Þjóðviljinn - 22.01.1988, Blaðsíða 13
Síðasti tangóinn
í Reykjavík
Engu er líkara en að nú duni
síðasti tangóinn í Reykjavík. Elja
og vinnusemi borgarbúa mun á
árinu skila ófáum milljónum í
hendur ráðamanna. Af þeim
ástæðum á að reisa tvö heljar-
mikil mannvirki, ráðamönnum til
dýrðar og okkur til ánægju að
mati þeirra. Raunar vitum við nú
að okkur er ekki ætlað að kunna
gott að meta. Mótmælum og tor-
tryggni borgarbúa og skattgreið-
enda er svarað með því að við
séum „jarðbundnir nöldrarar,
bændur að mótmæla síma-fólk
sem skilurekki nútímabyggingar-
list."
Til marks um komandi dýrð er
upplýst að eitt bflastæði undir
tjarnarbotni eigi að kosta fleiri
milljónir en venjulega verkakonu
gæti dreymt um að spara á allri
ævi sinni.
Sjálfsagt verður launafólki
borgarinnar ekki boðið til snæð-
ings í hringleikahúsinu á Öskju-
hlíðartönkunum. - Veitingahús
upp á hálfan milljarð þarf nefni-
lega að leggja dálítið á matar-
skammtinn, enda verður veit-
ingaaðilinn að greiða u.þ.b. 60
milljónir á ári í húsaleigu ef Hita-
veitan á ekki að lenda í bullandi
tapi. Ársleigan svarar m.ö.o. til
byggingarkostnaðar á mjög fín-
um „venjulegum“ veitingastað.
En auðvitað eru þessi ævintýri
einkamál borgarstjórans og eng-
in ástæða til að trufla friðhelgi
hans eða draumfarir. Hann er
enda mikill öðlingur á annarra
manna fé, svo jaðrar við dóna-
skap að gagnrýna skrauthallir
þær sem hann hefur í draumum
sínum séð umlykja hásætið.
Fall er fararheill og er upphaf
ráðhúsframkvæmda í Reykjavík
væntanlega fyrirboði um að
draumar borgarstjórans muni
ekki rætast. Þarf langt að leita til
að finna sambærilega röð af mis-
tökum, klúðri, fúski, valdníðslu
og heimskulegum fljótfærnis-
verkum:
1. Nú er ljóst að við frágang og
auglýsingu Kvosarskipulagsins
hafði engin ákvörðun um ráðhús
verið tekin, enda húsið þá óteikn-
að. - Samt var skipulagið auglýst
en að því búnu ákveðið að teikna
ráðhús inn á uppdráttinn svo
þannig liti út sem borgarbúar hafi
samþykkt ráðhús. Nú þegar hafa
komið fram upplýsingar sem
benda til þess að um skjalafals sé
að ræða, eða a.m.k. tilraun til að
villa um fyrir félagsmálaráð-
herra. Ráðhússkipulagið öðlast
því ekki gildi.
2. Ákveðið var formlega að
fjarlægja Tjarnargötu 11 og
hnoða húsinu niður við Túngötu í
Grjótaþorpi. Síðan kom í ljós að
húsið komst engan veginn fyrir á
lóðinni - mistökin eru óskiljan-
leg.
3. Fundin var í snatri önnur lóð ,
í Skerjafirði fyrirTjarnargötu 11.
Hún er bara óbyggingarhæf og
því stendur húsið á tunnum í Tí-
volígarðinum, sem hæfir klúður-
og gamanmáli þessu vel.
4. Þótt bæði vanti samþykktar
teikningar að ráðhúsi og skipul-
agsuppdrátt var ákveðið að
leggja til atlögu við öldruð tré á
lóðinni. Svo mikil hetja er borg-
arstjórinn að óþarfi þótti að
spyrja bygginganefnd leyfis svo
sem skylda er áður en stórt er
höggvið í gömul glæsitré.
5. Við flutning Tjarnargötu 11
stóð ellimáladeild Félagsmála-
stofnunar á götunni ásamt mið-
stöð fyrir heimilisþjónustu við
lasburða fólk og hreyfihamlað í
borginni. - Góð ráð voru dýr.
