Þjóðviljinn - 10.02.1988, Blaðsíða 11
ERLENPAR FRÉTTIR
ísraellherteknu svceðin
Tveir unglingar
myrtir
Israelsmenn við sama heygarðshornið. Óvíst hvorthermenn
eða landrœningjar myrtu ungmennin. Erindreka
Bandaríkjastjórnar fálega tekið íJórsölum
Israelsmenn urðu tveim palest-
ínskum ungmcnnum að bana í
gær. Fannst annar skotinn til
bana við vegartálma í þorpi á
vesturbakka Jórdanár en hinn
lést á sjúkrahúsi á Gazasvæðinu
af völdum höfuðhöggs. Frétta-
stofa Palestínumanna, PPS, stað-
hæfði að ísraelskir hermenn
hefðu orðið þeim að bana en
herstjórnin vildi hvorki játa því
né neita, kvað verið að fara ofaní
saumana á málinu.
Að sögn Reuters bar minna á
palestínskum mótmælendum á
herteknu svæðunum í gær en
undanfarna daga. Hinsvegar
flykktust ungir Palestínumenn
útá götur í Gazaborg þegar þeim
bárust fréttir af því að landi
þeirra, Khader Tarazi, hefði lát-
ist á Soroka sjúkrahúsinu í bæn-
um Beersheba.
Hann var sautján ára gamall og
lést af völdum höfuðáverka.
Hann er þriðji palestínski ung-
lingurinn sem barinn hefur verið
til bana á Gazasvæðinu á umliðn-
um dögum. Einhverra hluta
vegna vill herstjórnin ekki viður-
kenna að dátar sínir beri ábyrgð á
morðum þessum, annaðhvort vill
hún ekki staðfesta með því að
þeir séu trylltir morðvargar sem
fremji svívirðilega glæpi í umboði
Yitzhaks Rabíns varnarmálaráð-
herra eða að morðingjana er að
finna í röðum ísraelskra landræn-
ingja.
Að sögn PPS var Mahmoud
Abu Khalil skotinn til bana af
hermönnum herraþjóðarinnar í
gær. Ekki er getið um aldur Khal-
ils í Reutersskeytinu en lík hans
fannst skammt frá heimili hans í
þorpinu Attil, nærri borginni
Tulkarem.
Tarazi og Khahil voru 51. og
52. fórnarlamb ísraelshers og
landræningja frá því „átök“ pal-
estínskra grjótkastara og skot-
glaðra zíónista hófust á herteknu
„Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur." Örin bendir á okkar mann, Kurt Waldheim, en maðurinn næst honum á vinstri
hönd er sjálfur Pavelic, leiötogi Ustasha fasistanna og leppstjórnar Þjóðverja í Króatíu. Hryðjuverk hans og böðla hans
voru svo óskapleg að gekk fram af SS foringjum að sögn mannkynssögu BAB.
Austurríki
HáHvolg skýrsla
sagnfræðinga
ískýrslu sagnfrœðinganna sex eru leiddar líkur aðþvíað Waldheim
hafi aðhafst ýmislegt vafasamt er tengdist stríðsglœpum! Þeirsegjast
hvorki geta sannað sekt hans né sýknað hann
Sagnfræðingarnir sex er hafa
um skeið gramsað í fortíð
Kurts Waldheims, forseta
Austurrfkis, sökuðu hann f gær
um að hafa vitað um hryðjuverk
nasista og leppa þeirra f Júgóslav-
íu en aðhafst ekkert til þess að
hindra þau. Hann hafi ennfremur
rcynt að hjúpa feril sinn á stríðs-
árunum gleymsku og þögn.
í 202 blaðsíðna skýrslu sex-
menninganna, sem birt var
austurrískum almenningi í gær,
kemur fram að Waldheim hafi
verið einkar vel upplýstur um at-
ferli þýska hersins á Balkanskaga
og „framkvæmt sitthvað er stuðl-
aði að gerræðisverkum.“ Höf-
undar kveðast hvorki hafa sann-
anir til þess að sakfella Waldheim
né sýkna hann af hlutdeild í
stríðsglæpum en segja ekki fara á
milli mála að hann hafi gegnt
veigamiklu hlutverki í þýsku
hermaskínunni og fjarri því verið
jafn vesæl undirtylla og hann hafi
viljað vera láta.
„Hann lagði hvað eftir annað
hönd á plóginn við aðgerðir sem
tengdust hryðjuverkum og stuðl-
aði þar með óbeint að þeim,“
einsog komist er að orði í hinni
loðinyrtu skýrslu. Waldheim hafi
reynt að breiða fjöður yfir her-
mennsku sína og lagt sig í líma við
að telja fólki trú um að hann hafi
ekkert aðhafst er orka kynni tví-
mælis. Hið gagnstæða væri hins-
vegar sönnu nær.
