Þjóðviljinn - 24.03.1988, Qupperneq 3
FRETTIR
Ráðhúsið
Tjömin ailtaf að minnka
Skipulagsstjórn ríkisins samþykkti 46 fermetra stœkkun á
byggingarreit. Guðrún Jónsdóttir arkitekt: Greiddi atkvœði á
móti. Samþykktin þýðir 28% aukningu á rúmmetrafjölda
hússins
Rafmagn
Hækkar
um 10%
Heimilistaxtar hœkka um
7,9% en aðrir taxtar
11,2-16,7%
Borgarráð hefur heimilað Raf-
magnsveitu Reykjavíkur hækkun
á gjaldskrá um 10% að meðaltali
frá og með 1. apríl nk. Hækkunin
var samþykkt með atkvæðum
sjálfstæðismanna en stjórnarand-
staðan sat hjá.
Aö sögn Aðalsteins Guðjohn-
sens rafmagnsstjóra er þessi
hækkun til komin vegna fjár-
skorts hjá Rafmagnsveitunni
uppá 149 miljónir, sem ekki var
tekin afstaða til við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar borgarinnar og
vegna kostnaðarhækkana ými-
skonar í rekstri veitunnar.
-grh
Afundi hjá Skipulagsstjórn
ríkisins í gær var samþykkt
með þremur atkvæðum gegn
einu, að heimila borgaryfirvöld-
um að stækka byggingarreit að
fyrirhugaðri ráðhússbyggingu í
Tjörninni um 46 fermetra. Einn
sat hjá. Þetta þýðir að byggingin
stækkar um 28% í rúmmetrum.
Að sögn Stefáns Thors, skipu-
lagsstjóra ríkisins, var ekki fjall-
að um teikningar sem fylgdu með
umsókninni, heldureingöngu um
stækkun byggingarreitsins, sam-
kvæmt beiðni borgarstjóra fyrir
hönd borgarráðs. Aðspurður
sagðist Stefán vona að þar með
væri afskiptum Skipulagsstjórnar
ríkisins af ráðhússbygging-unni
lokið.
Guðrún Jónsdóttir arkitekt
greiddi atkvæði gegn stækkun
byggingarreitsins og frávísunart-
illaga hennar um að einnig ætti að
fjalla um hjálagðar teikningar var
felld. Samkvæmt teikningunum
eru á þeim hús sem eru allt önnur
en þau sem eru á deiliskipulagi
Kvosarinnar.
Guðrún sagði að það færi ekk-
ert á milli mála að fyrirhugaðri
ráðhússbyggingu væri ætlað að
takaæmeira plássíTjörninni. Til
sannindamerkis um það benti
hún á að samkvæmt fyrstu upp-
lýsingum um stærð hússins frá því
sl. haust hefði það átt að vera 14
þúsund rúmmetrar. Það hefði
síðan verið leiðrétt með því að
þetta væri prentvilla og rétta
rúmmetratalan ætti að vera 19
þúsund rúmmetrar. í dag væri
það hins vegar komið upp í
24,336 rúmmetra. Þá hefði bygg-
ingin einnig stækkað í fermetrum
úr 4600 í 5,297 fermetra og ætti
sjálfsagt eftir að stækka enn meir
ef að líkum léti. -grh
Bjórinn
Samþykktur í neðri deild
21 með, 17 á móti. Pjarkað um nákvæma tímasetningu atkvæðagreiðslunnar
Þingmenn áttu í löngu stappi í gær áður en gengið var til atkvæða um bjórinn. Mynd E.ÖI.
Launamál Guðjóns
Sammála
um
að vera
ósammála
Stjórn Iceland Seafood hyggst
ekki ræða frekar launamál Guðj-
óns B. Ólafssonar þann tíma er
hann gegndi forstjórastarfi hjá
fyrirtækinu. Tilkynning í þessa
veru var gefin út í gærkvöld eftir
sex tíma stjórnarfund, og segir í
henni að stjórnin samþykki að
„fella niður ágreining“ um niður-
stöður í skýrslum þeim sem gerð-
ar voru um málið.
Hér er vísað til þriggja skýrslna
sem gerðar voru um kaup og kjör
Guðjóns vestra, en þær sömdu
Geir Geirsson, Guðjón Eyjólfs-
son og Sigurður Markússon.
Niðurstöðurnar eru ekki sam-
hljóða; þannig telur Geir, endur-
skoðandi Sambandsins, að ekki
hafi verið lögð fram nægilega
skýr gögn um suma hinna greiddu
bónusa er Guðjón naut, en helst
er að skilja á illskiljanlegri frétta-
tilkynningunni að Sigurður sé þar
á öndverðum meiði.
Samþykktin var gerð með at-
kvæðum allra stjórnarmanna,
nema hvað Guðjón B. Ólafsson
lýsti þvf yfir í upphafi fundar að
hann myndi sitja hjá við af-
greiðslu málsins.
HS
Bjórfrumvarpið var samþykkt
með 21 atkvæði gegn 17 eftir
aðra umræðu í neðri deild í gær.
Mikil spenna lá í loftinu undir at-
kvæðagreiðslunni en fyrr um
daginn höfðu þingmenn þjarkað
um nákvæma tímasetningu at-
kvæðagreiðslunnar og voru gerð
nokkur fundarhlé til að þing-
menn gætu ráðið ráðum sínum.
