Þjóðviljinn - 20.02.1988, Blaðsíða 3
FRETTIR
Bifreiðatryggingar
Stórhækkun í vændum
Tryggingarfélögin telja að hœkka þurfi iðgjöld bifreiðatrygginga sem nemur tugum
prósenta. Tap ífyrranamhundruðum milljóna
Samstarfsncfnd íslensku bif-
reiðatryggingafélaganna telur
að hækka þurfi verulega iðgjöld
bifreiðatrygginga vegna rekstr-
artaps tryggingafélaganna sem
skipti hundruðum miljóna króna
á síðasta tryggingarári. Sam-
kvæmt útreikningum samstarfs-
nefndarinnar á rekstrartapi síð-
asta árs er fyrirsjánalegt áð lögg-
boðin ábyrgðartrygging þarf að
hækka sem nemur tæpum 60 af
hundraði, húftrygging um 28%
og framrúðutrygging um 38,6%.
Að öðrum kosti telja trygginga-
menn að rekstur fyrirtækjanna sé
brostinn og bótaþegar eigi á
hættu að fá ekki tjón sitt bætt.
- Ég fullyrði að annað ár eins
og það síðasta stefndi trygginga-
markaðnum í tvísýnu. Rekstrar-
grundvöllur greinarinnar er ger-
samlega brostinn með sama áfr-
amhaldi, sagðí Benedikt Jóhann-
esson, tryggingarstærðfræðingur
á fréttafundi sem samstarfsnefn-
din boðaði til í gær.
„Alvarlegast er ástandið í
ábyrgðartryggingum ökutækja,
en þar hafa tjón hækkað langt
umfram iðgjöld á liðnum árum,“
segir í fréttatilkynningu trygging-
arfélaganna, en að þeirra mati
nam tapið í þessari grein um 30%
af iðgjaldatekjum félaganna.
Helstu ástæður rekstrartapsins
er stóraukinn tjónakostnaður í
umferðarslysum, sem var langt
umfram hækkun iðgjalda, miklar
verðlagshækkanir, en þar má
nefna að verðlag á útseldri vinnu
verkstæða hækkaði um 48,9% á
tímabilinu 1. janúar 1987 til 1.
janúar 1988 og í þriðja lagi leggja
ný umferðarlög auknar bóta-
skyldur á tryggingafélögin.
Ekki hefur enn verið tekin á-
kvörðun um nýja gjaldskrá bif-
reiðatrygginga og er Trygginga-
eftirlitið með útreikninga trygg-
ingarfélaganna til athugunar.
Bifreiðaeigendur skulu upp-
lýstir um að fái tryggingafélögin
óskir sínar uppfylltar, hækkar
ábyrgðartrygging, miðað við 50
afslátt, úr 9.400 í 15.011 krónur.
-rk
Hraðskák
Duttu allir út
íslensku stórmeistaranir Helgi
Ólafsson, Karl Þorsteins og
Margeir Pétursson féllu allir út úr
heimsmeistarakeppninni í hrað-
skák S St. John S Kanada S gær.
36 skákmeistarar kepptu á
mótinu og féllu þeir Karl og
Margeir út í fyrstu umferð en
Helgi komst í 18 manna úrslit.
Hann sigraði stórmeistarann Sal-
ov en tapaði síðan fyrir Búlgaran-
um Georgief.
Karl Þorsteins lenti á
heimsmeistaranum Kasparov í
fyrstu umferðinni. Hann tapaði
fýrstu skákinni, gerði jafnt í ann-
ari og missti niður unna skák í
þeirri þriðju. Margeir vann tvær
sínar fyrstu skákir en tapaði
næstu þremur og féll þar með út.
