Þjóðviljinn - 24.03.1988, Blaðsíða 17
ERLENDAR FRETTIR
Leiðtogar risaveldanna
Nikaragva
Sovétríkin
Armenar
hryggbrotnir
Sovésk stjórnvöld höfnuðu í
gær kröfum ermskra þegna
sinna um að draga mörk Armeníu
og Azerbaidjan að nýju með það
fyrir augum að héraðið Nagorno-
Karabakh lenti vestan nýrra
landamæra.
Sjálfri forsætisnefnd Æðsta
ráðs Sovétríkjanna hafði verið
hóað saman til þess að ræða þetta
mál og sátu fulltrúar hennar á
rökstólum frameftir degi í gær.
Að endingu ákváðu þeir að ganga
í berhögg við óskir Armena og
skipuðu jafnframt valdsherrum í
lýðveldununt tveim að halda uppi
lögum og reglu í hvívetna.
Reuter/-ks.
Moskvufundur í maí
Lítil von tilþess að Reagan og Gorbatsjov undirriti samning
um helmingsfœkkun langdrœgra kjarnvopna sinna
Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti lýsti því yfir í gær að
fjórði fundur þeirra Mikhaels
Gorbatsjovs sovétleiðtoga færi
fram í Moskvu dagana 29. maí til
2. júní, frá sunnudagsmorgni til
fimmtudagskvölds. Þetta verður
fyrsta sinni í 14 ár að handarískur
forseti sækir Krcmlverja heim.
Forsetinn skýrði frá þessu í
„rósagarði Hvíta hússins", að
sögn Reuters, og mun utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, Eduard
Shevardnadze, hafa staðið nærri
honum við þetta hátíðlega tæki-
færi. Að því loknu hófú þeir fé-
lagarnir viðræður um dagskrá
leiðtogafundarins.
En áður en þeir héldu afsíðis
mælti Shevarnadze: „Nú er búið
að ákveða fundardagana og nú
verðum við að tryggja að um-
ræðuefnin verði áhugaverð.“
Fréttamönnum lék hugur á að
fá upplýsingar um það hvort
samningur um fækkun lang-
drægra kjarnvopna stórveldanna
yrði tilbúinn til undirritunar á
Moskvufundinum. Reagan svar-
aði: „Mér er ókleift að svara
þessu nú.“ Pá var forsetinn inntur
eftir því hvort lokið væri við
bráðabirgðasamning um langd-
rægu kjarnvopnin og mælti hann
þá: „Eg tel okkur hafa haft
bráðabirgðasamning sem leiddi
til þessa áður en það hófst.“
Samningamenn hvorra tveggju
hafa ítrekað sagst hafa áhuga á
því að púslað yrði saman bráða-
birgðasamningi um helmings-
fækkun langdrægra kjarnvopna í
Genf áður en Reagan og Gorbat-
sjov hittast að máli í fjórða skipti.
Framannefnd vígtól eru þau
skæðustu á byggðu bóli og sam-
heiti yfir langdrægar kjarnflaugar
sem ýmist er skotið af pöllum á
landi eða úr kafbátum á hafi og
kjarnsprengjur í þolmiklum flug-
vélum.
Hinsvegar hafa fréttir af gangi
viðræðnanna stangast á að und-
anförnu. Eftir skotferð Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, til Moskvu í fyrra mánuði
kváðust háttsettir sovéskir entb-
ættismenn vera bjartsýnir um að
samningar tækjust innan þriggja
mánaða. En síðan hafa klögu-
málin gengið á víxl, til að mynda
hafa sovésku fulltrúarnir í Genf
gert því skóna að bandarískir kol-
legar sínir tefðu málin.
Reuter/-ks.
✓
Israel
Ágreiningur í Jórsölum
Landvarnaráðherrann telur uppreisnarmenn úrvinda og komna aðfótumfram
Dularfullt
tilboð
Skriður kominn á
viðræður ríkisstjórnar
Nikaragva og kontra-
liða
ulltrúar stjórnvalda í Mana-
gva gerðu viðsemjendum sín-
nm úr forystusveit kontra tilboð í
gær og sögðu þá ekki gcta með
góðu mótu hafnað því.
Það var úpplýsingamálaráð-
herra sandinistastjórnarinnar
sem bar þessar fréttir á borð fyrir
blaðamenn í aftureldingu þriðja
viðræðudagsins í bænum Sapoa í
suðri. Las hann upp úr heimastíl
og sagði tilboð sitt og sinna vera
samhnoð hugmynda beggja.
Hinsvegar vildi hann ekki tjá við-
stöddum efni tillagnanna þótt að
honum væri saumað.
Meðan þessu fór fram rufu
nokkrir kontraliða þriggja daga
vopnahlé foringja sinna og
stjórnar Nikaragva. Greindi
ríkisútvarpið í Managva frá því
að sveit málaliða hefði veitt her-
flutningabifreið fjenda sinna fyr-
irsát og fellt tvo dáta. Einn fyrir-
sátsmanna hefði fallið í valinn.
Talsmaður Kontra í Sapoa
vildi ekkert við málið kannast í
gær en þó þvertók hann ekki fyrir
að atburðurinn hefði átt sér stað,
samgöngur væru slæmar við
norðurlandamæri Nikaragva og
því væri ekki loku fyrir það skotið
að einhverjum kontrasveitanna
hefði enn ekki borist frétt um
vopnahlé.
Humberto Ortega er höfuð
sendisveitar Nikaragvastjórnar.
Að sögn ónefnds heimildamanns
var hann í stöðugu símasambandi
við bróður sinn, Daníel forseta, í
fyrrinótt og suðu þeir í samein-
ingu hið dularfulla tilboð saman.
