Þjóðviljinn - 22.01.1988, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 22.01.1988, Blaðsíða 5
Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. og Þorsteinn Gíslason fiskimálastjóri eru meðal íslensku Þingmennirnir Guðrún Helgadóttir og Eiður Guðnason voru áheyrnarfulltrúar á ráðstefnunni fulltrúanna. 9™- Myndir Sig. Gagmyni á hvalveiðiráðið Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, sagði að Alþjóðahvalveiðiráðið vœri að breytast ísamtök um verndunar sjónarmið án hliðsjónar afstaðreyndum vísindarannsókna. Hvatt til stofnunar alþjóðlegra svœðasamtaka í setningarávarpi sínu á ráð- stefnu „um skynsamlega nýtingu sjávarpspendýra,“ einsog íslensk stjórnvöld hafa kosið að kalla ráðstefnu hvalveiðiþjóða, sem sett var í Borgartúni 6 í gær, gagnrýndi Halldór Asgrímsson, sjávarútvegsráðherra, Alþjóða- hvalveiðiráðið harðlega og sagði að helsta kveikjan að þessari ráð- stefnu hefði verið óánægja ís- lensku ríkisstjórnarinnar með störf Alþjóðahvalveiðiráðsins á fundi þess í Bournemouth á síð- asta ári. Halldór sagði að óánægjan eigi rætur að rekja til þeirrar stefnu sem Alþjóðahvalveiðiráðið hefur fylgt á undanförnum árum og benti hann á að tímabundin stöðvun hvalveiða sem ráðið samþykkti 1982 hefði ekki verið byggð á ráðum vísindanefndar- innar. Þá sagði hann að mikilvægt ákvæði í samþykktinni hefði ver- ið að heildarmat á hvalastofnun ætti að fara fram fyrir 1990 en nú virtist útilokað að þetta mat liggi fyrir 1990. Seinna í ávarpi sínu sagði Hall- dór: „Undanfarin ár hefur það orð- ið deginum ljósara að Alþjóða- hvalveiðiráðið er reiðubúið að fórna lögmætum vísindahags- munum aðildarþjóða í pólitísk- um tilgangi. Allir vita að umræður á fund- um Alþjóðahvalveiðiráðsins fara fram með það í huga að ríkis- stjórn Bandaríkjanna geti beitt aðildarþjóðir þvingunum til að framfylgja ákvörðunum ráðs- ins.“ Þá greindi Halldór frá við- ræðum íslendinga við Banda- ríkjamenn og samkomulaginu sem þessar þjóðir gerðu sín á milli sl. haust, en einn þáttur í samkomulaginu fóist í því að það ætti að auka trú manna á starf vísindanefndar Alþjóðahval- veiðiráðsins. „Nokkuð hefur ver- ið unnið að þessu og ætlum við að halda þeirri viðleitni áfram. Því miður eru niðurstöður aukafund- ar vísindanefnarinnar í Cambri- dge í desember síðstliðnum ekki til þess fallnar að auka mönnum bjartsýni.“ Halldór sagði Alþjóðahval- veiðiráðið ekki fært um að takast á við málefni sem snerta vistkerfið í stærra samhengi og því þyrftu menn að íhuga í alvöru hvort það hefði rækt skyldur sínar um samvinnu á viðunandi hátt. „í stað þess að aðlaga sig nú- tímaviðhorfum og taka tillit til viðurkenndra vísindaaðferða við nýtingu sjávarauðlinda sem oe Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur Alþjóðahval- veiðiráðið verið að breytast í samtök með verndunar- sjónarmið að markmiði án hlið- sjónar af staðreyndum vísinda- rannsókna.“ Meðal þeirra hugmynda sem íslenska sendinefndin mun kynna á ráðstefnunni er svæðisbundin stjórnun sem gerir ráð fyrir ábyrgð á vísindarannsóknum á öllu svæðinu, ábyrgð á stjórnun utan fiskveiðilögsögu og stofnun viðeigandi alþjóðlegra samtaka á hverju svæði um sig, að sögn Halldórs Ásgrímssonar. -Sáf íslenska sendinefndin 21 manna nefnd Tveir af þremur fulltrúum Sovétríkjanna fylgjast af athygli með setningarávarpi Halldórs Ásgrímssonar. Föstudagur 22. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Tveir ráðherrar og ellefu starfsmenn ráðuneyta. Tveir Bandaríkja- menn í íslensku sendinefndinni. Guðrún Helgadóttir og Eiður Guðna- íslendingar eru með iang stærstu sendinefndina á ráðstefn- unni, eða 27 manna nefnd auk þess sem einhverjir Islendingar sitja ráðstefnuna sem áheyrnarf- ulltrúar, þar á meðal tveir þing- menn, þau Guðrún Helgadóttir og Eiður Guðnason. Aðrar þjóðir senda mun minni sendinefndir. Norðmenn eru næst fjölmennastir með 12 manna nefnd, þá Japanir með 7 manna nefnd, þar af einn þing- maður. Rússar, Kanadamenn og Færeyingar eru með þriggja manna nefndir og Grænlendingar senda tvo áheymarfulltrúa. Suður-Kórea og Samtök Alaska son áheyrnarfulltrúar eskimóa afþökkuðu boð á ráð- stefnuna. Tveir ráðherrar em í íslensku sendinefndinni, þeir Steingrímur Hermannsson og Halldór Ás- grímsson. Auk þeirra er fjöldi fulltrúa frá utanríkis- og sjávar- útvegsráðuneytum. 5 manns frá utanríkisráðuneytinu og þrír úr sjávarútvegsráðuneytinu. Þá er einn fulltrúanna úr landbúnað- arráðuneytinu og tveir frá menntamálaráðuneyti. Fimm fulltrúanna eru frá Haf- rannsóknastofnun og einn frá Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins og frá Fiskifélagi íslands. Blóðbankinn á einnig sinn full- trúa á staðnum og sömuleiðis Raunvísindastofnun að ógleymd- um Kristjáni Loftssyni fulltrúa Hvals hf. Frá Bandaríkjunum koma þrír íslensku fulltrúanna, Hörður H. Bjarnason, sendifulltrúi við sendiráð íslands í Washington og Bandaríkjamennirnir Theodore G. Kronmiller og Charles R. Pu- ice, sem hafa unnið að málstað íslenskra stjómvalda í hval- veiðimálinu á bandarískri grund. Milligöngumaður fyrir þá hér á landi er Jón Hákon Magnússon og situr hann einnig ráðstefnuna. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.