Þjóðviljinn - 03.02.1988, Qupperneq 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Mlðvikudagur 3. febrúar 1968 26. tölublað 53. árgangur
Sparisjóðsvextir
á téKKareiKninga
með
hávaxtaKjörum
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Ratsjárstöðvar
Kynning fyrir verktaka
Þriðji áfangi ísmíði ratsjárstöðva kynntur erlendum verk-
tökum. 300 milljón dollaraframkvæmdir. „Varnarmála-
skrifstofan“ og Félag íslenskra iðnrekenda sjá um íslands-
kynningu
Neytendasamtökin
Gegn
einokun
Neytendasamtökin krefjast
þess að stjórnvöld afturkalli
reglugerð landbúnaðarráðherra
um framleiðslustýringu í fugla-
og svínarækt. Verði stjórnvöld
ekki við þessri kröfu samtakanna
sjá þau sig tiineydd til að hvetja
neytendur til aðgerða gegn einok-
unarverði á fugla- og svínakjöti,
sem er allt að fjórum sinnum
hærra hér á landi en í nágranna-
löndunum.
Stjórn Neytendasamtakanna
ályktaði um málið í gær. í ályktun
stjórnarinnar segir að reglugerð
landbúnaðarráðherra sé einungis
til þess fallin að viðhalda óviðun-
andi verði á þessum framleiðslu-
vörum.
Fulltrúar ríflega 30 erlendra
verktakafyrirtækja eru stadd-
ir hér á landi í boði NATO til þess
að fræðast um þriðja og síðasta
áfangann við smíði ratsjárstöðva
hersins, sem boðinn verður út í
sumar. Áætlað er að kostnaður
við síðasta áfangann, sem felst
meðal annars í uppsetningu
fjarskipta- og ratsjárbúnaðar
fyrir stöðvarnar, nemi litlum 300
mifjónum bandaríkjadala.
í dag er verktökunum boðið til
ráðstefnuhalds á Hótel Loft-
leiðum, sem Félag íslenskra iðn-
rekenda og „Varnarmálaskrif-
stofan“ hafa veg og vanda af.
Að sögn Arnþórs Þórðarson-
ar, hjá félagi iðnrekenda, var fé-
lagið beðið um aðstoð við ráð-
stefnuhaldið og því falið að
kynna íslenskar aðstæður og inn-
lenda verktakastarfsemi.
Arnþór sagði að útboð í þriðja
áfanga viö smíði ratsjárstöðv-
anna væri opið fyrir verktaka í
öllum aðildarlöndum NATO, en
það væru aðeins örfá verktaka-
fyrirtæki sem gætu valdið því
viðamikla nákvæmnisverki sem
hér væri um að ræða.
- íslenskir verktakar geta
komið inní verkið sem undirverk-
takar og þess vegna er mikilvægt
að erlendu verktökunum sé
kynnt starfsemi og sú þjónusta
sem íslenskir verktakar hafa
uppá að bjóða.
Meðal dagskráliða á ráðstefn-
unni er kynning á ratsjárstöðvun-
um sem NATO sér um og fulltrú-
ar setuliðsins á Keflavíkurflug-
velli rekja sögu hernaðarumsvifa
Bandríkjahers hér á landi.
Slökkviliðsmenn hafa í síauknum mæli verið kallaðir út til að slökkva eld í sjónvarpstækjum og slíkir eldsvoðar hafa oft valdið stórtjóni. Hér eru þeir Mart-
einn Geirsson og Guðmundur Jónsson við sjónvarpstæki í vaktstofu Slökkviliðs lins í Reykjavík. Mynd-E.ÓI.
Sjónvarpstœki
Sjálfsíkveikjum fjölgar
Stórtjón vegna sjálfsíkveikju ísjónvarpstœkjum. Rafmagnseftirlitið:
Rofa á tengilinn eða taka tækin úr sambandi
Sjálfsíkveikjum í sjónvarps-
tækjum hefur fjölgað töluvert
á síðustu árum og hafa slíkar í-
kveikjur oft á tíðum valdið stór-
tjóni, þegar kviknað hefur í sjón-
varpstækjum um miðja nótt með-
an fólk er í fasta svefni.
- Það eru engar tölulegar upp-
lýsingar til en við höfum verið að
skoða þessi mál og einnig
Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík
og ég held að ég geti fullyrt að
slíkum sjálfsíkveikjum fer fjöl-
gandi, sagði Guðbjartur Gunn-
arsson hjá Rafmagnseftirliti
ríkisins í samtali við Þjóðviljann.
