Þjóðviljinn - 22.01.1988, Blaðsíða 15
Um helgina
Pað verður ýmislegt að gerast
um helgina í öllum greinum
íþrótta.
Handknattleikur
1. deild karla hefst að nýju á
sunnudaginn eftir langt vetrarfrí.
Á Akureyri mætast Þór og FH. í
Digranesi leika Stjarnan og KA
og í Seljaskóla tekur ÍR á móti
Víkingi. Leikur Vals og Fram sem
frestað var á miðvikudag verður
einnig leikinn á sunnudaginn í
íþróttahúsi Vals að Hlíðarenda.
Allir leikirnir hefjast kl. 20.
Á mánudaginn verður síðasti
leikur þessarar umferðar leikinn
er KR og Breiðablik mætast í
Höllinni kl. 20.
Um helgina verða einnig túrn-
eringar í 3. og 5. flokki karla og
kvenna.
Körfuknattleikur
Á laugardag verða leiknir tveir
leikir í körfuknattleik. í 1. deild
karla mætast lið UÍA og Reynis á
Egilsstöðum og í 1. deild kvenna
keppa UMFG og ÍBK í Grindavík.
Báðir leikirnir hefjast kl.14.
Á sunnudaginn verða tveir
leikir í 1. deild kvenna. í Njarðvík
leika UMFN og ÍS en í Hafnarfirði
keppa Haukar og ÍR. Leikirnir
hefjast kl.14. Strax á eftir leiknum
í Njarðvík leikur 2. flokkur UMFN
við Hauka kl. 15:30 og kl.17:00
hefst leikur UMFNb og ÍS í 1.
flokki karla. Loks verður einn
leikur í 1. deild karla er HSK fær
(R-inga í heimsókn í íþróttahús
Selfoss kl.14.
ÍÞRÓTTIR
Það verða Valur og FH sem berjast um íslandsmeistaratitilinn, að mati samtaka 1. deildarfélaganna. Mynd:E.ÓI.
íslandsmótið í handknattleik
Samtök 1. deildarfélaga
velja lið fyrri umferðar
Knattspyrna
Framhald verður á íslands-
mótinu í knattspyrnu um helgina.
Á föstudag verður keppt í
meistaraflokki kvenna og hefjast
leikirnirkl. 15. Úrslitaleikirnir hefj-
ast kl. 22:12.
Á laugardag hefst keppni í 4.
deild karla kl. 9 og keppni í 1.
deild kl. 13:24. Keppninni verður
fram haldið á sunnudag og hefj-
ast úrslitaleikirnir kl. 20.
Hlaup
Götuhlaup
UBK
Á laugardaginn heldur Breiða-
blik svokallað götuhlaup í Kópa-
vogi. Verður lagt af stað frá
Vallargerðisvelli í vesturbænum.
klukkan 14.00 og er þeim sem
hyggja á þátttöku bent á að skrá
sig hjá Einari Sigurðssyni í síma
73382. Munu karlar hlaupa 6
kflómetra og konur og drengir
3,5 km. _ste
í gær boðuðu samtök 1.
deildarfélaga í handknattleik til
blaðamannafundar þar sem m.a.
var tilkynnt val samtakanna á
þeim leikmönnum 1. deildar sem
hafa þótt skara framúr í fyrri um-
ferð lslandsmótsins.
Samtökin báðu þrjá valin-
kunna handknattleiksmenn um
að velja lið fyrri umferðarinnar.
En þeir voru Bergur Guðnason,
Bjarni Jónsson og Ragnar Jóns-
son. Liðið sem þeir völdu var
skipað eftirtöldum leikmönnum:
Einar Þorvarðarson Val, Valdi-
mar Grímsson Val, Héðinn Gils-
son FH, Þorgils Óttar Mathiesen
FH, Júlíus Gunnarsson Fram,
Óskar Ármannsson FH og Kon-
ráð Olavsson KR.
Einnig fór fram nokkur um-
ræða um stöðuna í deildinni og
hver væri líkleg framvinda mála.
Flestir voru sammála um að Val-
ur og FH væru líklegustu liðin til
að sigra á íslandsmótinu. Einnig
kom það fram að flestir spáðu
Þór falli í aðra deild. Hallur
Hallsson formaður handknatt-
leiksdeildar Víkings benti þó á að
öll lið væru í fallhættu nema Val-
ur og FH.