Oddviti kontraliða í viðræðunum
heitir Adolfo Calero.
Reuter/-ks.
Fyrirmenn ísraelsku ríkis-
stjórnarinnar funduðu fyrir
luktuni dyrum í gær og rifust enn
á ný um friðartillögur Georges
Shultz utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna. Ráðherrarnir eru á
öndverðum meiði um hugmyndir
Shultz, Yitzhak Shamir er þeim
andvígur en Shimon Perez
hlynntur.
ísraelska ríkisútvarpið greindi
frá því að Shamir hefði kvartað
undan íráfári samráðherra sinna
og sagt engin rök fyrir því að fsra-
elsstjórn tæki afstöðu til tillagn-
anna á undan leiðtogum araba-
ríkja. Þó blandast engum hugur
um viðhorf hans sjálfs. „Ég er
andvígur áætlun Shultz en ekki
manninum Shultz.“(!) Sam-
kvæmt hugmyndum títtnefnds
Shultz ber að efna til alþjóðlegrar
ráðstefnu um frið í löndunum
fyrir botni Miðjarðarhafs í næsta
mánuði og hefja samningavið-
ræður um framtíðarskipan mála á
svæðunum sem ísraelsmenn her-
námu í sex daga stríðinu árið
1967. Þetta eru Gazasvæðið,
vesturbakki Jórdanár og Gólan-
hæðir. Ekki er gert ráð fyrir því
að fulltrúar þorra Palestínu-
manna, PLO, standi í viðræðum
þessum og því hafa þeir vísað til-
lögunum á bug.
Talsmaður Israelshers skýrði
frá því í gær að fjórir Palestínu-
menn hefðu særst af völdum
gúmmíkúlna í róstum. Hefði
skorist í odda með dátum og ung-
mennum í þorpinu Tarkumijah á
vesturbakkanum.
í gærmorgun fór varnarmála-
ráðherrann Yitzhak Rabín árla á
fætur og tók sér ferð á hendur um
Gazasvæðið. Gaf hann sig á tal
við fréttamenn og sagðist sjá
augljós merki þess að uppreisnar-
gjarnir Palestínumenn væru
ótt formaður Kristilega dent-
ókrataflokksins, Chiriaco de
Mita, hafi einsog sakir standa
umboð Ítalíuforseta til stjórn-
armyndunar þá beinist athyglin
þar syðra sfður að honum en leið-
toga sósíalista, Bettino Craxi.
Craxi hefur komið ár sinni vel
fyrir borð á síðustu fimm árum
eða frá því hann tók að sér for-
ystuhlutverk í ríkisstjórn fyrra
sinni. Þótt hann hafi vikið úr sessi
fyrir Giovanni Goria eftir þing-
kjör í fyrrasumar var hann eftir
sem áður lykilpersónan í ítölsku
stjórnmáladrama. Því kærir al-
þýða manna sig kollótta urn
stímabrak de Mitas en veltir hins-
vegar vöngum yfir ráðabruggi
Craxis. Áhrif sósíalistaforingjans
birtust í hnotskurn nýskeð á for-
síðu tímaritsins „Panorama".
orðnir úrvinda af þreytu.
Vart kæmrá óvart þótt svo væri
því upppreisnin hefur staðið
sleitulaust frá níunda degi des-
embermánaðar í fyrra. Að
Hún skartar mynd af angistarfull-
um de Mita á bæn: „Almáttugur
guð. Mildaðu þel Craxis."
Orsök stjórnarkreppunnar í
fyrra var ágreiningur Craxis og
forystumanna Kristilega dem-
ókrataflokksins, de Mitas for-
manns og hins ráðkæna Giulios
Andreottis. „Kristilegir" féllust á
það með semingi að láta „tröllinu
frá Mílanó" eftir embætti forsæt-
isráðherra eftir afhroð í þing-
kosningum árið 1983. Hugðust
þeir einungis offra forsætinu um
stundarsakir eða uns þeir hefðu
sleikt sár sín og jafnað innri
ágreining.
En Craxi hélt prýðisvel á
spöðunum og óx hinum voldugu
keppinautum sínum gersamlega
yfir höfuð. Hann stýrði ítölsku
þjóðarskútunni í hartnær fjögur
ár og höfðu landsmenn ekki búið
minnsta kosti 100 Palestínumenn
hafa verið skotnir eða barðir til
bana en aðeins einn ísraelskur
hermaður hefur látið lífið.
Reuter/-ks.
við slíkt jafnvægi í stjórnmálum
frá stofnun lýðveldisins. Hann
þótti röskari og skeleggari en
„kristilegu" möppudýrin. Og
þótt flokkur hans sé aðeins peð í
samanburði við stórabróður,
fékk 14 af hundraði atkvæða í síð-
asta þingkjöri samanborið við 34
hundraðshluta de Mitas og fé-
laga, vill þorri áhangenda fimm
flokka stjórnarinnar að hann sé
skipstjórinn.
Þetta veit de Mita og hann fer
heldur ekki í grafgötur um að
Craxi verður þungur í taumi og
dýr í rekstri takist honum sjálfum
að banga fimm flokka klíkunni
saman til ríkisstjórnar. En varla
hefði hann tekið að sér jafn
seigdrepandi hlutverk lumaði
hann ekki á fáeinum trompum á
hendi? Trauðla er hann masókisti
eða hvað?
Ítalía
Craxi skyggir á de Mita
Chiriaco de Mita á úr vöndu að ráðaþvíerkifjandinn Bettino
Craxi er enn hálfgerður töfralœknir í augum ítalsks
almennings
Fimmtudagur 24. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17