Þjóðviljinn - 22.01.1988, Side 8

Þjóðviljinn - 22.01.1988, Side 8
*5*JSii* Fjölskyldan stendur saman áskíðum Fátt er betra til ad efla samstöðu innan fjöiskyidunnar en ad fara á skfði í BiáfjöUum og njóta samverunnar í snjónum. Ungur nemur, gamall temur eða öfugt - brekkur eru vid allra hzfi. Um helgar eru námskeið fyrir byrjendur og lcngra komna. Ef einhver vill koma meö og prófa er skfdaleiga í þjónustumiðstöðinni - allir geta verið með. BLÁFJALLA- NEFND Komið í BláfJöU og standid saman - það er heflbrigð skeramtun. Símanúmer í Bláfjalla- skála: 78400 Simsvari: 80111 Sölustaðir: Sportval, Hlemmtorgi og Kringlunni. Markið Ármúla 40. Útilíf, Glæsibæ. Bókaverslunin Veda, Hamraborg og Engihjalla. Sundlaug Kópavogs. Hópferðabifreiðar Teits, Smiðjuvegi 46. BYKO, Kópavogi og Hafnarfirði. íþrótta- og tómstundaráð, Fríkirkjuvegi 11. HEIMURINN HEIMURINN Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar 150 REVK^AVlK - .SlMI 686095 Verkstjóranámskeið fiskvinnslunnar hefjast að nýju í Hótel Borgarnesi að morgni 28. janúar. Kenndar verða samtímis fyrri og seinni önn. Verkstjórar eru hvattir til að láta þessi námskeið ekki framhjá sér fara og skrá sig hjá skrifstolu Starfsfræðslunefndarinnar í síma 91 -686095 fyrir þriðjudaginn 26. janúar. 2 OOO “ W Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat- kvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trúnaðarmanna- ráðs og endurskoðenda í Félagi starfsfólks í veitingahúsum fyrir árið 1988. Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu félagsins Ing- ólfsbæ, Ingólfsstræti 5, 5. hæð, eigi síðar en kl. 12 á hádegi, föstudaginn 29. janúar 1988. Kjörstjórn Evrópuráðsstyrkir Evrópuráðið veitir fólki sem starfar á ýmsum sviðum félagsmála styrki til kynnisdvalar í að- ildarríkjum ráðsins á árinu 1989. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í fé- lagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Umsóknarfrestur er til 18. febrúar nk. Félagsmálaráðuneytið 18. janúar 1988 Afganistan Fellur á hetjuljómann Grimmileg innbyrðis átök andófsaflanna í landinu Ef veiyulegur dagbiaðalesari gerir sér einhverja mynd af stríðinu í Afganistan þá sér hann eflaust fyrir sér óárennilega, hvassbrýnda stríðsmenn sem skirrast ekki við að skjóta á so- véska skriðdreka úr fjallabyrgj- um sínum með úreltum hólkum. Þetta segir fréttaritarinn Ge- orge Arney í nýlegri grein í Guar- dian, og máli sínu til stuðnings minnir hann á plakat eitt sem Af- ganistannefndin lét gera í fyrra, en á könnu téðrar nefndar er meðal annars fjársöfnun handa flóttamönnum. Á plakatinu er mynd af tveimur óttalausum skæruliðum með riffla um öxl, og textinn er svohljóðandi: „Það eru einmitt áreiðanlegir náungar af þeirra tagi sem þú getur treyst fyrir þínu framlagi.