Þjóðviljinn - 22.01.1988, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þlÓÐVIUINN
I Föstudagur 22. janúar 1988 16. tölublað 53. örgangur
Yfirdráttur
á téKKareiKninga
launafólKs
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Þjóðhagsstofnun
Launaspánni kippt út
Þórður Friðjónsson: Ekki ráðlagtað birta launaspá eins og
samningamálin standa nú
að hefur verið ákveðið að
birta ekki með þjóðhags-
spánni spá um launaþróunina á
árinu. Eins og samningamálin
standa nú þá teijum við það ekki
þjóna neinum tilgangi að birta
slíka spá sem væri hugsanlega úr-
elt eftir nokkra daga, sagði Þórð-
ur Friðjónsson forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar í samtali við Þjóð-
viijann í gær.
Ríkisstjórnin fór þess á leit við
stofnunina að hún sleppti að birta
spá sína um launaþróun á árinu
en þjóðhagsspáin verður lögð
formlega fram í dag. Telja ráð-
herrar að það myndi ekki flýta
fyrir samningum ef birtar væru
tölur meðan samningaviðræður
eru í gangi víða um land.
Þjóðhagsstofnun lagði fyrir
áramótin fram útreikninga um
verðlagsþróun á árinu þar sem
ýmist var reiknað með 10 til 50%
verðbólgu á árinu. - Það er erfitt
að velja þarna á milli fyrr en
menn sjá hver verður niðurstað-
an í samningum. Ef það dregst
hins vegar á langinn að samning-
ar takist þá verðum við að gefa
okkur einhverjar forsendur, því
það er óheppilegt ef langtímaspá
um launaþróun liggur ekki fyrir,
sagði Þórður.
-•g-
Hvalveiðiráðstefnan
Hvalur í mat
Kristján Loftsson í Hval hf
bauð fulltrúum á ráðstefnu hval-
veiðiþjóða í kvöldverð í gær-
kvöldi samkvæmt heimildum
Þjóðviljans.
, Já þeir verða í mat hér í kvöld,
en bíddu aðeins,“ var svarað á
Gaflinum þegar blaðamaður
hringdi í gær. „Nei, kokkurinn
kannast ekkert við það.“
Á öðru veitingahúsi í Hafnar-
firði fengust þær upplýsingar að
nokkrir ráðstefnugestir hefðu
snætt hádegisverð í gær og ein-
hverjir þeirra hefðu fengið sér
hvalkjöt, sem er á föstum mat-
seðli hússins. -Sáf
Verðlag
Auglýst eftifkaupmætti
Verðkönnun Jökuls á Höfn: Verkamaðurinn 10 klst. lengur að vinna fyrir matnum í dag en í
maí1983. Matvara hækkað um 22,56% fráþví íoktóber-kaup aðeins 7,23%. Björn Grétar
Sveinsson: Kaupmáttaraukningin finnst ekki á Austurlandi
Lánskjör
Vísitalan
þýtur
upp
Lánsbyrðin þyng-
istum2,35%.
Byggingarvísitalan
um0,46%. Vegur
lítið upp á móti
hœkkunfram-
fœrsluvísitölu.
Loforð ríkisstjórnar-
innarfarin í vask-
inn
Gagnstætt heitsrengingum
stjórnvalda hækkaði lánskjara-
vísitalan um 2,35%, eða 45 stig
frá janúar til febrúar og fór úr
1913 í 1958 stig. Á ársgrundvelli
jafngildir þessi hækkun 32,2%.
Það er því orðið fullljóst að láns-
byrði þeirra sem hafa vísitölu-
tryggð lán á bakinu þyngist enn.
Á sama tíma lækkaði vísitala
byggingarkostnaðar um 0,45%, í
stað 2% eins og ríkisstjórnin var
búin að lofa. Spá Þjóðviljans fyrr
í vikunni fór því nærri hinu
sanna.
Samkvæmt útreikningum
Hagstofunnar er byggingarvísi-
talan nú 107,4 stig eða 344 stig,
eftir því hvort miðað er við yngri
eða nýrri grunn. síðastliðna 12
mánuði hefur vísitalan hækkað
um 16,2%.