Waldheim staðhæfði í fyrra-
kvöld að skýrslan hefði hreinsað'
sig af öllum áburði. Hann endur-
tók fyrri fullyrðingar um að sig
rámaði ekki í að hafa gert neitt
miður gott á stríðárunum og ítr-
ekaði að hann hygðist ekki segja
af sér austurrískri forsetatign.
Einn sexmenninganna, Yehu-
dah nokkur Wallach, kennari við
háskólann í Tel Aviv, sagðist að
sönnu ekki vera lögfræðingur en
vera engu að síður fullviss um að
lögsækja mætti Waldheim út frá
þeim staðreyndum er tíundaðar
væru í skýrslunni.
Hvað sem líður fullyrðingum
Waldheims sjálfs um niðurstöður
skýrsluhöfunda þá staðhæfa þeir
að hann hafi vitað um flutning
þúsunda gyðinga og annarra
þegna í útrýmingarbúðir meðan
hann var foringi í leyniþjónustu
Hitlers. Forsetinn þjónaði For-
ingja sínum í Grikklandi og Júg-
óslavíu frá 1942 og til stríðsloka
en stendur á því fastar en fótun-
um að hann hafi ekki vitað um
ódæðisverk Þjóðverja eða, hafi
hann vitað um þau, væri hann því
miður búinn að gleyma þeim
öllum.
Reuter/-ks.
Miðvlkudagur 10. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Daglegt brauð og barsmíðar. ísraelsdátar draga ungan Palestínumann á afvik-
inn stað.
svæðunum í desembermánuði
síðastliðnum.
í gær kom erindreki Banda-
ríkjastjórnar, aðstoðarutanríkis-
ráðherrann Richard Murphy, til
Jórsalaborgar og kvað hann hafa
haft meðferðis tillögur húsbænda
sinna um „lausn á vandanum á
herteknu svæðunum" einsog at-
burðirnir á Gaza og vesturbakk-
anum er kallaðir af fréttaritara
Reuters.
Murphy mun ekki hafa fengið
sérlega varmar veikomur er hann
gekk útúr flugvél sinni í höfuð-
borg ísraels. Shimon Perez sagði
höfuðmarkmið tillagna hans og
yfirmanna hans í Washington að
ísraelsmenn afhendi Jórdönum
landssvæðin er unnust í sex daga
stríðinu árið 1967. Yitzhak
Shamir sá ástæðu til þess að vara
Bandaríkjamenn við því að vera
að skipta sér af því hvernig hann
hegðaði sér á Gaza og vestur-
bakka. „Svæðin“ væru óumdeil-
anlega hlutar Stór-ísraels og pun-
ktur basta. Reuter/-ks.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Birna Gísli Mörður Árni Páll
Alþýðubandalagið í Reykjavík
ísland, Nató, Evrópubandalagið, - er endur-
skoðunar þörf?
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 11. febrúar um utanríkismálin
og tengsl Islands við EB og Nataó rædd í víðu samhengi.
Framsögumenn: Birna Þórðardóttir, Gísli Gunnarsson, Mörður Árnason.
Fundarstjóri er Árni Páll Árnason.
Fundurinn verður að Hverfisgötu 105 og hefst kl. 20.30.
Stjórn ABR
Alþýðubandalagið Kópavogi
Spilakvöld í Kópavogi
Efnt verður til þriggja kvölda spilakeppni í Þinghóli, Hamraborg 11.
Spilað verður annan hvern mánudag, 8. og 22. febrúar og 7. mars.
Byrjað verður að spila öll kvöldin kl. 20.30. Góð kvöld- og heildarverðlaun í
boði.
Mætið tímanlega. Allir velkomnir. Stjórn ABK
Alþýðubandalagið Reykjavík
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 11. febrúar að Hverfisgötu 105
kl. 20.30. Fundarefni: ísland og bandalögin - er endurskoðunar þörf?
Utanríkismálin og tengsl Islands við NATÓ og EB rædd í víðu samhengi.
Nánar auglýst síðar.
Stjórn ABR
|i!iiiii'rii|||iMKÍiuj| m PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
BRÉFBERA
hjá póst- og símstöðvunum í Hafnarfirði og Kópa-
vogi.
Upplýsingar hjá stöðvarstjórum í Hafnarfirði í
símum 50555 og 50933; í Kópavogi í síma 41225.