Þjóðviljinn - 03.02.1988, Side 1
Miðvikudagur 2. febrúar 1988 26. tólublað 53. árgangur
VMSt-VSÍ
Suðurnes
Kröfugerðin slípuð
VMSÍslíparfyrri kröfur. Formlegar kröfur lagðarfram í gœr. Krafist9%
taxtahækkana. Samningar gilditil aprílloka. Hagfrœdingaeinvíginu lokið -
eiginlegar viðrœður hafnar
Eftir óformleg tilboð og kjara-
kröfur í samningaviðræðum
Verkamannasambandsins og at-
vinnurekenda í Garðastræti,
lagði VMSÍ loksins fram form-
lega kröfugerð í gær eftir að
framkvæmdastjórn sambandsins
hafði fundað í gærmorgun og
slípað áður samþykkta kröfu-
gerð. Hin nýja kröfugerð VMSÍ
er efnislega samhljóða því sem
Þjóðviljinn hefur áður greint frá.
Farið er fram á 9% hækkun
kauptaxta, starfsaldurshækkanir
og ákveðna fasta krónutölu þeim
til handa sem njóta ekki annarra
launagreiðslna en fastra launa.
Krafa er gerð um að samningar
gildi ekki lengur en til 30. aprfl.
Jafnframt gerir VMSÍ að kröfu
að námskeiðsálög fiskverkafólks
hækki um helming frá því sem nú
er. VMSÍ-menn kjósa að líta svo
á að aðrar kröfur en 9% hækkun
taxtakaups, samsvari því sem
ýmsir aðrir ASÍ hópar fengu í
fyrra með fastlaunasamningum.
Eins og Þjóðviljinn greindi frá í
gær leggja atvinnurekendur
áherslu á að samið verði til ársins
og gert VMSÍ óformlegt tilboð
um að kauphækkanir verði í sam-
ræmi við launalið Vestfjarða-
samningsins.
- Það er orðin regla í samning-
um að deiluaðilar láti hagfræð-
ingana etja kappi saman og þrefa
um þjóðhagsstærðir og útlit og
horfur í efnahagsmálum, áður en
menn hefja eiginlegar samninga-
viðræður, sagði einn samninga-
nefndarmanna VMSí í gær eftir
fund framkvæmdastjórnar.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er verulegrar óánægju far-
ið að gæta innan verkalýðshreyf-
ingarinnar um seinagang við-
ræðna í Garðastræti og telja
sumir að VMSÍ verði að fara að
hyggja að kröfugerð sem hæfi
samningum til lengri tíma.
Er blaðið fór í prentun í gær-
kvöldi var samningafundi ekki
lokið.
-rk
Fóru
vestur
Samninganefndarmenn verka-
lýðsfélaganna á Suðurnesjum
undir forystu Guðrúnar Ólafs-
dóttur, formanns Verkakvenna-
félags Keflavíkur, eru staddir á
Vestfjörðum til að kynna sér
samning Alþýðusambands Vest-
fjarða um hópbónus og hluta-
skipti. Sendinefndin hélt vestur á
firði s.l. sunnudag og er væntaleg
til síns heima aftur í kvöld.
Guðrún Ólafsdóttir, sem á sæti
í framkvæmdastjórn Verka-
mannasambandsins og samn-
inganefnd VMSÍ, hefur því ekki
getað tekið þátt í samningafund-
um í Garðastræti síðan um helgi.
Nýr samningafundur með
verkalýðsfélögunum á Suður-
nesjum og atvinnurekendum hef-
ur ekki verið boðaður.
-rk
Ýsuverð
50%1ækkun
Bjarni Thors hjá Faxa-
markaði: Mikiðframboð
afýsufrá Kanada á
Bandaríkjamarkaði
„Ýsuverðið datt alveg niður á
fiskmörkuðunum um og eftir ára-
mótin, vegna mikils framboðs af
ýsu frá Kanada á Bandaríkja-
markaði. Kflóið af ýsunni gat far-
ið upp í 100 krónur, vegna þess að
vissir aðilar keyptu hana til sölu
fyrir vestan og sendu með flugi. I
dag halda þessir aðilar að sér
höndum“, sagði Bjarni Thors,
framkvæmdastjóri Faxamarkað-
ar við Þjóðviljann.