Lækkun vísitölu byggingar-
kostnaðar núna um tæpt hálft
prósentustig er að rekja til
breytinga á tollum og vörugjaldi,
en áhrif þeirra breuytinga mat
ríkisstjómin til tveggja prósenta
lækkunar.
Þrátt fyrir að vísitala bygging-
arkostnaðar lækki lítillega vegur
það lítið til að hægja á hækkun
lánskjaravísitölunnar, þar sem
framfærsluvísitalan, sem vegur
mun þyngra í grunni
lánskjaravísitölunnar, fór úr
böndunum vegna matarskattsins
og hækkaði um 3,71%.
Þessi hækkun lánskjaravístölu-
nnar þýðir að einnar miljónar
króna lán sem tekið var fyrir réttu
ári hefur hækkað um 251.000
krónur. -rk
Verðkönnun okkar sýnir ber-
lega að verkamaður á lægsta
taxta Verkamannasambandsins
er þremur klukkustundum
lengur að vinna fyrir mat sínum
nú en í desembermánuði 1985 og
10 klukkustundum lengur ef farið
er aftur til maí 1983. Svo er okkur
sagt að kaupmátturinn hafi
aukist svo og svo mikið á sama
tíma. Við höfum leitað að honum
á Austurlandi og hér er hann
augljóslega ekki að finna, sagði
Björn Grétar Sveinsson, formað-
ur verkalýðsfélagsins Jökuls á
Höfn í Hornafirði, en undanfarin
ár hefur Jökull athugað reglulega
vöruvcrð á ýmsum algengum
matvörutegundum í verslunum á
Höfn.
í maí 1983 var verkamaður á
lægsta taxta 21,24 klukkustund
að vinna fyrir matarpakkanum,
sem inniheldur kíló af súpukjöti,
lambahrygg, læri, kótilettum og
hakki, kjúklingi, nautahakki, ýs-
uflökum, kartöflum, eggjum og
lítra af mjólk, súrmjólk, rjóma og
skyri.
í desember 1985 þurfti verka-
maðurinn að strita í 24,85
klukkustundir fyrir sama
skammti af nauðþurftum og í dag
er vinnustundafjöldinn kominn
uppí 26,64 stundir.
Til marks um kaupmáttarrýrn-
un undanfarinna vikna hefur
vöruverð 60 almennra matvöru-
flokka, sem valdir voru af handa-
hófi hækkað um 25,56% frá því
fyrr í vetur og til 20. þessa mánað-
ar, en á sama tíma hefur kaup
verkafólks aðeins hækkað um
7,23% frá því í október s.l.
- Það þýðir ekkkert fyrir Jón
Baldvin Hannibalsson og hans
kórdrengi að segja það að matar-
skatturinn hafi ekki beina kjara-
skerðingu í för með sér. Jón kann
að ala þann draum með sér að
honum verði þakkað síðar meir
fyrir einföldun á söluskattskerf-
inu, en sá draumur á eftir að
breytast í martröð fyrr en varir,
sagði Björn Grétar.
-rk
Sókn
Mjóttá
Nýr kjarasamningur Sóknar
var samþykktur með naumum
meirihluta á tæplega 300 manna
fundi í félaginu í gærkvöldi. Á
fundinum kom fram hörð
gagnrýni á launalið samningsins
og var mál margra að ekki tæki
því að semja um minna en 40.000
króna lágmarkslaun, en starfs-
maður með 23 ára starfsreynslu
fær nú 36.108 krónur á mánuði.
Að sögn formanns Sóknar,
munum
Þórunnar Sveinbjörnsdóttur, var
það mat samninganefndarinnar
að fjárhagsstaða Sóknarfélaga
leyfði ekki að samningar drægj-
ust á langinn uppá von og óvon.
Samkomulagið færir Sóknarfé-
lögum sjálfkrafa sömu hækkanir
og BSRB-félagar fá, - 5% og síð-
an um 2% 1. júlí. Sömu uppsagn-
arákvæði eru á samningnum og
BSRB-samningnum.
-rk