Knattspyrna
Manchester liðin töpuðu
„Mótið hefur verið skemmti-
legt það sem af er. Augljóst er á
auknum áhorfendafjölda að
handboltinn er á uppleið,“ sagði
Bjarni Jónsson. „Seinni umferð-
in verður án efa mjög spennandi
bæði á toppi og botni deildarinn-
ar. Þó er útlit fyrir að 1. deildin
verði ennþá meira spennandi
næsta ár vegna þeirra manna sem
eru að koma heim.“
Viggó Sigurðsson sat fundinn
og vildi koma á framfæri gagnrýni
á mótanefnd HSÍ fyrir að neita
nærri því alfarið að breyta
leikdögum. Hallur tók undir
þetta sjónarmið Viggós og benti á
erfiðleika Víkinga s.l. vetur er
þeir þurftu að spila fimm erfiða
Íeiki á 12 dögum, þar af tvo Evr-
ópuleiki.
1. deildin í handboltanum fer
aftur af stað eftir langt vetrarfrí
um helgina en þá leika Valur og
Fram, Þór og FH, Stjarnan og
KA, ÍR og Víkingur og KR og
Breiðablik. Allir leikirnir verða
leiknir á sunnudag kl. 20 nema
leikur KR og Breiðabliks en hann
verður leikinn á mánudag á sama
tíma.
-ih
r Handbolti
Osanngjam Fram sigur
Ármann lék með sorgarbönd gegn Fylki hjá
körlum
í gærkveldi voru leiknir tveir
leikir í Höllinni. Fram stúlkur
léku gegn Haukum og unnu
óverðskuldaðan sigur. Gaflara-
stelpurnar byrjuðu vel og voru
betri en náðu ekki að skora í sam-
ræmi við það. Var það aðallega
markvörður Fram stúlknanna
sem bjargaði þeim.
Ármann vann
Fram-Haukar 19-15(11-8)
Mörk Fram: Guðríður Guð-
jónsdóttir 6, Jóhanna Halldórs-
dóttir 2, Arna Steinsen 4, Ingunn
Bernódusdóttir 4, Ósk Víðisdóttir
1 og Hafdís Guðjónsdóttir 2
Mörk Hauka: Ragnheiður Júlí-
usdóttir 1, Hrafnhildur Pálsdóttir
1, Steinunn Þorsteinsdóttir 2,
Inga Vala Kristinsdóttir 1 og Mar-
grét Theódórsdóttir 10.
Dómarar: Vigfús Þorsteinsson
og Egill Már Vignisson dæmdu
mun minna á Fram.
Haukar unnu ÍBV
Fjórir leikir fóru fram í 2. deild
karla í íslandsmótinu í hand-
knattleik á miðvikudagskvöldið.
í Hafnarfirði mættust lið
Hauka og ÍBV. Haukarnir gerðu
sér lítið fyrir og sigruðu Vest-
mannaeyingana sem töpuðu
þarna sínum fyrsta leik á tímabil-
inu. Haukamenn spiluðu þennan
leik mjög vel og af öryggi. Það
var markvörðurinn Þorlákur
Kjartansson sem átti stærstan
þátti í sigrinum ásamt Árna
Hermannsyni. Þorlákur stóð sig
eins og hetja í markinu og skoraði
auk þess tvö mörk, úr víti og með
langskoti. Árni Hermannsson
var markahæstur Haukamanna,
skoraði 9 mörk.
Sigurbjörn Óskarsson var at-
kvæðamestur Eyjamanna,
skoraði 7 mörk.
Á Selfossi tóku heimamenn á
móti Gróttu. Gróttumenn sigr-
uðu í leiknum 28-24. Þessi úrslit
koma ekki á óvart þar sem Grótta
er í öðru sæti deildarinnar en Sel-
foss í því sjöunda.
HK tapaði óvænt fyrir Reyni í
Sandgerði 31-29. HK á í mikilli
baráttu um 1. deildarsæti og voru
þetta því mililvæg stig sem liðið
tapaði. Mótlætið fór heldur í
taugarnar á Kópavogsbúunum og
fékk Kristján Gunnarsson að líta
rauða spjaldið fyrir ruddalegan
munnsöfnuð.
f Njarðvík mættust lið heima-
manna og Aftureldingar. Njarð-
vík sigraði 24-23 í hörkuspenn-
andi leik. Síðustu mínúturnar
misstu Njarðvíkingar þrjá menn
útaf en náðu þrátt fyrir það að
halda forystunni til enda.
4h
Karate
Goju-Kai
karate-do
Á morgun laugardag 23.jan
verður haldið meistaramót í
Goju-Kai karate sem er önnur
tveggja stfltegunda í karate hér-
lendis. Mótið hefst kl. 14 og
stendur til kl. 17.
Keppendur verða á öllum aldri
frá eftirtöldum félögum: K.F.R.,
Karatedeild Stjörnunnar, Karat-
edeild Baldurs Hvolsvelli og Kar-
atefélagi Þorlákshafnar. Öll þessi
félög eru aðilar í Alþjóða Goju-
Kai sambandinu, I.G.K.A.
