Þjóðviljinn - 22.03.1988, Page 11
Loðdýrabœndur
Brýn þörfá
bráðri aástoð
Loðdýrabændur, og þó eink-
um þeir sem eru með refabú,
eiga nú mjög í vök að verjast
fjárhagslega. Þegarbændur
neyddust til þess að draga úr
framleiðslu hinna hefð-
bundnu búgreina, voru þeir
hvattirtil þess að hverfa að
loðdýrarækt. En
stofnkostnaður við slíkar bú-
háttabreytingar er mikill og
lánsfédýrt. Þegarsamtímis
ríður svo yfir verðfall á
skinnum, er varla von að vel
fari, enda er svo komið, að
margir refabændur eru gjald-
þrota, berist þeim ekki skjót
og veruleg aðstoð.
Á það var bent í byrjun, að
íslenskir loðdýrabændur stæðu
að því leyti betur að vígi en stétt-
arbræður þeirra annars staðar á
Norðurlöndum, að fóðrið væri
hér ódýrara. Ef við berum okkur
t.d. saman við Dani, þá er það að
vísu rétt, að hráefnið í fóðrið er
ódýrara hér. Hins vegar er húsa-
kostur dýrari, vinnulaun hærri,
orka og fjármagn dýrara og flutn-
ingskostnaður meiri. Saman-
burðurinn við Dani verður því
neikvæður fyrir okkur, þegar allir
fingur eru komnir í lófann.
Fyrir Búnaðarþingi lágu erindi
frá þremur aðilum um mál loð-
dýrabænda. Þingiö samþykkti ál-
yktun þar sem lögð var áhersla á
skjótar ráðstafanir til stuðnings
þessum bændum, sem tryggi
áframhaldandi uppbyggingu í
þessari búgrein og að afkoma
þeirra, sem hana stunda, verði
„viðunandi". Þessar aðgerðir
beinist að tveimur meginþáttum:
að grundvallaraðgerð, sem komi
öllum loðdýrabændum til góða
og tryggi framhald uppbyggingar
í búgreininni, - og fyrirgreiðslu til
þeirra refabænda, sem nú eru á
heljarþröm, þannig að þeir geti
haldið áfram rekstri búa sinna.
Síðan er það nánar skýrt til hvaða
aðgerða þingið telur að þurfi að
grípa til þess að framangreindum
markmiðum verði náð.
Nú hefur verið að störfum
þingmannanefnd, skipuð mönn-
um frá stjórnarflokkunum, sem
ætlað var að gera tillögur um
bjargráð fyrir loðdýrabændur.
Hún hefur nú lokið störfum og
munu tillögur hennar í megin at-
riðum falla að ályktun Búnaðar-
þings. Ekki verður að óreyndu
dregið í efa að tillögur nefndar-
innar nái fram að ganga. -mhg
Páll Hersteinsson veiðistjóri með tvo myndarlega yrðlinga í fanginu.
LANDBÚNAÐUR
TRIOLIET
HEYDREIFIKERFI
Ðændur bókið pantanir tímanlega
Sjálfvirk fylling
ffl
Öryggi í heyverkun
Mjög hagstætt verð
KAUPFÉLÖGIN OG
BÚNADARDEILD
ARMULA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900