Þjóðviljinn - 03.02.1988, Side 3
FRETTIR
Hraðfrystihús Patreksfiarðar
Sigur í fyrstu omistu
Byggðastofnun lánar35 milljónir króna. Skilyrtað Lands-
bankinn og SÍS komi til móts viðfyrirtœkið.
Sigurður Viggósson, stjórnarformaður: Afar ánœgðir
með þessi málalok
Alþingi
Þórður
tekur sæti
Þórður Skúlason, sveitarstjóri
á Hvammstanga hefur tekið sæti
á Alþingi, sem varamaður Ragn-
ars Arnalds, en Ragnar er í
veikindaleyfi. Þórður hefur áður
setið sem varamaður á Alþingi.
- Sáf
Við erum að sjálfsögðu afar
ánægðir með þessi málalok og
það má segja að fyrsta orrustan
hafi unnist með þessari af-
greiðslu. í framhaldi af þessu
munum við óska eftir viðræðum
við Landsbankann um okkar mál
og einnig geri ég ráð fyrir að SÍS
auki eignarhlut sinn í fyrirtæk-
inu. Hver hann verður get ég ekki
sagt til um nákvæmlega, en það er
næsta víst að hann verður þó
nokkur, sagði Sigurður Viggós-
son, stjórnarformaður Hrað-
frystihúss Patreksfjarðar við
Þjóðviljann.
Á stjórnarfundi Byggðastofn-
unar í gær var samþykkt að lána
hraðfrystihúsi Patreksfjarðar 35
milljóna króna til að koma rekstri
fyrirtækisins á réttan kjöl, en það
hefur verið iokað vegna raf-
magnsskulda við Orkubú Vestf-
jarða síðan 15. desember sl.
Að sögn Bjarna Einarssonar,
aðstoðarforstjóra Byggðastofn-
unar er lánið til 10 ára og afborg-
unarlaust fyrstu 2 árin. Skilyrði
fyrir láninu er ma. að bæði
Landsbankinn greiði götu fyrir-
tækisins og einnig að SIS auki við
eignarhlut sinn í fyrirtækinu.
„Við munum fylgjast með
framvindu mála hjá fyrirtækinu
hér eftir og við gerum ráð fyrir
því að þurfa ekki næstu árin að
hafa frekari afskipti af fyrirtæk-
inu, eftir þessi málalok", sagði
Bjarni Einarsson við Þjóðvilj-
ann.
Undir þetta tók Sigurður
Viggósson og sagði að eftirleiðis
yrði Hraðfrystihúsið rekið af full-
um krafti með þau sjónarmið í
huga að það skili arði og þyrfti
ekki að leita á náðir Byggðastofn-
unar næstu árin. En skuldir fyrir-
tækisins eru rúmlega sú fjárhæð
sem Byggðastofnun lánaði í gær.
Þegar Hraðfrystihúsið lokaði í
desember sl. unnu hjá því um 60
manns, en eitthvað af fólkinu
hefur á þessum tíma leitað í aðra
vinnu, en Sigurður bjóst fastlega
við því að það skilaði sér til baka
þegar vinnsla hæfist. -grh
Laufey Gunnarsdóttir meinatæknir, krukkar í gallblöðru á Rannsóknarstofu Háskólans. Sig.
Meinatœknar
Hyggjast stofna
stéttarfélag
Mikillmeirihlutifylgjandiþví. Alíta aðþeir
munu standa betur í samningum sameinaðir
Íatkvæðagreiðslu Meinatækna-
félags íslands var mikill meiri-
hluti fylgjandi stofnun sérstaks
stéttarfélags. Nýja félagið mun
semja um kaup og kjör, en í dag
sjá mörg félög um þau mál fyrir
hönd meinatækna.
Marta Hjálmarsdóttir, vara-
formaður Meinatæknafélags ís-
lands, sagði að dreifing meina-
tækna á mörg féiög tryggði ekki
nægilega markvissan málflutning
fyrir þennan starfshóp í samning-
um. Meinatæknar eru nú í
tveimur fjölmennum félögum,
Starfsmannafélagi ríkisstofnana
og Starfsmannafélagi Reykjavík-
ur, auk starfsmannafélaga ýmissa
sveitarfélaga. Hugmyndin um
stofnun stéttarfélags væri ekki
ný, en nú ætti að láta verða af
henni.
Rúmlega 300 félagar eru í
fagfélagi meinatækna. Af þeim
191 sem greiddu atkvæði voru
175 meðmæltir stofnun stéttarfé-
lags.
-*nj
Húsnœðisloforð
Biðtíminn lengist stöðugt
Húsnœðisstofnun getur sinnt300 umsóknum mánaðarlega en
frá því í mars til nóvember á síðasta ári bárust að meðaltali
612 umsóknir ámánuði. Biðtímiforgangshópsins nú um tvö
ár en mun fara stigvaxandi frá og með í vor
eir sem sóttu um lán hjá Hús-
næðisstofnun í nóvember í
fyrra og tilheyra forgangshópn-
um, geta átt von á lánsloforði í
október í ár. Samkvæmt nýju lög-
unum skal lánsloforðið sent út ári
áður en fyrri hluti lánsins kemur
til útborgunar, þannig að biðtím-
inn fyrir þá sem sóttu um lán í lok
síðasta árs og tilheyra forgangs-
hópnum er orðinn tvö ár.
