Þjóðviljinn - 03.03.1988, Blaðsíða 5
VIÐHORF
Sögulegar staðreyndir
- að gefnu tilefni
í Þjóðviljanum á þriðjudaginn,
1. mars, er grein um herstöðva-
málið þar sem drepið er á nokkra
þætti í sögu málsins. Greinina
skrifar Birna Þórðardóttir. í til-
efni þessarar greinar vil ég benda
á eftirfarandi staðreyndir máls-
ins:
1. Magnús Kjartansson náði
því fram í stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar 1971 að herinn
skyldi fara af landi brott á kjör-
tímabilinu. Samstarfsflokkar
okkar voru Framsóknarflokkur-
inn og Samtök frjálslyndra og
vinstri manna. í stjórninni náðist
samkomulag um það snemma árs
1974 hvernig haga skyldi brottför
hersins. Stjórnin brast nokkrum
vikum síðar vegna deilna um
kjaramál þegar Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna klofnuðu
í frumeindir sínar. Ég tel að þetta
samkomulag sé einn merkasti
áfangi herstöðvaandstæðinga frá
upphafi hernáms hér á landi. í
stjórnarmyndunarviðræðunum
1978 og 1979 kannaði ég hvort
unnt væri að fá samstarfsflokka
til að fallast á þessa niðurstöðu.
Þeir höfnuðu henni þá.
Svavar Gestsson skrifar
„Égskil ekki að það geti þjónað málstað
hernámsandstœðinga að gera lítið úr
þeirri staðreynd að sterk pólitísk staða
Alþýðubandalagsins gerði
Bandaríkjastjórn aftur og aftur erfiðara
um vik aðframkvæma hernámsstefnu
sína. “
2. 1978 var ekki gengið frá
endanlegum málefnasamningi
ríkisstjórnarinnar heldur gert ráð
fyrir endurskoðun sáttmálans
sérstaklega með tilliti til her-
stöðvamálsins. Sú stjórn lifði að-
eins i 13 mánuði en Alþýðuflokk-
urinn sprengdi stjórnina.
3. Ríkisstjórn Gunnars Thor-
oddsens var í raun og veru mynduð
eins og minnihlutastjórn því allan
tímann voru áhöld um hvort hún
hefði meirihluta í þinginu. Þess
vegna varð hún að semja sig
áfram gegnum þingið með smá
mál og stór og ekki við því að
búast að hún hefði afl til þess að
reka herinn úr landinu. Þá var
hins vegar um að ræða neitunar-
vald Alþýðubandalagsins gagn-
vart meiriháttar framkvæmdum á
Vellinum. Þetta neitunarvald
byggðist á bókun forsætisráð-
herra og formanna stjórnarflokk-
anna. A grundvelli þessa neitun-
arvalds voru framkvæmdir við
flugskýlin stöðvaðar. Og á grund-
velli þessa neitunarvalds var unnt
að koma í veg fyrir meiriháttar
framkvæmdir í herstöðinni á
þeim tíma sem stjórnin sat. Það
var eftir kosningar og eftir að
stjórnin sagði af sér, er hún hafði
misst meirihluta sinn, sem utan-
ríkisráðherra leyfði Helguvíkur-
framkvæmdirnar og það var eftir
að ný stjóm hafði verið mynduð
(ríkisstjóm Steingríms Her-
mannssonar) sem ákveðnar vom
framkvæmdir sem síðan hafa ver-
ið í gangi í herstöðinni (Helguvík,
flugstöð, flugskýli, stjórnstöð,
radarstöðvar).
Ég skil ekki að það geti þjónað
málstað hernámsandstæðinga að
gera lítið úr þeirri staðreynd að
sterk pólitísk staða Alþýðu-
bandalagsins gerði Bandaríkja-
stjórn aftur og aftur erfiðara um
vik að framkvæma hernáms-
stefnu sína.
Hins vegar getum við öll alltaf
gert betur og til þess er fullur og
einlægur vilji innan Alþýðu-
bandalagsins. Það kom fram á
síðasta miðstjórnarfundi flokks-
ins þar sem utanríkismálin voru
til meðferðar mestallan fundinn,
að gefnu tilefni. Niðurstaða þess
fundar var ítrekun á stefnu
flokksins. Nú er það hlutverk
flokksforystu, en ekki síður
áhugasamra félaga, að fylgja
þeirri stefnu eftir af alefli. Nýir
vindar í alþjóðamálum eru okkur
hagstæðir um þessar mundir.
Ráðhúsið
Vaxtarverkir á Vesturbakkanum
Borgarstjóri leggur fram erindi íSkipulagsstjórn ríkisins um breytingar á byggingarreitnum.
