Þjóðviljinn - 10.04.1988, Blaðsíða 3
BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SlMI 27133
Annríki á flugvellinum í Frankfurt: þaö fer að sneiðast um gamanið og þægindin...
Bakhliðin á þœgindunum:
Himinninn
er yfirfullur
Einn daprasti söngur nútím-
ans er sá aö allsstaðar séu
menn að þvælast hverfyrir
öðrum. Borgireru of þéttsetn-
ar, bílar eru of margir til að fólk
komist áfram - og nú síðast er
of mikið á flugleiðir og flugvelli
lagt: afleiðingin er þá sú að
slysahætta magnast stórlega
og æ fleiri flugvélum seinkar.
Eins og allir vita eru flugsam-
göngur fyrir löngu almennings-
eign í efnaðri löndum. Farþegum
fjölgar mjög ört - kannski um
meira en 10 prósent á ári. En
þetta þýðir Iíka að í miklu þétt-
býli eins og t.d. í Vestur-
Þýskalandi, verður flugumferð
blátt áfram of þétt og álag á flu-
gvelli of mikið. Þýska flugfélagið
Lufthansa má bíta í það súra epli
að í fyrra seinkaði meira en
fjórðu hverri vél í áætlanaflugi. í
Bandarikjunum, þar sem rými er
miklu meira, er ástandið verra -
þar seinkaði þriðju hverri vél í
fyrra.
Lá við slysi
Enn er það sjaldgæft að flug-
vélar beinlinis rekist á, en líkurn-
ar stóraukast á hverju ári.
Flugumferðarstjórar eru víðast
hvar of fáir, álag á þá mikið og við
þéttar lendingar (40 til 70 flugvél-
ar á klukkustund á ýmsum
stærstu flugvöllum) aukast mjög
líkur á mannlegum mistökum
bæði hjá þeim og flugmönnun-
um. í fyrra gerðist það t.d. í
London að brautarljósabúnaður
bilaði samtímis á Gatwick og He-
athrow og leiddi þetta til ringul-
reiðar sem nærri hafði orðið til
þess að tvær stórar farþegaþotur
rækjust á. í fyrrahaust bilaði allur
radarbúnaður á flugvellinum í
Það er flugstjórinn sem talar, dömur mínar og herrar. Ég þakka þolín-
mæðina og hef þann heiður að tilkynna að við erum nú númer fjögur í
biðröð eftir flugtaki...
Frankfurt (varabúnaður líka) og
stóð sú skelfing í tvær mínútur -
sú uppákoma leiddi ekki til slysa,
ekki í það skiptið, en svo mikið er
víst að það tók heilan dag að
greiða úr þeim flækjum sem
skapast höfðu á flugvellinum
þennan stutta tíma.
Meira er verra
Þessar þrengingar í loftinu eru
þegar farnar að koma niður á ein-
kaflugi. Til dæmis er verið að
taka þann sið upp í Vestur-
Þýskalandi, að einkaflugmenn
tiíkynni það með dags fyrirvara
að þeir ætli að fá sér lyftingu. Og
fer þá heldur að sneiðast um
ánægjuna af því frelsi sem
eigendur einkaflugvéla hafa ver-
ið að sækjast eftir.
Flugsamgöngur, að minnsta
kosti í ríkasta og þéttbýlasta hluta
heims, virðast komnar að vaxtar-
takmörkum. Það er að segja:
saga bflsins endurtekur sig - með-
an fjöldi bíla er takmarkaður
verður fátt þeim til trafala, þegar
bfllinn er almenningseign orðinn
getur umferðin orðið svo mikil að
allir sitja fastir. Og að því er flug
varðar kemur þetta nú þegar nta.
fram í því að einkaflug verður
síður eftirsóknarvert en áður og
áætlanaflug leggst niður á styttri
vegalengdum: sumir eru meira að
segja að uppgötva ágæti harð-
skreiðra járnbrautarlesta aftur.
Þessi þróun er samt mjög tak-
markað svar við þeim vanda sem
hraðvaxandi fjöldi flugfarþega
er: en því er spáð að þeim eigi
eftir að fjölga um helming í okkar
heimshluta fram að aldamótum.
JAPISC
PANASONIC
PANASONIC KYNNIR NÝJA
ÁHRIFAMIKLA RYKSUGU í
BARÁTTUNNI VIÐ RYKIÐ.
1000 VÖTT.
TVÍSKIPTUR VELTIHAUS.
HÓLF FYRIR FYLGIHLUTI
í RYKSUGUNNI.
INNDRAGANLEG SNÚRA.
STIGLAUS STYRKSTILLIR.
RYKMÆUR FYRIR POKA.
OG UMFRAM ALLT
HLJÓÐLÁT, NETT OG
MEÐFÆRANLEG.
VERÐ AÐEINS KR. 6.980.
1000VATTA
HÖRKUTÚL
FRÁ