í dag er verðið fyrir ýsuna allt
að helmingi lægra, eða frá 38 og
uppí rúmlega 60 krónur.
Að sögn Bjarna var það al-
gengt að ýsuverðið var sprengt
upp til að ná henni á markað í
Bandaríkjunum og það varð til
þess að fisksalar urðu að yfir-
bjóða oft á tíðum til að fá hráefni
fyrir sína kúnna. -grh
Grænfóðurverksmiðjur
Mikil
fækkun
Arið 1983 voru sex grænfóður-
verksmiðjur starfandi á landinu.
Siðastliðið sumar voru þær að-
eins þrjár: Fóðuriðjan í Ólafsdal,
Brautarholtsbúið á Kjalarnesi og
Vallhólmar í Skagafírði. Fóður
og fræ í Gunnarsholti, Stórólfs-
vallabúið og Graskögglaverk-
smiðjan í Flatey í Austur-Skafta-
fellssýslu voru ekki í rekstri.
Framleiðslan skiptist þannig á
verksmiðjurnar: Vallhólmur
1400 lestir, Fóðuriðjan í Ólafsdal
1250 lestir og Brautarholtsbúið
1230 lestir, eða 3.880 lestir alls.
Hér er um feikimikinn sam-
drátt að ræða frá því að grænfóð-
urframleiðslan var mest. Það var
árið 1984 en þá var hún 13.120
lestir. Síðan hefur hún farið
hraðminnkandi og er nú ekki
orðin nema svipur hjá sjón, enda
hafa flestir bændur undanfarið
búið að miklum og góðum
heyjum. - mhg
Býsna marga hildi háð..................................
Næsta mánudag kl. 20.00 setja fé- brún á bann við nætur-og helgidaga- tíma verða þeir í vaktavinnuverkfalli. sem samþykkt hafa verkfallsheimild.
lagar í Verkamannafélaginu Dags- vinnu við Reykjavíkurhöfn. Frá sama Sífellt fjölgar þeim verkalýðsfélögum
Kaupleigan
Nýtt bitbein stjómarflokka
Geir Haarde: Stórar og smáar breytingar verður að gera. Þingflokkur
Framsóknar saltar málið
að er greinilegt að það verður aðamót. Samkvæmt heimiidum salta málið um sinn. Um kaupleigufyrirkomulagið,“
að gera breytingar á frum- Þjóðviljans mun þingflokkur „Áhittberhinsvegaraðlíta,að sagði Geir Haarde.
varpinu áður en þingflokkur Framsóknar hafa ákveðið að í stjórnarsáttmálanum er ákvæði -Sáf
Sjálfstæðisflokksins getur sam-
þykkt það, sagði Geir Haarde um
frumvarp Jóhönnu Sigurðardótt-
ur um kaupleiguíbúðir.
Geir sagði að þar væri bæði um
stórar breytingar og smáar en
hann vildi ekki fara nánar út í
einstaka þæ tti frumvarpsins.
Jóhanna Sigurðardóttir mun
hafa sent þingflokkurn nkis-
stjórnarinnar frumvarpið til at-
hugunar og farið fram á að þeir
xafgreiddu það frá sér fyrir mán-
Alþjóðlegur varaflugvöllur
Staðarvals brátt að vænta
N
unnið hefur að athugun á
heppilegu staðarvali fyrir alþjóð-
legan varaflugvöll, er að vænta
innan fárra vikna. Samkvæmt
upplýsingum Flugmálastjórnar
sem er einn aðila að úttektinni, er
gengið út frá 3000 metra flug-
braut, sem nýtist öllu alþjóðlegu
millilandaflugi, jafnt í friðsam-
legri sem hernaðarlegri þágu.
Ekki reyndist unnt að fá upp-
lýsingar um hvaða staðir öðrum
fremur koma til greina fyrir vara-
flugvöll. Vitað er að Egilsstaðir,
Aðaldalur, Sauðárkrókur og Ak-
ureyri hafa verið inní myndinni.
Starfshópinn skipa fulltrúi frá
Náttúruverndarráði, Almennu
verkfræðistofunni, flugstjóri frá
Flugleiðum og veðurfræðingur
auk fulltrúa Flugmálastjórnar.
-rk