Þjóðviljinn - 08.03.1988, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 8. mars 1988 55. tölublað 53. árgangur
Snót
Atvinnulífið úr skorðum
Elsa Valgeirsdóttir, varaform. Snótar: Ótímabundinfrestunaðgerða hefði jafngiltþvíað
afboða verkfall. Engarfrekari viðræðurí sjónmáli. Atvinnulíf Eyjamanna úrskorðum
Að okkar mati kom ekki til
greina að fallast á beiðni at-
vinnurekenda um að fresta verk-
falli ótímabundið. Slíkt hefði í
raun jafngilt því að við hefðum
afboðað verkfallið. Atvinnurek-
endur verða að gera sér grein
fyrir því að enginn beitir verk-
fallsvopninu nema að vel yfir-
lögðu ráði, sagði Elsa Val-
geirsdóttir, varaformaður verka-
kvennafélagsins Snótar í Vest-
mannaeyjum.
Um helgina afréð Snót að virða
að vettugi ósk atvinnurekenda
um ótímabundna frestun aðgerða
og halda til streitu verkfalli hátt í
fjögur hundruð Snótarkvenna.
A föstudag slitnaði uppúr
samningaviðræðum Snótar og at-
vinnurekenda, eftir að deiluaðil-
ar höfðu ást við undir handleiðslu
ríkissáttasem j ar a.
Elsa sagði að eins og stæði væri
ekkert útlit fyrir viðræður að
sinni. Þó sagði hún að reiknað
væri fljótlega með ríkissáttasemj-
ara til Eyja. Snótarkonur búast
allt eins við að verkfallið geti
staðið drjúgan tíma, áður en
kann að draga til tíðinda í samn-
ingaviðræðum. Atvinnurekend-
ur hafa fram til þessa daufheyrst
við kröfum Snótar og ekki talið
sig geta boðið uppá meira en
samið var um í Garðastrætis-
samningunum hjá Verkamanna-
sambandinu og Vestfjarðasamn-
ingnum hjá Alþýðusambandi
Vestfjarða.
Arthúr Bogason fiskverkandi
hefur boðist til að hækka laun
Snótarkvenna, sem hjá honum
starfa, um 15 þúsund krónur á
mánuði. Elsa sagði að þetta til-
boð Arthúrs væri fyrir margra
hluta sakir góðra gjalda vert.
Reiknað var með að Snót gerði
Arthúri gagntilboð í gærkvöldi.
Atvinnulíf í Vestmannaeyjum
var meira og minna gengið úr
skorðum í gær vegna verkfallsins.
Vinnsla í frystihúsum liggur
niðri. Einhver saltfiskverkun fer
enn fram fyrir tilstuðlan
karlpeningsins.
Á fundi stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja í gærkvöldi, var
ákveðið að boða yfirvinnubann
með viku fyrirvara.
8. mars
Bamttudagur
kvenna
í dag er alþjóðlegur baráttu-
dagur kvenna og til að þjappa
konum saman í baráttunni fyrir
bættum kjörum og auknum rétt-
indum, gangast nokkur samtök
fyrir baráttufundi að Hallveigar-
stöðum í kvöld kl. 20:30.
Konur - nú er komið nóg! er
yfirskrift fundarins, sem helgað-
ur verður kjörum kvenna og þvr'
hve lítið tillit er tekið til þarfa
barna í okkar samfélagi. Einnig
verður tekið fyrir hvernig samfé-
lagið launar konum að loknum
vinnudegi.
Samkvæmt lögum eiga konur
að njóta fulls jafnréttis á við karla
á ísíandi, en ekki þarf að leita
lengi til að sjá að svo er ekki í
raun.
í opnu í blaðinu er rætt við
nokkrar konur og einn karl um
viðhorf til jafnréttismála og
hvaða leiðir séu til bóta.
Sjá bls. 8
HÍK
Atkvæði
greidd um
verkfall
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans var samþvkkt á fundi full-
trúaráðs Hins íslenska kenna-
rafélags, sl. föstudag, að efna til
atkvæðagreiðslu meðal félags-
manna HIK um tillögu að verk-
fallsboðun frá og með 13. apríl
n.k. Talsmenn HIK vörðust allra
frétta af fulltrúaráðsfundinum,
en búist er við að HÍK tilkynni
formlega um atkvæðagreiðsluna
á fréttamannafundi í dag.