Ástæðan fyrir þessum sjálfs-
íkveikjum er í fæstum tilfellum
gallar í sjónvarpstækjum, heldur
verður skammhlaup í tækjunum
því þó búið sé að slökkva á þeim
er fullur straumur inn í tækin,
nema komið sé fyrir sérstökum
rofa á inntakssnúru eða tækið
tekið úr sambandi.
- Fæstir átta sig á því að það er
Afundi bæjarstjórnar Olafs-
víkur í gær var gengið form-
lega frá myndun nýs meirihluta í
bæjarstjórninni. Að honum
standa tveir bæjarfulltrúar Al-
þýðubandalags og fulltrúar Al-
þýðuflokks, og fulltrúar Fram-
sóknarflokks og Lýðræðissinna,
einn frá hverjum.
fullur straumur á tækinu þó búið
sé að slökkva á myndinni. Eina
örugga ráðið til að forðast svona
slys er að láta setja rofa á teng-
Kristján Pálsson verður áfram
bæjarstjóri, forseti bæjarstjórnar
Sveinn Þ. Elínbergsson úr Al-
þýðuflokki og formaður bæjar-
málaráðs Stefán Jóhann Sigurðs-
son úr Framsóknarflokki. En Al-
þýðubandalag og Framsóknar-
flokkur mynda meirihluta í
bæjarmálaráði.
ilinn eins og á veggljósum eða
hreinlega taka tækin úr sambandi
í hvert skipti sem slökkt er á
þeim, sagði Guðbjartur. _jg.
Að sögn Kristjáns Pálssonar,
bæjarstjóra verður nú allt kapp
lagt á að afgreiða fjárhagsáætiun
bæjarins og sinna fjármálum
hans. Eða eins og hann sagði:
„Nú er tíminn til að bretta upp
ermarnar og láta verkin tala“.
-grh
Helgarpósturinn
Halldór
hættir
Halldór Halldórsson
hœttirsem ritstjóri.
Blaðamenn harma
hvernigað málum var
staðið. Agreiningur um
ritstjórnarstefnu
Halldór Halldórsson, ritstjóri
Helgarpóstsins, lét af störfum
sem ritstjóri nú um helgina. Hall-
dór hefur verið ritstjóri síðan
1985. Helgi Már Arthursson, sem
undanfarið hefur ritstýrt blaðinu
með Halldóri mun ritstýra Helg-
arpóstinum einn til að byrja með.
Hinsvegar er stjórn Goðgáar,
sem gefur út Helgarpóstinn, að
fjalla um eftirmann Halldórs um
þessar mundir.
„Þetta hefur átt sér töluverðan
aðdraganda, og er gert í samráði
við eigendur blaðsins," sagði
Halldór í samtali við Þjóðviljann
í gær.
„Halldór hefur verið mikið frá
vegna veikinda og var gengið frá
þessu í góðu samkomulagi við
hann,“ sagði Sigurður Ragnars-
son, formaður Goðgár. „A milli
okkar er ekkert ósamkomulag
heldur er allt gert í góðum friði og
vinskap.“
Þrátt fyrir friðinn, vinskapinn,
samkomulagið og samráðið sáu
blaðamenn Helgarpóstsins á-
stæðu til að fjalla um þetta á fundi
á mánudag og báðu þá ritstjóra
blaðsins um að færa stjórn Goð-
gár þau skilaboð að blaðamenn
hörmuðu hvernig þetta mál bar
að.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum kom upp ágreiningur
milli stjórnar Goðgár og Halldórs
um ritstjórnarstefnu blaðsins.
Ákveðnir stjórnarmenn vildu að
blaðið leggði enn meiri áherslu á
æsifréttastíl en hingað til, það
jafnvel þó lítið sem ekkert stæði
að baki fréttinni. Þessu mun
Halldór hafa verið andvígur og
barist harkalega gegn.
„Við skulum orða það þannig
að það hafi verið haft fullt samráð
við mig þegar gengið var frá
þessu,“ sagði Halldór þegar hann
var spurður að því hvort fyum-
kvæðið að uppsögn hans væri frá
honum komin. ,
____________________ -aaf,
Ólafsvík
Enn nýr meiríhluti
y