-«g-
VMSÍ - VSÍ
Siglt í
lygnum sjó
Samninganefndir fara sér hœgt um helg-
ina. Ölteitihjá VSÍ og aðalfundur Al-
þýðubankans glepjafyrir samninga-
mönnum. Launaliðir órœddir
Kröfur atvinnurekenda um
sveigjanlegan dagvinnutíma
gegn einum eftirvinnutaxta, tóku
allan hug samningarnefndar-
manna í gær og í fyrradag. Sam-
kvæmt hcimildum Þjóðviljans
þokaðist verulega í samkomu-
lagsátt um útfærslu á vinnutím-
anum. í gærkvöldi var búist við
að viðræður hæfust um starfsald-
urshækkanir og var að heyra á
samninganefndarmönnum sem
Þjóðviljinn ræddi við í gær, að
viðræður um starfsaldurinn
kynnu að skera úr um framhald
viðræðna, en kröfur um taxta-
hækkanir hafa verið látnar liggja
milli hluta.
Samhliða viðræðum um ein-
stök atriði í kröfugerð Verka-
mannasambandsins, ræddust
fulltrúar atvinnurekenda og
Dagsbrúnar við í gær um sér-
málefni hafnarverkamanna og
starfsmanna Mjólkursamsölunn-
ar. Byggingarverkamenn og
starfsmenn olíufélaganna hafa
einnig óskað hliðstæðra við-
ræðna.
Ekki er búist við að dragi til
tíðinda í viðræðunum um helg-
ina, þar sem margt glepur fyrir
samninganefndarmönnum
beggja megin samningaborðsins.
Vinnuveitendur ætla að halda ár-
legt ölteiti og fjölmargir samning-
anefndarmenn VMSÍ verða
uppteknir í dag á aðalfundi Al-
þýðubankans.
-rk
I heimsókn hjá Max hf. Þemadegi í fataiðnaði lauk með heimsókn í fyrirtækið og var skoðuð ný framleiðslulína. Max hf
hefur nýlega stækkað við sig, flutt í nýtt húsnæði og endurnýjað vélbúnaðinn. Mynd: E. Ól.
Fataiðnaðurinn
Erfiðstaða,
ekki vonlaus
Raunvextir
Standa í stað
Nafnvextir á óverðtryggðum skulda-
bréfum og innistœðum lœkka
Vextir af verðtryggðum lánum,
sem eru nú 9,5%, lækka ekki.
Þeir ráðast einkum af eftirspurn
og framboði á lánsfé, sagði Jónas
H. Haralz bankastjóri. „Raun-
vextir verða óbreyttir þótt
nafnvextir óverðtryggðra inn- og
útlána lækki í takt við minnkandi
verðbólgu.“
Landsbankinn lækkar á mánu-
dag nafnvexti á óverðtryggðum
lánum og reikningum um allt að
2%.
Jónas sagði að í raun og veru
hefði verðlagsþróun að undan-
förnu verið þannig að lækkunin
hefði mátt vera meiri en dokað
yrði við fram til 1. mars með frek-
ari aðgerðir.
Aðrir bankar og sparisjóðir
lækka einnig innlánsvexti um
2,7% og úitlánsvextir skulda-
bréfa um allt að 6%.
í stórum dráttum má segja að
lántakendum bjóðist tvenns kon-
ar aðferðir við útreikning vaxta
og verðbóta. Annars vegar geta
þeir tekið verðtryggð lán. Af
þeim þarf að greiða vexti, sem
algengt er að nú séu 9,5%, og auk
þess verðbætur samkvæmt hækk-
un lánskjaravísitölu en hún hefur
hækkað hægar síðasta mánuðinn
en áður var. Hins vegar er unnt
að taka óverðtryggð lán með
háum vöxtum sem algengt er að
nú séu 37%. Stærstur hluti þeirra
háu vaxta er svokallaður verð-
bótaþáttur og hann lækkar nú.
Lækkun verðbótaþáttar í vöxt-
um af óverðtryggðum lánum er
sambærileg við það að hækkun
verðbóta af verðtryggðum lánum
hægir á sér. Raunvextir, þ.e.
vextir ofan á og umfram verð-
bólgu, breytast ekki. Þeir eru nú
hátt í 10% á ári og eru engin
áform uppi um að lækka þá.