“ Tvenns konar stríð - Það er sannleikskorn í þess- ari klisju eins og öllum öðrum, segir George: það er ekki hægt að fjalla um stríðið í Afganistan án þess að hrífast af ótrúlegum kjarki skæruliðanna sem eiga við ofurefli að etja. En það eru fleiri hliðar á þessu máli; Afganar geta verið miskunnarlausir, klíku- gjarnir og flærðarfullir. Skærulið- arnir berjast fyrir þjóðfrelsi, en þeirra á milli geisar einnig blóð- ugt borgarastríð. Talið er að breskur sjónvarps- fréttamaður, Andy Skrzypkovi- ak, hafi látið lífið í Afganistan skömmu fyrir síðustu áramót, og hefur þetta atvik orðið til að draga athyglina að einum þeim hópi sem hvað mest hefur haft sig í frammi, bókstafstrúarmönnun- um Hezbe Islami. Andy hafði gert víðreist með skæruliðum og var álitinn einn áreiðanlegasti og hugrakkasti fréttamaðurinn sem fjallaði um innanlandsátökin í landinu. Fréttamaður hverfur Hann hvarf fyrir þremur mán- uðum, í nánd við fjallaskarðið Kantiwar, en skarð þetta er í landamærahéraðinu Nuristan. Á undanförnum ófriðarárum hefur Nuristan á stundum verið talið handan við lög og rétt. Vitni sáu hann í átökum við skæruliða Hez- be Islami, og reyndu þeir að hrifsa af honum myndavélina. Byssuskot fylgdu í kjölfarið. Ekkert hefur til Andy spurst síð- an, og hvorki fundist af honum tangur né tetur. Talið er að sami hópur skæruliða hafi seinna sama dag rænt franskan leiðangur sem ætlaði að færa aðþrengdum þorpsbúum föt og fé. Kantiwarskarð og nágrenni lýtur forystu Hezbe Islami, og eru margar sögur á kreiki um stjórnunarhættina; í fyrrahaust var tveimur breskum blaða- mönnum stungið inn og filmur þeirra og segulbönd gerð upp- tæk. Þá var afganskur leiðsögu- maður þeirra lúbarinn, en um síðir tókst þeim að flýja. „Þjófar og morðingjar“ Skömmu seinna voru hergögn flutt um skarðið til annars hóps skæruliða, Jamiat-i-Islami, en þau voru gerð upptæk. Þá lögðu Hezbeskæruliðar hald á hálft þriðja tonn vestrænna lyfja, en þau átti að flytja á yfirráðasvæði Jamiat. Frönsk hjálparsamtök staðhæfa að Hezbeherflokkur hafi rænt Thierry Niquet sem skipulagði hjálparstarf, og myrt Gulbaddin Hekmatyar: fær bróðurpartinn af bandarfsku vopnasendingunum en skammar eigi að síður þessa fjandvini sína kómeinskum skömmum. Hermenn þurfa að óta eins og annað fólk. nann síðan á þessum sömu slóð- um árið 1986. Chris Gregory, kona (ekkja?) Andy Skrzypkoviak, heyr nú sitt einkastríð. Hún vill fá að vita hvers vegna milljónum banda- ríkjadala sé ausið í samtök sem hafi „þjófa og morðingja" innan sinna vébanda. Sjö skæruliða- samtök Afgana eru viðurkennd á Vesturlöndum og njóta þaðan fjárstuðnings, og er Hezbe Islami þeirra elst og öflugast. Kómeinskar skammir Á síðasta ári samþykkti Full- trúadeild Bandaríkjaþings að veita andófsöflum í Áfganistan fjárstuðning upp á 600 milljónir dala. Hezbe Islami samtökin segjast ekki hafa fengið grænan eyri. Allir aðrir, allt frá öðrum skæruliðasamtökum til fyrrum hershöfðingja í grannríkinu Pak- istan, telja víst að Hezbe fái bróð- urpartinn af bandarískum vopn- um og fjárframlögum. Og það þótt leiðtogi þeirra, hinn 36 ára gamli, sléttmáli Gulbaddin Hek- matyar, veitist oftlega að Sámi frænda með orðfæri og heift sem sjálfur Ayatolla Komeini gæti verið fullsæmdur af. - Ameríkanarnir liggja allir hundflatir fyrir honum, segir ó- nafngreindur evrópskur diplóm- at um Hekmatyar og er aldeilis hlessa: „Því meira sem hann ýfir sig við þá, þeim mun hrifnari verða þeir.