Guðrún Jónsdóttir, arkítekt: Ráðhúsið enn að stækka
Á fundi Skipuiagsstjórnar
ríkisins í gær var lagt fram erindi
borgarstjóra um breytingar á
byggingarreit fyrirhugaðs ráð-
húss. Fyrr í vikunni kom þessi
umdeilda bygging loks til kynn-
ingar í skipulagsnefnd borgarinn-
ar, og hafði þá stækkað úr 4600
fermetrum í 5209 frá því borgar-
stjórn afgreiddi málið í október í
fyrra.
Guðrún Jónsdóttir, arkítekt, á
sæti í Skipulagsstjórn ríkisins, og
staðfesti hún að erindi borgar-
stjóra um breytingar á bygging-
arreitnum hefði verið lagt fram á
fundi stjórnarinnar í gær. Sagði
Guðrún að með þessu væri verið
að biðja um breytingu á staðfestu
deiliskipulagi Kvosarinnar. Það
vekur athygli að slíkt erindi skuli
þegar komið fram: Ráðhúsið er
enn að stækka í meðförunum úr
því að strax er þörf á breytingum
af þessu tagi, sagði hún.
Guðrún tók fram að ekkert
kæmi fram um stækkun ráðhúss-
ins í erindi borgarstjóra, og að
umbeðin breyting hefði lítil áhrif
á stærð byggingarreits, þar sem
aukningin væri aðeins 46 fermetr-
ar.
- Upphaflega var gert lítið úr
þeim rökum okkar að húsið yrði
stækkað með tíð og tíma, sagði
Guðrún Pétursdóttir í samtökun-
um Tjörnin lifi; við sögðum sem
svo að núverandi borgarstjórn
yrði ekki endalaust við völd og að
þær sem á eftir kæmu gætu sem
hægast beitt sér fyrir stækkun
hússins. Nú er komið á daginn að
við höfum ekki verið nándar
nærri nógu raunsæ: Ráðhúsið
hefur þegar stækkað verulega í
meðförum núverandi borgar-
stjórnar, sagði Guðrún.
Sem aftur leiðir hugann að
fyrirferðarlítilli sýningu í einu
Framhaldssaga um ráðhúskynningu,frá sýningunni í húsnæði Byggingaþjónustunnar, Hallveigarstíg 1.
rninu í kjallaranum á
illveigarstíg 1, þar sem Bygg-
gaþjónustan er til húsa. Þarna
til sýnis fyrirhuguð ráðhúss-
'gging í norðvesturenda Tjarn-
innar. „Loksins, loksins" eða
ukasýning" er það titlatog sem
enn hafa áskilið þessari yfir-
tislausu sýningu og er það í
>ðu samræmi við flokkadrætt-
a um húsið, en að undanfömu
ifa ráðhússdeilurnar einkum
lúist um það hvort ákvæðum
jpulagslaga og -reglugerða hafi
;rið fylgt við kynningu.
Það er formikið trélíkan af hús-
inu í miðju, og gat blaðamaður
sem leit þarna inn í gærdag ekki
betur séð en að smíð þessi sé
allmisvísandi fyrir þá sem vilja
kynna sér málið, í ljósi þeirrar
stækkunar sem borgaryfirvöld
boðuðu á síðasta fundi skipulags-
nefndar - upp í loftið og út með
Vonarstræti - en að vonum gátu
líkanasmiðir ekki varað sig á því.
Ekki vissi annars hjálpsamur
starfsmaður Byggingaþjónust-
unnar hið sanna í þessu stærðar-
hlutfallamáli líkansins, en kann-
ski kemur það ekki að sök; að-
sóknin að sýningunni hefur hvort
sem er verið firnaléleg það sem af
er, aðeins um 40 hræður höfðu
skrifað nöfn sín í gestabók um
miðjan dag í gær, og er sú aðsókn
í rauninni í samræmi við hve illa
þessi sýning hefur verið auglýst.
Hitt er verra að hér er í raun og
veru verið að kynna hlut sem þeg-
ar er úreltur. Eins og rækilega
hefur komið fram í blaðaskrifum
undanfarna mánuði hefur mörg-
um þótt nóg um stærð ráðhússins
á þessum stað, en nú er orðið
ljóst að ekki eru öll kurl komin til
grafar í þessu efni.
í gestabókinni er lína fyrir at-
hugasemdir, og höfðu flestir
fjörutíumenninganna notfært sér
það og sagt kost og löst á ráðhúss-
tiltækinu eftir bestu samvisku.
Innan um og saman við fljóta
með léttúðugar athugasemdir af
ætt kamarrista - graffiti - um vax-
tarlag uppúrstandandi borgar-
valdsmanna og hvort þeir rúmist í
framtíðarhúsinu, en einna glúrn-
ust var sú fullyrðing að teikningin
að ráðhúsinu væri að sönnu góð
en staðurinn eftir því vondur;
ágætt hús á afleitum stað, með
öðrum orðum.
HS
Fimmtudagur 3. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5