Þjóðviljinn - 31.03.1988, Page 8
Ráðhildur
í Nýlista-
safninu
2. apríl, laugardaginn fyrir
páska kl. 16.00 opnar Ráðhildur
Ingadóttir myndlistarsýningu í
Nýlistasafninu að Vatnsstíg 3B.
Á sýningunni eru málverk unn-
in ýmist með olíu- eða akrýllitum
á síðastliðnu ári. Þetta er önnur
einkasýning Ráðhildar.
Sýningin verður opin kl. 16-20
á virkum dögum og kl. 14.-20 um
helgar og annan páskadag.
Róm, Feneyjar, Flórens, Verona, Gardavatnið, SanMarino ogsól
Þú slærð margarflugur í einu höggi á Rimini. Sólin, sjórinn og öll tilheyrandi
aðstaða er í takt við aðrar glæsilegustu sólarstrendur Evrópu, en Rimini hefur
líka afdráttarlausa sérstöðu, sem kryddar tilveruna og eykur fjölbreytnina
langt umfram það sem venjulega gerist á sólarströndum:
EINSTAKAR SKOÐUNARFERÐIR. 3ja daga Rómarferð, 2ja daga ferð til
Verona og Gardavatnsins, dagsferðir til Feneyja, Flórens og San Marino.
Hvar annars staðar bjóðast álíka ævintýri?
FRÁBÆRIR VEITINGASTAÐIR. Rimini-Riccione er eitt af höfuðvígjum
ítalskrar matargerðarlistar. Hérfinnurðu staði sem gefa bestu
veitingastöðum stórborganna ekkert eftir. Sparikvöldin slá í gegn!
mhtnuferdir
Landsýn
HEIMSFRÆGIR TÍSKUHÖNNUÐIR. Italskirtískuhönnuðir á borð við
Georgio Armani hafa opnað sínar eigin verslanir og hafa jafnvel bækistöðvar
sínar á Rimini. Tískuverslanir skipta hundruðum með fatnað eins og hann
gerist glæsilegastur um allan heim!
ÍTALSKT, ÓSVIKIÐ ANDRÚMSLOFT. Þú ert á grónum ítölskum stað með
aldagamla, ósvikna menningu, sem alls staðar finnst fyrir. Aðeins það gefur
Rimini-dvölinni ótrúlega mikla dýpt.
BARNAKLÚBBURINN OG ÍÞRÓTTAKLÚBBURINN bjóða upp áfjölbreytta
skemmtun; leiki, fþróttastarf og dansiböll fyrir alla aldurshópa!
RIMINI-RICCIONE - staður ungs fólks, fjölskyldufólks og eldra fólks.
Staðurallra þeirra sem vilja eina ferð með öllu.
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12-Sími 91-69-10-10
Hótel Sögu við Hagatorg • 91 -62-22-77. Akureyri: Skipagötu 14 ■ 96-2-72 00
Savignano a Mare
Bellaria - Igca Manna
Cervia • Milano Marittima
Ravenna eHe Sue Marine
Gatteoa Mare
San Mauro a Mare
Misano Adriatico
Lidi di Comacchio
Rimini
Riccione
Cattolica
Cesenatico
Adnatic Riviera of
Emilia - Romagna i Italy
Listasafn ASÍ
Guðbjartur
sýnir
fótógrafík
Nú stendur yfir sýning Guð-
bjarts Gunnarssonar á myndum
unnum með blandaðri tækni,
fótógrafík, í Listasafni ASÍ,
Grensásvegi 16.
Guðbjartur lauk kennaraprófi
1950 og síðar myndmenntakenn-
araprófi í Bandaríkjunum. Hann
stundaði kennslu um árabil, og
kynnti sér sjónvarps- og kvik-
myndatækni í Bretlandi og
Bandaríkjunum, þar sem hann
lauk háskólaprófi í fjölmiðla-
fræðum. Auk þess lærði hann
silkiprentun og ýmsa grafíska
tæknivinnu í tengslum við auglýs-
ingagerð.
Myndirnar sem Guðbjartur
sýnir að þessu sinni, eru byggðar
upp á Ijósmyndum, þrykktar á
mismunandi litan pappír og
handlitaðar með pastellitum.
Sjálf filmuvinnan við sýninguna
hefur staðið í heilt ár, enda að-
eins unnið við hana um kvöld og
helgar.
Sýningin er opin virka daga kl.
16.00-18.00 og kl. 14.00-20.00
um helgar, svo og skírdag og ann-
an í páskum. Föstudaginn langa
og páskadag er opið kl. 15.00-
20.00. Sýningunni lýkur 10. aprfl.
LG.
Kjarvalsstaðir
Jens sýnir
landslags-
myndir
Á laugardaginn kl. 14.00 opnar
Jens Kristleifsson sýningu lands-
lagsmynda í Vestursal Kjarvals-
staða.
Jens er fæddur í Reykjavík
1940, stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskólann í
Reykjavík og við Listaháskólann
í Kaupmannahöfn (1966-1967).
Hann sýndi fyrst opinberlega á
vorsýningunni á Charlottenborg
1967.
Jens segist áður hafa málað
landslagsmyndir, fyrst sem ung-
lingur, seinna eftir að hann út-
skrifaðist úr Myndlista- og hand-
íðaskólanum 1966. Loks lét hann
freistast til að reyna einu sinni
enn við landslagið fyrir nokkrum
árum.
Sýningin stendur til 17. aprfl og
er opin daglega kl. 14.00-22.00.
LG
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Páskablað