Biðtími þeirra sem tilheyra
bakhópnum er helmingi lengri
þannig að þeir geta reiknað með
að fá fyrri hluta lánsins í lok árs-
ins 1992. Lánsloforð til þeirra
berast því ekki fyrr en í lok ársins
1991.
Frá 12. mars til loka nóvember
í fyrra bárust Húsnæðisstofnun
5.508 umsóknir um húsnæðislán.
Langflestar voru umsóknirnar í
mars, eða 836 talsins en fæstar í
júní, 468 talsins. Að meðaltali
bárust stofnuninni 612 umsóknir
á mánuði um F- og G-lán. Með
nýju iögunum er reiknað með að
helmingur umsækjenda tilheyri
forgangshópnum og helmingur
bakhópnum, en fyrir nýju lögin
voru um 40% umsækjenda í forg-
angshópi en 60% í bakhópnum.
Lögin lengja því biðtíma þeirra
sem tilheyra forgangshópnum og
það sem verra er, biðtíminn mun
stöðugt lengjast.
Reiknað er með að Húsnæðis-
stofnun geti lánað um 3000
manns á ári, sem er innan við 300
manns á mánuði og er miðað við
það þegar lánsloforð eru send frá
stofnuninni. Alls bárust stofnun-
inni 836 umsóknir fra 12. mars til
loka mánaðarins og tilheyri
helmingur þeirra forgangshópn-
um eru það 414 manns.
Nú um mánaðamótin átti að
fara að senda út fyrstu lánsloforð-
in og gefum við okkur að fjöldi
þeirra verði um 300 talsins þá
munu 114 af þeim sem tilheyra
forgangshópnum og sóttu um lán
í mars ekki fá lánsloforð fyrr en í
mars. Biðtími þeirra eftir fyrri
hluta lánsins erkominn í tvö ár.
Þeir sem tilheyra bakhópnum
og lögðu inn umsókn í mars í
fyrra geta því átt von á lánsloforði
í mars 1990 þannig að fyrri hluti
lánsins komi til útborgunar vorið
1991. Þegar farið verður að senda
lánsloforð til bakhópsins mun
hægja um helming á lánsloforð-
um til forgangshópsins, sem þýð-
ir að þeir sem sækja um í júní í ár
og seinna og tilheyra forgangs-
hópnum geta búist við að biðtím-
inn lengist stigvaxandi.
Ef við gefum okkur að svipað-
ur fjöldi umsókna berist áfram,
eða um 600 umsóknir á mánuði
og hlutfallið milli þessara tveggja
hópa verði svipað og nú er
reiknað með, fá ekki nema 150
þeirra sem sækja um í mars í ár
loforð í mars 1990. 150 fá svo lof-
orð mánuði seinna. Það tekur því
tvo mánuði að sinna mánaðarum-
sóknum hjá forgangshópnum og
sama gildir um bakhópinn. Bið-
tíminn fer því stigvaxandi hjá
báðum hópum.
-Sáf
Alþýðubandalagið
Byggða-
mem
-Umræður um verkaskiptingu
rtkis og sveitarfélaga mun trúlega
setja mestan svip á þessa ráð-
stefnu Byggðamanna Alþýðu-
bandalagsins, enda er mjög heit
umræða um þessi mál bæði heima
í héruðum og á Alþingi, segir
Svanfríður Jónasdóttir varafor-
maður Alþýðubandalagsins, en
sveitarstjórnarmenn flokksins af
öllu landinu munu funda í Kópa-
vogi um næstu helgi.
-Það er einnig óhjákvæmilegt að
inn í þessa umræðu um verka-
skiptinguna blandist umræðan
um almenna stöðu sveitarfélag-
anna og möguleika þeirra til að
taka við fleiri verkefnum og þá
um leið hugmyndir okkar í Ál-
þýðubandalaginu um breytingar í
stjórnkerfinu.
Svanfríður sagðist eiga von á
góðri þátttöku á ráðstefnu
Byggðamanna sem hefst kl. 13 á
laugardaginn í Þinghóli í Kópa-
vogi. -Þessi vettvangur okkar
sveitarstjórnarmanna og annarra
áhugamanna um sveitarstjórn-
armál er mjög nauðsynlegur til að
stiila saman strengi, fá upp nýjar
hugmyndir og tillögur og ekki síst
að fá að læra af þeim sem lengi
hafa starfað að sveitarstjórnarm-
álum, sagði Svanfríður.
-•g-
Kjörin
Samtök kvenna?
Fundur á Borginni í kvöld
„Um hvað þarf að semja?“ er
umræðuefnið á fundi sem Samtök
kvenna á vinnumarkaði gangast
fyrir á Hótel Borg í kvöld, þarsem
fjallað verður um kjörin og
stöðuna í samningamálunum.
Framsögumenn verða Sigrún
Ágústsdóttir, Kristín Friðriks-
dóttir og Birna Þórðardóttir, en
Guðlaug Teitsdóttir stjórnar
fundinum. Að loknum framsögu-
ræðum verða almennar umræður
og hvetja samtökin allt launafólk
til að sækja fundinn.
Mlðvlkudagur 3. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3