Stefán Jörundsson hjá Tex-Stíl á þemadegi ífataiðnaði: Verðum að
skapa okkur sérstöðu með hönnun og gœðum
SKammtímagróðasjónarmið og
vantrú á eigin getu hefur verið
ríkjandi, og því stendur fataiðn-
aðurinn frammi fyrir miklu meiri
vanda nú en vera þyrfti, sagði
Stefán Jörundsson hjá Tex-Stfl á
þemadegi í fataiðnaði sem hald-
inn var í gær.
Stefán sagði að ef litið væri til
smæðar íslensks þjóðfélags væri
ljóst að hér yrði aldrei hægí að
framleiða ódýra vöru í miklu
magni, og því væri nauðsynlegt
að við sköpuðum okkur sérstöðu
með hönnun og gæðum.
Fjögur stutt framsöguerindi
voru flutt á þemadeginum, en
hann var haldinn að frumkvæði
Iðntæknistofnunar. Stefán fjall-
aði um hönnunarmál; Jón Sig-
urðarson, Álafossi, um markaðs-
mál og stöðu greinarinnar;
Haukur Þorgilsson, Hlín hf, um
starfsmenntun og Sævar Kristins-
son, Max hf, um tæknimál.
Lífleg skoðanaskipti urðu í
umræðuhópum, og var meðal
annars rætt um hugsaniegt sölu-
samlag og hönnunarmiðstöð.
Skortur á stefnumótun í stjórn
fyrirtækja í greininni var einnig
ofarlega í hugum þátttakenda. Þá
kom fram sú skoðun og átti
hljómgrunn hve mikilvægt það er
að gera sér grein fyrir tveimur
stigum hönnunar; hönnun vöru,
og hönnun á markaðsfærslu vör-
unnar. Gæði tiltekinnar vöru
kæmu fyrir lítið ef vitlaust væri
staðið að markaðsmálum.
Þetta er annar þemadagurinn
Tæplega 57% landsmanna eru
andvígir því að Ráðhús verði
reist í Tjörninni en 43% hlynntir
því. Þetta er niðurstaða skoðan-
akönnunar sem Skáís gerði fyrir
Stöð 2 2. febrúar sl.
Alls náðist í 714 manns frá öllu
landinu og var þess gætt að rétt
hlutfall væri milli kynja og höf-
uðborgar, Reykjaness og lands-
byggðar.
Fyrst var spurt hvort fólk vildi
að ráðhús yrði reist. 68,5% þeirra
sem tóku afstöðu voru hlynntir
því að ráðhús yrði reist en 31,5%
andvígir. Þá voru þeir sem vildu
ráðhús spurðir hvort þeir vildu
það í Tjörnina. 63,1% þeirra sem
sem Iðntæknistofnun stendur
fyrir, en fjallað er um ýmsar
greinar iðnaðar. Hinn fyrsti var
heigaður nýsköpun og sjálfvirkni
í málmiðnaði.
tóku afstöðu vildu ráðhúsið í
Tjörnina en 36,9% að það risi
annarsstaðar.
Þegar Stöð 2 birti niðurstöðu
könnunarinnar lét hún ekki
reikna út hversu margir væru
andvígir ráðhúsi í Tjörnina og
hafa andstæðingar ráðhússins
gagnrýnt stöðina fyrir það.
Sé það reiknað út kemur í ljós
að 56,8% eru andvígir ráðhúsi í
Tjörnina en 43,2% vilja ráðhúsið
þar.
Þá hefur stöðin verið gagnrýnd
fyrir að skipta ekki úrtakinu upp í
annarsvegar Reykvíkinga og
hinsvegar aðra landsmenn.
-Sáf
Ráðhúsið
57% á móti
68,5% vilja ráðhús en aðeins 63,1% afþeim
vilja það í Tjörnina
Laugardagur 20. febrúar 1988 fÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3