Taldi borgarstjórinn mikið hap
að með litlum tilkostnaði væri
hægt að troða þessum leiðindast-
ofnunum í áttrætt íbúðarhús í
nágrenninu, sem að vísu hafði
áður verið tekið til bráðabirgða-
nota sem skrifstofuhúsnæði.
- Húsið er a.m.k. eins lasburða
og sumir þeirra sem þangað eiga
að sækja þjónustu. Inn og út úr
því kemst aðeins heilbrigt, hresst
fólk. Væntanlega fara umræddar
stofnanir enn á flakk í kjölfar
kæru Öryrkjabandalagsins vegna
umbúnaðar hússins að Tjarnarg-
ötu 20.
Ekki verður fleira upp talið af
stuttri en skrautlegri sögu
ráðhússframkvæmda Davíðs
Oddssonar. Enginn vafi er á þvf
að draumurinn breytist brátt í
martröð ef svo heldur fram sem
verið hefur. - Hinn möguleikinn
er einnig fyrir hendi að Davíð
losni undan álagadraumum sín-
um, opni augun fyrir veruleikan-
um, hlýði á varnaðarorð fólksins í
borginni og taki loks upp á því að
notast við leikreglur lýðræðis,
laga og reglugerða.
Mjög óvíst er að borgarbúar ali
þann draum með borgarstjóran-
um að við litla tjörn og lágan sand
í Kvosinni eigi að rísa rándýrt
musteri til dýrðar hégómanum -
ráðríkishús borgarstjórans, emb-
œttisvaldinu til dýrðar.
Kerling
KALU OG KOBBI
Það skiptir mestu að hann
komst ekki nógu nálægt til
að stinga.
Hann virðist halda að ég sé
Vonandi áttu sjálfur eftir að
eiga krakka sem reynir
ærlega á þolrifin í þér.
GARPURINN
FOLDA
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og
kvöldvarsla lyfjabúða vik-
una
15.-21. jan. er I laugarnes-
apóteki og Ingólfs Apóteki.
Fyrmefnda apótekið er opið
um helgar og annast nætur-
vörslu alla daga 22-9 (til 10
fridaga). Siðarnefnda apó-
tekið er opið á kvöldin 18-22
virka daga og á laugardögum
9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík.....sími 1 11 66
Kópavogur....simi4 12 00
Seltj.nes....sími61 11 66
Hafnarfj......sími 5 11 66
Garðabær......sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík.....sími 1 11 00
Kópavogur.....sími 1 11 00
Seltj.nes.....símil 11 00
Hafnadj.......simi 5 11 00
Garðabær......simi 5 11 00
Heimsóknartímar: Landspft-
allnn: alla daga 15-16,19-20.
Borgarspitalinn: virka daga
18.30-19.30, helgar 15-18. og
eftirsamkomulagi. Fæðing-
ardeild Landspítalans: 15-
16. Feðratími 19.30-20.30.
Öldrunariækningadeild
Landspítalans Hátúni 10 B:
Alla daga 14-20 og eftir
samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala:virkadaga 16-
19.30 helgar 14-19.30 Heilsu-
vemdarstöðln við Baróns-
DAGBÓK
stig:opinalla'daga 15-16og
18.30- 19.30 Landakots-
spftall: alladaga 15-16og
18.30- 19.00 Barnadeild
Landakotsspítala: 16.00-
17.00. St. Jósefsspftall
Haf nariirði: alla daga 15-16
og 19-19.30 Kleppsspftal-
Inn: alla daga 18.30-19 og
18.30- 19 SjúkrahúsiðAk-
ureyrl: alla daga 15-16 og 19-
19.30. Sjúkrahúslð
Vestmannaeyjum: alla daga
15-16og 19-19.30. Sjúkra-
hús Akraness: alla daga
15.30- 16og 19-19.30.
S|úkrahúslðHúsavfk: 15-16
og 19.30-20.
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykja-
vik, Seltjarnarnes og
Kópavog er í Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur aila
virkadaga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum
og helgidögum allan sólar-
hringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingarog tíma-
pantanir f síma 21230. Upp-
lýsingar um lækna og lyfja-
þjónustu eru gefnar í sím-
svara 18885.