Það var ljóst strax og fundur
hófst í neðri deild, að þeim
tveimur atkvæðagreiðslum sem
áttu að vera fyrst á dagskrá yrði
frestað þar til síðar um daginn.
Tilkynnti Jón Kristjánsson for-
seti deildarinnar þá um fundarhlé
til að þingflokkar gætu ráðið
ráðum sínum. Eftir það tilkynnti
Jón að atkvæðagreiðslan færi
fram klukkan fimm.
Upphófst þá umræða um þing-
sköp og var frestuninni mótmælt
af bjórandstæðingunum Albert
Guðmundssyni og Árna Gunn-
arssyni en Ólafur Þ. Þórðarson
gerðist sáttasemjari í málinu og
sagði að hægt yrði að semja um
að einhverjir drægju sig í hlé, svo
að atkvæðagreiðslan speglaði
vilja deildarinnar.
Var þá gert fundarhlé aftur og
eftir fimm mínútna hlé kvað Jón
upp þann Samólmonsdóm að at-
kvæðagreiðslan yrði klukkan
hálffjögur.
Töluverð spenna lá í loftinu því
fjórir varamenn sitja þessa dag-
ana í deildinni og var vitað að
tveir þeirra, þau Níels Árni
Lund, varamaður Steingríms
Hermannssonar, og Guðrún
Halldórsdóttir, varamaður Kri-
stínar Einarsdóttur, voru bæði á
móti bjórnum, en bæði
Steingrímur og Kristín honum
fylgjandi.
Farið var fram á nafnakall við
atkvæðagreiðsluna og hafði
dæmið verið jafnað þannig að
tveir bjórsinnar og tveir bjór-
andstæðingar voru fjarstaddir at-
kvæðagreiðsluna. 21 reyndist fyl-
gjandi bjórnum en 17 honum
andvígir.
Bjórinn fer til þriðju umræðu í
deildinni strax eftir páska og það-
an liggur leiðin í efri deild og er
búist við að hann eigi nokkuð
greiða leið í gegnum þá deild.
Samkvæmt frumvarpinu taka
Iögin gildi 1. mars 1989. -Sáf
Stokkhólmur
Steingrímur fundar með PLO
írafár hjá íhaldsmönnum. Steingrímur: Frekari fundahöld og
heimsóknir til athugunar. Sœtti mig ekki við neitt ferðabann
Sendiherra og upplýsingafull-
trúi frelsissamtaka Palestínu-
araba PLO í Stokkhólmi, Eugene
Makhlouf lýsti í gær mikilli
ánægju sinni með fund sem hann
átti fyrr um daginn með
Steingrími Hermannssyni utan-
rikisráðherra og íslenska sendi-
herranum í Stokkhólmi. Á fund-
inum bauðst Steingrímur m.a. til
að ræða frekar hugmyndir um
heimsókn utanríkisráðherra
PLO til Islands og hugsanlega för
sína til höfuðstöðva PLO í Túnis.
Þegar fréttist um þessi funda-
höld síðdegis í gær greip um sig
mikið írafár meðal sjálfstæðis-
manna í Alþingishúsinu og var
málið rætt itarlega á þingflokks-
fundi Sjálfstæðisflokksins. Þor-
steinn Pálsson sagði að loknum
fundinum að hann vildi ekki trúa
því að utanríkisráðherra hefði
tekið ákvarðanir um samskipti
við PLO-menn, en fyrr í vikunni
lýsti forsætisráðherra því yfir að
Steingrímur hefði ekki umboð til
að ræða við PLO í nafni ríkis-
stjórnarinnar og að PLO væru
samtök hryðjuverkamanna.
Þorsteinn óskaði í gær eftir því
við forystumenn Framsóknar-
flokksins að utanríkisráðherra
gæfi ítarlega skýrslu um funda-
höld sín með PLO-mönnum í
Stokkhólmi þegar hann kæmi
heim síðar í vikunni. Steingrímur
sagði í gærkvöld, þar sem hann
var staddur á fundi utanríkisráð-
herra Norðurlandanna íTromsö í
Noregi, að hann myndi ræða
þessi mál við ríkisstjórnina. Yfir-
lýsing sú sem PLO-menn hefðu
sent frá sér eftir fundinn væri ekki
í fullu samræmi við yfirlýsingar
sínar á fundinum með þeim en
hann teldi rétt að athuga frekari
fundarhöld með forystumönnum
PLO og útilokaði ekki fund með
Yasser Arafat. - Ég sætti mig
ekki við að vera settur í ferða-
bann, sagði Steingrímur Her-
mannson.
Ráðhúsið
Andstaöan
vex
Andstæðingum fyrirhugaðrar
ráðhússbyggingar í Tjörninni vex
sífellt ásmegin og samkvæmt
skoðanakönnun DV frá því í gær
eru 52,8% Reykvíkinga andvíg en
47,2% fylgjandi. Spurðir voru
232 kjósendur í borginni.
Að sögn Önnu Rögnvaldsdótt-
ur hjá samtökunum Tjörnin lifi er
þessi niðurstaða könnunarinnar
samkvæmt því sem vitað hefur
verið: meirihluti borgarbúa er á
móti þessari byggingu á þessum
stað. Anna sagði jafnframt að
munurinn ætti eftir að verða enn
meiri þegar það rynni upp fyrir
borgarbúum hvers konar gfmald
væri fyrirhugað að reisa í Tjörn-
inni undir heitinu ráðhús. -grh
Fimmtudagur 24. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3