Þjóðviljinn - 31.03.1988, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 31.03.1988, Blaðsíða 6
Guðs, Corpus Domini, sem hún sýnir fram svo hinir trúuðu megi færa honum fórn sína. Og María er ekki bara sú móðir sem leiddi Jesúbarnið og sinn eingetna son fyrir æðstaprestinn í eina tíð, heldur er hún líka ímynd hinnar heilögu kirkju, og skaut hennar er um leið fórnaraltarið, sem er undirstrikað af klæðaföllunum í pilsinu og heildarformi myndar- innar sem hefur lögun píramíð- ans. f sjálfum líkama Krists víkur hin hefðbundna ímynd þjáning- arinnar fyrir hinni ósnortnu og hreinu fegurð sem gefur til kynna guðdómlegt eðli þessa líkama sem falið er undir grímu dauðans. Við s jáum einnig í þessum líkama þá friðþægingu sem fórnardauði Krists veitir hinum trúuðu. /Eskublómi hreinleikans Hið unglega og hreina svipmót Maríu gefur henni tímalaust yfir- bragð sem andlegum veruieika frekar en líkamlegum. Samtíma- maður Michelangelos hafði eftir honum eftirfarandi skýringu á asskuhreinleika Maríu í þessari mynd: „Veistu ekki að þær konur sem búa við einlífi halda sér mun bet- ur en þær sem ekki lifa einar? Og þegar um er að ræða jómfrú, sem aldrei fær svo mikið sem freistingarhugboð, hversu breytir þac ekki líkamanum! Ekki nóg með það, slíkur ferskleiki og æsk- ublómi er ekki bara trúverðugur fyrir þær náttúrlegu aðstæður sem viðhalda honum, heldur fyrir þann guðdómlega verknað sem gerði honum kleift að sanna heiminum jómfrúrdóm og eilífan hreinleika Móðurinnar.“ „Móðir og jómfrú, dóttir sonar þíns...“ Á það hefur einnig verið bent að í mynd þessari sé Michelang- elo að opinbera þá tvöföldu þver- sögn sem birtist í lokasöng Hins guðdómlega gleðileiks eftir skáldið Dante Alighieri, þar sem heilagur Bernard biður Maríu af innileik að hún megi unna Dante þeirrar náðar að fá að sjá Guð augliti til auglitis. Bænin hefst á þessum orðum: Vergine madre, figlia del tuo figlio, umile e alta piú che creatura, termine fisso d'eterno consiglio, tu se‘ colei che 1‘umana natura nobilitasti si, che ‘I suo fattore non disdegno di farsi sua fattura. sem útleggst á slæmri íslensku: Jómfrú og móðir, dóttir sonar þíns, auðmjúk og öllum skepnum æðri, órjúfanlegur þáttur hins ei- lífa ráðs, Giorgio Vasari: Hin fullkomna fyrirmynd Þegar Drottinn himnanna miskunnaðí sig yfir ófullkomleik mannlegrar tjóningarog sendi hinafullkomnu fyrirmynd til jarðarinnar mönnunumtil eftirbreytni Giorgio Vasari var ættaöur frá Arezzo í Toscanahéraöi og var 36 árum yngri en Mic- helangelo. Hann var mikilvirk- ur málari og arkitekt, en er þó frægastur fyrir bók sína, „Líf listamannanna", þar sem raktar eru ævisögur ítalskra myndlistarmanna allt frá Cim- abue til Tizians. Af þeim er ævisaga Michelangelos ítar- legust og merkilegust, enda voru þeir nánir vinir á síðari æviárum meistarans. í stað þess að vitna til ólíkra heimilda skal hér birt lausleg þýðing á upphafinu að ævisögu Michelangelos eftir Vasari og frá- sögn hans af Pietá-styttunni. Frá- sögnin er dýrmæt heimild um mat samtímamanna á verkum meista- rans. Vasari hefur sögu sína á að segja frá því að þótt allir máls- metandi listamenn 15. aldarinnar hafi verið önnum kafnir við að sanna fyrir umheiminum snilli- gáfu sína í anda þeirrar endurnýj- unar sem Giotto og lærisveinar hans höfðu innleitt í ítalska myndlist á 14. öldinni, þá hafi viðleitni þeirra í flestum tilfellum verið unnin fyrir gíg. Síðan segir hann í lauslegri þýðingu: „Á þessum tíma varð hinum milda drottni himnanna litið í náð sinni niður til jarðarinnar og þú ert sú sem göfgaðir mann- legt eðli þannig að skapari þess lét það ekki hindra sig að gjöra sig í þess mynd. María er semsagt dóttir sonar síns, dóttir Guðs og um leið sú kona sem gerði mannlega náttúru þess verða að hún tæki á sig Guðs mynd í líkama Krists. Michelangelo er því að opin- bera í mynd sinni hinn yfirskilvit- lega leyndardóm trúarinnar, og hann gerir það með nýjum hætti þar sem hann leitar annars vegar til hinnar klassísku hefðar róm- verskrar og grískrar höggmynda- listar þar sem hin fullkomna ímynd fegurðarinnar situr í fyrir- rúmi og hins vegar til þess djúpa trúarlega skilnings sem hann hafði á viðfangsefninu. Hin fullkomna líkamlega feg- urð í mynd Krists og Maríu er því opinberun þess andlega veru- leika sem ekki verður skýrður öðruvísi en sem leyndardómur trúarinnar. t>að er reyndar athyglisvert að um svipað leyti og Michelangelo vann þetta verk var Leonardo da Vinci að gera mynd sína af Síð- ustu kvöldmáltíðinni, sem einnig er túlkun hans á umbreytingu Krists og þeim leyndardómi trú- arinnar að Guð skyldi taka á sig mynd mannlegs holds. Eymd leiðsögu- mannsins andspœnis hinu fullkomna listaverki Sá sem þetta ritar hefur meðal annars haft þá atvinnu í allmörg sumur að leiða íslenska ferða- menn fyrir þessa styttu þar sem Ljósmyndirnar sem fylgja þessari samantekt eru eftir Robert Hupka. Brjóstmynd af Michelangelo eftir Daniele da Volterra. 6 SÍÐA - ÞJÖÐVIUINN Páskablað

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.