Borgarspftalinn: Vakt virka
daga kl. 8-17 og fyrir þásem
ekki hafa heimilislækni eða
ná ekki til hans. Slysadeild
Borgarsþítalans oþin allan
sólarhringinn sími 696600
Dagvakt. Upplýsingarumda-
gvakt lækna s. 51100. Næt-
urvaktlæknas.51100.
Hafnarfjörður: Heilsugæsla.
Upplýsingar um dagvakt
lækna s. 53722. Næturvakt
læknas. 51100.
Garðabær: Heilsugæslan
Garðatlöts. 656066, upplýs-
ingar um vaktlækna s. 51100.
Akureyrl: Dagvakt8-17á
Læknamiðstöðinni s. 23222,
hjáslökkviliðinu s. 22222, hjá
Akureyrarapóteki s. 22445.
Keflavfk: Dagvakt. Upplýs-
ingar s. 3360. Vestmanna-
eyjar: Neyðarvakl lækna s.
1966.
ÝMISLEGT
Bilananavakt rafmagns- og
hltaveitu: s. 27311 Raf-
magnsveita bilanavakt s.
686230.
Hjaiparstöð RKl, neyöarat-
hvarf fyrir unglinga Tjarnar-
götu 35. Sími: 622266 opið
allansólarhringinn.
Saifræðlstöðln
Ráðgjöf í sálfræðilegum efn-
um.Sími 687075.
MS-fólaglð
Álandi 13. Opið virka daga f rá
kl. 10-14. Sími 688800.
Kvennaráðgjöfln Hlaðvarp-
anum Vesturgötu 3. Opin
briðiudaaa kl.20-22, simi
21500, simsvari. Sjálfshjálp-
arhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum, s.
21500, símsvari.
Uppiýslngar um
ónæmistærlngu
Upplýsingar um ónæmistær-
ingu (alnæmi) í síma 622280,
milliliöalaust samband við
lækni.
Frá samtökum um kvenna-
athvarf, siml 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir kon-
ur sem beittar hafa verið of-
beldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökln 78
Svarað er I upplýsinga- og
ráðgjafarsíma Samtákanna
'78 félags lesbía og homma á
Islandi á mánudags- og
fimmtudagskvöldum kl. 21 -
23. Símsvari á öðrum tímum.
Síminner 91-28539.
Fólageldriborgara: Skrif-
stofan Nóatúni 17, s. 28812.
Félagsmiðstöðin Goðheimar
Sigtúni3,s. 24822.
GENGIÐ
19. janúar
1988 kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar 37,110
Sterlingspund... 65,868
Kanadadollar.... 28,829
Dönsk króna..... 5,7629
Norskkróna...... 5,7799
Sænskkróna...... 6,1400
Finnskt mark.... 9,0800
Franskurfranki.... 6,5490
Belgiskurfranki... 1,0583
Svissn. franki.. 27,1371
Holl. gyllini... 19,6703
V.-þýsktmark.... 22,0972
Itölsklíra..... 0,03011
Austurr. sch.... 3,1403
Portúg. escudo... 0,2690
Sþánskurpeseti 0,3261
Japansktyen..... 0,28634
(rsktpund....... 58,777
SDR............... 50,5449
ECU-evr.mynt... 45,6824
Belgískurfr.fin. 1,0555
KROSSGÁTAN
Lárótt: 1 gráða 4 hyggja 6
hross 7 viljugi 9 sár 12
skarð 14 dropi 15 endir 16
kirtla 19 þekking 20 vlk 21
landfarsótt
Lóðrótt: 2 traust 3 skarð 4
ungdóm 5 fugl 7 skjátlast 8
hál 10 skekkja 11 suma 13
sigað 17 slæm 18 reglur
Lausn á slðustu
krossgátu
Lárétt: 1 æska 4 blær 6
nær 7 sess 9 (var 12 viska
14 rói 15 rás 16 lokka 19
plat 20 ösli 21 raust
Lóðrótt: 2 ske 3 ansi 4 brík
5 æfa 7 skrípi 8 svilar 10
varast 11 roskin 13 sök 17
ota 18 kös
Föstudagur 22. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 <