“ Hekmatyar á það líka til að ýfa sig við aðra hópa skæruliða, en engum sögum fer af hrifningunni úr þeirri átt. Bylting innan frá Sumir vilja meina að ætlun Hekmatyars sé að ná tökum á byltingarþróuninni innan frá. Að sönnu er mikið upplausnarástand rfkjandi í stríðshrjáðu landinu. Þar við bætist að yfirmenn eiga grimmsterkan trúnað sinna manna og fyrir bragðið eru á- rekstrar ólíkra hópa og herfor- ingja daglegt brauð. En að áliti Afgana sem sinnir hjálparstarfi eiga Hezbe Islami upptökin að því nær öllum illdeilum meðal andófshópanna. Óþarfi er þó að skella allri skuldinni á Hezbe Islami. í fyrra- haust var fólk drepið í hundraða- vís í suðurhluta landsins, í illvígum átökum Hezbe og skær- uliðahreyfingar sem kallast Har- akat, og nýtur sú drjúgs stuðnings klerkdómsins. Bardagi þessi var svo blóðugur að þorpsbúar fögnuðu sovéskum skriðdrekum með blómsveigum, loks er þeir létu sjá sig. Liðsmenn Hezbe Islami eru fastheldnir á fornar dyggðir trúar sinnar, og því kann það að koma spánskt fyrir sjónir að margir þeirra hafa hlotið menntun í raunvísindum. Sjálfur er Hek- matyar verkfræðingur, og stund- aði nám við háskólann í Kabúl snemma á síðasta áratug, en á þeim tímum stóð mikil barátta vinstrimanna og áhangenda spá- mannsins, og beindist hún að því að fylla það tómarúm er skapað- ist þegar Afganistan losnaði úr viðjum miðalda og varð skyndi- lega að takast á við lífshætti þess- arar aldar. Bókstafstrú og vísindamennska í einu af ritum sínum, Andinn sigrast á efninu, leitast Hekmaty- ar við að afsanna kommúnism- ann á vísindalegan hátt. Tals- maður Hezbe í Peshavar, Nawab Saleem, Ias til líffræðings í Bandaríkjunum, en þótti ekki mikið til veraldlegs rasjónalisma prófessors síns koma: „F-16 og jafnvel atómbombur geta ekki stöðvað rauða flóðið," segir hann, „það dugar ekkert minna en byítingarsinnuð hreyfing mú- hammeðstrúarmanna á Sovét- menn.“ Það er ekkert blávatn sem svo tæpitungulaust talar, en aðrir andófshópar sem daufari eru til yfirlýsinganna fella sig lítt við að Hezbe séu álitnir eitthvert fyrir- tak bókstafstrúarmanna: „Við trúum á grundvallaratriði þau sem trú okkar stendur fyrir,“ segir dr. Zabi Mojadedi, sonur skæruliðaforingja úr annarri átt: „Það eru samtök á borð við Hez- be Islami sem eru öfgafull.“ Svipaðar skoðanir viðra ýmsir stuðningsmenn stjórnarinnar í Kabúl. Varaformaður Afganska Kvennaráðsins, Shafika Raz- minda, stundaði háskólanám um leið og Hekmatyar. „Árið 1971 þegar konur vörpuðu blæjunni fyrir róða, sprautuðu fylgifiskar Gulbaddins sýru í andlit þeirra,“ segir hún. „Ef þeir voguðu sér út á götu án þess að hylja fætur sína var skotið á þær. Konur hafa alla ástæðu til að hata þennan mann.“ Gömul og ný tengsl við Pakistan Hezbe Islami hefur nána sam- vinnu við lögregluyfirvöld í Pak- istan og fylgist grannt með flótta- fólki og hugsanlegum skemmdar- verkamönnum. „Hezbe handtek- ur fólk í Pakistan hvað þá annað, þeir eru með fangelsi í landinu og þar hafa þeir jafnvel tekið fólk af h'fi,“ segir dr. Zabi Mojadedi. Hezbe Islami hafa notið mests álits allra andófshópa í Afganist- an, en sú óskastaða samtakanna kom til á valdadögum fyrrum stjórnvalda í Pakistan. Stuðn- „Óárenniiegir, hvassbrýndir stríðsmenn skjóta á sovéska skriðdreka með úreltum hólkum.