Aðaldómarar mótsins verða
Atli Erlendsson og Árni Einars-
son. Aðrir dómarar verða Jónína
Olsen, Stefán Alfreðsson og
Halldór Svavarsson.
Aðgangseyrir er kr. 50.- en
frítt verður fyrir börn yngri en 12
—Fréttatilkynning
Everton og Oxford sigruðu
Manchester Utd. og City í ensku
deildarbikarkeppninni. Arsenal
vann Sheffield Wednesday.
Oxford sigraði Manchester Un-
ited mjög óvænt í ensku deildar-
bikarkeppninni á miðvikudag.
Oxford hefur ekki tapað á
heimavelli í ensku deildarbikar-
keppninni í 27 leikjum í röð.
Bæði mörk Oxford voru gerð í
fyrri hálfleik. Fyrra markið gerði
Dean Saunders á 21. mínútu.
Síðara markið kom 13 mínútum
síðar er Gary Briggs skallaði bolt-
ann í netið.
Arsenal vann Sheffield We-
dnesday mjög óverðskuldað 1-0 á
heimavelli Sheffield. Það var
andartaks gáleysi markvarðar
Sheffield, Martin Hodge, sem
tryggði Arsenal sigur. Skot Nigel
Winterburn af 25 metra færi rann
úr höndum markvarðarins og í
markið.
Það var reynsla leikmanna
Everton sem tryggði þeim sigur
gegn Manchester City 2-0. Það
voru skallamörk Adrian Heath
og Graeme Sharps sem tryggðu
Everton sigur. Colin Harvey,
framkvæmdastjóri Everton, var
ekki sérlega ánægður með
frammistöðu sinna manna, þrátt
fyrir sigurinn. Leikmenn Everton
bókstaflega óðu í færum en tókst
ekki að skora nema þessi tvö
mörk.
Luton er fjórða liðið sem
kemst í undanúrslit enska
deildarbikarsins en liðið sigraði
Bradford á þriðjudag 2-0.
í gær var dregið í undanúrslit
deildarbikarkeppninnar og dróg-
ust lið Everton og Arsenal saman
og lið Luton og Oxford. Leiknir
verða tveir leikir heima og
heiman. Fyrri leikirnir fara fram
7. og 10. febrúar en síðari leikirn-
ir 24. og 28. febrúar.
-ih/reuter
Einn leikur var í 2. deild karla.
Ármann vann Fylki í mjög
jöfnum leik. Leikurinn var jafn
framan af en þegar 15 mín voru
eftir tóku Ármenningar sig vel á
og gerðu út um leikinn með fimm
mörkum. Ármenningar léku með
sorgarbönd því Gunnar Eggerts-
son formaður félagsins var jarð-
settur í gær.
Ármar.n-Fyikir: 20-17(10-10)
Mörk Ármanns: Björn Jó-
hannesson 4, Haukur Haralds-
son 1, Haukur Ólafsson 1, Ingi
Jónsson 1, Þráinn Ásmundsson
3, Óskar Ásmundsson 2 og Björ-
gvin Barðdal b.
Mörk Fylkis: Jón Oddur Da-
víðsson 2, Elís Sigurðsson 1,
Leifur Árnason 3, Haukur
Magnússon 7 og Magnús Sig-
urðsson 4.
Dómarar: Einar Sveinsson og
Gunnar Viðarsson voru góðir og
höfðu góð tök á leiknum.
-ste
Föstudagur 22. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
1X2... 1X2... 1X2... 1X2... 1X2...
Getraunir
Miljóneri
var Úlfar Óttarsson einn með 12
rétta í síðustu viku. Hlaut hann
tæpar 2.700.000,00 krónur fyrir.
rétta og
25.482,00.
var hlutur þeirra
20. vika
i a - '-i ^ p
'o -Ci ^ ,5 a'o ^ !o -S,
'fi'SdSQtcasí'í
Charlton-Liverpool....
Chelsea-Portsmouth....
Coventry-Luton........
Derby-QPR.............
Everton-Wimbledon.....
Newcastle-Tottenham...
Oxford-Sheffield W....
Southhampton-Norwich
Watford-Nott.Forest...
Ipswich-Blackburn.....
Man.City-Aston Villa..
Middlesboro-Crystal P..
2 22222222
,x 1 1 1 1 1 1 1 1
.x x 1 2 x 1 1 1 1
.2 1 1 x x 1 1 1 x
.1 1 1 1 1 1 1 1 x
.2 2 2 1 2 1 x x 2
. x 2 2 x 1 2 1 1 2
.1x1x11111
.2x222x21 x
.1 2 1 1 x x 1 1 1
..x 1 2 x 2 x 1 x x
.11121x1x2
Sjónvarpsleikurinn er Watford-Nottingham Forest.