Undanfarið hefur HÍK átt við-
ræður við samninganefnd ríkisins
um gerð nýrra kjarasamninga og
hefur ríkisvaldið til þessa dauf-
heyrst við kröfum HIK.
Kennarasamband íslands hef-
ur einnig staðið í viðræðum við
stjómvöld um nýja kjarasamn-
inga og ekki frekar orðið ágengt
en HÍK.
-rk
Keflavíkurflugvöllur
Út í móa
í bíti á sunnudagsmorgun vildi
svo óhönduglega til að Boeing -
737 farþegavél frá E1 Salvador
hafnaði utan flugbrautar, er
henni var millilent á Keflavíkur-
flugvelli. Engin slys urðu á áhöfn
vélarinnar. Vélin var á leið til
meginlands Evrópu í svokölluðu
ferjuflugi.
Samkvæmt frásögn starfs-
manns á Keflavíkurflugvelli
skemmdist vélin nokkuð við
óhappið - nefhjól og hreyfill
löskuðust. Vélin er nú til viðgerð-
ar í flugskýli á Keflavíkurflug-
velli.
Af hálfu flugmálastjórnarinnar
á Keflavíkurflugvelli hefur ekk-
ert verið látið uppi um óhappið
og tildrög þess.
-rk
Kjarasamningarnir
Samflot á Austurlandi
Alþýðusambandi Austurlands veittsamningsumboð.
Eiríkur Stefánsson, Fáskrúðsfirði: Öðrumfélögum
velkomið að slást í hópinn. 36félögfelldu
Garðastrœtissamningana. Aðeins 7samþykktu.
Atvinnurekendur staðfesta samningana
Aformannafundi Alþýðusam-
bands Austurlands í gær, var
samþykkt að fela sambandinu
samningsumboð fyrir verka-
lýðsfélögin í fjórðungnum, sem
felldu öll með tölu samninga
Verkamannasambandsins og at-
vinnurekenda. Þegar hefur að
mestu verið gengið frá kröfugerð
fyrir komandi samningaviðræð-
ur við atvinnurekendur, en að
sögn Eiríks Stefánssonar, for-
manns verkalýðs- og sjómannafé-
lags Fáskrúðsfjarðar, er reiknað
með að samningaviðræður hefjist
á mánudag.
Eiríkur sagði að kröfugerðin
yrði ekki gerð opinber að sinni.
- Við munum kynna atvinnu-
rekendum hana fyrst, sagði
Eiríkur, en að hans sögn er kröfu-
gerðin að ýmsu leyti frábrugðin
kröfugerð Alþýðusambands
Austurlands frá því í haust.
- Þótt við höfum afráðið að
hafa samflot á vettvangi svæða-
sambandsins, er ekkert því til
fyrir stöðu að önnur félög sem
felldu samningana sláist í hópinn.
Þeim er það velkomið, sagði
Eiríkur.
Flest félaganna á Austurlandi
hafa nú þegar aflað sér verkfalls-
heimildar. Að sögn Eiríks er þess
að vænta að þau félög sem enn
eiga eftir að verða sér úti um
heimild til boðunar verkfalls, afli
hennar fljótlega.
Um helgina rann út sá frestur
sem aðildarfélög VMSÍ höfðu til
að taka afstöðu til samninganna.
Af 43 félögum sem fjölluðu um
samningana, voru þeir einungis
staðfestir í sjö félögum. Tæplega-
þrír af hverjum fjórum félags-
mönnum sem greiddu atkvæði
um samniningana, greiddu þeim
á móti.
Stjórn Vinnumálasambands
samvinnufélaganna og stjórn
Sambands fiskvinnslustöðva
staðfestu samninga atvinnurek-
enda við VMSÍ í gær. Stjórn
þeirra síðarnefndu hefur beint
þeim tilmælum til félagsmanna
sinna að fela Vinnuveitenda-
sambandinu forræði í samninga-
viðræðum við þau verkalýðsfélög
sem felldu samningana. rk
Sjá um afgreiðslu
samninga VMSÍ á bls. 6
Húsbruni á Njálsgötunni. Rétt fyrir kl. 20 í gærkvöldið var tilkynnt um bruna að Njálsgötu 5, sem er tvílyft
íbúðarhús úr steini. Greiðlega tókst að slökkva eldinn, sem logað hafði glatt á báðum hæðum. Talið er að húsið hafi verið
mannlaust er eldurinn kviknaði og er Þjóðviljann bar að, voru reykkafarar að Ijúka við að leita af sér allan grun.