“ ingsmenn Hekmatyars hlutu þjálfun og vopn að undirlagi Ali Bhutto, en síðan var þeim hjálp- að yfir landamærin til að grafa undan stjórnvöldum heima fyrir. Þegar Sovétmenn gerðu innrás í landið vildu Bandaríkjamenn fá að vita á hvern hátt þeir gætu best orðið andspyrnuhreyfingunni að liði. Leyniþjónusta Pakistans veðjaði þá á Hekmatyar í þeirri sælu trú að hún hefði ráð hans í hendi sér. Tvö ár eru nú liðin síðan her- lögum var aflétt í Pakistan, og þykir ýmislegt benda til þess að Hezbe Islami njóti ekki jafn óskoraðs stuðnings þar á bæ og áður fyrr. Engin uppstytta er þó í vopnasendingunum frá Banda- ríkjamönnum. Fáir treysta sér til að segja hve mikils raunverulegs stuðnings samtökin njóta meðal eigin landsmanna. Magnað út- lendingahatur En Hezbe Islami beina sjónum að næstu kynslóð, rétt eins og stjórnvöld í Kabúl fyrir sitt leyti. Skólar á yfirráðasvæðum samtak- anna þykja semja sig að fyrir- myndum úr hernaði. Vesturland- abúi einn sem nýverið hefur dval- ið í landinu segist merkja „ugg- vænlegan" þankagang sem gangi þvert á „mannúð og virðuleika" múhammeðstrúar þeirrar sem löngum hafi valerað meðal Af- gana: Fasískur þankagangur ræður ríkjum meðal þeirra, þar sem rauði þráðurinn er magnað útlendingahatur, segir hann. Hekmatyar hefur oftlega verið sýnt banatilræði en hingað til síoppið með skrekkinn, þótt ekki hafi alltaf mátt miklu muna. En samtök hans njóta enn mikillar aðstoðar frá Pakistan og Banda- ríkjunum þrátt fyrir ásakanir um að meðlimir Hezbe Islami beri sök á dauða eins af einlægustu stuðningsmönnum Afgana, Andy Skrzypkoviak. Guardian/HS 8 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. janúar 1987 Föstudagur 22. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 9 MENNVÐ EIGIN REKSIUR EÐA SJÁLFSL4ÐA SIARFSEMI Sendið greinargerð um reiknað endurgjaldfyrirárið 1988 ítœka tíð. Umsókn um að senda skilagrein um reiknað endurgjald einu sinni á ári verðurþví aðeins tekin lil greina að skattstjóra sé send greinargerð um reiknað endurgjaid fyrirárið 1988 ásamtskattkortum. Þeir sem vinna við eigin rekstur eða sjátfstasða starfsemi skulu reikna sér endurgjald (reiknuð laun) fyrir þá vinnu. Sama gildir um maka ef hann vinnur við starfsemina. Þetta endurgjald ber nú að áætla fyrirfram og senda þá áætlun til skattstjóra. Verði það ekki gert, ber skattstjóra að áætla endurgjaldið og staðgreiðsla verður þá greidd af þeirri upphæð. Eyðublöð vegna greinargerðar um reiknað endurgjald 1988 hafa verið send öllum þeim sem eru á launagreiðendaskrá og ber að skila þeim til skattstjóra 25. JANÚAR 1988 Þeir sem falla undir þennan hóp en eru einhverra hluta vegna ekki á launagreiðendaskrá og hafa því ekki fengið viðkomandi gögn snúi sértil næsta skattstjóra. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.