheimahúsi. Ég ervoða lítið fyrir súrmat og sleppi alveg brennivíninu. Matthildur Gestsdóttir, húsmóðír Já ég reikna alveg eins með því að fara á þorrablót. FRETTIR Langholts- og Holtavegur Gloppótt brautarvarsla Aðstandendur yngstu barnanna íLangholtsskóla uggandi. Snjóruðningur byrgir sýn Undanfarna daga hefur engin gangbrautarvarsla verið á mótum Langholts- og Holtaveg- ar, og hefur það valdið aðstand- endum yngri barnanna í Lang- holtsskóla áhyggjum. - Sex ára barnabarn mitt er í skólanum, og svo ungir krakkar eru ekki vanir öðru en vernduðu umhverfi, sagði Sigrún Júlíus- dóttir. Eftir snjókomuna síðustu daga hefur snjóhaugum verið mokað upp á öllum hornum, og því eru krakkarnir hálfvegis í hvarfi þegar þeir þurfa að komast yfir, sagði Sigrún. 57 sex ára börn í þremur bekkj- ardeildum eru nú í Langholts- skóla, bæði fyrir og eftir hádegi, að sögn skólastjórans, Erlings S. Tómassonar. Hann sagði að lög- reglan hefði hlaupið undir bagga í gær og verið á vakt við gatna- mótin á háannatímum. Skýli fyrir gangbrautarvörð er til staðar við gatnamótin. Sá sem starfinu hefur gegnt síðan í haust er nú frá vinnu að læknisráði, og svo bagalega tókst til að stað- gengill hans úr hópi stöðumæla- varða fótbrotnaði nýskeð og er því einnig úr leik. Ásgeir Þór Ásgeirsson hjá gatnamáladeild borgarverkfræð- ings sagði að stöðumælavörslu væri haldið uppi af mjög fá- nú starfsmaður úr vinnuflokkum sagðist Asgeir Þór vona að sú skipuðu liði, og gætu þeir illa séð borgarinnar verið fenginn til að skipan mála héldist. af manni til þessa starfa. Því hefði sinna gangbrautarvörslu, og HS ■%< Umferð um Langholtsveginn er þung á annatímum, en gangbrautarvarslan hefur verið gloppótt að undanförnu, og hafa aðstandendur yngstu krakkanna í Langholtsskóla að vonum verið hugsandi vegna þess. Gangbrautarvörður er nú aftur tekinn til starfa. Mynd: E.ÓI. Mývatnssveit Riða skýtur upp kollinum Afall eftir ítarlegar hreinsanir. Biblíuþykkir staflar afstaðgreiðslu- pappírum hellast yfir bændur Frá fróttaritara Þjóðviljans, Starra í Garði Nú í þessum mánuði kom upp riða í sauðfé hjá einum bónda hér í sveit. Þetta er mikið áfall fyrir sauðfjárbændur í hreppn- um. Við höfðum gert okkur vonir um að vera sloppnir fyrir horn í þessum efnum eftir þær allar hreinsanir hér og í nágrannasveit- um sem fram hafa farið undan- farin ár. Nú vofir þessi hætta enn yfir öllum sauðfjárbændum hér um slóðir og bætist ofan á allan þann samdrátt í búgreininni sem stjórnvöld beita sér fyrir meir af kappi en forsjá. Fé bóndans var öllu slátrað í gær. Bætur fær bóndinn svo sem lög standa til. Okkur bændum berast nú með hverri póstkomu svellþykkir pappírsstaflar frá ríkisskattstjóra varðandi staðgreiðslu skatta. Þessi pappírsstafli nær því bráðum að verða á þykkt á borða við biblíuna. Allt er þetta á stofn- anamáli, illskiljanlegu venjulegu fólki. Nái menn að ráða þær rúnir, tekur ekki betra við þ.e. að skilja innihaldið. Ég held að skattstjóri hér og aðrir sem að þessum mál- um starfa, standi algerlega ráð- þrota gagnvart þessum ósköpum. Hitt held ég þó að þetta leiði þeg- ar í ljós að þótt staðgreiðsla skatta launafólks geti verið fram- kvæmanleg og jafnvel til bóta þá er hún óframkvæmanleg gagnvart þeim sem taka laun sín af eigin atvinnurekstri, eins og t.d. bændur. Slíkt er dæmt til að verða óskapnaður og hringavit- leysa. Því hefðu lagasmiðir og embættislýður betur áttað sig á í upphafi. Hér er ekki ýkja mikill snjór og vegir færir í héraði, þokkalegt vetrarveður og mannlíf skikkan- legt. -Starri í Garði. Kvótinn Leyfin á leiðinni Reglugerðin birt í dag N ý reglugerð um fiskveiðar landsmanna, sem byggð er á nýsamþykktum kvótalögum, mun væntanlega sjá dagsins ljós á morgun að öllu óbreyttu. Að sögn Kristjáns Skarphéð- inssonar í sjávarútvegsráðuneyt- inu mega útgerðarmenn búast við því að fá valbréf inn um bréfa- lúguna hjá sér í næstu viku, þar sem þeir ákveða hvort þeir velja afla- eða sóknarmark. Kristinn sagði að útgerðarmenn hefðu um tveggja vikna frest til að senda umbeðnar upplýsingar um út- gerðarmáta til ráðuneytisins. - grh MjÓlk Neyslan stóreykst Neysla íslendinga á mjólkuraf- urðum á sl. ári jókst um 3.5% frá árinu 1986. Hefur ekki verið meiri síðan metárið 1980. Neysla á rjóma jókst um 6.5%, á létt- mjólk um 17.4%, á ostum um 9% og á viðbiti um 21% Innanlandsneysla á mjólk og mjólkurafurðum árið 1987 varð alls 102.213.769 ltr. og er um 3.5% aukning frá árinu 1986. Þá var neyslan 98.711.233 ltr. Aukningin nemur því 3.502.536 ltr. Hún samsvarar rúmlega öllu mjólkurinnleggi hjá Mjólkur- samlaginu í Búðardal, en þangað berst mjólk af Snæfellsnesi og úr Dölum. Aðeins á árinu 1980 var meiri neysla á mjólkurafurðum, eða 105.461.498 ltr. En þess ber að geta að þá stóð útsala á smjöri mánuðum saman. Aukning varð á sölu súrmjólk- ur, AB-mjólkur, G-mjólkur, undanrennu og kókómjólkur. Aftur á móti minnkaði nýmjólk- umeyslan úr 34.493.000 ltr. í 32.739.000 ltr. eða um nærfellt 5.4%. Mest var mjólkurvöruneyslan í desember - og fór það að venju - en minnst í maí. - mhg 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. janúar 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.